
Advertise on podcast: Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Rating
5from
This podcast has
75 episodes
Language
IcelandicPublisher
nordnordursinsExplicit
No
Date created
2017/06/27
Latest episode
2026/10/12
Average duration
84 min.
Release period
41 days
Description
Hlaðvarp þar sem fjallað er um það helsta úr heimi tölvuleikja. Umsjónarmenn þáttar eru þeir Bjarki Þór Jónsson, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn.
Unlock Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins podcast
Gervigreind, leikjaútgáfan og meira af Control Resonant
2026/10/12
Farið er yfir leikjaútgáfuna í nýjasta þætti Leikjavarpsins en leikir á borð við Hellraiser og Star Wars: Galactic Racer komu út fyrir skemmstu. Fleiri og fleiri leikjafyrirtæki nota gervigreind í auknum mæli, nýverið tilkynnti Capcom að þeir ætla að nota gervigreind í auknum mæli og það sama má segja um Google og Unity. Er þetta jákvæð eða neikvæð þróun? Fjallað er nánar um Control Resonant og tekið fram hvað stóð upp úr og hvað hefði mátt fara betur.
Allt þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpisins!
Umsjónarmenn eru Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór
Leikjavarpið #72 – Wolverine, Control Resonant og Resident Evil bíómyndin
2026/09/28
Sveinn, Daníel og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Sveinn rýnir í nýja Wolverine leikinn og segir að leikurinn sé töluvert betri en margir vilja meina og að sum gagnrýni sem leikurinn hefur fengið sé að hluta til ósanngjörn. Bjarki er byrjaður á Control Resonant og segir frá fyrstu hughrifum sínum á leiknum eftir að hafa spilað fyrstu tvo klukkutímana. Daníel er í skýjunum - eða öllu heldur geimnum - eftir að hafa klárað Outer Wilds og aukapakkann.
Nýlegar leikjafréttir eru einnig til umræðu. Má þar nefna nýjan heim í Minecraft, breytingar hjá Bungie, stöðuna hjá Microsoft og Halo svo eitthvað sé nefnt.
Í lok þáttar fjöllum við um nýju Resident Evil bíómyndina en þeir Sveinn og Daníel mættu á sérstaka forsýningu í boði GameTíví.
Leikjavarpið #71 - Zelda 40 ára, BlizzCon og Onimusha: Way of the Sword
2026/09/14
Farið er um víðan völl í nýjasta þætti Leikjavarpsins. Fyrir nokkrum dögum hélt Nintendo ekki eina - heldur tvær leikjakynningar. Í annari þeirra var endurgerðin af The Legend of Zelda: Ocarina of Time kynnt nokkuð ítarlega í tilefni 40 ára afmælis The Legend of Zelda leikjaseríunnar. Nintendo kynntir fleiri leiki, þar á meðal Kirby and the World Beyond og Metroid Ravenous, ásamt varningi eins og amiibos og sérstakri Zelda útgáfu af Switch 2 leikjatölvunni.
Daníel og Sveinn ræða um Onimusha: Way of the Sword sem þeir hafa verið að spila undanfarna daga. Við snertum aðeins á BlizzCon þar sem stór World of Warcraft uppfærsla var kynnt til sögunnar, Diablo V og nýr væntanlegur StarCraft skotleikur. Sveinn prófaði nýja uppfærslu á Xbox sem leyfir Xbox eigendum að fá stafrænt eintak af þeim leikjum sem spilarar eiga í diskaformi, Sveinn segir frá hvernig sú tækni virkar.
Allt þetta og miklu fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
Leikjavarpið #70 - GTA VI sýnishornið og diskalaus framtíð Sony
2026/08/31
Leikjavarpið er mætt aftur til leiks eftir ljúft og gott sumarfrí! Í þættinum rýnum við í nýjasta sýnishornið úr Grand Theft Auto VI sem var frumsýnt á Netflix á dögunum, þar er um að ræða yfir 20 mínútur af nýju efni. Einnig tökum við fyrir ákvörðun Sony um diskalausa framtíð fyrir PlayStation, breytir það einhverju eða er algjör óþarfi að bjóða upp á diska? Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór og Sveinn Aðalsteinn segja sínar skoðanir á málinu.
Þetta og margt fleira í sjötugasta þætti Leikjavarpsins!
Leikjavarpið #69 - Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia
2026/03/26
Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Þeir ræða tölvuleikinn Crimson Desert og segja frá fyrstu hughrifum á leiknum, taka góða og nauðsynlega umræðu um DLSS 5, tæknina frá Nvidia, og síðast en ekki síst fjalla um Pokopia - nýja Pokémon leikinn sem hefur notið mikilla vinsælda á Switch 2 leikjatölvunni. Allt þetta og fleira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
Leikjavarpið #68 - God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
2026/03/02
Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel segir okkur frá God of War Sons of Sparta sem er heldur óhefðbundinn God of War leikur í platformer-stíl. Einnig er rætt um stórar fréttir úr heimi Microsoft Xbox og Sony PlayStation; Phil Spencer kveður Microsoft og Sony lokar Bluepoint Games leikjastúdíóinu. Ýmislegt fleira er til umræðu, þar á meðal byrjendaráð fyrir nýjan Switch 2 eiganda, Pokémon fréttir, leikir í spilun, nýr leikur væntanlegur frá nýju íslensku leikjafyrirtæki, upphitun fyrir gjafaleik og margt fleira.
Leikjavarpið #67 - State of Play og Nioh 3
2026/02/16
Daníel Rósinkrans, Steinar, Bjarki og Sveinn fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þætti 67 af Leikjavarpinu. Okkar helsti Nintendo sérfræðingur fer yfir það helsta frá Nintendo Direct: Partner Showcase þar sem væntalegir Switch og Switch 2 leikir voru kynntir. Steinar og Sveinn rýna í Nioh 3 og fjalla um nýjunga, helstu kosti og galla leiksins ásamt því að segja frá sínu áliti. Að lokum rennum við yfir leiki sem voru kynntir á State of Play kynningu Sony, þar sem við fengum meðal annars nýjar God of War fréttir! Einnig förum við yfir það helsta sem við erum að spila þessa dagana, ræðum Cairn stuttlega, minnumst á nýja Diablo II viðbót og margt fleira.
Leikjavarpið #66 - Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War
2026/02/02
Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22. janúar síðasliðinn þar sem fjórir væntanlegir leikir fengu ítarlega kynningu, þar á meðal leikurinn sem strákarnir bíða spenntir eftir - FABLE! Rætt er um nýlega og væntanlega sjónvarpsþætti sem byggja á tölvuleikjum í kjölfar þess að tilkynnt var að Ólafur Darri mun fara með hlutverk Þórs í God of War sjónvarpsþáttum! Það gleymdist að nefna nokkra áhugaverða leikjatitla í seinasta þætti þegar farið var yfir væntanlega tölvuleiki á árinu 2026, þau mistök eru plástruð í lok þáttar 3
Ást, friður og tölvuleikir.
Leikjavarpið #65 - Væntanlegir leikir 2026
2026/01/19
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á árinu sem var að hefjast. Þar á meðal má nefna leiki á borð við GTA VI og nýjan James Bond leik. Strákarnir ræða einnig hvað stóð upp úr á árinu sem var að líða og hvaða leikir voru spilaðir yfir jólahátíðina. Þetta og margt fleira í þætti #65 af Leikjavarpinu!
Leikjavarpið #64 - Allt það helsta frá The Game Awards 2025
2025/12/16
Við förum yfir allt það helsta frá einni stærstu tölvuleikjaverðlaunahátíð heims - The Game Awards! Rennum yfir hvaða leikir unnu í stærstu verðlaunaflokkunum en hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 vann flest verðlaun þetta árið. Hvað stóð upp úr og hvað vantaði? Einnig segjum við frá helstu leikjakynningum kvöldsins þar sem nýir leikir voru kynntir til sögunnar, þar á meðal nýr væntanlegur leikur frá Larian Studios, leikjafyrirtækinu sem gerði Baldur's Gate 3. Þetta og margt margt fleira.
Leikjavarpið #63 - Icelandic Game Fest og The Game Awards
2025/12/02
Bjarki og Sveinn mættu á Icelandic Game Fest tölvuleikjaveisluna í Arena og segja frá því sem stóð upp úr en þar voru fjölmargir leikir frá íslenskum leikjastúdíóum til sýnis. Búið er að tilkynna hvaða leikir eru tilefndir til The Game Awards og er farið yfir valda verðlaunaflokka en Clair Obscur: Expedition 33 er tilnefndur til flestra verðlauna. Fleira er til umræðu eins og leikir í spilun, Golden Joystick Awards og margt fleira.
Leikjavarpið #62 - Steam Machine og GTA VI seinkað
2025/11/17
