1473530074
Gullkastið

Advertise on podcast: Gullkastið

This podcast has
416 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Kop.is
Explicit
No
Date created
2019/07/18
Latest episode
2026/11/11
Average duration
59 min.
Release period
7 days

Description

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Unlock Gullkastið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Social media

Check Gullkastið social media presence


Podcast episodes

Check latest episodes from Gullkastið podcast


Gullkastið - Önnur lota að baki
2026/11/11
Landsleikjahlé framundan og 10.umferðir búnar af mótinu. Tókum stöðuna á toppliðunum almennt, vesen á Manchester liðunum, jafn skemmtilegt Brighton lið og Arsenal liðið er leiðinlegt. Sigurleikur hjá Liverpool gegn Palace og vont tap í Tyrklandi. Ögurverkliðið var á sínum stað þar sem Trent sótti um vinnu. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Gullkastið - Atletico Arsenal
2026/11/02
Liverpool voru bókstaflega flautaðir úr leik á Anfield gegn svari Englands við Atletico Madrid. Hroðaleg úrslit og ákaflega pirrandi leikur en frammistaða Liverpool ekki alslæm og liðið ennþá í mótun. Áhugaverð úrslit í öðrum leikjum í deildinni og tími á uppfært PowerRank. Er Liverpool ennþá hvað helst í baráttu við Man Utd eins og við töldum fyrir mót? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Gullkastið - Handbragð Iraola
2026/10/29
Handbragð Iraola er smátt og smátt farið að sjást á Liverpool liðinu og miklu betri liðsheild farin að myndast en við sáum oft síðasta vetur. Frábær sigur gegn Brighton um helgina og í gærkvöldi skoraði Joe Gomez sigurmarkið! Spáðum í deildinni almennt með áherslu á stórskemmtilegt United lið Michael Carrick, nýtt Ögurverk lið er farið af stað og framundan er risaslagur gegn Arsenal á Anfield. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Gullkastið - Pennahittingur
2026/10/24
Það er hittingur hjá Kop.is samsteypunni og við hentum í Gullkast af því tilefni. Staðan á liðinu í dag, leikir vikunnar og alvöru Ögurverk lið. Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: Daníel, Óli Haukur, Hannes, Ingimar og Ívar Örn Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Gullkastið - Framfarir frá síðasta tímabili
2026/10/19
Liverpool vann tvo útileiki í þessari viku og skoraði samtals átta mörk sem er einmitt það sem þurfti eftir þunga helgi þar á undan. Frábær útisigur gegn erfiðu liði Brentford í hörkuleik þrátt fyrir töluvert mótlæti og markaveisla í Austurríki gegn LASK. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Gullkastið - Leiðinlegur Farsi
2026/10/12
Vörumerkið Enska Úrvalsdeildin er í vanda og verður það þar til búið er að afgreiða refsingu Man City. Leikurinn um helgina var sá fyrsti eftir að dómurinn fellur og skilur vægast sagt eftir óbragð í munni knattspyrnuáhugamanna. Svona getur þetta ekki gengið áfram, það er flestum ljóst. Liverpool missti þrjá lykilmenn í meiðsli í lengsta landsleikjahléi sögunnar sem hjálpaði ekkert til við undirbúning á leik gegn liði sem hefur komist upp með að svindla á áður óþekktum skala í 15 ár. Hrikalega óstöðugur dómari frá stór Manchester svæðinu hjálpaði alls ekki til og í raun kálaði annars sæmilegum leik. Það hjálpaði ekki til með óbragðið. Næst eru það útileikir gegn LASK Í Austurríki og Brentford í London og ljóst að Iraola þarf að fara ná að innleiða sína hugmyndafræði í liðið og ná betra flæði í leik liðsins. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Gullkastið - Athyglin á Anfield
2026/10/07
Viðureign Liverpool og Man City var áhugaverð fyrir þetta landsleikjahlé en áhuginn á þeim leik hefur heldur betur margfaldast eftir að niðurstaða fékks loksins í 115 ákærur sem hangið hafa yfir Man City undanfarin ár. Spáum í þeim leik og stöðunni á þessu risa máli. Ögurverk liðið er á sínum stað og við spáum í leikjum helgarinnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Ævintýralegt Svindl
2026/09/30
