1517057467
Sérfræðingurinn

Advertise on podcast: Sérfræðingurinn

This podcast has
46 episodes
Language
Icelandic
Publisher
RÚV
Explicit
No
Date created
2020/06/05
Latest episode
2022/04/07
Average duration
-
Release period
14 days

Description

Sérfræðingurinn er nýr liður í Mannlega þættinum í dag þar sem sérfræðingar þáttarins svara spurningum hlustenda. Við fáum kynlífsráðgjafa, lækni, geðlækni, sjúkraþjálfara o.s.frv. Hlustendur geta sent okkur tölvupóst með spurningar á [email protected] eða bara hefðbundinn póst eftir gamla laginu á: Mannlegi þátturinn, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík. Ef hlustendur óska þess þá berum við fram spurningar þeirra án þess að geta nafns þeirra, fyllsta trúnaði heitið.

Unlock Sérfræðingurinn podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Sérfræðingurinn podcast


Sérfræðingurinn Dr. Erla Björnsdóttir - svefn
2022/04/07
Sérfræðingur þáttarins í dag var Dr. Erla Björnsdóttir, svefnsérfræðingur. Erla rannsakaði svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn í doktorsnámi sínu. Hún hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi og vinnur að rannsóknum á því sviði ásamt samstarfsfólki í Evrópu og Bandaríkjunum. Við ræddum við hana í fyrri hlutanum um hennar störf í svefnráðgjöf og meðferð. Svo í seinni hluta þáttarins svaraði Erla spurningum sem hlustendur hafa sent inn í netfang þáttarins, [email protected]. Spurningarnar í dag fjölluðu t.d. um áhrif skjánotkunar á svefn, nikótínneysla, leiðréttingu klukkunnar, svefnlyf, tíð þvaglát á næturna, flóaða mjólk og fleira.
Sérfræðingurinn Guðríður Helgadóttir - garðrækt
2022/03/31
Sérfræðingur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur. Hún sagði okkur frá starfi sínu og svaraði spurningum sem hlustendur sendu í pósthólf þáttarins.
Sérfræðingurinn Guðmundur Óli - meindýraeyðir
2022/03/24
Guðmundur Óli Scheving meindýraeyðir var sérfræðingur Mannlega þáttarins í dag. Sólin hækkar á lofti, hitastigið hækkar, það er óneitanlega sumar framundan. En þá koma gjarnar skordýrin, geitungarnir og einhverjar fleiri skepnur sem við myndum flest helst vilja halda fyrir utan hýbýli okkar. Þá geta komið upp þær aðstæður að það þurfi að kalla til meindýraeyði. Við ræddum við Guðmund Óla um starf hans sem meindýraeyðir í fyrri hlutanum og svo í seinni hlutanum svaraði hann fjölmörgum spurningum sem hlustendur hafa sent í pósthólf þáttarins [email protected]. Spurningarnar um til dæmis silfurskottur, ávaxtaflugur, roðamaura, rottur, mýs, margfætlur, ham- eða feldgæru og fleira.
Sérfræðingurinn Kristjá Þórður Snæbjarnars. - rafmagn
2022/03/17
Sérfræðingur vikunnar í Mannlega þættinum var Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður og framkvæmdastjóri rafiðnaðarsambandsins. Við fengum hann til að fræða okkur um rafmagn og til að segja frá sínu starfi, bæði hjá sambandinu og sem iðnaðarmaður. Svo í seinni hlutanum svaraði hann spurningum sem hlustendur voru búin að senda inn í pósthólf þáttarins. Spurningarnar voru fjölbreyttar og áhugaverðar um allt frá flökti í ljósum, hvort væri meiri eldhætta af rafbílum en jarðefnaeldsneytisbílum og til gamalla ljósakróna.
Sérfræðingurinn Sylgja Dögg - Mygla
2022/03/10
