1193365597
Guðmundur Hörður

Advertise on podcast: Guðmundur Hörður

Categories
Country
United States
This podcast has
26 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2017/01/09
Latest episode
2023/05/09
Average duration
57 min.
Release period
132 days

Description

Hlaðvarp um stjórnmál.

Unlock Guðmundur Hörður podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Guðmundur Hörður podcast


Sjálfboðaliðarnir sem sigruðu vellauðugt alþjóðfyrirtæki
2023/05/09
Það eru sextán ár liðin síðan að Hafnfirðingar efndu til sögulegrar íbúakosningar um stækkun álversins í Straumsvík, en þar tókst fámennum hópi sjálfboðaliða að bera sigurðorð af Alcan, vellauðugu kanadísku alþjóðfyrirtæki. Meðal þeirra sem tóku þátt í þessum slag voru þau Valgerður Halldórsdóttir og Pétur Óskarsson, en þau voru í forystu Hafnfirðinga sem börðust undir merkjum félagsins Sól í Straumi - gegn því að álverið fengi heimild til stækkunar. Ég byrjaði á því að spyrja þau Valgerði og Pétur hvað dró þau að málstaðnum.
Stéttaátök og kosningasvindl
2021/10/17
Í alþingiskosningum 1927 urðu tveir menn uppvísir að atkvæðafölsunum í máli sem hefur verið nefnt Hnífsdalsmálið, eina kosningasvindlinu hér á landi sem hefur komið inn á borð kjörbréfanefndar Alþingis, Hæstaréttar og Scotland Yard. Ég rakti þessa sögu í pistli sem hægt er að lesa á gudmundurhordur.medium.com, en hér ætla ég að fylgja pistlinum eftir með viðtali við Sigurð Pétursson sagnfræðing, en hann hefur skrifað mikið um vestfirska verkalýðssögu og þar á meðal um Hnífsdalsmálið.
Þjóðgarður er meira en merkimiðinn
2020/12/30
Umhverfisráðherra hefur lagt fram stjórnarfrumvarp á Alþingi um hálendisþjóðgarð. Viðbrögð við frumvarpinu hafa vakið furðu, sér í lagi margir fyrirvarar samstarfsflokka Vinstri Grænna í ríkisstjórn, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Af þessu tilefni ræddi ég við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, en náttúruverndarhreyfingin hefur fjölmargt við hálendisfrumvarpið að athuga þó að það hafi ekki farið eins hátt í fjölmiðlum og óánægja sveitarstjórnarmanna. 
Íslandsmet í undirskriftasöfnun
2020/10/12
Stjórnarskrárfélagið safnar nú undirskriftum almennings við þá kröfu að Alþingi virði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar frá 2012 og lögfesti nýju stjórnarskrána. Ríkisstjórn Vinstri-grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hefur ekki viljað heyra á þetta minnst og hefur boðað eigin stjórnarskrártillögur. Flokkarinar virðast að vísu ekki ná samstöðu um þessar tillögur og nú er margt sem bendir til að við förum í gegnum enn eitt kjörtímabilið þar sem stjórnarskráin tekur engum breytingum. Undirskriftasöfnun stjórnarskrárfélagsins lýkur mánudaginn 19. október og af því tilefni sló ég á þráðinn til Katrínar Oddsdóttur, eins af forsvarsmönnum Stjórnarskrárfélagsins, og óskaði henni til hamingju með árangurinn, en þegar við ræddum saman voru undirskriftirnar 27494, en eru nú tveimur dögum seinna 28.526. Það er líklega nýtt met innan þess undirskriftakerfis sem rekið er á vegum stjórnvalda á island.is.
Slembivalin borgaraþing og rökræðufundir
2020/09/01
Viðtal við Sævar Finnbogason, doktorsnema í heimspeki sem leggur stund á lýðræðisrannsóknir, stjórnarmann í Öldu lýðræðisfélagi og einn af þeim sem komu að skipulagningu og úrvinnslu rökræðufundar stjórnvalda um breytingar á stjórnarskrá síðastliðið haust. Hann varar við afleiðingum þess að stjórnvöld hunsi endurtekið niðurstöður lýðræðislegs samráðs við almenning, það muni grafa undan trausti á slíkum aðferðum og leiða til þess að fólk sjái ekki ástæðu til að verja tíma sínum í slíkt samráð. 
