Snæbjörn talar við fólk

Advertise on podcast: Snæbjörn talar við fólk

Rating
5
from
18 reviews
This podcast has
100 episodes
Language
Publisher
Explicit
No
Date created
2020/05/28
Average duration
168 min.
Release period
7 days

Description

Snæbjörn talar vikulega við fólk sem hefur eitthvað skemmtilegt að segja.

Podcast episodes

Check latest episodes from Snæbjörn talar við fólk podcast


#0100 Magnús Blöndahl
2022/04/14
S01E100  – Magnús Blöndahl er sálfræðingurinn minn. Hann hefur fylgt þættinum í anda í meira en ár og það var í gegnum hlustanda þáttarins sem ég fékk ábendingu um að senda honum línu og panta tíma. Það breytti mjög miklu. Hann las mig eins og opna bók, greindi kvíðann og hegðunina hjá mér niður í smáatriði og kom mér á brautina við að leysa úr málunum. Ég er allur annar en þó er ferlið ekki á enda og ég geng glaður til hans mánaðarlega. Magnús er afar fær í því sem hann gerir. Hann er vísindamaður fram í fingurgóma en missir þó ekki sjónar af hinu mannlega. Honum leiðist hálfkák og vill bæta geðheilsu fólks með staðfestum aðferðum og vinnubrögðum. Lengi vel vissi Magnús ekkert hvert hann ætlaði í lífinu, var ekkert endilega iðinn við nám og ákvað að lokum á tröppum háskólans að nema sálfræði. Greinin heltók hann síðan fastar eftir því sem árin liðu og nú er hann að leggja lokahönd á doktorsáfanga. Hann kennir við háskólana, sinnir fólki eins og mér og stundar rannsóknir. Magnús er venjulegur maður á aldri við mig og alls ekki hinn tvítklæddi og þurri sálrýnir sem við sjáum fyrir okkur dags daglega. Ég skulda Magnúsi margt og við þessi tímamót kom enginn til greina sem viðmælandi nema hann. Gott spjall.  – Sjóvá býður upp á STVF. Líf- og sjúkdómatryggingar létta svo sannarlega undir þegar lífið tekur óvænta stefnu. Það skipt­ir máli að tryggja sig fyr­ir mögu­leg­um áföll­um og það er bæði ein­fald­ara og ódýr­ara að gera það þeg­ar mað­ur er ung­ur. www.sjova.is/einstaklingar/lif-og-heilsa/lif-og-sjukdomatrygging/  – Hljóðkirkjan býður upp á 3 þætti í viku. Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0099 Laddi
2022/04/07
S01E99  – Laddi. Það þarf auðvitað ekkert að hafa fleiri orð um það. Laddi er tónlistarmaður, leikari, grínisti og algert náttúrubarn. Hann hefur haft ofan af fyrir þjóðinni lengur en flestir gera sér grein fyrir og hefur sett niður fótinn ótrúlega víða. Ferillinn hófst við trommusettið, færðist inn í leikmunadeild RÚV og síðan á svið og fyrir framan myndavélarnar. Eftir margfaldan árangur á flestum sviðum listarinnar hefur hann nú sett stefnuna á myndlist og á margt eftir ógert þar. Laddi er algert náttúruafl, gríðarlega atorkusamur og á bakvið allt grínið og glensið er auðvelt að koma auga á manninn og allt það sem undir býr. Þar býr alvara og grín, gleði og sorg í bland. Og mikið óskaplega óska ég þess að við fáum grínlausa plötu í fullri lengd á glæsilegum vínyl áður en of langt um líður — svo ég segi það í eigingjarnri frekju minni og draumalandi. Gott spjall.  – Sjóvá býður upp á STVF. Rétt dekk skipta öllu máli. Græið ykkur á góð sumardekk fyrir sumarið. Meðlimir í Stofni fá sérkjör af hjólbörðum. Skoðaðu dílana hér: www.sjova.is/einstaklingar/stofn/dekkjaafslaettir/samstarfsadilar  – Hljóðkirkjan býður upp á 3 þætti í viku. Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0098 Jens Ólafsson
2022/03/31
