Góðar sögur

Advertise on podcast: Góðar sögur

Rating
5
from
6 reviews
Country
This podcast has
27 episodes
Language
Explicit
No
Date created
2020/03/24
Average duration
88 min.
Release period
17 days

Description

Góðar, fyndnar, jafnvel sorglegar en umfram allt einlægar sögur af góðu fólki á Reykjanesi. Umsjón er í höndum Dagnýjar Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Suðurnesja og unnið af starfsmönnum Heklunnar, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness. Alla þætti má nálgast á reykjanes.is og facebook.com/godarsogur

Podcast episodes

Check latest episodes from Góðar sögur podcast


Hólmfríður Árnadóttir
2021/09/15
Hún flutti til Suðurnesja fyrir fimm árum síðan og tók þar við stöðu skólastjóra Ssand, hún brennur fyrir velferðarmálum og er alveg einstaklega jákvæð. Við ræddum við Hólmfríði um lífið á Suðurnesjum, sakamálasögur, vegahlaup og að sjálfsögðu um pólitíkina.
more
Birgir Þórarinsson
2021/09/15
Hann þótti villingur og ekki líklegur til að verða guðfræðingur og virðulegur þingmaður. Það má segja að hann sé 19 aldar maður í hjarta. Hann er strandamaður, óðalsbóndi á Knarranesi á Vatnsleysuströnd þar sem eitt sinn varð til ríkisstjórn. Þar hefur hann byggt sé kirkju. Við ræddum við Birgi Þórarinsson um Keflavík, trúna og að sjálfsögðu pólitíkina.
more
Vilhjálmur Árnason
2021/09/10
Hann var flutningsmaður áfengisfrumvarpsins en sjálfur hefur hann aldrei byrjað að drekka. Hann er sveitastrákur sem endaði á Alþingi með viðkomu í lögreglunni.  Í búsáhaldabyltingunni varð hann bókstaflega fyrir fyrir sprengju mótmælenda og sá kima þjóðfélagsins sem hann óraði ekki fyrir að sjá nokkur tíma. Vilhjálmur Árnason segir okkur m.a. hvernig lögreglustarfið nýtist honum nánast daglega í stafi sínu á Alþingi.
more
Oddný Harðardóttir
2021/09/08
Hún verður alltaf samofin Garðinum enda býr hún þar enn á æskuheimili sínu. Þar var lífið oft erfitt í æsku Oddnýjar. Foreldrar hennar skildu þegar hún var táningur og heimilislífið var litað af drykkju föður hennar. Hún missti móður sína sem ung kona og þyrfti að hafa talsvert fyrir því að mennta sig. Það er óhætt að segja að Oddný Harðardóttir sé brautryðjandi. Fyrst kvenna varð hún bæjarstjóri í Garðinum, hún er eina konan sem hefur verið skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún varð svo fyrst kvenna til þess að gegna hlutverki fjármálaráðherra. Það tímabil var Oddnýju einstaklega lærdómsríkt.
more
Guðbrandur Einarsson
2021/09/06
Guðbrandur Einarsson verslaði fermingarfötin timbraður. Snemma náðu áfengi og kannabisefni sterkum tökum á lífi þessa unga manns sem dreymdi um að verða bóndi. Hann setti tappann í og sneri sér að tónlist, verkalýðsmálum og stjórnmálum. Hann er tvöfaldur tvíburapabbi með sterkar skoðanir og ríka réttlætiskennd. Guðbrandur er hér í einlægu viðtali þar sem hann talar um sigurinn gegn Bakkusi, barnalánið og baráttuna sem stundum fylgir stjórnmálum.
more
Jóhann Friðrik Friðriksson
2021/09/03
Hann þótti uppátækjasamur sem barn og var kallaður Suðurnesjaskelfirinn. Áhugi hans liggur víða og því hefur hann prófað margt og má þar nefna störf við fjölmiðla, uppistand og nám í lýðheilsufræðum en hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Keilis. Hann hefur einlægan áhuga á fólki og því lá beinast við að fara í pólitík, en þar vakti hann m.a. Athygli fyrir vöfflubakstur.  Við settumst niður með Jóhanni Friðriki og ræddum við hann um lífið og tilveruna, covid og eldgos - og að sjálfsögðu um pólitík.
