
Advertise on podcast: Rauða borðið
Rating
4from
This podcast has
600 episodes
Language
IcelandicPublisher
Gunnar Smári EgilssonExplicit
No
Date created
2020/04/27
Latest episode
2026/10/29
Average duration
218 min.
Release period
1 days
Description
Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Unlock Rauða borðið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Rauða borðið podcast
Rauða borðið 29. okt - Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir
2026/10/29
Fimmtudagur 29. október
Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir
Kári Jónsson, Sirrý Arnardóttir og Álfheiður Ingadóttir eru reynsluboltarnir sem ræða við Sigurjón Magnús þessa vikuna, um fréttir og stöðu samfélagsins. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um símtal Støre og Stubb til Pútín, Úkraínu, smáríki og norðurslóðir. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, ræðir við Björn Þorláks um nýja bók sem fjallar um hryðjuverk, efnahagshrun og endalok heimsveldis. Valur blandar heimssögu sína persónulegum frásögnum. Lýðskrum í íslenskum miðlum - innreið woke frá 1917 er heiti á erindi sem Lars Lundsten fræðimaður flytur á Þjóðarspegli á morgun. Björn Þorláks ræðir við hann um þá sem veifuðu vók-trénu oftast. Mímir Kristjánsson er hálfur Íslendingur á norska þinginu, rithöfundur, blaðamaður og sósíalisti. Hann talar við Gunnar Smára um vinstrið á Norðurlöndum, ysta hægrið og mótmæli í Evrópu. Sigríður Björk Þormar sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur og doktor í heilbrigðisvísindum ræðir við Ásdísi Olsen um hvernig annað fólk getur stjórnað líðan okkar, magnað upp reiði, sorg og höfnun langt umfram sýnilegt tilefni, ýtt á takka sem kveikja á okkur.
Rauða borðið 28. okt - Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs
2026/10/28
Miðvikudagur 28. október
Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs
Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, Hjálmtýr Heiðdal formaður Félagsins Ísland-Palestína, Qussay Odeh, Íslendingur af palestínskum ættum og Laufey Líndal Ólafsdóttir ræða við Gunnar Smára um heimildarmyndina Naza sem fjallar um hvernig ísraelski herinn notar gervigreind og háþróaða tækni til að fremja þjóðarmorð á Gaza. Gauti B Eggertsson hagfræðiprófessor við Brown háskólann ræðir við Gunnar Smára um horfur í heimshagkerfinu, verðbólgu og vaxandi ríkisskuldir og þær áskoranir sem íslenskt efnahagslífs stendur frammi fyrir. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi bregst við ummælum forstjóra ÁTVR um að stofnunin sé að skoða heimsendingu á áfengi. Björn Þorláks ræðir við hann fleiri álitamál er varða lýðheilsu, forvarnir, frelsi og fíkn. Ásmundur Ásmundsson og Hannes Lárusson er enfants terrible íslenskrar myndlistar, sýningar þeirra vekja yfirleitt skjálfta og mikil viðbrögð. Þeir ræða við Gunnar Smára um listina, manneðlið og sýningu sem þeir opnuðu í gær. Guðmundur S. Brynjólfsson rithöfundur og djákni segir Gunnari Smára frá bók sinni Pár Guðs sem fjallar um ris og fall Finn Magnússonar, eins frægasta Íslendings sinnar tíðar.
Þriðjudagur 27. október - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin
2026/10/27
Þriðjudagur 27. október
Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin
Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sagt upp fjölda fólks sem starfar hjá borginni Kári Sigurðsson formaður Sameykis og oddvitar úr minnihlutanum; Pétur Marteinsson Samfylkingu og Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vinstrinu ræða við Gunnar Smára um stöðuna. Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmaður og rektor telur rétt að breyta skólum í fangelsi í stað þess að byggja alltaf ný. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann einnig sinn gamla flokk. Sjálfstæðisstefnan sigraði en Sjálfstæðisflokkurinn er í bullandi vandræðum, segir Vilhjálmur. Landbrot og uppbygging tengd mannfjölgun og ferðaþjónustu á Suðurlandi gæti leitt til árekstra í sambandi manns og náttúru. Björn Þorláks ræðir við Þóri Kjartansson ljósmyndara. Jósep Ó Blöndal læknir heldur áfram að segja Gunnari Smára frá ferð sinni um heilbrigðiskerfið og hvernig það hefur breyst um hans starfsævi. Og fræðir hann um heilbrigði og sjúkleika. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur hefur skrifað bók um ástina. Nándin er okkur eins mikilvæg og matur, segir hann. Björn Þorláks ræðir við höfundinn. Mygluvandi í húsi í Mývatnssveit hefur valdið miklu tjóni og lasleika og hefur heimafólk ákveðið að leggja íbúum lið með stórtónleikum í kirkju á morgun. Björn Þorláks ræðir við Stebba Jak um framtakið.
Rauða borðið 26 okt - Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn
2026/10/26
Mánudagur 26. október
Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn
Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræða við Gunnar Smára um stöðu Trump í aðdaganda þingkosninga í Bandaríkjunum. Sigursteinn Másson fréttamaður og Magnea Marínósdóttir stjórnmálafræðingur ræða aukinn rasisma og leiðir til úrbóta. Björn Þorláks ræðir við þau. Magnea segir bæjarstjórann í Öfusi hafa framið brot á lögum með orðræði sinni um múslima. Drífa Snædal talskona Stígamóta og Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir ráðgjafi og stofnandi Áfram stelpur ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og afleiðingar hans. Jovana Pavlović forseti bæjarstjórnar í Borgarbyggð segir Gunnari Smára frá serbnesku kosningunum þar sem listi stúdenta vann stórsigur og Luciano Dutra þýðandi segir Gunnari Smára frá brasilísku kosningunum þar sem Lula vann sigur í seinni umferð eftir að hafa tapað þeirri fyrri. Gísli Bachmann, stjörnuspekingur mætir aftur í viðtal til Ásdísar Olsen og útskýrir hvernig stjörnuspekin virkar og Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur ræðir nýjustu bók sína og ferilinn við Björn Þorláks.
Synir Egils 25. okt - Mótmæli, átök, fylgi og fall
2026/10/25
Sunnudagurinn 25. október
Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall
Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Andrea Sigurðardóttir blaðakona, Rakel Þorbergsdóttir samskiptaráðgjafi og fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Róbert Marshall fjallamaður, fyrrum þing- og blaðamaður og ræða átök í Evrópu og innan flokka á Íslandi, niðurskurð hjá Borginni, umdeildan sýknudóm í kynferðisbrotamáli, fylgi flokka og margt fleira. Að því loknu ræðum við mótmælin í Evrópu við þau Eirík Bergmann prófessor í stjórnmálafræði, Gígju Söru Björnsson, sem er sviðshöfundur og íslensk-frönsk, Morgane Priet-Mahéo straumfræðingur og Ara Orrason formann UngVG. Hverjir mótmæla hverju? Er ungt fólk í Evrópu að hafna stefnu yfirvalda? Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Bárðar
2026/10/24
Laugardagur 24. október
Helgi-spjall: Einar Bárðar
„Það eru sirka tveir á Íslandi sem ég hef ekki hringt í,“ segir Einar Bárðarson, athafnamaður og alþýðuskáld sem hefur komið víða við, allt frá tónlistarbransanum og viðburðahaldi til hjólreiðakeppna, plokks og umhverfismála. Hann segir samskiptahæfni sína helsta styrkleika, á auðvelt með að setja sig í spor annarra og hugsar frekar „Hvað get ég gert?“ en „Hvað getur kerfið gert fyrir mig?“ Í Helgispjalli hjá Ásdísi Olsen segir Einar frá skiptinemaárinu í Bandaríkjunum sem breytti lífssýn hans, kynnum við föður sinn á fullorðinsárum, baráttunni við Orkuveituna og leyndarmálinu á bak við hamingjuna. Og auðvitað nýja hárinu!
Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 43
2026/10/23
Föstudagur 23. október
Vikuskammtur: Vika 43
