Draugasögur

Advertise on podcast: Draugasögur

Rating
5
from
22 reviews
Categories
This podcast has
174 episodes
Language
Publisher
Explicit
Yes
Date created
2020/06/03
Average duration
30 min.
Release period
18 days

Description

Podcast um atburði og staði sem þekktir eru fyrir draugagang. Þættirnir eru framleiddir af Ghost Network ehf.® Finndu fleiri podcöst frá Ghost Network inná www.ghostnetwork.is Hjónin Stefán John og Katrín halda halda úti hlaðvarpinu Draugaösgur Podcast en þau eru jafnframt helstu drauga sérfræðingar Íslands. Þau hafa hjálpað tugi fjölskyldna hérlendis að fást við draugagang og heimsótt og rannsakað frægustu draugahús í heimi þar á meðal Conjuring Húsið og Shrewsburry Fangelsið. Fylgdu okkur á þinni hlaðvarpsveitu og á samfélagsmiðlum undir draugasogurpodcast. Við höldum einnig úti heimasíðunni www.draugasogur.com Viltu fleiri Draugasögur? Skoðaðu áskriftarsíðuna okkar www.patreon.com/draugasogur

Podcast episodes

Check latest episodes from Draugasögur podcast


Boise Murder House (í fullri lengd)
2024/02/23
SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga! -Enging binding!https://www.patreon.com/draugasogur Hversu oft hefur þú gengið inní hús og fundið á þér að það er eitthvað....off? Eitthvað ekki alveg eins og það á að vera? Í dag ætlum við að segja ykkur frá merkilegu húsi í bænum Boise í Idaho í Bandaríkjunum. Það hafa margir flutt þangað inn og reynt að búa þarna.... en enginn stoppar lengi...... það er eitthvað að þessu húsi.... einhver minning, eitthvað atvik sem vill ekki gleymast..... Verið velkomin í Boise Murder House! SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga!
more
Ashley´s of Rockledge (í fullri lengd)
2024/02/20
SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga! -Enging binding!https://www.patreon.com/draugasogur Í dag ætlum við að ferðast til Flórída og skoða söguna á bakvið veitingastaðinn Ashley´s of Rockledge og þá anda sem þar er að finna..... Þann 21. október árið 1934 fannst lík konu skammt frá í hrottalegu standi. Hér er um að ræða 19 ára stúlku sem hét Ethel Allen og er talið að hún hafi verið myrt inná veitingastaðnum áður en morðinginn losaði sig við lík hennar á ströndinni. Í dag telja eigendur og starfsfólk að andi hennar gangi þarna aftur inná staðnum og stundum er eins og hún sé að reyna að ná athygli þeirra, eins og hún vilji segja þeim eitthvað. Mögulega hvernig hún var myrt því að málið hennar en enn óupplýst í dag.... En það eru líka fleiri andar sem fara þarna á stjá þegar myrkrið skellur á... Verið velkomin á veitingastaðinn Ashley´s of Rockledge! SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga!
more
Houska Kastalinn (í fullri lengd)
2024/01/07
Houska Kastalinn (í fullri lengd) SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga! -Enging binding!https://www.patreon.com/draugasogur Komdu með okkur á stað þar sem martraðir verða að veruleika og tíminn stendur í stað. Er þú nálgast finnur þú að loftið verður þrúgandi og lykt af brennisteini og rotnun umvefur þig. Hlið Houska kastalans er sópað til hliðar af óséðum höndum og býður þér inní heim þar sem draugar og skuggaverur dansa fram á nótt. Sögusagnir og hvísl fléttast saman, um myrka helgisiði sem þarna voru stundaðir þar sem kastalinn er sagður hafa verið byggður ofaná hlið undirheimanna þar sem djöflar og aðrar skuggaverur reyndu að komast í gegn. Stígðu inní myrkrið, á eigin ábyrgð, þar sem leyndardómar Houska kastalans bíða þín!!! SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga!
more
Elbow Road (í fullri lengd)
2024/01/07