Sérfræðingur vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir sérfræðingur hjá EFLU verkfræðistofu. Við töluðum við hana um myglu og raka í húsakynnum og hvað hægt er að gera við myglu. Hverjar eru vísbendingarnar um að mygla finnist í húsnæði og hvaða áhrif getur mygla og rakaskemmdir haft á heilsuna? Í seinni hluta þáttarins svaraði Sylgja svo spurningum frá hlustendum.
Sérfræðingurinn Böðvar Ingi - pípulagnir
2022/03/03
Sérfræðingurinn vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður Félags pípulagningameistara. Við fjölluðum með sérfræðingum síðustu viku um viðhald og framkvæmdir almennt, en nú beinum við sjónum að pípulögnum. Í fyrri hluta þáttar sagði Böðvar okkur frá félaginu og starfi þess. Hvað ber að varast í þessum efnum og hver eru helstu málefni félagsins en það leggur til dæmis áherslu á að neytendur kanni hvort píparinn sé með réttindi, tryggður gagnvart tjóni og að gerður sé verksamningur þar sem kemur skýrt fram hvað framkvæmdin muni kosta, hvað sé innifalið og þess háttar. Að neytendur verði að passa upp á sín réttindi því það er alltof mikið um svikahrappa inn á byggingamarkaðnum. Í seinni hlutanum svaraði Böðvar Ingi svo spurningum sem hlustendur sendu inn til okkar í pósthólf þáttarins [email protected].
Sérfræðingarnir Elísa og Jóhanna - viðhald og framkvæmdir húseigna
2022/02/24
Margir eru að velta fyrir sér framkvæmdum og viðhaldi á húseignum sínum þessa dagana. Það er að mörgu að hyggja og best er að undirbúa slíkar framkvæmdir virkilega vel til þess að koma í veg fyrir vandræði og jafnvel óþarfa kostnað seinna í ferlinu. Sérfræðingar Mannlega þáttarins í dag voru Elísa Arnarsdóttir, lögfræðingur og markaðsfulltrúi frá Húseigendafélaginu og Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs frá Samtökum Iðnaðarins. Þær fræddu okkur í fyrri hlutanum um framkvæmdir og viðhald, að hverju þurfi að hafa í huga í slíkum framkvæmdum t.d. í fjöleignahúsum og hvernig er best að undirbúa þær? Í seinni hluta þáttarins svöruðu þær Elísa og Jóhanna svo spurningum hlustenda sem voru sendar inn í pósthólf þáttarins [email protected]. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Sérfræðingurinn Þórólfur Guðnason - sóttvarnir og Covid 19
2022/02/17
Í dag hófst aftur liðurinn Sérfræðingurinn í Mannlega þættinum. Við munum fá, eins og við gerðum í fyrra og fyrir áramót, fjölbreytta sérfræðinga í þáttinn á fimmtudögum til að fræða okkur um sitt sérfræðisvið og til þess að svara spurningum um það frá hlustendum. Í dag kom til okkar Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir, sem ætti ekki að þurfa að kynna fyrir hlustendum. Hann hefur auðvitað verið í eldlínunni í gegnum allan heimsfaraldurinn, sem sóttvarnarlæknir og auðvitað hluti af þríeykinu fræga, ásamt Ölmu Möller landlækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni. Þau hafa fylgt okkur í gegnum þessa fordæmalausu tíma, á upplýsingafundum Almannavarna og með því að vera stjórnvöldum innan handar við hverja vendinguna á fætur annarri. Nú erum við enn og aftur á einhverskonar tímamótum í glímunni við Covid 19 og því fannst okkur tilvalið að bjóða Þórólfi í þáttinn. Hann sagði okkur frá þessu merkilega tímabil, frá hvernig veiran hefur aftur og aftur komið okkur á óvart, frá þeirri stöðu sem við erum í í dag og svo svaraði hann spurningum sem hlustendur hafa sent til okkar í netfang þáttarins, [email protected].
Sérfræðingurinn Sóley Tómasdóttir - þolendur og gerendur
2021/11/25
