1458958094
Morðcastið

Advertise on podcast: Morðcastið

Rating
★★★★★
4.8
from
116 reviews
Categories
Country
Iceland
This podcast has
353 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2019/04/06
Latest episode
2026/10/22
Average duration
56 min.
Release period
6 days

Description

Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband: [email protected] instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid

Unlock Morðcastið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Morðcastið podcast


Orð dagsins er: Pabbar
2026/10/22
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag fer Bylgja  með okkur til Sydney. Ekki Ástralíu samt, heldur Sydney í Nova Scotia í Kanada. Þar er sautján ára strákur stunginn í almenningsgarði og lögreglan er ótrúlega fljót að finna sökudólginn. Kannski aðeins of fljót.  Þátturinn er í boði Sassy, Securitas, Gjafabref.is, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi og BL. Þolandi: Sandy Seale (og smá Junior)  Gerandi: Roy Ebsary
Bókacastið X Morðcastið X Bókastund
2026/10/22
Í þætti dagsins lesum við ásamt Bókaklúbbi þjóðarinnar, bókina Tilfinningar eru fyrir aumingja eftir Kamillu Einarsdóttur. Allt í samstarfi við Bókastund og Miðstöð íslenskra bókmennta.
Orð dagsins er: Moldvarpa
2026/10/15
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag fer Unnur með okkur í ferðalag til Bandaríkjanna. Ferðalag sem við höfum farið í margoft, en það sem er óhefðbundið í dag er að mikið af málinu á sér stað undir mold og plexigleri. Algjörlega stórfurðulegt mál sem endar þó óvenju vel, svona miðað við þetta hlaðvarp allavega. Þáttur dagsins er í boði BL, Securitas, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Gjafabréf.is og Sassy.  Þolandi: Barbara Jane Mackle Gerandi: Gary Steven Krist og Ruth Eisemann-Schier.
Orð dagsins er: Nestisbox
2026/10/08
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Hong Kong og segir frá hinni huggulegustu fjölskyldu, foreldrum og tveimur sonum, sem hafa átt hið huggulegasta líf. Það höldum við allavega en framvinda málsins lætur okkur sannarlega efast um það. Gríðarlega margar undarlegar u-beygjur eiga sér allavega stað, og enn fleiri undarleg innkaup og ákvarðanir. Þátturinn er í boði Nettó, Securitas, BL, Fulltingi, Happy Hydrate, Sassy og Gjafabréf.is Gerandi: Henry Chau og Angus Tse Chun-kei Þolendur: Chau Wing-ki (Glory Chau) og Siu Yuet-yee (Moon Siu) Fyrir óklipptan þátt eða áskriftarþátt þá mælum við með að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Orð dagsins er: Grandeur
2026/10/01
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur alla leiðina til Suður-Kóreu og segir okkur frá hópi vondra manna (og í smá einnar konu) sem hefði alveg getað tekið mjög margar frábærar ákvarðanir en tók í staðinn alltof margar hræðilegar ákvarðanir.  Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Gjafabref.is, Nettó, Sassy, BL, Fulltingi og Securitas. Gerendur: Kim Gi-hwan, Kim Hyun-yang, Kang Dong-un, Baek Byung-ok, Kang Moon-sub, Song Bung-un og Lee Kyung-sook. Þolendur: Frænka vinar Kim Gi-hwan, Miss Choi, Song Bong-un, Lee Jeong-su, hjónin herra So og frú Park, og Lee. Óklipptan þátt, sjónvarpsþátt og áskriftarþætti má finna inná www.pardus.is/mordcastid
Bókacastið X Morðcastið - Áður en ég brjálast
2026/09/25
Í þessum þætti ræðum við systur bókina Áður en ég brjálast eftir Soffíu Bjarnadóttur.
Orð dagsins er: Brunnur
2026/09/24
Góðan daginn fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá hrottalegu máli sem tekur alltof langan tíma að upplýsa. Ungur maður vildi bara dansa við unga konu en það var að venju reiður maður sem fann sig knúinn til að eyðileggja það. Þátturinn er í boði: Nettó, Happy Hydrate, Óskaskrín, BL, Giggó, Fulltingi og Sassy Þolandi: Timothy Coggins Gerendur: Frankie Gebhardht og Bill Moore
Orð dagsins er: Gistipartý
2026/09/17