Öll þjóðfélög á öllum tímum hafa notað vímuefni
2020/06/05
Hlaðvarpið að þessu sinni er viðtal sem ég átti við Þorstein Úlfar Björnsson, en hann hefur skrifað bækur um sögu vímuefnanotkunar og það sem hann kallar fáránleika fíknistríðsins. Þá hefur hann nýverið birt nokkrar greinar um sama efni á Kjarnanum. Við settumst niður og ræddum um frjálslyndari viðhorf til kannabisneyslu, aukinn skilning á læknandi áhrifum hugvíkkandi efna og cbd-olíu, áhrif  nýrra laga um neyslurými og reynslu Þorsteins af neyslu sveppa sem hann segir að hafi hjálpað sér að vinna úr erfiðum tilfinningum. Hér má nálgast bækur Þorsteins.
„Þú ert fólkið sem kaus þig“. Viðtal við Andrés Inga Jónsson
2020/05/10
Viðtal sem ég átti við Andrés Inga Jónsson, þingmann utan flokka, en hann hefur setið á þingi fyrir Vinstri Græna frá 2016 en sagði sig úr þingflokknum fyrir hálfu ári síðan. Við ræddum um það hvernig sé að vera þingmaður án flokks, um stjórnarmyndunina 2017, dramatíska flokkráðs- og þingfundi, stjórnarskrána, lýðræðismálin, umhverfismálin og framtíð Andrésar í stjórnmálum. Síðan svaraði hann einnig nokkrum spurningum af twitter og facebook, m.a. um smekk á tónlist, bjór og sósum.
Stundin: Bankar eiga að vera bankar Sjálfstæðisflokksins
2020/05/07
Um bankakerfið, Sjálfstæðisflokkinn og samfélagsbanka.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um auðlindaákvæði
2020/03/12
Nú eru fimm ár liðin síðan hópur fólks safnaði undirskriftum undir yfirskriftinni „Þjóðareign“ með það að markmiði að stöðva frumvarp Sigurðar Inga Jóhannsson, þáverandi sjávarútvegsráðherra, um að afhenda útgerðum makrílkvóta til lengri tíma en eins árs. Tæplega 54 þúsund Íslendingar ljáðu hópnum nafn sitt og varð þetta því fimmta fjölmennasta undirskriftasöfnun sem hefur farið fram hér á landi. Og frumvarpið varð aldrei að lögum. Nú hefur þessi sami hópur sent forseta Alþingis og öllum formönnum þingflokka áskorun þess efnis að þjóðin fái að kjósa milli tveggja tillagna að auðlindaákvæði í stjórnarskrá, annars vegar tillögu Stjórnlagaráðs og hins vegar tillögu sem ríkisstjórnin lagði fram til umsagnar um mitt ár í fyrra. Ég ræddi við Bolla Héðinsson, en hann er einn af þeim sem að áskoruninni standa.
Stytting vinnuvikunnar
2020/02/15
Það hefur sýnt sig að stytting vinnuvikunnar eykur bæði afköst og hamingju starfsfólks. En hvers vegna erum við þá ekki komin lengra á þessari vegferð? Ég ræddi við Guðmund D. Haraldsson, stjórnarmann í Öldu og áhugamann um styttingu vinnutímans.
Pólitíska eldflaugin
2019/08/06
Okkur sem þykja stjórnmálin yfirleitt full værðarleg hér á landi söknum Birgittu Jónsdóttur af pólitíska sviðinu – pólitísku eldflauginni eins og einn vinur hennar kallaði hana nýverið. Ég sló því á þráðinn til Birgittu og ræddi við hana stöðuna innan Pírata – en fyrst ræddum við m.a. um málskotsréttinn, handahófsvalda almenningsdeild Alþingis, friðhelgi einkalífsins, kínverska eftirlitssamfélagið, óvandvirkni við innleiðingu Evrópusambandreglugerða, drauma stjórnskipan Elon Musk, vernd uppljóstrara, Julian Assange, forseta í felum og skoðanakannanir sem benda til þess að Miðflokkurinn sé að bæta við sig fylgi vegna andstöðunnar við þriðja orkupakkann.
Ómar og orkupakkinn
2019/05/18
Í umræðunni um þriðja orkupakkann hef ég talsvert rekist á spurninguna – hvar eru náttúruverndarsinnarnir? Og þeir hafa vissulega ekki verið háværir í þessari umræðu. Þess vegna hitti ég náttúruverndar-goðsögnina Ómar Ragnarsson og ræddi við hann um málið.

Podcast reviews

Read Guðmundur Hörður podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Guðmundur Hörður relevant audience podcasts


What do you want to promote?