Leikjavarpið vaknar aftur til lífsins eftir ljúfan (og aðeins of langan) sumardvala. Þeir Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja í 62. þætti Leikjavarpsins.
Helsta umræðuefni þáttarins er nýr vélbúnaður sem Valve kynnti til sögunnar fyrir skemmstu - Steam Machine, Steam Controller og Steam Frame. Mun Valve breyta leikjatölvumarkaðnum eins og við þekkjum hann? Hvaða áhrif mun nýja tölvan hafa á til dæmis Xbox leikjatölvuna frá Microsoft? Fleira efna er tekið fyrir í þættinum og má þar helst nefna seinkunina á Grand Theft Auto VI, Icelandic Game Fest sem fram fer á Arena og Steam og Master Lemon: The Quest for Iceland svo eitthvað sé nefnt.
Mynd: Steam Machine frá Valve
https://store.steampowered.com/sale/steammachine
Leikjavarpið #61 - Switch 2 útgáfa, Elden Ring Nightreign og Clair Obscur: Expedition 33
2025/06/20
Bjarki, Steinar og Sveinn þurrka rykið af hljóðnemunum og ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Meðal annars er rætt um útgáfu nýjustu leikjatölvu Nintendo, Switch 2, og ákveðinn fídus sem virðist ekki virka hér á Íslandi í þeirri tölvu.
Bjarki og Sveinn heimsóttu íslenska leikjafyrirtækið Myrkur Games á dögunum og segja frá leiknum Echoes of the End sem er nýr hasar- og ævintýraleikur sem er væntanlegur í sumar. Strákarnir rýna svo í leikina Elden Ring Nightreign, sem er frábrugðinn hinum hefðbundna Elden Ring, og Clair Obscur: Expedition 33 sem er „turn-based“ hlutverkaleikur frá franska leikjafyrirtækinu Sandfall Interactive.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License
http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
Leikjavarpið #60 - Nintendo Switch 2
2025/04/08
Sextugi þáttur Leikjavarpsins er helgaður Nintendo Switch 2. Á dögunum hélt Nintendo nokkuð ítarlega kynningu á Switch 2 þar sem farið var yfir öll helstu atriði. Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta og ræða tæknileg atriði, leikjaúrval, nýja möguleika, verð, tollastríð og margt fleira.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License
http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
Leikjavarpið #59 - Assassin’s Creed Shadows og næsta Xbox leikjatölvan
2025/03/18
Í nýjasta þætti Leikjavarpsins fjalla þeir Sveinn, Rósinkrans og Bjarki um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Við fjöllum ítarlega um Assassin's Creed Shadows sem er nýjasti leikurinn í hinni frægu AC-seríu og Sveinn hefur verið að spila undanfarna daga. Þátturinn inniheldur enga spilla! Einnig ræðum við um Lost Records: Bloom & Rage sem Rósinkrans byrjaði nýlega spila að spila og Unnur Sól gagnrýndi á vef Nörd Norðursins. Nýr Death Stranding 2 stikla leit dagsins ljós á dögunum og var hvorki meira né minna en heilar 10 mínútur að lengd! Rýnum í þá stiklu og ræðum um næstu Xbox leikjatölvu og stöðu Xbox á leikjatölvumarkaðnum. Allt þetta og fleira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins.
Tónlist:
"Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)
Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License
http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
Podcast reviews
Read Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins podcast reviews
A guy from the land of Ice 2020/03/31
Skemmtilegt og fræðandi
Þetta er algjör snilldarþáttur sem á vonandi eftir að halda áfram lengi. Góðar samræður og þarft hlaðvarp fyrir íslendinga.
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.518782374
American Scandal
Audible

4.689401219
Get Sleepy: Sleep meditation and stories
Slumber Studios

4.79026375
Life is Short with Justin Long
Audible

4.714121350
Bad Friends
Bobby Lee & Andrew Santino

4.7129372
10 to Life
Annie Elise

4.76753464
Criminology
Emash Digital & Mike Ferguson, Mike Morford

4.87523980
The Dr. John Delony Show
Ramsey Network

4.512623668
RedHanded
RedHanded

4.9247931451
Unashamed with the Robertson Family
Tread Lively

4.8224811798
The Andrew Klavan Show
The Daily Wire