1520120351
Orðabúrið

Advertise on podcast: Orðabúrið

This podcast has
37 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Orðabúrið
Explicit
No
Date created
2020/06/23
Latest episode
2021/12/10
Average duration
59 min.
Release period
15 days

Description

Orðabúrið er hlaðvarp þar sem Kristján Sigurðarson og Pétur Már Sigurjónsson lesa orðabókina eina handahófskennda blaðsíðu í einu og reyna að draga fram það skemmtilega, skrítna, og skelfilega á hverri blaðsíðu.

Unlock Orðabúrið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Orðabúrið podcast


Jólaþáttur 2 - 736 - Pönnuskuggi, Steingrímur og Bjálfinn
2021/12/10
Hó hó hó! Önnur þáttaröð af Orðabúrinu er komin í jólafrí, en örvæntið ekki, hér er annar jólaþáttur Orðabúrsins! Við skoðum síðu 736, jólaskrá-Jónsmessa. Við komumst m.a. að því í gömlum jólaskrám að margir dagar á árinu eru varhugaverðir og að það er sama hvaða dag nýársdag ber upp á, einhver mun deyja en sumarið er alltaf þurrt. Þá eru rifjaðar upp lýsingar á jólum fyrri alda á Íslandi þar sem var t.d. stundað að fela hluti í grjónagraut og við komumst að því að hattbursti er klárlega jólagjöfin í ár. Aðrir óvæntari gestir á borð við norskt öfgarokk, lélega brandara og auðvelt sund skjóta einnig upp kollinum. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
S02E14 - 973 - smámennisfaðmkorn
2021/11/23
Hvað eiga mormónskir stjórnarskrárbrjótendur, dönskusogin setningaskipan og hlaupandi fjólublátt málfar sameiginlegt? Þetta kemur allt fyrir í þessum nýjasta þætti af Orðabúrinu þar sem þáttastjórnendur takast á við síðu 973, málalok-málfrelsi. Óhefðbundin blóm og óhefðbundnir fiskar koma nokkuð við sögu, sem og óhefðbundin ávörp á RÚV. Gamalt nöldur er fyrirferðarmikið, þá sérstaklega meðal málfarskverúlanta, og gamlar mælieiningar ná nýjum hæðum. Þá ákveðum við að halda flámælisdaginn hátíðlegan, hvaða dagur ársins er það? Komist að því í þættinum.  Tónlistin er eftir Kevin MacLeod.
S02E13 - 1114 - innspekilykillaus
2021/11/07
Það er óstætt í innsveitum að þessu sinni í Orðabúrinu þegar við lítum á síðu 1114, ósnokinn-ósær. Stjörnuspáin er í frekar miklu óstuði en þau eru alveg með þetta þarna á Eskifirði. Annars staðar á landinu er fólk duglegt að hleypa inn dönsku, eða það er a.m.k. kenning okkar. Þá lærum við um kvalir málfræðingsins og þáttarstjórnendur rekast á mögulega besta orð þáttanna hingað til. Hvaða orð er það? Komist að því í þessum þætti af Orðabúrinu. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod. 
S02E12 - 49 - Litli-Pabbi Þór
2021/10/23
Rithöfundur ráfar inn á ritstjórnarskrifstofu. Hvað eru mörg R í því? Það er komið að síðu 49, athugavandur-atómþungi. Hver er höfundurinn? Það er hann Hagalín sem heldur þrumuræðu um hættuna sem stafar af atómkveðskap. Orðabúrarnir ræða einnig um hárdúk í millifóður, blússuföt í skólann og ekki má gleyma Jacquard-vefnaðinum. Atlantíska bandalagið kemur einnig við sögu og fleiri þróaðir pabbabrandarar eru sagðir.  Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
S02E11 - 892 - slökktu kalkið
2021/10/09
Hlaðvarpið sem stundum sefur er mætt aftur hressara en nokkru sinni. Að þessu sinni skoðum við síðu 892, lesafbrigði-lesta. Væri það þáttur af Orðabúrinu ef ekki færi talsverður tími í fáránlega útreikninga á gömlum mælieiningum? Ég held ekki. Þáttarstjórnendur opinbera sig líka sem tvö ljón og neyð heiðingja kemur við sögu. Grafið er upp athyglisvert orðfæri um kynhneigð og rifjaðar upp deilur um að gefa hinsegin fólki pláss á eigin forsendum í útvarpi allra landsmanna. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod. 
S02E10 - 143 - Joðbrandur
2021/09/23
