
Advertise on podcast: Fílalag
Rating
4.8from
This podcast has
371 episodes
Language
IcelandicPublisher
FílalagExplicit
No
Date created
2018/02/12
Latest episode
2026/05/29
Average duration
72 min.
Release period
20 days
Description
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Unlock Fílalag podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Fílalag podcast
These Days – Smurstöð sexunnar
2026/05/29
Nico – These Days Bleiki pardusinn settur í hrærivél og stappaður niður í bleikt vax sem bráðnar í lavalampa sem varpar bjarma á kríthvít kinnbein sem tróna á stalli rúllukragabolskraga sem er svartari en gljáandi gítarnöglin í hendi unglingsins sem svífur í gegnum móðuna með sama andvara og fleytti Ódysseifi að hjara veraldar og til […]
Ljósvíkingurinn – Hann er útilegumaðurinn
2026/05/22
Mugison – Ljósvíkingur KFC-sokkin augu horfa á þig úr Mount Rushmore Almannagjáar. Þú gengur ekki einn. Fjallageit jarmar yfir heiðarlönd. Þú hlýðir ekki einn. Skynfæri spennt, kroppurinn kaldur. Upp úr dalnum líður reykur. Þú gengur ekki einn. Ljósið. Eldsneytið. Krafturinn.
DARE – Stafrænt camouflage
2026/05/15
Gorillaz ft. Shaun Ryder – DARE Alþjóðavæðing. Nótt. Flókið. Casio hljómborð. Þreyttur um kvöld. Teikna. Heimurinn er án hjarta en það má spartsla upp í holur hér og þar. Það má glærlakka yfir óskapnaðinn og gefa stílleysinu hjúp kúls. Það eru bara til þrír til fjórir persónuleikar. Við höldum að við séum allskonar en þegar […]
Betri tíð – Listin að lifa í stuði
2026/05/08
Stuðmenn – Betri tíð Kýrnar leika við kvurn sinn fíngur. Ananas-hlunkum sturtað niður úr flugvél sem stýrt er af flugkappa í terlin-buxum. Laugardalslaug fyllt lakkrís-konfekti. Í stúkunni hvítir komma-kroppar. Í kvöld förum við á fílum til Skatmandú. Nepjan. Norpið. Puðið. Stuðið. Hor í nös, allar bragðtegundir regnbogans. Fuglinn sýngur. Sumarið er komið. Svona á það […]
Movin’ on Up – Öskur úr iðrum jarðar
2025/12/31
Primal Scream – Movin’ on Up Það er gott í vændum á nýju ári. Seiðkarlinn hrærir í potti og dregur upp lukkulegan spádóm handa þér væni minn. Þú munt stækka á nýju ári, vaxa um eitt númer, komast á næsta borð tölvuleiksins. Heill sé þér himnafaðir og allir jarðálfar púkalands því þessi stÆKKUN er mannkyni […]
Ef ég nenni – Ávöxtur í augnhæð
2025/12/19
Helgi Björns – Ef ég nenni Slyddugremjan, rokið í hausnum, myrkrið í sálinni. Bless á þetta allt. Sýrustigið í maganum, slátturinn í brjóstinu, munnangrið. Verið þið sæl. Stundum þarf bara að taka stærstu gangstéttarhelluna og keyra hana í gegnum kjallaragluggann til að opna fyrir flæðið, andrýmið og orkuna. Helg eru jól, heilög sé sól, sú […]
Come On, Let’s Go – Kommon. Letsgó.
2025/12/12
Ritchie Valens – Come On, Let’s Go Hér fer fram hugmyndafræðileg fílun á andkvíðalyfinu sem gengið hefur undir nafninu rokk og ról. Farið er í frumfílun á fyrsta útgefna lagi Ritchie Valens sem hann samdi og tók upp þegar hann var sextán ára gamall og hefur hinn mergjaða titil: “Come On, Let’s Go”. “Öllu er […]
Brown Eyed Girl – Frum-fenið
2025/11/28
Van Morrison – Brown Eyed Girl George W. Bush í baði. Þröstur á grein. Fáviti að spóla úti á Granda. Dalalæða og derringur. Og þú brúneyga stúlkan mín. Hlaupa og hlæja og detta. Leiddu mig í lundinn. Morgunroði, dögg. Dick Cheney klippir táneglur. Mín liljan fríð.
Brimful of Asha – Barmur plús harmur deilt með takmarkaleysi
2025/11/14
Cornershop og Norman Cook – Brimful of Asha Rómúlus og Remus totta spena. Fjörutíu og fimm snúningar á mínútu. Níl flæðir yfir bakka sína. Villigöltur hleypur í skjól. Hlöður fyllast. Sósan flæðir. Tuttugu og níu ára grafískur hönnuður hálsbrýtur sig í stiga. Rjóminn flæðir. Varir brosa, mjaðmir dilla, froðu fleytt af glasabarmi. Spilakassar syngja. Smálán […]
Sweet Jane – Kontrapunktur kúlsins
2025/10/03
Velvet Underground – Sweet Jane Starfsmaður vegabréfaeftirlits á JFK-flugvelli horfir rannsakandi en kæruleysislegum augum þráðbeint framhjá þér. Í belti hans 9mm Glock, í vasa hans valdið, pakki með sex þurrum Orbit-þiljum. Það má skera loftið með kauðalegum smjörhníf sem átta ára barn kom með heim úr smíðatíma. Það má skera loftið niður í þykkar lifrapylsusneiðar. […]