Elbow Road (í fullri lengd) SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga! -Enging binding!https://www.patreon.com/draugasogur Fyrir íbúa Virgina Beach er Elbow Road vegurinn svikul martröð jafnvel á björtum sumardögum. Vegurinn kemur oft í fréttum þar sem verið er að lýsa banvænum bílslysum sem hafa skilið eftir marga eirðarlausa anda á veginum.  Hörmungarnar sem hafa gerst á svæðinu eru svo miklar að það er fólk sem forðast veginn algjörlega ef það getur.....  Verið velkomin á Elbow Road!  SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga!
more
Húsið í Lewiston (í fullri lengd)
2024/01/06
Húsið í Lewiston (í fullri lengd) SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga! -Enging binding!https://www.patreon.com/draugasogur Hér ætlum við að segja ykkur frá hjónum sem kaupa sér nýtt og stórt hús, tilbúin að stofna fjölskyldu en það er eitthvað þarna inni sem er ekki alveg tilbúið að sleppa taki og það sama má segja um fyrverandi eigandann.  Þetta mál hefur verið gert opinbert. Við vitum að það hafa hinir og þessir sjónvarpsþættir tekið það fyrir, og það eru örfáar greinar á netinu sem gefur manni smá hugmynd um hvernig þessi atburðarrás fór fram.  En vitum samt ekki nákvæmlega hvaða hús þetta var, eða alvöru nöfn fólksins sem um ræðir en það þýðir samt ekki að sagan sé ekki sönn.... Hún gerðist, fyrir ósköp venjulegt fólk.  SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga!
more
Undrin á Saurum (í fullri lengd)
2024/01/06
Undrin á Sarum (í fullri lengd) SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga! -Enging binding! https://www.patreon.com/draugasogur Í dag er þátturinn með aðeins öðruvísi sniði en vanalega þar sem um er að ræða íslenska draugasögu. Málið er frægt og mætti kalla það þekktasta á 20. öldinni. Við erum stödd á norðurlandi, þar sem blaðamenn flykktust að í von um að geta tekið myndir af hryllingnum og sumir blaðamenn fengu mun meira en þeir áttu von á. En inn á heimilinu var saklaus fjölskylda sem vildi ekkert annað en að vera látin í friði en ásóknin hafði allt annað í hyggju.. Verið velkomin í Undrin á Saurum SMELLTU HÉR og Prófaðu áskrift af Draugasögum FRÍTT - í 7 daga!
more
Halloween Þátturinn 🎃
2023/10/14
Þessi þáttur kom upprunalega út fyrir áskrifendur í október 2022 Október mánuður er hafinn, myrkrið er skollið á og við erum öll að undirbúa okkur undir dimma og drungalega mánuði sem eru framundan.  En í tilefni af Halloween og Ghostóber-mánuði þá langar okkur að kafa dýpra ofan í uppruna hátíðarinnar. Af því að veist þú raunverulega hvaðan þessi hátíð kom og um hvað hún snýst?  Engar áhyggjur, þú átt eftir að vita allt sem þú þarft eftir þennan þátt og mögulega áttu eftir að setja kerti og rófu útí gluggann þetta árið, í staðin fyrir grasker fyrir utan hurðina ;)  Verið (hryllilega) velkomin í Halloween þáttinn okkar!  Heimildir sem við studdumst við fyrir gerð þáttarins koma aðalega frá history.com og svo höfum við að sjálfsögðu lesið mikið í gegnum árin :):) 🎃🎃🎃 Komdu í Halloween Áskrift: Smelltu HÉR 🎃🎃🎃🎃 Ghostbox.isSannar Íslenskar Draugasögur
more
Seaford Poltergeist
2023/09/24
(VIRAL saga ) The Seaford poltergeist var ásókn sem að herjaði á fjölskyldu í Seaford Long Island New York árið 1958. Hlutir voru að hreyfast úr stað. Tappar voru losaðir af flöskum og svo hellt úr þeim, húsgögnin fóru á flug en engin eðlilega ástæða var fyrir þessum atvikum. Paranormal rannsakendur og aðrir sérfræðingar voru fullvissir um að allt þetta tengdist 12 ára gömul dreng sem að bjó þarna á heimilinu. En efasemdamenn vildu meina að þetta væri gabb... Við skulum kafa ofaní málið í dag.... Verið velkomin á heimili Hermann fjölskyldunnar..... Fáðu aðgang að yfir 500 þáttum STRAX: HÉR Kíktu á úrvalið á GHOSTBOX.IS og fáðu afslátt af öllum vörum HÉR Myndir sem fylgja þættinum eru aðgegnilegar á Umræðuhóp okkar á Facebook
more
West Village Veitingastaðurinn
2023/08/27
