Frú Barnaby - Hlaðvarp Lóu og Móu

Advertise on podcast: Frú Barnaby - Hlaðvarp Lóu og Móu

Rating
5
from
1 reviews
Categories
Country
This podcast has
55 episodes
Language
Publisher
Explicit
No
Date created
2020/04/06
Average duration
96 min.
Release period
19 days

Description

Hlaðvarp um Barnaby, Díönu prinsessu og allt þess á milli.

Podcast episodes

Check latest episodes from Frú Barnaby - Hlaðvarp Lóu og Móu podcast


Frú Barnaby: S5E8 - Berrassaður í Birckenstock
2022/06/10
Lóa og Móa eru mættar í Kanínuholuna til að taka upp síðasta þátt seríunnar. Þær eru í sumarskapi með sumarmjöð í glasi og ræða það sem er efst á baugi þessa daganna svo sem félagskap sinn í aðdáendahópi Barnaby, sveppir, mýs og morgunfrúr. Leynigestur laumast inn með rúv-passa um hálsinn og leggur orð í bauk. Þetta hefur verið lærdómsrík sería og þær stöllur eru spenntar að halda inn í sumarið með gott veganesti frá garðgúrúinum Monty Don. Gleðilegt sumar og heyrumst síðar. Móa og Lóa
more
Frú Barnaby: S5E7 - Sticky toffee pudding
2022/04/12
Frú Barnaby fékk til sín góðan gest frá fyrirheitna landinu, en það er hann Aron Már Ingham Grímsson. Aron leiðir okkur í sannleika um menningarheim Midsomer, en við spjöllum saman um blásíldina og gamla breta. Nú Aron segir okkur einnig frá lystisemdum breskrar matargerðar sem hefur oft á tíðum verið vanmetin í gegnum tíðina. Lóa og Móa hlusta á átekta og bíða spenntar eftir heimsfrægðinni sem mun fylgja því að frúin gerist alþjóðleg, en þátturinn er á ensku að þessu sinni!
more
Frú Barnaby: S5E6 - Beðmál í Borgartúni
2022/04/06
Þá er komið að því! Stöllurnar sívinsælu láta loks í sér heyra eftir annasamar vikur. Afmælishátíðarhöld, vídeókvöld og hámhorf hafa verið í forgangi. En nú er danskortið autt og þær Móa og Lóa gefa sér tíma til að skeggræða þetta alltsaman fyrir ykkur til að njóta. Díönuhornið er í forgrunni í þessum þætti en einnig taka þær fyrir Borgartúnsþættina geysivinsælu og svo fá garðyrkjugullfræin og galdrabaunirnar að fljúga inn á milli. 
more
Frú Barnaby: S5E5 - Húðflúrs húllumhæ
2022/03/16
Marglyttan og ansjósan brjótast út úr heilaþokunni hressari enn nokkru sinni fyrr, enda er afmælismánuður Frú Barnaby genginn í garð. Hátíðarhöld eru margvísleg, en þau hefjast á einkaþotuflugi. Fyrsti áfangastaður er húðflúrstofa, annar er heimili Kardashian fjölskyldunnar en ferðinni lýkur með lúxuslúr meðan vinir og vandamenn reiða fram veitingar.
more
Frú Barnaby: S5E4 - Flagð undir fögru skinni
2022/02/24
Fimmtugasti og fyrsti þátturinn af þessu bulli - gjörið svo vel!
Frú Barnaby: S5E3 - Júbbíleum
2022/02/08
Móa og Lóa eru mættar í júbíleum hátíðarhöld drottningarinnar Jónu - sem slær upp konunglegri veislu. Veitingarnar eru ekki af verri endanum en við nýtum tækifærið til þess að smakka nýja Royal búðinginn og kveða upp dóm. Margt ber á góma, bókaútgáfa, söfnunarárátta, starfsumhverfi myndlistarmanna - og engar áhyggjur, það er slúðrað! Nú Jóna hvetur hlustendur til vera þau sjálf, gera það sem þau vilja, gefa út bók, tala íslensku og heilsast með sleik.
more
Frú Barnaby: S5E2 - Marglyttan og ansjósan
2022/02/02
Upp komst um hlaðvarpsnjósnir handritshöfunda Midsomer þáttanna þegar tvær miðaldra áhugakonur um galdra og hlaðvarpsþáttagerð skutu upp kollinum í nýjasta þætti Herra Barnaby. Nú við Lóa og Móa látum þetta ekki á okkur fá né hinar ýmsu veirur sem herja á okkur. Hins vegar tökum við á öllum helstu deilumálum samtímans og reynum að gera okkur upp skoðanir á þeim. Veigarnar eru af dýrari kantinum hér í stúdíóinu, verst er þó að sleepy time teið virðist hafa svæft þáttastjórnendur í beinni þannig við getum ekki borið ábyrgð á lokamínútum þáttarins -- bonne nuit 