more
Erla Reynisdóttir
2021/06/21
Erla Sóley Reynisdóttir er ekki há í loftinu en það háði henni aldrei á körfuboltavellinum enda keppnisskapið mikið hjá þessum "stáldverg" eins og sumir kölluðu hana þegar þeir áttuðu sig á því að undir björtu fasinu bjó einbeittur sigurvilji. Erla var um árabil ein af sterkustu körfuboltakonum ársins og við ræddum við hana um körfuboltann en líka óvænt barnalánið þegar það eina sem hélt þeim hjónum gangandi var vonin.
more
Eðvarð Þór Eðvarðsson
2021/05/22
Þegar flest okkar eru að vakna þá er Eðvarð Þór að klára útihlaup, nýbúinn með sundæfingu eða jafnvel að klára 18. holu í Leirunni. Slíkur er metnaðurinn og drifkrafturinn. Hann hækkaði ránna í sundíþróttinni á Íslandi við aðstæður sem ekki teldust sæmandi í dag. Átta ára byrjar hann að svamla í 12 metra sundlaug í Njarðvík en áratug síðar var hann meðal bestu sundmanna heims og á leið á Ólympíuleika. Hann hætti svo að synda 22 ára og þyngdist um 30 kíló á nokkrum mánuðum. Auk þess komst hann að því að hann var lélegur sundþjálfari. Það átti hins vegar allt eftir að breytast. Einlæg frásögn frá þjálfaranum, íþróttamanni ársins 1986 og kennaranum Eðvarði Þór Eðvarðssyni.
more
Páll Ketilsson
2021/04/12
Hann stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki aðeins 20 ára gamall og það er enn sprelllifandi - og það á sömu kennitölu. Það má segja að Víkurfréttir séu sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Flestir þekkja fjölmiðlamanninn en færri þekkja heimilisfaðirinn, golfarann, frumkvöðulinn og skyrtusölumanninn smekkvísa. Páll segir okkur frá þróun fjölmiðla á 40 ára starfsferli og einstöku sjónarhorni sem hann hefur haft á samfélagið suður með sjó, við heyrum hans sögu.
more
Helga Sigrún Harðardóttir
2021/03/23
Hún hefur komið víða við enda óhrædd við áskoranir hvort það er í námi eða starfi og hún var einu sinni pönkari. Lífið hefur verið allskonar, sorgin knúði dyra þegar eiginmaður hennar lést eftir stutta baráttu við krabbamein og henni var aðeins gefið eitt barn en hún á einstakt samband við dóttur sína sem nú er sjálf orðin mamma. Helga Sigrún Harðardóttir segir okkur frá því hvernig var að verða móðir 16 ára gömul, ævintýrinu í Fjörheimum, útvarpi Bros, einstaklega áhugasömum handavinnukenna  og þingstörfum í miðri búsáhaldabyltingu.  
more
Harpa Jóhannsdóttir
2021/03/22
Hún fór í tónleikaferðalag um heimsálfur með tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur sem var ævintýri fyrir 19 ára básúnuleikara. Harpa segir okkur frá tónlistinni, hjónabandinu og hvernig það er að uppgötva að barnið þitt er ekki eins og önnur börn.
more
Þráinn Kolbeinsson
2021/03/16
Þráinn Kolbeinsson er lærður sálfræðingur en ákvað að venda sínu kvæði í kross og eltast við drauminn - að gerast ljósmyndari. Hann fluttist til Grindavíkur og kynntist þar fegurð Reykjanesskagans sem er einstakur á heimsvísu. Hann segir okkur frá glímunni í Mjölni, jarðhræringum á Reykjanesi, föðurhlutverkinu og fegurðinni á Reykjanesi.
more

Podcast reviews

Read Góðar sögur podcast reviews


5 out of 5
6 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Góðar sögur & sponsor relevant audience podcasts


What do you want to promote?

Ad Format

Campaign Budget

Business Details