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og þar kynnumst við nokkrum einstaklingum í fjölkæru sambandi. Sem er vel, sérstaklega ef öll vita af því. Mikið kaos, margar spurningar og mikil undrun.  Þáttur dagsins er í boði Sassy, Happy Hydrate, BL, Giggó, Fulltingi, Óskaskrín og Nettó.  Þolandi: Desiree Sunford Gerandi: Marty Grismer. Allavega hann, kannski fleiri.
Orð dagsins er: Náttföt
2026/09/10
Góðan daginn, þennan fallega fimmtudaginn.  Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Ástralíu og segir okkur frá konu sem fannst myrt og brunnin í röri. Í kjölfarið fer af stað röð atburða sem gefur okkur þó alveg merkilega fá svör. Eiginlega alveg óþolandi, og líka stórmerkilegt. Þolandi: Linda Agostini, amk í einhverju máli. Þátturinn var í boði: Sassy, Happy Hydrate, BL, Óskaskrín, Fulltingi, Giggó og Nettó.     Fyrir óklipptan þátt, sjónvarpsþátt eða áskriftarþætti þá mælum við með því að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Orð dagsins er: Bartar
2026/09/03
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn.  Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá alveg svakalega undarlegu máli. Blautum þvotti í poka, andliti á glugga, konu á tánumog manni með alveg svakalega stóra barta. Allt hið undarlegasta og enginn veit neitt. Þáttur dagsins er í boði Sassy, BL, Fulltingi, Happy Hydrate, Nettó, Óskaskrín og Giggó. Fyrir óklipptan þátt, áskriftarþætti og sjónvarpsþætti mælum við með því að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Bókacastið X Morðcastið - Irpa
2026/09/01
Góðan daginn, þennan fallega lestrardaginn.  Í dag förum við yfir bókina Irpu eftir Hildi Knútsdóttur.  Fyrir sjónvarpsþáttinn getiði kíkt inná www.pardus.is/mordcastid
Orð dagsins er: Tanleysi
2026/08/27
Góðan og glæsilegan fimmtudaginn.  Þáttur dagsins er aðeins kaotískur en það er einungis (ekki alveg kannski) vegna þess að málið er mjög kaotískt. Unnur fer með okkur í einskonar Evrópureisu hvar gamall kall tekur margar hræðilegar afleiðingar og margar konur eru fórnarlömb. Alltof týpískt. Þáttur dagsins er í boði Nettó, gjafabréf.is, Happy Hydrate, BL, Fulltingi, Giggó og Sassy.  Fyrir áskriftarþætti, óklippta vikuþætti og sjónvarpsþættina mælum við með að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Orð dagsins er: Nettókassi
2026/08/20
Góðan daginn, fimmtudaginn. Maður á leið í vinnu mjög snemma morguns rekst á kassa sem hann óskar mjög heitt að innihaldi matvöru úr Nettó. Hann gerði það ekki. Við sögu koma börn, fátækt, ömurð og buffalóar.  Í boði Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, BL, Óskaskrín, Giggó og Sassy.
Orð dagsins er: Blómabeð
2026/08/13
Góðan daginn, almyrkvadaginn. Í dag er Unnur með okkur í Nýju Mexíkó, hvar fullorðinn maður flýr til Mexíkó með nýrri kærustu sinni. Eða hvað? Líklega alls ekki.  Þolandi: Craig Thetford Gerandi: Deana Thetford Í boði BL og MG, Nettó, Happy Hydrate, Sassy, Giggó, Fulltingi og Óskaskrín
Orð dagsins er: Særing
2026/08/06
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn.  Maður fær í bakið, missir vinnuna og endar á einhvern ótrúlegan hátt á því að láta særa úr sér illu andana. Suma. Ekki alla. Þolandi: Christine Taylor Þátturinn er í boði: Happy Hydrate, Nettó, Óskaskrín, Sassy, Giggó, Fulltingi og BL.

Podcast reviews

Read Morðcastið podcast reviews


4.8 out of 5
116 reviews
★★★★★
LísaRán 2022/02/05
Uppahalds 🤩
Eina Podcastið sem að ég missi ekki úr þátt!
★★★★★
SaraSigur 2021/04/25
Lang skemmtilegasta podcastið
Þær eru svo fáránlega góðar saman systurnar. Eina podcastið sem ég missi aldrei af þætti! ✨
★☆☆☆☆
Siggiduret 2021/04/12
...
Það er ekkert eðlilega pirrandi að fyrstu 10-20 min fara í bara sömu auglýsingar þátt eftir þátt
★★★★★
#Iceland 2021/04/01
Uppáhalds Podcastið
Mitt allra allra uppáhalds Podcast, óborganlegar systur.
check all reviews on apple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Morðcastið relevant audience podcasts


What do you want to promote?