1473760667
Fjórtaktur

Advertise on podcast: Fjórtaktur

Rating
★★★★★
5
from
2 reviews
This podcast has
30 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Fjórtaktur
Explicit
No
Date created
2019/07/22
Latest episode
2021/10/10
Average duration
55 min.
Release period
34 days

Description

Hlaðvarpsþáttur um íslenska hestinn á fróðlegu og léttu nótunum.

Unlock Fjórtaktur podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Fjórtaktur podcast


Hvað með magasár?! - Úndína Ýr Þorgrímsdóttir segir frá
2021/10/10
Úndína Ýr er ungur dýralæknir sem lýkur nú námi sínu við Kaupmannahafnarháskóla með stórri rannsókn hér á Íslandi þar sem könnuð er tíðni magasára og eðli þeirra.  Úndína segir okkur frá því hvað magasár eru, hvernig einkenni þeirra gætu birst okkur, ástæður fyrir því að þau myndast og hvað sé til ráða. Við ræddum líka rannsóknina og dýralæknanámið sem hefur verið strembið er skemmtilegt! 
Hvernig læra hestar -Inngangur í þjálfunarfræði með Jóhönnu Þorbjörgu
2021/09/25
Fyrsti þáttur í nýrri seríu er komin út! 🎉 Við ákváðum að byrja þessari seríu á stóru trompi, viðtali við Jóhönnu Þorbjörgu, sem er menntaður hundaþjálfari og hegðunarfræðingur.  Hér segir Jóhanna okkur frá grunnþáttum þjálfunarfræðinnar, hvernig dýr meðtaka upplýsingar, læra og hvernig hegðunin mótast, meðvitað og ómeðvitað 🧠.  Ekki er allt sem sýnist við hefðbundna þjálfun hrossa og því fer engin frá þessum þætti ósnortinn, því getum við lofað!! 
Hindrunastökk frá A - Ö ( ÓL Special! )
2021/08/03
Allt sem þú þarft að vita um hindrunastökkið á Ólympíuleikunum í Tokyo! 
Söfnun eða samþjöppun?
2021/04/22
Í þessum síðasta þætti Fjórtakts í bili ræðum við söfnun og samþjöppun, skilgreininguna á því fyrrnefnda og hver munurinn er.  Þátturinn er ekki með sama þema og verið hefur í vetur þar sem við höfum stutt okkur ætíð við vísindagreinar og staðreyndir heldur ræðum við hér hugmyndafræðina um söfnun sem rituð hefur verið í bækur um gildi klassíska reiðmennsku. 
Öndun hesta og knapa - Virkni og beiting
2021/03/04
Í þessum þætti ræðum við öndunarkerfi hrossa, virkni þess og hvað er vert að hafa í huga þegar við þjálfum hross. Við ræddum einnig öndun knapans og hvernig hún tengir okkur við hestinn og getur hjálpað okkur við þjálfun. 
Hrossasótt, orsök hennar og meðhöndlun - Andrea Dýralæknir
2021/02/18
Andrea dýralæknir settist niður með okkur og ræddi allt það sem tengist hrossasótt. Við fórum yfir orsakir, einkenni og Pain Face, sem gefur okkur skýr merki um að eitthvað ónáði hestinn. 
Fullkomið jafnvægi? - Misstyrkur, þjálfun og afleiðingar
2021/01/19
Við ræðum misstyrk, hvaðan hann á rætur sínar í náttúrulegu eðli hestanna okkar og hvernig hann birtist okkur þegar það er komið að því að þjálfa hestinn. Við ræddum vandamálin sem misstyrkur getur valdið og leiðir til þess að gera hestinn samspora ásamt smá umræðu um mikilvægi þess að hesturinn sé jafnvígur þrátt fyrir að mælistikurnar fyrir misstyrk séu litlar þegar komið er í keppni, sama hver reiðstíllinn er! 
Markmiðasetning og hugarþjálfun - Lyklar árangur
2021/01/06
Í þættinum förum við yfir lykilatriði markmiðasetningar, hvað það er sem skiptir máli þegar við veljum vegferð verkefna og hvernig við getum nýtt mátt hugans til að koma okkur þangað. 
Hitastýring hrossa, erfðasyndin og rakstur reiðhrossa
2020/12/25
Þátturinn fjallar um hitastýrikeri íslenskra hrossa sem flokkast sem kaldblóðshestar. Við förum yfir þá erfðasynd íslenskra, sá mikli hæfileiki til að halda á sér hita!  Líkt og áður berum við fyrir okkur rannsóknir og greinar dýralækna við dýpri umfjallanir líkt og þessa og ræðum kosti og galla þess að raka, nota ábreiður og valið að gera ekki neitt! 
Hnakkurinn frá A-Ö með Eveliinu Marttisdóttur
2020/11/09
Ertu í alvöru með réttan hnakk?!  Í þessum þætti ræddum við heima og geima hnakkana með Eveliinu Marttisdóttur sem rekur hnakkastillingarfyrirtækið Hestbak. Eveliina sérhæfir sig í því að skoða, mæla og greina bök hrossa og velja þeim hnakk sem þjónar þeirra þörfum, sem og knapans. Við ræddum allt sem tengist hnökkum, undirdýnum og áhrifum þess að vera með rétta og RANGAN hnakk á milli hests og knapa! 
Manngerving - Hættur hennar og ábati
2020/10/16
Þáttur vikunnar fjallar um stóra vísindalega skilgreiningu sem tengist öllu sem við upplifum og gerum við dýrahald! Manngerving (e. Anthropomorphism) er innvinklað í alla hegðun mannskepnunnar, enda er það hennar helsti eiginleiki að reyna að skilja eðli alls, hvort sem að baki því er vísindaleg nálgun eða ekki.  Manngerving er ástæða þess að við tengjumst dýrunum okkar, hvati okkar til þess að halda áfram að þjálfa þau og elska þau. Við förum yfir hvað þetta er, hvað þetta þýðir, hverjir ábatarnir eru og afhverju þetta getur komið í veg fyrir framfarir eða jafnvel ógnað velferð dýranna okkar!  
Andleg örvun hrossa á húsi
2020/10/03
Það að taka hest úr náttúrulegu umhverfi sínu í haganum með stóðinu og inn í hesthús í ófjölbreyttara umhverfi getur verið mikil breyting og hreinlega niðurdrepandi fyrir hestana. Í þætti þessarar viku ræddum við hvað andleg örvun er, hvernig við getum örvað skynfæri hrossana okkar í hinum ýmsu aðstæðum sem eru sett í sem reiðhross og hin ýmsu leikföng sem hægt er að notast við!   

Podcast reviews

Read Fjórtaktur podcast reviews


5 out of 5
2 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Fjórtaktur relevant audience podcasts


What do you want to promote?