Átta árum eftir að Football Leaks síðan birti upplýsingar um ótrúlegt fjármálasvindl Man City er enska knattspyrnusambandið loksins búið að komast að því að þeir voru sekir. Þetta var öllum ljóst fyrir þennan stóra leka árið 2018 en hann girti svo rosalega niður um Man City að ekki var lengur hægt að horfa framhjá þessu. Samt hefur þetta tekið átta ár! Flest af þeim ár þar sem Liverpool var með frábært lið og ætti að skoðast í enn betra ljósi núna. Augljóst að þetta var stórt umræðuefni í annars daufu landsleikjahléi. Julian Ward er tekinn við DoF stöðunni og það stefnir í meiðslavandræði í sóknarlínunni hjá Liverpool eftir þessa bölvuðu landsleiki. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is Hópferðina á leikinn gegn Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks, þetta er símtalið ef ykkur vantar smiði Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Gullkastið - Fyrsti Kafli
2026/09/23
Litla örmótið fram að fyrsta landsleikjahléi er á enda og smá mynd komin á mótið. Fórum yfir stöðuna hjá toppliðunum og byrjunina á mótinu. Liverpool náði í þrjú góð stig gegn Bournemouth um helgina og var fyrsta liðið til að fara með öll þrjú stigin þaðan síðan í janúar.   Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember (Örfá sæti laus) Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gullkastið - Work In Process
2026/09/16
Ungu strákarnir komu með orku í leikinn gegn Tottenham í deildarbikarnum sem sárlega vantaði í helstu lykilmenn Liverpool gegn Fulham. Hellingur eftir þessa viku fyrir Iraola að greina á meðan hann lærir inn á hópinn sem hann er með hjá Liverpool. Ögurverk liðið er á sínum stað, Gullstund(ir) vikunnar og framundan deildarleikur fyrir voðalega langt landsleikahlé   Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gullkastið - Framfarir
2026/09/10
Tveir sigurleikir í röð í þessari viku og Liverpool lið sem við þekkjum mun betur og líkar betur við. Það eru framfarir milli leikja þessa dagana og spennandi breytingar á leik liðsins sem enn á þó töluvert í land. Spáum aðeins í leikmannaglugganum og tíma Richard Hughes hjá Liverpool Ögurverk liðið er á sínum stað og tveir leikir framundan í næstu viku líka. Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gullkastið – Leikmannaglugganum Lokað
2026/09/02
Liverpool gekk loksins frá kaupum á Bradley Barcola frá PSG en létu bara þar við sitja á lokavikum leikmannagluggans, innkaup langt undir væntingum flestra stuðningsmanna félagsins. Spáum í glugganum hjá Liverpool sem og hinum toppliðunum í deildinni. Hverjir eru sáttir eftir sumarið og hverjir ekki. Notthingham Forest fór þriðja tímabilið í röð með eitthvað frá Anfield í leik helgarinnar sem er óþolandi trend og leikurinn um helgina eftir því. Næst er það svo Ipswich á föstudagskvöldið á Portmann Road. Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
Gullkastið - Stór vika
2026/08/26
Tímabilið er farið af stað og eitt stig á endanum niðurstaðan í Newcastle með flautumarki annað árið í röð. Spáum í spilamennsku Liverpool og umferðina í heild. Þetta er jafnframt síðasta vika leikmannagluggans og sjaldan sem Liverpool á svona mikið eftir að gera á leikmannamarkaðnum. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig hópurinn breytist áður en við fáum Nottingham Forest í heimsókn næstu helgi. Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gullkastið – Er Liverpool tilbúið í Tímabilið?
2026/08/17
Æfingaleikir að baki og nýtt tímabil byrjar um helgina á útivelli gegn Newcastle. Er Liverpool liðið tilbúið í mótið og fáum við fleiri leikmenn áður en glugganum lokar? Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gullkastið – Araujo mættur til æfinga
2026/08/12
Liverpool bætti Araujo miðverði frá Barceolna við leikmannahópinn í vikunni og kom það nokkuð óvænt upp. Hann hefur átt erfitt uppdráttar eftir að Hansi Flick tók við liðinu en var lykilmaður hjá Xavi og hefur verið í fyrirliðahópi Barcelona. Þetta er strákur frá Úruvgæ sem kom til Barcelona árið 2018. Spáum í honum og slúðri af leikmannamarkaðnum. Liverpool spilaði æfingaleik um helgina sem var mjög svipaður leikjum gegn Leeds í Bandaríkjunum, gríðarlega kaflaskiptur og mikið hrun í leik liðsins þegar lykilmenn fóru að fara af velli. Iraola var ekki sáttur við hlaupagetu hópsins eftir leik sem klárlega er verið að vinna í á æfingasvæðinu og vonandi leikmannamarkaðnum líka. Héldum áfram með Power Rank á deildina, Ögurverk liðið o.fl. Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Podcast reviews

Read Gullkastið podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Gullkastið relevant audience podcasts


What do you want to promote?