
Advertise on podcast: 360 Heilsa
Rating
5from
This podcast has
54 episodes
Language
IcelandicPublisher
Rafn Franklin JohnsonExplicit
No
Date created
2019/11/04
Latest episode
2022/06/21
Average duration
74 min.
Release period
46 days
Description
Hér finnur þú allt sem snýr að bættri heilsu, bættum árangri og betri líðan. Hlustaðu á viðtöl við allskyns sérfræðinga á sviði líkamsræktar og heilsu til að fá nýjustu upplýsingar og vísindi beint í æð.
Unlock 360 Heilsa podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from 360 Heilsa podcast
Áföll, EMDR meðferð, kvíði, andleg heilsa og fleira með Rósu Richter
2022/06/21
Gestur þáttarins hjá mér í dag er Rósa Richter. Rósa starfar sem sálfræðingur og EMDR meðferðaraðili hjá EMDR stofunni og aðstoðar þar bæði börn og fullorðna við að vinna á hlutum eins og:
Áföllum og áfallastreituröskun
Tenglsavanda
Þunglyndi
Kvíða
Fíknivanda
Meðvirkni
Í þættinum ræðum við um margt sem viðkemur andlegri heilsu og áföllum. Hlutir eins og hvað er EMDR meðferð og hvernig virkar hún til að vinna í áföllum. Hvað eru áföll, hvernig getum við hugað betur að andlegri heilsu, unnið á kvíða og margt fleira.
Meiri orka, betri einbeiting, aukinn styrkur og minni streita með þessum mikilvægu efnum
2022/06/10
Í þessum þætti ræði ég ákveðið málefni sem ég tel hafa fengið of aðeins of litla athygli. Þá sérstaklega hjá þeim sem stunda reglulega þjálfun og hreyfingu.
Þetta eru sölt og steinefni.
Í þættinum ætla ég að fara yfir hvað þetta er nákvæmlega, afhverju þetta ætti að skipta þig máli, hvort þú ættir að auka inntöku eða minnka inntöku á þessum efnum, hvernig þá og af hverju.
Sömuleiðis fer ég yfir af hverju ég er ósammála hefðbundnum ráðleggingum um að við ættum að lágmarka saltneyslu fyrir bætta heilsu.
Hlutirnir sem enginn talar um þegar kemur að föstum
2022/06/03
Föstur hafa lengi verið talin allrameina bót. Á síðustu árum hafa allskyns mismunandi föstur eins og 16:8, 5:2 og fleiri vaxið gríðarlega í vinsældum. Föstur eru taldar bæði stuðla að bættri heilsu og hjálpa fólki að losna við aukakílóin og komast í betra form.
Föstur hafa þó sína "skuggahlið". Hlutir sem fáir tala um en eru gríðarlega mikilvægir þegar kemur að ákvörðuninni um hver eigi að fasta yfir höfuð og hver ekki, hversu lengi og hvenær.
Í þessum þætti varpa ég ljósi á þær skuggahliðar fasta sem enginn talar um.
Besta ráðið til að léttast áreynslulaust (sem þú ert líklegast ekki að gera)
2022/06/01
Frá því ég byrjaði að þjálfa fólk fyrir að verða 10 árum síðan hef ég uppgötvað ákveðið mynstur sem virðist sameiginlegt milli allra þeirra sem eiga erfitt með að koma sér í form og viðhalda því til lengri tíma.
Í þessum þætti uppljóstra ég þessu mynstri ásamt nokkrum conceptum sem munu gera þér kleift að léttast og komast í betra form svo gott sem áreynslulaust.
Áhrif hreyfingar og lífsstíls á kvíða og andlega heilsu með Þórdísi Vals
2022/05/18
Í þessum þætti ræði ég við fjölmiðladrottninguna og lögfræðinginn Þórdísi Valsdóttur. Ég kynntist Þórdísi fyrst þegar hún kom til mín í einkaþjálfun og fékk þar innsýn í hennar áhugaverðu sögu. Í þættinum spjöllum við um hvernig fortíð hennar og æskuáföll hafa mótað hana, hvernig hún hefur lært að nota hreyfingu til að umturna andlegri heilsu sinni og vegferðin hennar með kvíða- og þunglyndislyf og fleira.
Komdu í áskrift á 360 Heilsa hlaðvarpinu með því að smella hér: www.360heilsa.is/hladvarp
Samstarfsaðilar þáttarins:
NUUN Electrolytes - fáanlegt í helstu matvöruverslunum, útibúum Lyfju og Heilsuhúsinu Pure Natura (kóði "360heilsa" f. 15% afslátt) - Fáanlegt á purenatura.is, Hagkaup, útibúum Lyfju og Heilsuhúsinu
Leiðir að Hugarfrelsi með Unni og Hrafnhildi
2021/04/19
Í þessum þætti fékk ég til mín þær Hrafnhildi og Unni, stofnendur Hugarfrelsis.
Hugarfrelsi stendur fyrir ýmis konar fræðslu, námskeiðum og fyrirlestrum þar sem börnum, unglingum, foreldrum og fagfólki er kennt að nota einfaldar aðferðir til að efla sjálfsmynd og vellíðan.
Í þættinum fékk ég að kynnast betur þeirra hugmyndafræði og hvernig við getum tekið meiri ábyrgð á eigin lífi og öðlast aukið hugarfrelsi.
Þær vilja bjóða öllum hlustendum hlaðvarpsins 15% afslátt af nýju netnámskeiði sem þær voru að gefa út sem heitir "Veldu". Frábært námskeið fyrir ungt fólk. - Kóði: 360heilsa
www.hugarfrelsi.is
-------------------
Samstarfsaðilar þáttarins:
Toppur
www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt
Kryddhúsið - www.kryddhusid.is
Andleg heilsa, geðrækt, Andagift og fleira með Tinnu Sverris og Láru Rúnars
2021/03/29
Í þættinum í dag fékk ég til mín stofnendur fyrirtækisins Andagift, Láru Rúnars og Tinnu Sverris. Andagift snýr að því að efla andlegt heilbrigði og vellíðan með viðburðum og námskeiðum eins og:
– Möntrukvöld
– Kakó athafnir
– Retreat
– Andagift festival
– Innri Veröld
Í þættinum förum við yfir þetta alltsaman ásamt þeirra vegferð, almennum pælingum um andlega heilsu, geðrækt og fleira.
-------------------
Samstarfsaðilar þáttarins:
Toppur
www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt
Kryddhúsið - www.kryddhusid.is
#47. Hvað á að gefa börnunum að borða og almenn umræða um heilsu með Ebbu Guðnýju
2021/03/02
Gestur þáttarins í dag er kennarinn, rithöfundurinn, matreiðslukonan og heilsufrumkvöðullinn Ebba Guðný eða Pure Ebba. Ebba hefur gefið út þrjár vinsælar bækur, "Eldað með Ebbu" uppskriftarbækur og síðan "Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?"
Í þættinum fórum við yfir matarmál barna, heilsuvegferð Ebbu og almenna umræðu um heilbrigðan lífsstíl.
------------------------
Samstarfsaðilar þáttarins:
Toppur
www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt
Borðum betur - www.360heilsa.is/bordumbetur
#46. KAP - Er Kundalini Activation Process fyrir þig? Með Þóru Hlín Friðriks
2021/02/22
Gestur þáttarins í dag er Þóra Hlín Friðriksdóttir. Þóra er fyrrum starfandi hjúkrunafræðingur en hefur í dag snúið athyglinni alfarið að fyrirbæri sem kallast KAP eða Kundalini Activation Process. Í þættinum förum við yfir hvað KAP er, hver hugsunin er á bakvið það og af hverju fólk ætti að stunda KAP.
Þóra Hlín kennir KAP tímana sína í Sólir á Granda.
--------------------
Samstarfsaðilar þáttarins:
Toppur
www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt
Kryddhúsið - www.kryddhusid.is
Af hverju lífrænt, loftlagsáhrif, gerilsneyðing, fitusprenging o.fl með Kristjáni Oddssyni bónda
2021/02/15
Gestur þáttarins í dag er Kristján Oddsson, bóndi að Neðra Hálsi í Kjós. Kristján er mikill frumkvöðull í lífrænni ræktun á Íslandi og einn eiganda fyrirtækisins Bióbú sem sérhæfir sig í vinnslu á lífrænum mjólkurafurðum.
-----------------
Samstarfsaðilar þáttarins:
Toppur
www.purenatura.is - kóði "360heilsa" f. 15% afslátt
Veristable blóðsykursmælir - www.360heilsa.is/veristable
Taka ábyrgð, frá vegan í kjöt, barefoot og margt fleira með Arnóri Svein
2021/02/09
Gestur þáttarins í dag er fótboltamaðurinn, kennarinn og heimspekingurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson. Við förum um víðan völl og ræðum um alls kyns mál tengd heilsu. Vegferð hans frá vegan lífsstíl í að borða aftur kjöt, hvernig hann leysti meiðslavandamál í fótum með því að vera berfættur og mikilvægi þess að taka ábyrgð á eigin lífi.
---------
Samstarfsaðilar þáttarins:
Toppur
www.canivore.is/budin
Veri-Stable blóðsykursmælir (www.360heilsa.is/betriblodsykur)
Innihaldsríkara líf eða hamingjuríkara líf? Með Begga Ólafs
2021/02/01
Bergsveinn ólafsson er gestur þáttarins í dag. Beggi er með
MSc í Hagnýtri jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði, fyrirlesari, fyrrum fótboltamaður og mikill spekingur.
Í þættinum spjölluðum við um nýju bókina sem hann var að gefa út, 10 skref að innihaldsríkara lífi og köfuðum ofan í hvernig við getum öðlast innihaldsríkara líf og af hverju það skiptir meira máli heldur en hamingjuríkt líf.
Bókin hans er fáanleg í öllum helstu bókaverslunum, hagkaup, nettó og fleiri stöðum og fyrir þá sem hafa áhuga býður hann einnig upp á tíma í þjálfunarsálfræði sem hægt er að finna á vefsíðunni hans beggiolafs.com
----------
Samstarfsaðilar þáttarins:
www.kryddhusid.is
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on 360 Heilsa relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.715181993
Thrivetime Show | Business School without the BS
Clay Clark

4.92108456
Chilluminati Podcast
Chilluminati Podcast

4.72271247
The BradCast w/ Brad Friedman
Brad Friedman

4.91205840
Heaving Bosoms
Heaving Bosoms Productions, Bleav

4.2643546
Spiegel & Holmes Show
Audacy

4.8278568
Hochman, Crowder & Solana
Audacy

4.72312000
법륜스님의 즉문즉설
JUNGTO

4.84021115
The Contractor Fight with Tom Reber
Tom Reber

4.95055607
Cult Liter with Spencer Henry
Spencer Henry | Morbid Network

4.63191000
The Secret Teachings
Ryan Gable