S01E98  – Jens Ólafsson er betur þekktur sem Jenni í Brain Police. Hann er að öðrum ólöstuðum einn allra öflugasti rokksöngvari Íslandssögunnar. Hann er ógurlegur. Bæði hefur hann þennan rosalega barka, en ofan á það er hann einn mest heillandi sviðsmaður sem ég hef kynnst. Jenni er algert góðmenni og ljúfmenni, feiminn að eðlisfari og óhemju góður í því sem hann er góður í. Eins og við öll hefur hann sína djöfla að draga og það dimmir oft hjá honum. Hann hefur tekið sinn slurk af djammi og neyslu en kemur alltaf út standandi í báða fætur. Jenni hefur alltaf haft vit fyrir sér þegar virkilega á liggur, flutti á afskekktari stað til þess að stemma stigu við líferninu og gerir allt vel sem hann gerir. Ég og hann erum miklir mátar og tengjum mjög, jafnaldrar og alls ekki ólíkir í hugsun. Sem stendur er Jenni hér á landi til þess að syngja á tvennum tónleikum með hljómsveit sinni Toymachine um helgina, sem bæði eru útgáfu- og kveðjutónleikar. Miðasalan er hér: Græni hatturinn, 1. apríl: https://graenihatturinn.is/vidburdir/toy-machine/ Iðnó, 2. apríl: https://tix.is/is/event/12709/toymachine-utgafu-og-kve-jutonleikar/ Gott spjall.  – Fly Over Iceland býður upp á STVF. Gestir spara 10% með afsláttarkóðanum ICELAND. Á eingöngu við um staka miða, ekki á tvöfaldar sýningar. Gildir út 31. mars 2022. ÞAÐ ER Í DAG!  – Sjóvá býður upp á STVF. Sjóvá end­ur­greiðir við­skipta­vin­um sínum ið­gjöld lög­boð­inna bíla­trygg­inga heim­il­is­ins fyr­ir maí­mán­uð. Þetta mun líka gilda fyr­ir þau sem koma til þeirra í mars. ÞAÐ ER Í DAG!  – Hljóðkirkjan býður upp á 3 þætti í viku. Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0097 Katrín Jakobsdóttir
2022/03/24
S01E97  – Katrín Jakobsdóttir er forsætisráðherra Íslands. Hún er ótrúlega látlaus og skrumlaus miðað við þungavigt embættisins og fas margra sem gætt hafa þess áður. Katrín er glæpasagnanörd og fjölskyldumanneskja. Hún var send margsinnis út í sjoppu sem barn til þess að sníkja gallað nammi, þá af eldri bræðrum sínum sem glöddust yfir því hversu vel það gekk — og tóku gróðann. Eftir afburðagengi í Menntaskólanum við Sund hætti hún við að gerast leðurjakkabóhem í Frakklandi og gerði að lokum lokaritgerð um Arnald Indriðason. Hún lagði stund á kennslu, skipti sér af Borgarmálunum og endaði síðan með því að játa því að pota sér áfram til Alþingis. Og hún segir oftast já. Síðan eru liðin mörg ár og með viðkomu á mörgum stöðum er hún nú forsætisráðherra. Hún hefur engin langtímaplön, felur ekki tilfinningar sínar eða skoðanir, fær leiðinlega lítið út úr því að ná árangri — en gleðst þeim mun meira yfir því að geta tekist á við næsta verk þegar einu lýkur. Katrín er snillingur, raunverulegur snillingur í heimi þar sem orðið er augljóslega ofnotað. Hafi álit mitt á henni verið hátt fyrir þetta spjall er það komið í nýjar hæðir núna. Gott spjall.  – Fly Over Iceland býður upp á STVF. Gestir spara 10% með afsláttarkóðanum ICELAND. Á eingöngu við um staka miða, ekki á tvöfaldar sýningar. Gildir út 31. mars 2022.  – Sjóvá býður upp á STVF. Sjóvá end­ur­greiðir við­skipta­vin­um sínum ið­gjöld lög­boð­inna bíla­trygg­inga heim­il­is­ins fyr­ir maí­mán­uð. Þetta mun líka gilda fyr­ir þau sem koma til þeirra í mars.  – Hljóðkirkjan býður upp á 3 þætti í viku. Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0096 Rakel Björk Björnsdóttir
2022/03/17
