
Advertise on podcast: Selfoss Hlaðvarpið
Rating
5from
This podcast has
69 episodes
Language
IcelandicPublisher
Selfoss HlaðvarpiðExplicit
No
Date created
2019/03/02
Latest episode
2025/09/03
Average duration
53 min.
Release period
60 days
Description
Podcast by Selfoss Hlaðvarpið
Unlock Selfoss Hlaðvarpið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Selfoss Hlaðvarpið podcast
Selfoss Hlaðvarpið - Hinir síðustu verða fyrstir
2025/09/03
Það upp er risið og nú með sjaldséðum loforðum um reglulegri útgáfudaga. Hjörtur Leó þurrkaði rykið af græjunum í höfuðstöðvum SelfossTV og hlóð í station upphitunarþátt. Í fyrri hlutanum mættu þeir Carlos Martin Santoz þjálfari mfl. karla ásamt Hannesi Höskuldssyni leikmanni og fyrirliða liðsins. Í seinni hlutanum mætti svo Eyþór Lárusson þjálfari mfl. kvenna ásamt þeim Örnu Kristínu Einarsdóttur og Ídu Bjarklind Magnúsdóttur.
Fjölmennum í Sethöllina og ekki hika við að senda okkur línu ef þið eruð með einhverjar óskir um viðmælendur eða umræðuefni í vetur.
Næstu leikir:
Fös 6. sept kl 13.30 Selfoss - Valur mfl kvk
Mið 6. sept kl 16.00 Selfoss - KA mfl kk
Lau 6. sept kl 18.30 Selfoss 2 - Fjölnir
Selfoss hlaðvarpið #068 - Eru strax komin jól?
2024/12/20
Hjörtur Leó tók fram tuskuna og þurrkaði rykið af SelfossTV stúdíóinu. Allt handboltafólk er komið í jólafrí og því upplagt að gera upp gang mála fyrir jól. Til þess fékk hann góða gesti, Eyþór Lár, þjálfari mfl. kvenna, Árna Geir, stjórnarmaður og ýmislegt annað og Hannes Höskulds, fyrirliði mfl. karla.
Annars óskar Selfoss hlaðvarpið hlustendum nær og fær gleðilegra jóla og þakkar fyrir samfylgdina á árinu og megi bæði handbolta og hlaðvarpsguðirnir brosa við okkur öllum á því næsta.
Selfoss hlaðvarpið #067 - Hiti að hausti
2024/09/10
Hjörtur Leó Guðjónsson snýr aftur og í þessum þætti hitar hann upp fyrir veturinn ásamt þjálfurunum Eyþóri og Carlos og leikmönnum meistaraflokkana, þeim Kötlu Maríu og Jóni Þórarni. Með þeim er svo auðvitað íþróttastjórinn og einn af okkar fastagestum Örn Þrastar.
Næstu leikir:
Fös 13. sept Selfoss - Grótta mfl kvk
Mið 18. sept Valur - Selfoss mfl kvk
Lau 21. sept Selfoss - Haukar 2 mfl kk
Selfoss hlaðvarpið #066 - Vor í lofti
2024/04/22
Meistaraflokkarnir eru komnir í sumarfrí, alla vega frá keppni. Hjörtur Leó fékk til sín fulltrúa beggja liða til að gera upp veturinn og létt inn í framtíðina.
Í fyrri hlutanum koma þeir Þórir Ólafsson, þjálfari mfl kk og goðsögn í lifandi lífi, Jón Þórarinn Þorsteinsson og Hannes Höskuldsson leikmenn Selfoss.
Í seinni hlutanum faum við svo Eyþór Lárusson þjálfara mfl kvk og með honum mættu Tinna Sigurrós Traustadóttir og Hulda Dís Þrastardóttir.
Skellið þessu í tækið og hlustið, aldrei að vita nema þið lærið eitthvað nýtt.
Selfoss hlaðvarpið #065 - Bikarvika
2024/03/06
Hún er komin, stærsta vika ársins! Bikarvikan og stelpurnar okkar verða í eldlínunni á fimmtudagskvöldið. Til að hita upp fyrir undanúrslitaleikinn fékk Hjörtur Leó góða gesti. Eyþór Lárusson, Harpa Valey Gylfadóttir og Tinna Soffía Traustadóttir kíktu í SelfossTV hljóðverið og hituðu upp fyrir veisluna sem framundan er.
Næstu leikir:
Fim 7. mars Selfoss-Stjarnan mfl kvk
Fös 8. mars Selfoss U-Grótta U mfl 2. deild kk
Lau 9. mars Vonandi bikarúrslit mfl kvk
