Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp

Advertise on podcast: Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp

Rating
5
from
2 reviews
This podcast has
28 episodes
Language
Publisher
Explicit
No
Date created
2020/03/13
Average duration
78 min.
Release period
35 days

Description

Bókaspjall. Rætt um og farið yfir bækur í ýmsum flokkum. Saga, heimspeki, tækni, heilsa o.fl. Bókabræður skora á alla að lesa komandi bók og taka þátt í lærdómsferli hverrar bókar.

Podcast episodes

Check latest episodes from Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp podcast


#028 : Factfulness - Hans Rosling
2022/04/13
Tíu ástæður fyrir því að við sjáum heiminn í röngu ljósi. Heimurinn er betri en þú heldur og höfundur sýnir fram á það með tölfræðilegum staðreyndum. Hans Rosling ásamt Ola Rosling og Önnu Rosling Rönnlund telja upp þau atriði sem helst valda því að við sjáum heiminn í oft verra ljósi en hann er.  Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar.
more
#027 : The Simple Path to Wealth - JL Collins
2022/03/23
Your road map to financial independence and a rich, free life. Einfaldur leiðavísir á mannamáli inn í fjármálaheiminn sem allir geta fylgt. Hvar á að fjárfesta, hvers vegna, hvaða áætlun er hagkvæmust og hvaða kostir og gallar eru við hinar ýmsu fjárfestingarleiðir. Þetta og margt fleira byggir höfundurinn á áratuga reynslu í fjármálaheiminum sem honum tekst að miðla á mjög aðgengilegan máta. Hvort sem þú ert með reynslu eða að stíga þín fyrstu skref, þá er þessi bók góður leiðavísir að fjárhagslegu sjálfstæði og hvernig þú getur komið þér upp "F-You Money". Tekið upp í Rabbrýminu, upptökuveri Bókasafns Hafnarfjarðar.
more
#026 : Digital Minimalism - Cal Newport
2022/03/14
Choosing a Focused Life in a Noisy World Erum við að nota tæknina eða er tæknin að nota okkur? Samfélagsmiðlar, netmiðlar, streymisveitur og stöðugt aðgengi að upplýsingum hefur breytt lífsstíl okkar töluvert. En hverjar eru neikvæðu afleiðingarnar? Hvað ættum við að gera? Cal Newport leggur til að takmarka aðgengi okkar að þessum efnisveitum með góðum og gagnlegum ráðum. 
more
#025 : Life Force - Tony Robbins, Peter Diamandis & Robert Harari
2022/03/02
How New Breakthroughs in Precision Medicine Can Transform the Quality of Your Life & Those You Love. Þessi þétta bók fer yfir flest það sem viðkemur því að lifa lengur, sjúkdómalaus og eymslalaus. Tæknin í dag lofar ótrúlegum framförum í læknavísundum sem er farið vel yfir. Læknigar á krabbameini, Alzheimer, hjartasjúkdómum, erfðasjúkdómum, öldrunarsjúkdómum, ræktun líffara og ótal öðru er hratt að ryðjast fram. Þekking er máttur og hér er frábær handbók um undur tækninnar sem allir ættu að geta haft gagn af.
more
#024 : AI 2041 - Kai-Fu Lee & Chen Quifan
2021/12/06
AI 2041 - Ten Visions for Our Future Gervigreind (AI) mun móta þróun 21. aldarinnar. Innan tveggja áratuga mun daglegt líf verða gjörbreytt. Í þessari bók eru settar fram 10 dæmisögur úr framtíðinni með vísindalegum skáldskap og greiningu á þeirri tækni sem er að brjótast fram. Hvað getum við lært? Hvernig getum við undirbúið okkur fyrir allt það góða og slæma sem þessi bylting stefnir í að færa okkur?  
more
#023 : Why We Sleep - Matthew Walker
2021/11/20
Einn mikilvægasti, og oft vanmetnasti hluti góðrar heilsu er án efa svefninn. Matthew Walker, svefn-vísindamaður, tekur fyrir allt sem tengist svefni í þessari mikilvægu bók og opinberar ný vísindi um allt sem tengist svefni og draumum. Mismunandi stig svefns, draumar, ábatar góðs svefns og öll þau lífsstíls vandamál sem slæmar svefn venjur geta haft á heilsu okkar, langlífi, geð og framistöðu.
more
#022 - Breath (James Nestor) & The Oxygen Advantage (Patrick McKeown)
2021/10/25