S01E96  – Rakel Björk er leikkona og söngkona. Hún ætlaði sér aldrei að verða neitt annað, sá ekki fyrir sér að Verzló myndi fara vel með hana en hins vegar varð MR henni mjög eðlilegt ferli, og þá spilaði Herranótt stærstu rulluna. Hún ólst upp við ljósleysi og málar veggina heima hjá sér í öllum mögulegum litum. Áður en leiklistarskóla lauk var hún komin í atvinnumennsku þegar Borgarleikhúsið fékk hana til liðs við sig. Þar er hún enn og Níu líf Bubba taka mikinn tíma þessa dagana ásamt fleiri leikhússverkefnum. Hún sinnir þó tónlistinni af afli og hljómsveitin ÞAU slítur barnskónum af kappi, dúó sem hún stofnaði með Garðari manninum sínum. (STVF bendir á tónleika í Bæjarbíói þann 6. apríl: https://tix.is/is/event/12362/-au-taka-b-jarbio). Rakel barðist árum saman við reiði og aðrar tilfinningar í kjölfar áfalla. Hún hefur spjallað við myrkrið og áfengi en er núna komin út á hinum endanum. Rakel er náttúrutalent sem fylgir hjartanu — eða mögulega heilanum. Og mikið djöfull gátum við talað saman. Gott spjall.  – Síminn Pay býður upp á STVF. Léttkaupstilboð vikunnar eru litlar 35.000 krónur í afslátt þegar þú kaupir MacBook Air. Náðu þér í appið og gerðu góðan díl.  – Fly Over Iceland býður upp á STVF. Ride Again er 50% afsláttur af næsta miða, fólk getur komið eftir sýninguna og keypt annan miða á 50% afslætti; www.flyovericeland.is   – Sjóvá býður upp á STVF. Þeir sem lenda í polla­tjón­um á mal­biki hafa hingað til þurft að greiða hærri eig­in áhættu. Nú er þetta ein­falt – sama eig­in áhætta í öll­um bóta­skyld­um kaskótjón­um sama hvernig þau ger­ast.  – Hljóðkirkjan býður upp á 3 þætti í viku. Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0095 Aðalheiður Ámundadóttir
2022/03/10
S01E95  – Aðalheiður, eða Alla, er gömul vinkona mín. Alveg síðan in the 80s. Við höfum gert allskonar hluti saman, brotið lögin og krufið lífið til mergjar. Við höfum haldið of litlu sambandi síðustu ár og áratugi og þess vegna var mjög gaman að setjast niður með henni núna og fylla í eyðurnar. Alla er lögfræðingur og fréttastjóri Fréttablaðsins. Hún er óhefluð og hávær, situr aldrei á skoðunum sínum og hefur mjög hátt. Hún hélt lengi framan af að hún væri heimsk, meira að segja löngu eftir að ég var búinn að átta mig á því að hún væri það ekki. Alla er furðuleg blanda þess að vera háklassadama og skaðræðisdóni og einmitt það gerir hana bæði einstaka og alveg sérstaklega skemmtilega. Gott spjall.  – Síminn Pay býður upp á STVF. Slim Jim einn sá allra vinsælasti hjá Tasty! Ómótstæðilegur borgari hjá Tasty á 1.000 kr. Tilboðið gildir frá þriðjudegi til þriðjudags og aðeins þegar þú pantar og greiðir í gegnum Síminn Pay appið.  – Fly Over Iceland býður upp á STVF. Ride Again er 50% afsláttur af næsta miða, fólk getur komið eftir sýninguna og keypt annan miða á 50% afslætti; www.flyovericeland.is  – Hljóðkirkjan býður upp á 3 þætti í viku. Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0094 Karl Ágúst Úlfsson
2022/03/03
