
Advertise on podcast: Ávarpið
Rating
5from
This podcast has
10 episodes
Language
IcelandicPublisher
Bjarki HjörleifssonExplicit
No
Date created
2020/04/11
Latest episode
2025/02/21
Average duration
43 min.
Release period
46 days
Description
Hlaðvarpsþættir undir stjórn Bjarka Hjörleifssonar. Aðgengileg og glettin nálgun á alvarleika vinstrisins, þó okkur sé vissulega dauðans alvara.
Unlock Ávarpið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Social media
Check Ávarpið social media presence
Podcast episodes
Check latest episodes from Ávarpið podcast
Guðrún Hallgrímsdóttir, Rauðsokkur og matvæli
2025/02/21
Guðrún Hallgrímsdóttir fæddist árið 1941 hún lauk prófi í matvælaverkfræði frá Humboldt háskóla í Berlín árið 1968. Guðrún hefur gegnt margvíslegum stjórnunar- og trúnaðarstörfum á vegum hins opinbera og einkafyrirtækja. Hún hefur tekið virkan þátt í stjórnmálum og var ein af stofnendum Rauðsokkuhreyfingarinnar. Hún var varaþingmaður og tók sæti á Alþingi um tíma. Kvenfrelsisbarátta, friðar- og umhverfismál hafa alla tíð verið henni hugleikin.
Guðrún hóf starfsferil sinn sem forstöðumaður rannsóknarstofu Búvörudeildar SÍS. Á árunum 1977-79 var Guðrún iðnþróunarfulltrúi hjá Iðnþróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg. Eftir að hún kom heim aftur starfaði hún í iðnaðarráðuneytinu, var forstöðumaður hjá Ríkismati sjávarafurða, sjávarútvegsráðuneytinu svo eitthvað sé nefnt.
Svandís um bakpokann, pólitíkina og hættuna frá hægri
2024/10/28
Þegar Svandís Svavarsdóttir var sjö ára horfði hún á sína fyrstu kosningavöku í sjónvarpinu og hefur sjaldan, eða aldrei, misst af þeim síðan. Hún lærði fljótt að donta og reikna út uppbótarþingmenn, skrifaði samviskusamlega upp tölur eftir kjördæmum um leið og þær bárust og færði þær inn eftir kúnstarinnar reglum - undir dyggri leiðsögn pabba síns. „Ég meina, ég brenn fyrir pólitík,“ segir Svandís, þegar hún bendir á að hún hafi nú verið orðið rúmlega fertug þegar hún loks hóf sín afskipti af stjórmálum. Á átján ára stjórnmálaferli hefur Svandís verið framkvæmdastjóri VG, borgarfulltrúi, þingflokksformaður, umhverfis- og auðlindaráðherra, heilbrigðisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og svo matvælaráðherra og innviðaráðherra. Svandís Svavarsdóttir er gestur Ávarpsins þar sem hún ræðir meðal annars um nýjasta giggið á ferilskránni: Formaður VG.
Umsjónarmenn þáttarins eru Sunna Valgerðardóttir og Bjarki Hjörleifsson.
Ályktun til Marx um að fundurinn hafi náð til Róta flokksins
2024/10/11
Hvað eiga breytingar á ályktun, heimabruggað Hiroshima og fúlir bakaríiskallar sem hræðast konur, sameiginlegt? Allt kemur þetta við sögu í Ávarpi vikunnar, þar sem Bjarki Hjörleifsson setur á sig stjórnmálafræðiprófessorahattinn og útskýrir fyrir Sunnu Valgerðardóttur hvernig kaupin ganga fyrir sig á eyrinni. Þau fara yfir nýafstaðinn landsfund VG um síðustu helgi, skoða breytingarnar sem umtalaðasta ályktun síðari ára tók á fundinum og sögðu nokkra brandara við gífurlega góðar undirtektir hjá þeim sjálfum.
Landsfundasögur leikarans og dýrahirðisins
2024/10/03
Það er búist við góðri stemningu, gleði og átökum á komandi landsfundi VG. Von er á hátt í 300 manns í Safamýrina um helgina, þar sem bæði verður litið um öxl en sömuleiðis horft fram á við. Svona eins og stjórnmálafólk gerir. Sunna Valgerðardóttir og Bjarki Hjörleifsson ræða við Orra Pál Jóhannsson, þingflokksformann VG og fyrrverandi dýrahirði, og Hreindísi Ylvu Garðarsdóttur Holm, skrifstofu- og viðburðarstjóra, leikara og fyrrverandi flugfreyju, um landsfundi fortíðarinnar, hvað sé svona merkilegt við þá og við hverju megi búast.