Sérfræðingur vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikasérfræðingur. Umræðan undanfarið ætti ekki að hafa farið fram hjá mörgum, til dæmis í kjölfar síðustu tveggja þátta Kveiks á RÚV. Við, samfélagið, erum að feta okkur áfram í umræðu og samtali um kynferðislegt ofbeldi, ábyrgð, afleiðingar og úrlausnir. Þetta er flókin og erfið umræða sem margir hræðast, kannski af því að í gegnum árin hafa þessi mál ekki verið rædd. Þegar #metoo-hreyfingin fór af stað var þögnin rofin. Allir virðast kannast við kynferðislegt ofbeldi, annað hvort á eigin skinni eða í gegnum einhvern nálægt sér. En þrátt fyrir að þögnin hafi verið rofin er ljóst að við kunnum ekki sérstaklega vel að takast á við vandann. Við kunnum að reiðast, að sjokkerast, að vera nóg boðið, en hvað svo? Fjölmargar spurningar vakna, en svörin liggja ekki ljóst fyrir. Hvernig tökum við næstu skref í þessum málum? Í fyrri hluta þáttarins fórum aðeins yfir stöðuna með Sóley og fengum hana til að segja okkur frá sínum störfum. Hún hefur verið með fræðslu á vinnustöðum og stofnunum um ómeðvitaða hlutdrægni og hvernig er hægt að sporna við henni. Í seinni hlutanum svaraði Sóley svo spurningum sem hlustendur hafa sent inn í pósthólf þáttarins [email protected].
Sérfræðingurinn Þórhildur Bjartmarz - hundar
2021/11/18
Sérfræðingur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þórhildur Bjartmarz hundaþjálfari og fyrrverandi formaður Hundaræktarfélags Íslands. Hún veit gríðarlega mikið um hundaeign á Íslandi sem hún fræddi okkur um í þættinu, og að auki talaði hún um sitt starf sem hundaþjálfari og svo bara um hunda yfirleitt. Í seinni hluta þáttarins svaraði svo Þórhildur spurningum sem hlustendur hafa sent inn í netfang þáttarins [email protected]. Við fengum fjölda spurninga, til dæmis sem viðkoma gelti í hundi, fæði hunda, umhirðu feldsins og spurningar frá fólki sem á ekki hund en er að velta því fyrir sér, þá t.d. hvaða tegund það eigi að fá sér.
Sérfræðingurinn Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur
2021/11/11
Sérfræðingur vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur. Hún talaði um og kom með ráðleggingar fyrir vetrarverkin, inniplönturnar og fleira. Það þarf að ýmsu að huga á veturna í þessu tilliti og svo í seinni hluta þáttarins svaraði Guðríður spurningum sem hlustendur hafa sent inn á netfang þáttarins, [email protected]. Til dæmis þessum: Er í lagi að klippa tré og runna á þessum tíma? Geta jólaljósin haft neikvæð áhrif á plöntur, t.d. platað þær til að fara að vaxa? Er of seint að setja niður haustlauka? Má rækta þá í pottum? Þessum spurningum og fleirum svaraði Guðríður í þættinum í dag.
Sérfræðingurinn Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari
2021/11/04
Sérfræðingur vikunnar í Mannlega þættinum var sjúkraþjálfarinn góðkunni Gunnar Svanbergsson. Margir eru orðnir stirðir og stífir eftir alla þessa inniveru vegna heimsfaraldursins, vegna heimavinnu við tölvuna og svo mætti lengi telja upp. Nú er að skella á vetur sem takmarkar að einhverju leyti útiveru en þá er nú gott að geta leitað í viskubrunn sjúkraþjálfarans en Gunnar sagði okkur í fyrri hlutanum frá til dæmis sambandi öndunar og streitu og í seinni hlutanum svaraði hann spurningum sem hlustendur sendu inn í pósthólf þáttarins [email protected].

Podcast reviews

Read Sérfræðingurinn podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Sérfræðingurinn relevant audience podcasts


What do you want to promote?