S01E94  – Karl Ágúst Úlfsson hefur komð svo miklu í verk að mig verkjar í verkkvíðan þegar ég hugsa um það. Spaugstofan og Stöðin eru þrekvirki út af fyrir sig, Nýtt líf, Dalalíf, Löggulíf og allt hitt. En kannski er hans stærsta afrek að hafa skrifað allt það sem hann hefur skrifað. Allar þessar þýðingar, leikrit, skáldverk, handrit hverskonar og hvað sem þetta heitir nú allt. Og allt snýst þetta um heppni og hungur, vill hann í það minnsta meina. Karl Ágúst er ótrúlega skemmtilegur sögumaður og listamaður af allra guða náð. Árin fara afar vel með hann og auðvelt að trúa því að hann eigi enn eftir að skrifa sitt besta stöff. Og já, ég var svolítið starstruck. Gott spjall.  – Síminn Pay býður upp á STVF. Þessa vikuna eru Kalkúnabeygla, Túnfiskbeygla, og Spicy túnfiskur hjá Bagel'n'Co, á aðeins 1.000 krónur í Pay appinu!  – Fly Over Iceland býður upp á STVF. Ride Again er 50% afsláttur af næsta miða, fólk getur komið eftir sýninguna og keypt annan miða á 50% afslátt; www.flyovericeland.is  – Hljóðkirkjan býður upp á 4 þætti í viku. Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0093 Sandra Hlíf Ocares
2022/02/24
S01E93  – Sandra er frá Akureyri en samt frá Chile. Hún lærði lögfræði þrátt fyrir góðan slurk af ADHD, eignaðist börnin á réttum aldri og gerði upp gamalt hús með hjálp vina og vandamanna. Hún hefur starfað við allskonar ólíka hluti og vill einfalda það sem flókið er. Hún er mjög berorð og beinskeytt. Mjög. Gott spjall.  – Síminn Pay býður upp á STVF. Sæktu þér pizzu á Natalía í Borg 29, Borgartúni á aðeins 1.500 krónur!  – Bónus býður upp á STVF. Ef þú þarf tösku utan um kúrekastígvélin þín meðan þú túrar með rokksveitinni þinni gerir Bónuspokinn sitt gagn. Aðalbjörn í Sólstöfum getur vitnað um það.  – Hljóðkirkjan býður upp á 4 þætti í viku. Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0092 Agnes Grímsdóttir [2022]
2022/02/17
S01E92  – Þetta viðtal er ekki viðtal. Þetta er bara ég að tala við konuna mína um allt og ekkert.  Gott spjall.  – Síminn Pay býður upp á STVF. Þessa vikuna býður Skyr Factory allar skálar og boozt á aðeins 1.000 kr. í Pay appinu! Tilboðið gildir frá þriðjudegi til þriðjudags og aðeins þegar þú pantar og greiðir í gegnum Síminn Pay appið.  – Sjóvá býður upp á STVF. Ég fékk póst í vikunni. Viðskiptavinir Sjóvá borga ekki lögboðnar bílatryggingar í maí. Ókei, næææs.  – Bónus býður upp á STVF. Ég vann einu sinni hjá Bónus. Í mörg ár. Það var mjög gaman.  – Hljóðkirkjan býður upp á 4 þætti í viku. Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0091 Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
2022/02/10
S01E91  – Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er formaður borgarráðs, staðgengill borgarstjóra í Reykjavík og oddviti Viðreisnar í borgarstjórn Reykjavíkur. Hún hefur komið að bissness og stjórnmálum, rekið Pizza Hut á Íslandi og í Finnlandi og komið sprotafyrirtæki á laggirnar. Hún er útlærður sjónvarpsmógúll frá New Orleans en starfaði síðan hinum megin við vélarnar, sem og við hljóðnema. Þulur í Gettu betur og aldrei að pródúsera neitt. Hún er gæd og hefur sterkar tengingar við Reykjadalinn fagra. Hún er stjórnandi í eðlinu og hefur þörf fyrir útkomu og árangur. Hún kom mér fyrst fyrir sjónir sem manneskja með alla ábyrgðina á herðum sér, og kannski er hún það. En hún sagði mér líka að ein hennar stærsta gjöf væri kæruleysið. Hún er málglöð og skemmtileg, brosandi og afar heillandi og ekki einhleyp — þrátt fyrir plön um annað. Gott spjall.  – Síminn Pay býður upp á STVF. Tilboð vikunnar í Mathöll Pay er Eldfjallarúlla hjá UMAMI Sushi á aðeins 1.500 krónur! UMAMI er sushi veitingastaður sem staðsettur er í Borg29 mathöll.   – Rokksafn Íslands býður upp á STVF. Rokksafn Íslands er safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi. Safnið er staðsett í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Á safninu er að finna tímalínu um sögu íslenskrar tónlistar á Íslandi allt frá árinu 1830 til dagsins í dag.  – Bónus býður upp á STVF. Réttur mánaðarins í Bónus er grjónagrautur, 598 krónur pakkinn. Bónus hefur látið yfir 500.000 fjölnota poka út úr verslunum sínum frá upphafi. Það er fjölnotaleg tilhugsun.  – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0090 Ævar Þór Benediktsson