Hvernig við öndum er eitthvað sem fæstir pæla sérstaklega í þó svo að hún sé það sem heldur okkur á lífi. Hvernig við öndum skiptir miklu máli; hvort við öndum inn um nefið eða munninn, hversu oft við öndum, hve djúpt ofl. Bækurnar tvær, sem ræddar eru í þessum þætti, taka sama viðfangsefni en mismunandi nálgun. Báðar leitast þær við að leiðrétta heilsukvilla sem munnöndun getur ollið og útlista öndunaræfingar, sjálfspróf og aðferðir sem geta hjálpað okkur með allt það sem titill Oxygen Advantage gefur til kynna. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, hlaðvarpsrými Bókasafns Hafnarfjarðar.
more
#021 : Talking To Strangers - Malcom Gladwell
2021/09/10
Í bókinni Talking To Strangers veltir höfundurinn því fyrir sér hvers vegna við eigum það til að misskilja hvort annað í samskiptum okkar. Hvers vegna eigum við það til að trúa þeim sem eru óheiðarlegir? Hvað veldur því að við dæmum fólk ranglega?  Stundum verða afleiðingar þess að við skiljum ekki ókunnuga, eða drögum rangar ályktanir, skelfilegar og að því er virðist ófyrirsjáanlegar. Malcom Gladwell tekur margar dæmisögur úr nútímanum tengt efni bókarinnar og varpar fram kenningum um samhengi umhverfis og aðstæðna (coupling). Þátturinn var tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar.
more
#020 : So Good They Can't Ignore You - Cal Newport
2021/08/19
Cal Newport, höfundur bókarinnar, skorar á lesandann til að endurskoða hin algengu meðmæli sem eru að ,,elta ástríðu sína” þegar kemur að starfsferli og kemur með aðra nálgun. Hann heldur því fram að elta ástríðuna sína sé gölluð hugmyndafræði. Ef þú vilt gera það sem þú elskar, þarftu eitthvað sem er sjaldgæft og dýrmætt (career capital) á móti. Góð leið til að ávinna þér starfsframa inneign (carreer capital) er að tileinka sér handverks hugarfar (craftsman mindset) og einsetta æfingu (deliberate practice). Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar
more
#019 : The Art of Resilience - Ross Edgley
2021/07/01
Íþróttafræðingurinn og ævintýra-íþróttamaðurinn Ross Edgley er hér með sína aðra bók. Hann lýsir upplifun sinni af því að synda umhverfis Bretlandseyjar árið 2019 og deilir hugleiðingum sínum á leiðinni ásamt því að fara yfir undirbúningsferlið, heimspekina á bakvið Stoic Sport Science, afrekssögur sem hann byggir sína þekkingu á og aðrar reynslusögur. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar
more
#018 : How To Avoid a Climate Disaster - Bill Gates
2021/06/11
Hlýnun Jarðar og allt það ójafnvægi sem mengun mannsins hefur valdið á síðustu áratugum er að ná þolmörkum. CO2 útblástur er nú um 51 milljarðar tonna á ári hverju og fer hækkandi. Afhverju? Hvað er hægt að gera? Hvernig? Hvenær? Hvað átt þú að gera í því? Þessum spurningum og fjölda annara reynir Bill Gates, í bók sinni ,,How To Avoid a Climate Disaster", að svara. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, Bókasafni Hafnarfjarðar
more
#017 : Beyond Order - Jordan B. Peterson
2021/03/31
Hér ræðum við nýjustu bók Jordan Peterson, Beyond Order. Bókin er rituð sem mótvægi við hans fyrri bók, 12 Rules For Life - An Antidote for Chaos (sem við ræddum um í þætti #012). Með sína gríðarlega yfirgripsmiklu þekkingu og reynslu af klínískri sálfræði og sagnfræði að baki hefur JP dregið saman 12 nýjar reglur fyrir lífið. Bókin er hugsuð sem leiðarvísir að innihaldsríku og merkingarfullu lífi. Bókin er í góðum samhljómi við hans fyrri 12 reglur en þó með áherslu óreiðuna vs of mikillar reglu. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, hlaðvarps upptökuveri Bókasafns Hafnarfjarðar.
more

Podcast reviews

Read Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp podcast reviews


5 out of 5
2 reviews
Hlynur hlust-önd 2020/10/18
Geggjað podcast!!
Alveg æðislegt podcast og einmitt það sem mig vantaði í líf mitt, geggjuð hugmynd hjá ykkur og virkilega vel unnið!!!
check all reviews on aple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Bókabræður - Bókaklúbbs hlaðvarp & sponsor relevant audience podcasts


What do you want to promote?

Ad Format

Campaign Budget

Business Details