Moonlight Shadow – Miðilsfundur á Myrká
2025/09/26
Mike Oldfield og Maggie Reilly – Moonlight Shadow Viðjulauf. Hvítir náttkjólar. Gólandi hundur. Skothvellur í fjarska og silkimjúkt myrkrið. Tonn hughrifa í eldspýtustokki. Heil veröld sem örbylgjumáltíð. Hvísl, þyngsli, sorg, gall. Þú gengur inn í blómabúð í leit að samúðarkorti og það er farið með þig á bakvið og fyrr en varði ertu í seftjörn […]
Fylgd – Áminning til labbakúta
2025/09/19
Heimavarnarliðið – Fylgd Volkswagen bjöllur. Súld. Hagatorg. Gamla góða Keflavíkurgöngugreddan. Fegurð. Sveit í borg. Hólkvíðar skálmar undir heiðum himni. Bollasúpa. Breznev. Þjóðviljinn. Hermannajakkar. Ljóðabækur. Mussur þvegnar í læk þar sem nú er Smáralind. Lektorar. Billiard. Bartar og brjóstahaldarabrennur. Mundu, að þetta er landið þitt.
Serbinn – Segulsvið svitans
2025/09/12
Bubbi – Serbinn Fjörutíu metrar á sekúndu. Ekki vindhviða heldur beinstíf leiðsla af flæðandi draugum inn í himinhvel hugans. Lax í dauðakippum. Eggjarauð kokteilsósa. Ok uxans. Minkafeldur suður slavneska herrans. Hringar Salómons. Framundan er bara vegurinn. Ekki Nebraska-vegurinn hans Steina heldur eitthvað miklu naprara og tærara. Slétta melrakka og vofunnar í hvilftinni. “Glitrar grund og […]
Hotel California – Ernir. Síðari hluti. Vængir bráðna.
2025/09/05
Eagles – Hotel California Lagið sem er fílað í dag ætti með réttu að vera síðasta lag sem Fílalag tekur fyrir (engar áhyggjur, það er það ekki, við erum rétt að byrja nýja seríu). Ástæða þess að það ætti að vera síðasta lagið sem við fílum er vegna þess að það er ósköp erfitt að […]
Lyin’ eyes – Ernir. Fyrri hluti. Að þolmörkum
2025/08/29
Eagles – Lyin’ Eyes Kjarnasamruni. Reykjanesbrautin. Daðrið í myrkrinu. Augun, köldu krumlurnar, kæfisvefnsgræjurnar. Skiptilyklar, kokteilar, seðlaveski, bros. Gardínur í vindinum. Marge Simpson með varalit. Perlurnar, tárin, orðin. Söngur hjartans. Magasár, móðurmjólk, úraníumstútur. Langdrægir kjarnaoddar, kók, dagblað, sófasett, hott hott á hesti. Út að þolmörkunum. Einu sinni enn. Hringdu bjöllunni, að hlið vítis, einu sinni enn. […]
Podcast reviews
Read Fílalag podcast reviews
DDunit 2021/06/07
Án efa fremsti demanturinn í kórónunni sem eru íslensk hlaðvörp!
Spurningin er: Ert þú Fimm stjörnu hlustandi? Ertu þess virði að fá að hlusta? Bergur Ebbi og Snorri Helga fara með okkur í hæstu hæðir fílunar á lögu...
Jökull Ernir 2020/07/15
Kjöraðstæður til Fílalagafílun:
5. Janúar á Raufarhöfn eftir 6-18 vakt, kominn heim líkamlega og andlega örmagna, sest á Lazy Boy stól úr pleðri, færð þér ískaldan Gull, setur á Fíla...
Morgunomar 2019/03/30
Efnahvörf
Mögnuð efnistök og efnahvörfin milli Snorra og Berg finnast einu sinni á öld ( þegar tunglið er í áttunda húsi vatnsberast. Þegar Bergur fer með himin...
Andri sænski 2018/11/27
Öss!
Gírunin er svakaleg. Núna er föstudagur að verða nýji þriðjudagurinn.
hladmadur 2018/06/13
Æðislegt podcast
Frábært efni,takk fyrir
B. Markus 2018/05/10
Snilld
Snilldar podcast um þekkt, lítið eða ekkert þekkt lög. Mjög skemmtileg umræða og skemmtilegir gesta. Ég bíð spenntur eftir næsta þætti
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Fílalag relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.7831518
The Home Service Expert Podcast
Tommy Mello: $200 Million Founder|Forbes, Inc., Entrepreneur Columnist

4.443481356
Something You Should Know
Mike Carruthers | OmniCast Media

4.7906254
Everything is Fine
Jennifer Romolini and Kim France

4.610848573
Serialously with Annie Elise
Annie Elise & Audioboom Studios

4.41171483
The Outlier Health Podcast
Matt Frazier, Matt Tullman, Isabelle Caputo, and Doug Hay

4.616155359
Giggly Squad
Hannah Berner & Paige DeSorbo

4.8219787
Imperfect Action
Steph Taylor

4.727557588
This Past Weekend w/ Theo Von
Theo Von

4.713020376
The Tim Dillon Show
The Tim Dillon Show

4.115984460
The Tucker Carlson Show
Tucker Carlson Network