2022/02/03
S01E90  – Við höfum sennilega öll kallað hann Ævar vísindamann, en svo einföld er sagan nú ekki. Ævar Þór er gríðarlega afkastamikill rithöfundur og grúskari en aðspurður segist hann vera leikari fyrst og allt annað á eftir. Hann er mikill talsmaður barnamenningar sem og fræðslu- og afþreyingarefnis fyrir börn og sér tækifæri í hverju horni. Hann virðist óþreytandi þegar kemur að því að koma þekkingu og gáska á framfæri en játar þó að hann sé farinn að velja tilefnin aðeins betur en hann gerði áður. Einhvern veginn kemur hann því við að eiga daglegt líf og fjölskyldu meðfram öllu saman og hefur glaður slakað aðeins á eftir að barneiginir urðu staðreynd. Hann kom mér svolítið á óvart verð ég að segja, og virðist vera náttúrulega duglegur frekar en útpældur og útsjónarsamur. Hann brosir mikið, segir sögur og skammast sín alls ekki fyrir að hafa svolítið hátt. Afar skemmtilegur maður. Gott spjall.  – Síminn Pay býður upp á STVF. Vængirnir hjá Mossley eru algjörlega ógleymanlegir! Nú á tilboði vikunnar í Mathöll Pay appsins á aðeins 1.000 krónur!  – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more
#0089 Broddi Kristjánsson
2022/01/27
S01E89  – Broddi Kristjánsson er goðsögn. Hann hefur unnið yfir 40 íslenska titla, hefur farið á fleiri heimsmeistaramót en hann hefur tölu á og keppti á ólympíuleiknum í Barcelona árið 1992. Hann er sagnakista og ljúfmenni, lítillátur og góðlegur. Það er þó ekki erfitt að sjá keppnisskapið í gegnum þetta allt enda kemst enginn á þennan stað nema með vinnu og ákveðni. Hann vann ekki fyrsta titilinn fyrr en furðuseint, en eftir það fékk ekkert stoppað hann. Hann lærði til íþróttakennara á Laugarvatni á sama tíma og hann var að spila sig inn á ólympíuleika, fann einhvers staðar tíma til þess að næla sér í lífsförunaut og til þess að sjá Bubba spila á Borginni. Honum bregður fyrir í Rokk í Reykjavík og er ekki alveg hættur að spila þótt mjöðm og hné séu búin og golfið að taka við. Gott spjall.  – Síminn Pay býður upp á STVF. Þessa vikuna býður Kore í samstarfi við Símann Pay upp á allar vefjur á aðeins 1.000 krónur. Tilboðið gildir frá þriðjudegi fram á þriðjudag og aðeins þegar þú pantar og greiðir gegnum Símann Pay appið.  – FlyOver Iceland býður upp á STVF. The Real Wild West er nýjasta sýning FlyOver Attractions. Í henni er flogið yfir Vesturríki Bandaríkjanna, t.d. Utah, Kaliforníu, Arizona og Montana. Hægt er að bóka tíma á vefnum: www.flyovericeland.is  – Bónus býður upp á STVF. Í Bónus er hægt að fá allt í þorramatinn. Harðfisk. Sviðasultu. Rófustöppu. Hákarl. Og miklu fleira auðvitað. Þessu raðar þú svo saman í þitt trog og blótar þorrann af afli.  – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
more

Podcast reviews

Read Snæbjörn talar við fólk podcast reviews


5 out of 5
18 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Snæbjörn talar við fólk & sponsor relevant audience podcasts


What do you want to promote?

Ad Format

Campaign Budget

Business Details