1480961000
Besta platan

Advertise on podcast: Besta platan

Rating
★★★★★
5
from
8 reviews
This podcast has
289 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2019/09/21
Latest episode
2026/10/09
Average duration
82 min.
Release period
13 days

Description

Þáttur þar sem bestu plötur hljómsveita og tónlistarfólks eru ræddar. Snæbjörn Ragnarsson og dr. Arnar Eggert Thoroddsen höfðu umsjón með þáttum #0001 - #0100. Haukur Viðar Alfreðsson og dr. Arnar hafa haft umsjón frá og með þætti #0101. Baldur Ragnarsson stýrir þættinum.

Unlock Besta platan podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Besta platan podcast


#0300 BP300: Yanni
2026/10/09
Alveg frá upphafi hefur bókstaflega RIGNT inn fyrirspurnum um það hvenær við ætlum eiginlega að taka fyrir gríska hjartaknúsarann Yanni. Nú er komið að því! Ef þið fáið ekki nóg af Bestu plötunni, verið þá með okkur á Patreon og fáið þátt í hverri viku!
#0298 Bonnie Tyler - Faster Than The Speed Of Night
2026/09/25
Bonnie heitin Tyler aflaði mikilla vinsælda á sinni tíð sökum kraftmikillar, rámrar raddar, sem þótti minna á sjálfan Rod Stewart. BP-teymið vottar þessari gegnheilu dívu virðingu sína í vönduðum þætti sem skæðasti sólmyrkvi gæti ekki unnið á. Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.
#0296 Todmobile – Todmobile
2026/09/11
Todmobile er með allra merkilegustu poppsveitum Íslandssögunnar, bræðingur sveitarinnar á straumum og stefnum sem á pappír áttu ekki að geta átt samleið gerðu það samt í meðförum þessa framsýna þríeykið. Toppi var náð á plötu númer tvö, samnefndri sveitinni. Eða hvað? Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.
#0294 Violent Femmes – Violent Femmes
2026/08/28
Eru til skemmtilegri, hressari, meira lífsfyllandi, brjálaðri, pönkaðri, hamingjusamari, hræðilegri, melódískari og hreint og beint sturlaðri frumburðir en fyrsta plata bandarísku þjóðlagapönksveitarinnar Violent Femmes? Varla… Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.
#0292 Gunnar Þórðarson (1945–2026)
2026/08/14
Fótspor, handbragð og hugsun meistara Gunnars Þórðarssonar liggur bókstaflega út um allt er kemur að íslenskri tónlistarmenningu. Við BP-liðar vottum honum hér virðingu okkar.   Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.
#0290 The Doors – Strange Days
2026/07/31
Fáar rokksveitir í sögunni hafa verið jafn áhrifaríkar, dýrkaðar og umdeildar og The Doors. Þar hélt Jim Morrison nokkur um hljóðnema og lak kynþokkinn af hverri sellu hans og það strítt. Besta plata sveitarinnar er plata tvö, Strange Days, og er það doktorinn sem fer fram með það val og er það ekki nema sæmilega umdeilt.
#0288 Ariana Grande – Dangerous Woman
2026/07/17
Gleymið Adele, Sam Smith og Rihönnu. Þegar kemur að hreinræktuðum sönghæfileikum eru þessar poppstjörnur eins og kófdrukknir, trallandi fjósamenn á sveitaballi í samanburði við Ariönu Grande. Nei, þeir eru ekki margir poppararnir sem skáka henni á söngsviðinu. En hvernig er músíkin?
#0286 Van Halen – Van Halen
2026/07/03
Van Halen gerði út frá Kálfatjörníu og er ein algerasta rokksveit sögunnar. Það er allt þarna mætti segja, hæðir, lægðir, partístand, vitleysisgangur, linnulaus ranaímokstur og svo að sjálfsögðu trukkandi rokk og ról sem á fáa sína líka …
#0284 Avril Lavigne – Let Go
2026/06/19
Popppönkprinsessan Avril Lavigne toppaði sig tónlistarlega strax á fyrstu breiðskífunni, Let Go (2002). Áhrif hennar sem poppmenningaríkons eru mikil og farið verður í saumana á því öllu saman í brimafullum þætti…
#0282 Nýdönsk – Himnasending
2026/06/05
Popptónlist 9. áratugarins var af mörgum talin yfirborðskennd, einnota og vélræn. Það var því sannkölluð „himnasending“ að fá Nýdönsk fram á sjónarsviðið undir lok eitísins. Tónlistin var vönduð, listræn og leitandi. Grípandi án þess að vera eitthvað blöðrupopp. Fullorðna fólkið var mætt í partíið.
#0280 Faith No More – Angel Dust
2026/05/22
Ein merkasta jaðarþungarokkssveit allra tíma, Faith No More, er á borði Bestu plötunnar þessa vikuna. Sitt sýnist hverjum um uppsöfnuð afrek hennar og voru umræðurnar fróðlegar svo ekki sé meira sagt!
#0278 Angine de Poitrine – Vol. II
2026/05/08
Doppóttu míkrótónal-gosarnir í Angine de Poitrine voru óþekkt stærð í upphafi árs. Rúmum mánuði síðar voru þeir á allra vörum — og hæpið stendur enn yfir. En er eitthvað í þessu? Taktu þátt í umræðunni á Besta platan - Umræðuhópur. Styddu við Bestu plötuna, komdu í áskrift á Patreon og fáðu tvöfalt fleiri þætti.
#0277 Frímínútur – Björgvin Halldórsson (1951–2026)
2026/05/01
Í þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar dægurtónlistar.
#0276 Nick Drake – Pink Moon
2026/04/24
Nick Drake lést langt fyrir aldur fram, hafandi ekki hugmynd um þau áhrif sem stuttur tónlistarferill hans myndi hafa á fjölmargar kynslóðir á eftir honum. Þriðja og síðasta platan hans, Pink Moon frá 1972, er sú besta. Athugið að í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins á 1717.is.
#0275 Killing Joke – Night Time
2026/04/17
Killing Joke er ein ógurlegasta síðpönksveit sögunnar, algerlega einstök mætti segja, og áhrifarík fyrir allan peninginn. Að velja hina poppuðu „Night Time“ sem bestu plötuna mun strjúka einhverjum öfugt en gefum BP-liðum færi á að útskýra sitt mál (doktornum aðallega).

Podcast reviews

Read Besta platan podcast reviews


5 out of 5
8 reviews
★★★★★
Björgvin Benediktsson 2020/08/15
Lost in translation.
Best music podcast you’ll never understand. 10/10 would recommend.
check all reviews on apple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Besta platan relevant audience podcasts


What do you want to promote?