Í Vikuskammti verður rætt um árstíðarskipti, umhverfismál, hegðun Íslendinga á samfélagsmiðlum, rasisma, bókasöfn, stjórnmál og fleira spennandi. Gestir þáttarins eru Margrét Tryggvadóttir og Guðmundur Andri Thorsson, bæði rithöfundar, Lára Sigurðardóttir læknir og Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar.
Rauða borðið 22. okt - Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt
2026/10/23
Fimmtudagur 22. október
Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt
Jasmina Vajzovic ráðgjafi bregst við málflutningi um að varast þurfi innflytjendur frá ákveðnum heimssvæðum. Jasmina segir fordóma hafa aukist gegn útlendingum og enn sé alvarleg stigmögnun í rasisma hér á landi. Einar Már Jónsson sagnfræðiprófessor emeritus í París greinir mótmælaölduna í Frakklandi í samtali við Gunnar Smára. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Helga Hjörvar fyrrum þingmann, Vilhjálm Bjarnason fyrrum þingmann og Ernu Bjarnadóttur hagfræðing um fréttir líðandi stundar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitaefni, umdeildan sýknudóm Landsréttar í nauðgunarmáli, vanhæfi eða ekki vanhæfi sveitarstjóra og samkeppnismál í samtali við Björn Þorláks. Draumey Aradóttir lýsir í samtali við Ásdísi Olsen ævintýri sem hún upplifði í ljóðabókinni Syngur í skógi.
Rauða borðið 21. okt - Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar
2026/10/21
Miðvikudagur 21. október
Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar
Edda Björk Þórðardóttir dósent í faraldsfræði og annar aðalhöfunda rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna og Jenný Kristín Valberg teymisstýra Bjarkarhlíðar ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og aukið ofbeldi í kynlífi ungra kvenna. Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikararnir Jakob Van Oosterhaut, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir ræða við Gunnar Smára um Högg, sýningu Þjóðleikhússin á sögu manns sem verður valdur að dauða annars og hvernig hann og foreldrar fórnarlambsins lifa af með sorg og sekt. Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir segir Ásdísi frá því hvernig sálgreining getur hjálpað okkur að skilja okkur sjálf betur og þeirri miklu sjálfsvinnu sem hún vann sjálf til að geta hjálpað öðrum. byggði upp bakdeild í Stykkishólmi sem færði mörgum bata og vakti víða athygli.
Rauða borðið 20. okt - Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók
2026/10/20
Þriðjudagur 20. október
Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók
Björgvin Kristbergsson ræðir við Gunnar Smára um stöðu fólks með þroskahömlun fyrr og nú og sanngirnisbætur sem hann telur sig eiga rétt á vegna illrar meðferðar. Ásta Lóa Þórhallsdóttir þingkona ræðir við Sigurjón Magnús um svínarí við nauðungarsölur og frumvarp sitt til úrbóta. Hjúkrunarheimili ættu sem endastöð að taka mjög vel á móti fólki en því miður skortir töluvert upp á það. Þetta segir Árni Kjartansson aðstandandi sem ræðir við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi rektor Háskólans í Reykjavík um þriðja æviskeiðið. Katla Þórudóttir Njálsdóttir höfundur og leikari, Aron Már Ólafsson leikari og Killian G.E. Briansson leikstjóri ræða við Gunnar Smára um Gunnellu sem þráir að ættleiða barn. Sigmundur Ernir Rúnarsson sendir frá sér nýja bók sem kallast Barnabók. Hann segir Birni Þorláks frá lífinu á Akureyri fyrr á tímum.
Rauða borðið 19. okt - Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir og söfn
2026/10/19
Mánudagur 19. október
Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir, söfn
Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump og komandi kosningar í Bandaríkjunum. Ilmur Kristjánsdóttir leikari deilir áhyggjum sínum og þekkingu af umhverfismálum í samtali með Birni Þorlákssyni. Sérstakan óhug þennan daginn vekur þungmálmamengað drykkjuvatn á Svalbarða. Þóroddur Bjarnason prófessor og Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur og stjórnarmaður í Samtökum um mannvæna tækni ræða við Gunnar Smára um gervigreind og hvaða áhrif hún hefur á okkur og samfélag okkar.Ásdís Olsen ræðir við Gísla Bachmann stjörnuspeking um áhrif fréttaumfjöllunar Kompás ásakanir um ofbeldi af hans hálfu. Hugvekja um söfn og samfélag er heitið á nýrri bók eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor. Hann ræðir við Björn Þorláks um persónulega sýn fræðimannsins.
Synir Egils 18. okt - Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka
2026/10/18
Sunnudagurinn 18. október
Synir Egils: Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka
Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og ræða ágreining innan Viðreisnar og Alþýðusambandsins, okur og fákeppni, stöðu stjórnar og flokka og margt annað. Þá kemur nýr forseti Alþýðusambandsins að borðinu, Georg Páll Skúlason, og ræðir um stöðu ASÍ við bræðurna og Sigurð Pétursson sagnfræðinginn sem er manna fróðastur um sögu verkalýðsbaráttunnar. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Rauða borðið - Helgi-spjall: Edda Björgvins
2026/10/17
Laugardagur 17. október
Helgi-spjall: Edda Björgvins
Edda Björgvinsdóttir segir frá æsku sinni og uppruna, lífinu og leikhúsinu, hlátri og grát.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 42
2026/10/16
Föstudagur 16. október
Vikuskammtur: Vika 42
Þau koma að Rauða borðinu, Magnea Gná Jóhannsdóttir varaborgarfulltrúi, Jóhanna Malen Skúladóttir jarðeðlisfræðingur og varaforseti Ungra umhverfissinna, Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona og Viktor Pétur Finnsson varaþingmaður og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og deilum, svindli og afsögnum, óveðri og óknyttaskap.
Rauða borðið 15. okt - Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla
2026/10/15
Fimmtudagur 15. október
Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla
Margrét Sanders, Arnar Björnsson og Gunnar Salvarsson voru gestir Sigurjóns að þessu sinni. Þau tala af reynslu og yfirvegun um helstu málefni líðandi stundar. Sigurður Pétursson sagnfræðingur ræðir við Gunnar Smári um spennu milli VR og Eflingar og átökin innan Alþýðusambandsins. Hrannar Björn Arnarsson formaður Norræna félagsins og Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur og ævisöguritari Gunnars Gunnarssonar ræða um sambandsríki Norðurlandanna í tilefni af fyrirlestri Gunnars Wetterberg á morgun. Jean-Rémi Chareyre segir Gunnari Smára frá Umskipti tímariti um framtíðarvelsæld og þolmörk jarðar. Sigurður Skúlason segir Gunnari Smára frá andlegri þroskasögu sinni og bókinni Í leit að því sem er, sem fjallar um það ferðalag. Heilsumarkþjálfinn landsþekkti, Erla Guðmundsdóttir örmagnaðist og grét í þrjár vikur. Hún leitaði sér aðstoðar og komst að því að hún hafði lent í einelti, verið meðvirk og aftengd sjálfri sér. Hún lærði að hlusta á innsæið, velja það sem nærir hana og láta álit annarra ekki stjórna sér. Ásdís ræðir við Erlu.
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Rauða borðið relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.858231925
Sara Gonzales Unfiltered
Blaze Podcast Network

4.619802879
All Ears English Podcast
Lindsay McMahon and Michelle Kaplan

4.922371841
The Ten Minute Bible Hour Podcast
Matt Whitman

4.82763864
Dopey: On the Dark Comedy of Drug Addiction
Dave & Chris

4.871781361
The Chalene Show | Diet, Fitness & Life Balance
Chalene Johnson

4.813252012
The Jeff Cameron Show ~ Warchant.com
Jeff Cameron Show

4.98531800
The Adam Mockler Show
MeidasTouch Network

4.922722003
First15 Devotional
First15

4.91582830
Allen Jackson Ministries
Pastor Allen Jackson of World Outreach Church

4.834901999
Conservative Review with Daniel Horowitz
Blaze Podcast Network