Fim 14. mars Selfoss-Berserkir mfl kvk
Selfoss hlaðvarpið #064 - Eitt misson búið tvö eftir
2024/02/21
Ný vika, ný tækifæri. Hjörtur fékk þá fóstbræður, Arnar Daða og Krumma ásamt Árna Geir til að fara yfir allt þetta helsta sem hefur verið um að vera hjá Selfoss handbolta síðustu vikur. Þær hafa verð upp og niður eins og lífið. Krummi mætti auðvitað með skemmtidagskránna, líf og fjör í SelfossTV hljóðverinu.
Næstu leikir hjá liðunum okkar eru:
Fim 22. feb Fram - Selfoss mfl kk
Fös 23. feb Selfoss - FH kvk
Fös 1. feb Selfoss - HK kk
Sun 3. mars Selfoss U - Grótta U 2. deild kk
Selfoss hlaðvarpið #063 - Heimsmet & brautriðjendur
2024/02/06
Hjörtur Leó fer yfir síðustu vikur og hitar upp fyrir bikarinn hjá stelpunum okkar ásamt þeim Erni Þrastar, Árna Geir og Helga "eina sanna" Hlyns.
Næstu leikir hjá liðunum okkar eru:
Þri 6. feb 18.00 Selfoss - KA/Þór mfl kvk
Mið 7. feb 17.45 Hvíti Riddarinn - Selfoss U 2. deild kk
Fim 8. feb 19.30 Selfoss - FH mfl kk
Fös 9. feb 18.00 Selfoss - Víkingur mfl kvk
Mið 14. feb 19.30 Valur - Selfoss mfl kk
Selfoss hlaðvarpið #062 - En minning þess víst skal þó vaka
2024/01/02
Hjörtur Leó Hélt smá jólaboð í SelfossTV hljóðverinu. Í fyrri hluta þáttarins fór hann yfir málin með Eyþóri Lárussyni þjálfara mfl. kvenna, Perlu Ruth Albertsdóttur leikmanni Selfoss og íslenska landsliðsins og Árna Geir Hilmarssyni fastagestur í Selfoss hlaðvarpinu. Í seinni hlutann mættu þeir Þórir Ólafsson þjálfari mfl karla, Einar Sverrisson leikmaður Selfoss og Árni Þór Grétarsson framleiðandi Selfoss hlaðvarpsins ásamt einhverjum fleiri höttum.
Um áramót er við hæfi að líta um öxl og gera upp árið og taka svo fagnandi á mót því nýja og það er nákvæmlega það sem við í Selfoss hlaðvarpinu gerðum í þessum þætti.
Selfoss hlaðvarpið sendir hlustendum sínum um veröld alla hugheilar kveðjur um gleðilegt nýtt ár og þakkar innilega fyrir samfylgdina á árinu sem var að líða.
Næstu leikir hjá liðunum okkar eru:
Lau 6. jan Selfoss - Fjölnir mfl kvk
Mið 10. jan Selfoss U - Grótta U 2. deild kk
Fös 12. jan Ísland - Serbía EM
Sun 14. jan Fram U - Selfoss mfl kvk
Sun 14. jan Ísland - Svartfjallaland EM
Þri 16. jan Ísland - Ungverjaland EM
Selfoss hlaðvarpið #061 - Forsetar og Kóngar
2023/12/11
Það var glatt á hjalla þegar Hjörtur Leó bauð þeim Hrafni Erlings, Erni Þrastar og Hannesi Höskulds inn í hlýjuna í SelfossTV stúdíóið. Þunglyndi á Seltjarnarnesi, skemmtiferð á Akureyri og sá stóri, forsetabikarinn. Allt þetta og miklu meira til. Jú og ekki má gleyma skemmtidagskrá Krumma.
Selfoss Hlaðvarpið - Eins og smjör í þín eyru!
Selfoss hlaðvarpið #060 - Håndball VM Kvinner
2023/11/29
Hjörtur Leó er orðinn spenntur fyrir HM og er himinlifandi yfir góðum sigri strákanna á Haukum um daginn. Linda Björk Hilmarsdóttir, Guðrún Herborg Hergeirsdóttir og fyrirliðinn Richard Sæþór Sigurðsson mættu í SelfossTV hljóðverið til Hjartar og fóru yfir málin.
Auk þessa alls tók Hjörtur upp símann og náði sambandi beint til Noregs og spjallaði við nýjasta landsliðsmann okkar Selfyssinga, Kötu Maríu Magnúsdóttur. Veislan er að hefjast!
Dagskráin framundan:
HM
Fim 30. nóv kl 17 Ísland - Slóvenía
Lau 2. des kl 17 Ísland - Frakkland
Mán 4. des kl 17 Ísland - Angóla
Mfl kk
Fim 30. nóv kl 19.30 Grótta - Selfoss
Lau 9. des kl 15.00 KA - Selfoss