Konur, krem og Kárahnjúkar
2024/09/27
Ávarpið snýr aftur með seríu númer tvö eftir stutt en viðburðaríkt hlé. Fyrsti gestur þáttarins er konan sem stýrir Kvenréttindafélagi Íslands. Hún var einu sinni doktorsnemi í lífefnafræði, svo varð hún doktor og fór að vinna með prótein til að gera krem og serum hjá einu virtasta snyrtivöruframleiðanda Evrópu. Svo ákvað hún að helga sig náttúrunni og varð framkvæmdastjóri Landverndar. Hún ræðir við Bjarka Hjörleifsson og Sunnu Valgerðardóttur um eina snyrtidótið sem virkar í alvörunni, sárið sem Kárahnjúkadeilan skildi eftir sig, skógrækt, kolefnisjöfnunaræði Íslendinga, tradwives, hrútana í landbúnaðinum og skort á skilningi þeirra sem ráða. Og birkitréð sem mamma hennar felldi.
„Áframhaldandi endurreisn millifærslukerfa sem jafna stöðu fólks“
2024/03/21
Karlakór alþýðunnar snýr aftur. Bjarki fær til sín nafna sinn dr. Bjarka Þór Grönfeldt og Kára Gautason en þeir ræða m.a. málfrelsi, Eurovision, ójöfnuð, vistarbönd, lýðheilsu, kjarasamninga, endurreisn millifærslukerfanna og því að það er hreint orsakasamband milli þess að VG sé í ríkisstjórn og að tekjujöfnuður aukist í landinu.
Ragnar Auðun nýr framkvæmdastjóri VG
2024/03/08
Bjarki Hjörleifsson ræðir við Ragnar Auðun Árnason nýjan framkvæmdastjóra Vinstri grænna. Bjarki og Ragnar ræða hin ýmsu mál í hlaðvarpsþættinum t.a.m. Norræn stjórnmál, þátttöku í félagsstarfi og uppgang hægri öfgaflokka.
„Afhverju erum við eiginlega að kenna dönsku?“
2024/02/16
Í Ávarpinu að þessu sinni ræðir Bjarki við þær Hólmfríði Árnadóttur og Álfhildi Leifsdóttur, kennara, um dönsku, möguleika nemenda til að hafa áhrif á eigin menntun, tækniframfarir og símanotkun, PISA, bölsýni fjölmiðla á æskuna björtu og hlutverk menntakerfisins í stóru myndinni.
„Ég held það sé innri mótsögn í þessu fyrir hægri flokka“
2024/01/26
Bjarki fær til sín nafna sinn dr. Bjarka Þór Grönfeldt og Kára Gautason. Karlakór alþýðunnar ræðir samfélagsmiðla og áhrif þeirra á daglegt líf, hamstrahjól hversdagsins og skírlífi gegn eigin vilja (incels) en Bjarki Þór hefur rannsakað það fyrirbrigði á síðustu árum. Þeir hefja umræðuna á komandi kosningaári en um 70 kosningar fara fram víða um heim á þessu ári, m.a. forsetakosningar í Bandaríkjunum, á Ísland og í Rússlandi.
„Baráttan fyrir friði verður alltaf að vera lifandi“
2024/01/11
Steinunn Þóra Árnadóttir þingkona Vinstri grænna og Bjarki Hjörleifs ræða um nútíma stríð, ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, mikilvægi friðarhreyfingarinnar og uggvænlegar tækniframfarir í hernaði.
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Ávarpið relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.794132
Stick to Football
The Overlap

4.893832
Be My Guest with Ina Garten
Food Network

4.278112003
Crime Stories with Nancy Grace
iHeartPodcasts and CrimeOnline

4.83626196
Back to the Barre
Christi Lukasiak & Kelly Hyland

4.712619350
The Tim Dillon Show
The Tim Dillon Show

4.81145671
High Rollers DnD
Pickaxe

4.718628
Tanya With Rabbi Gordon
Chabad.org: Yehoshua B. Gordon

4.6432001000
Verdict with Ted Cruz
Premiere Networks

4.721532000
Everything Everywhere Daily
Gary Arndt

4.59472010
WhatCulture Wrestling
WhatCulture.com