Smelltu HÉR til að prófa Patreon Áskrift FRÍTT í 7 daga Smeltu HÉR til að prófa Spotify Áskrift (🔒) Í hjarta hinnar iðandi New York borgar er hverfið West Village. Þegar þú ráfar um þetta fallega svæði, víkja háir skýjakljúfrar borgarinnar fyrir fallegum steinsteyptum stígum og húsin eru öll svolítið gamaldags. En inní þessu hverfi er eitt ákveðið draugahús og þegar við nálgumst það tökum við eftir því að það er gamallt og veðrað. Þarna inni halda sig að minnsta kosti 20 andar sem hvísla sín á milli á meðan gestir sitja og snæða.... Verið velkomin á West Village veitingastaðinn! Smelltu HÉR til að skoða myndirnar sem fylgja þættinum
more
McRaven Setrið (áskriftarprufa)
2023/08/23
McRaven Setrið Í hjarta Missisipi stendur þetta hús sem í fyrstu virðist vera pínulítið, en þegar maður gengur nær sér maður að það leynir heldur betur á sér. Hvert einasta herbergi, hvert einasta rými þarna inni er sérstakt og ef við hlustum vel getum við heyrt í þeim ganga um gólf og sinna sínum daglegu skyldum jafnvel þó að við sjáum ekki neinn. Ræninginn Andrew Glass heldur áfram að vera með læti, fastur á milli lífs og dauða. Mary Elizabeth sem var hrifsuð burt í blóma lífsins lokkar börn inní herbergið sitt og svo er það saga Murray systrana sem fléttast inní þetta allt saman..... Verið velkomin á McRaven Setrið.....
more
Fort Garry Hótelið
2023/08/16
Smelltu -> PATREON ÁSKRIFT Smelltu -> SPOTIFY ÁSKRIFT Staðsett í hjarta Winnipeg, Kanada, stendur glæsilegt lúxus hótel. Iðandi götur eru allt í kring, hverfið er fullt af lífi og áin Assinibone sem er aðeins nokkrum skrefum frá hlykkjast í gegnum borgina. Hinu megin við er svo að finna friðsælann almenningsgarð sem er algjör andstæða við þær skelfilegu sögur sem leynast innan um veggja hótelsins. Þeir sem hafa rannsakað þetta hótel segja að á kvöldin breytist það í stað þar sem fortíð mætir nútíði en það eru þó einungis þær hugrökku sálir sem þrauka alla nóttina, sem fá að afhjúpa leyndardóminn sem leynist þarna inni.... Verið velkomin á hið óhuggulega Fort Garry hótel!
more
Kellie's Kastalinn
2023/08/13
Í hjarta suðaustur Asíu liggur land hjúpað fornum leyndardómum – Malasía. Frá þéttum regnskógum til iðandi borgar, þá er þetta í kjarnann dularfullt land þar sem sögur af ójarðnenskum verum sem reika um landið djúpt inní þéttum frumskóginum hafa gengið á milli kynslóða.... Flökktandi kertaljós á ekki roð í myrkrið sem umlykur allt í kringum hann og gefur skuggaverum fullkomið tækifæri til þess að laumast á milli herbergja óséðar á meðan þær bíða eftir komu þinni...... Verið velkomin í Kellie´s Kastalann! Selltu á hlekkina hér að neðan sem við nefnum í þættinum svo við getum haldið áfram að gefa út fría þætti á opnum hlaðvarpsveitum og vertu með mörghundruðum annara ánægðra hám-hlustenda :) 🟢 Draugasögur Áskrift á Spotify 👻 Draugasögur á PATREON 🟢 Mystík Áskrift á Spotify 🫣 Mystík á PATREON Engin binding og þú getur hætt hvenær sem er ! :) Takk fyrir stuðninginn og við vonum að þú haldir áfram að hlusta *Til þess að sjá myndir sem fylgja þættinum komið þá og verið með í umræðuhópnum HÉR
more

Podcast reviews

Read Draugasögur podcast reviews


5 out of 5
22 reviews
Agnessvava 2021/01/23
🙏🏻
Varð hooooked! Eftir fyrsta þáttinn! Það er greinilegt að mikil vinna er lögð i hvern þátt! Eitt af bestu podcöstum sem eru á landinu klárlega 🤩👌🏻
Aníta Rún 2020/07/17
10/10
Katrín og Stefán eru æðisleg saman og svo flottir sögumenn! Maður festist alveg inn í hvern einasta þátt! Takk fyrir mig! 🙏🤩
ypuiukjg 2020/07/15
Vááá
Flottustu Podcast þættir sem ég hef heyrt 🥰
sigrungroa 2020/07/03
Hámhlustaði á alla þættina á einum degi!
Sturlað góðir þættir! Mæli með. Langar í meira 😄
check all reviews on aple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Draugasögur & sponsor relevant audience podcasts


What do you want to promote?

Ad Format

Campaign Budget

Business Details