more
Frú Barnaby: S5E1 - Urður, verðandi og skuld
2022/01/21
Enn og aftur rís frú Barnaby eins og fönix úr ösku og fagnar nú fyrsta þætti fimmtu seríu - hverjum hefði dottið það í hug? Lóa og Móa eru komnar í spádómssokkana og segja okkur hvað næsta ár hefur upp á að bjóða. Þær lesa í Tarot-spilin, ræða pláguna margrómuðu, cocoa-puffs og íslenska sumarbústaðinn í Afríku. Stormurinn blæs fyrir utan stúdíó barnaby og lægðin leggst yfir þær stöllur eins morðóður flóðhestur. 
more
Frú Barnaby: S4E10 - Hálfmánaverksmiðjan
2021/12/21
Nú er sko aldeilis handagangur í öskjunni, en þær Lóa og Móa eru ekki í stúdíó Barnaby í þessum þætti. Því þær stöllur eru búnar að binda á sig svunturnar og hella sér í hálfmánagerð. Í þessum lokaþætti seríunnar ber margt á góma á meðan þær baka vandræðin; Bítlarnir, umhverfisvænar jólagjafir, ímynduð Afríska hálfmánaverksmiðja, ömmur og langömmur. Mitt í öllu jólastressinu, er gott að setjast niður, baka í rólegheitunum og dreypa á öli. 
more
Frú Barnaby: S4E9 - Með í jól í hjarta
2021/12/07
Jólaenglarnir Lóa og Móa eru mættar á jólalínuna og eru með lausnir við öllum ykkar jólavandamálum. Þær veigra sér ekki við að leita til sérfræðinga og fá einn slíkan, heiðursjólasveinninn, Arnar Eggert Thoroddsen sem veitir okkur og hlustendum ráðgjöf hvað varðar afþreyingu yfir jólahátíðarnar. Margt ber á góma hjá þríeykinu; Boney M, Elf, bransinn og majónes. Félagsfræðingurinn sötrar malt og appelsín, setur upp Barnaby gleraugun og greinir jólahefðirnar í öreindir. Um leið uppljóstrar hann ýmsum fyndnum sögum úr heimilislífi hans og ástkonu hans. Jólin nálgast og ekki er laust við eftirvæntingu í stúdíóinu og utan þess. 
more
Frú Barnaby: S4E8 - Jólastjörnurnar
2021/11/30
Í þessum fyrsta aðventuþætti sitja vinkonurnar Lóa og Móa ekki auðum höndum. Þær eru vopnaðar rúmfóbæklingi, vír, skærum og límbyssu því jú það er komið að föndurstund. Þær ræða þess á milli sögulegt jólaföndur og dónalegar piparkökur sem búa í rykugum piparkökuhúsum. Díönuhornið sígilda er á sínum stað en fjölskyldan er auðvitað alltaf við sama heygarðshornið þarna suðurfrá. Síðast en ekki síst opna þær fyrir svokallaða Jóla-línu, þar sem hlustendur geta sent inn jólatengd vandamál sem þær stöllur leysa úr með sinni alkunnu snilli. Þessi einstaki jólaþáttur er kostaður af Kanínuholunni - fornbókaveröld þar sem jólaandinn á heima.
more
Frú Barnaby: S4E7 - Hneyksli og hleypidómar
2021/11/23
Galvaskar og undirbúnar hlaðvarpsgerðarkonur eru mættar hér í stúdíó Barnaby. Í hlaðvarpinu þar sem allt er hugsað og ekkert er sagt taka orðin þó að streyma stríðum straumum og umfjöllunarefnin eru hneykslanleg: fordómar, framhjáhöld, kvenfyrirlitning og nektarsumarbúðir fyrir fólk sem vill vera í fötum. Nú svo fara heilasellurnar aldeilis á flug þegar þær stöllur sjá fyrir sér að ríkisvæða klámbransann eins og hann leggur sig. Við skulum ekki gleyma að rót alls ills er árans kapítalisminn og þær velja einn kapítalískan púka og hlæja að honum.
more

Podcast reviews

Read Frú Barnaby - Hlaðvarp Lóu og Móu podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Frú Barnaby - Hlaðvarp Lóu og Móu & sponsor relevant audience podcasts


What do you want to promote?

Ad Format

Campaign Budget

Business Details