fim 14. des kl 19.30 Selfoss - Afturelding
Selfoss hlaðvarpið #059 - No Pain, No Pain
2023/11/02
Hjörtur Leó fékk til sín lauflétta gesti, Hrafn Erlingsson, Arnar Daði Brynjarsson og góðkunningja þáttarins Örn Þrastar.
Það er óhætt að segja að létt hafi verið yfir mönnum er þeir fóru yfir málefni líðandi stundar. Fljúgandi gengi hjá mfl. kvenna og batamerkin hjá mfl. karla.
Undir lokin lærum við svo nýja hluti um Örn, en Hrafn og Arnar tóku að sér létta gestastjórnun og fræddust um Örn.
Næstu leikir hjá liðunum okkar eru:
Fös 3. nóv Víkingur - Selfoss mfl kvk
Sun 5. nóv Víðir - Selfoss U 2. deild kk
Fös 10. nóv Selfoss - Valur U mfl kvk
Lau 11. nóv ÍBV - Selfoss mfl kk
Selfoss hlaðvarpið #058 - Barið í brestina
2023/10/16
Hjörtur Leó fékk þá Atla Ævar Ingólfsson, Árna Geir Hilmarsson og Helga Hlynsson til að fara yfir brekkuna sem mfl karla er í eftir fyrstu leiki tímabilsins. Þeir félagar eru lausnamiðaðir að öllu jöfnu og leysa að sjálfsögðu heimsins vanda.
Næstu leikir Selfoss eru:
Mfl kvenna
Fim 19. okt 19.30 Selfoss - Haukar U
Þri 24. okt 19.30 Selfoss - Fram
Lau 28. okt 113.30 HK - Selfoss
Mfl karla
Lau 21. okt 16.00 HK - Selfoss
Fös 27. okt 19.30 Selfoss - Stjarnan
Selfoss hlaðvarpið #057 - Fljúgandi start
2023/09/28
Meistaraflokkur kvenna hóf leik um síðustu helgi og óhætt að segja að þær hafi fengið fljúgandi start. Hjörtur Leó tók þjálfara liðsins, Eyþór Lárusson tali og fékk að því loknu góða gesti, stórskyttuna Kötlu Maríu, reynsluboltann Guðrúnu Herborgu og Árna Geir, fyrrum aðstoðaþjálfara liðsins.
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: Stjörnur, Labbi
Selfoss hlaðvarpið #056 - Skkúbb Og Sparnaðarráð
2023/09/06
Þá er það loks að byrja, nýtt tímabil með nýjum vonum og nýjum væntingum. Hjörtur Leó fékk Þóri Ólafs í smá spjall áður en hann opnaði allar hurðar og fékk Richard Sæþór, Örn Þrastar og Hrafn Erlings til að leggja línurnar fyrir veturinn.
Strákarnir droppuðu óvæntum tíðindum af leikmannamálum og Richard er á góðri vegferð að spara heimilium landsins aurinn.
Tímabilið hefst á fimmtudag og Selfoss hefur leik í Olísdeildinni á laugardaginn 9. sept þegar strákarnir taka á móti KA kl 16.00.
Selfoss hlaðvarpið #055 - Skin, skúrir og uppgjör
2023/05/19
Þá er síðustu handboltaleikjum tímabilsins lokið hjá Selfyssingum og Hjörtur Leó fær góða gesti til að gera upp tímabilið. Fyrst mæta Eyþór Lárusson þjálfari og Tinna Soffía Traustadóttir fyrirliði mfl. kvenna. Í sinni hlutuanum mæta svo Þórir Ólafsson þjálfari og Einar Sverrisson stórskytta.
Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
Lokalag: Cha Cha Cha, Käärijä
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Selfoss Hlaðvarpið relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.9191106
The Eternal Warrior Podcast
Wes & Spence

4.5183217
GameSpot After Dark
GameSpot

4.3194377
Navigating Advocacy
Navigating Advocacy Podcast

4.8237176
T-Time with Tori Totlis
Tori Totlis

4.9240126
ASAP: Another Shawn Allen Podcast
NearMe Media Network

4.283530
The Self Help Podcast
Live in the Present

52917
16 Sunsets
Antica & Telltale Studios

4.4134371
ON BOYS Podcast
Janet Allison, Jennifer LW Fink

4.6137101
Ecotopia | اکوتوپیا
Pouria Bakhtiari

4.914954
Why We Bleep
Mylar Melodies