Orðabúrið snýr aftur, þó ekki 7 árum á eftir áætlun, með síðu 143, blótfórn-blýþungur! Í þessum þætti veltum við fyrir okkur hversu langt forfeður okkar gengu til að heiðra guðina. Þá segjum við nokkra lélega brandara og komumst að því hverjir heimsóttu land og þjóð árið 1860. Gamalt nöldur og undarlegar mælieiningar eru sem fyrr á sínum stað og gagnsemi blývatns kemur við sögu. Athugið að þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af blýeitrun! ATH efnisviðvörun fyrir 10:04-15:20, rætt um blygðunarbrot. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
Viðaukaþáttur - Kosningar
2021/09/15
Í þessum sérstaka viðaukaþætti í tilefni kosninga báðum við framboðin um að senda okkur upptöku af einum frambjóðanda í einhverju kjördæmi að segja frá sínu uppáhaldsorði. Við settum þetta síðan saman í stafrófsröð eftir listabókstaf. Þáttakendur voru: XB: Ágúst Bjarni Garðarsson XC: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir  XF: Jakob Frímann Magnússon XJ: Rúnar Freyr Júlíusson XM: Erna Bjarnadóttir XP: Einar Brynjólfsson XS: Guðmundur Andri Thorsson XV: Orri Páll Jóhannsson Kunnum við þeim bestu þakkir. Því miður bárust hvorki svör frá Sjálfstæðisflokknum né  Frjálslynda Lýðræðisflokknum fyrir útgáfu. Tónlistin er eftir Kevin MacLeod
S02E09 - 158 - 12 kvint af mulinni krít
2021/09/09
Í síðasta þætti var Orðabúrið með 50% meiri krossferðum en er nú með u.þ.b. 125% meiri lúðu. Þáttastjórnendur skoða að þessu sinni síðu 158, bónvax-bragð, misskilja nokkra hluti en gerast líka skáldlegir í meira lagi. Bakkusarþjónkun, hugvekjur um bórax og toiletsápa koma við sögu og svo er aldrei að vita nema frú Brabra láti sjá sig! Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
S02E08 - 964 - Nú með 50% meiri krossferðum
2021/08/23
Kæru hlustendur, það er margt að varast í þætti vikunnar, sem fjallar um síðu 964, margurinn-maríulifur. Til dæmis er ekki gott að borða náttlampa eða skilja geitur eftir hvar sem er. Margýgur er líka hættuleg enda ein af ókindum hafsins. En það eru líka góðar fréttir, við fáum góð ráð um hvernig megi bræða af sér fitu meðan maður sinnir heimilisstörfum og gamlir góðir vinir á borð við óskiljanlegar mælieiningar og sækýr koma að sjálfsögðu einnig við sögu. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod. 
S02E07 - 1088 - notaðu tetra, bensín og terpentínu
2021/07/27
Það er komið að síðu 1088, okþóa-onað. Í þættinum lærum við meðal annars að lægja öldur með olíupokum og höfum ólíkar skoðanir á ágæti orðsins olíusósa. Við heyrum bréf frá Íslendingi á Skotlandi og höfum áhyggjur af sviknum hörkökum en það er alltaf mikilvægt að hafa mikið af holdgjafaefnum. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod. 
S02E06 - 1356 - vort djúpasta respekt
2021/07/13
Efni þáttarins að þessu sinni er síða 1356, skrofhærður-skrunka. Við heyrum af skrollandi skrokkskjóðum og megnum skruggueldi og lesum um pólitísk-póetísk ærsl og skrípalæti. Þá er einnig bullað um metafýsík og sjálfsprottin ker. Lesendur fá nokkur góð, ensk ráð til að pirra manninn sinn og ráð um hvernig sé best að haga drykkju. Þá er aldrei að vita nema Ferris Bueller, Ungaraland og lygapokar skjóti upp kollinum. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod. 
S02E05 - 1490 - Buzzfeed millistríðsáranna
2021/06/29
Það er komið að síðu 1490, stórræði-stóuspeki. Það má með sanni segja að þetta sé stór þáttur, þar sem við stundum stórsvig milli sjómennsku og styrjalda. Við fjöllum um hvað tölvur (computers) hafa tekið miklum framförum og hættum okkur inn í Evrópu á millistríðsárunum. Siðleysi áfengissölumanna fær á baukinn, og við komumst að því að það er til svo miklu, miklu betra orð fyrir óperu. Tónlistin er eftir Kevin McLeod. Þessi þáttur markar eins árs afmæli Orðabúrsins! Ef þú hefur gaman af máttu endilega deila þættinum með fleirum. Svo erum við með Facebook-síðu ef þú vilt fylgjast með. Takk fyrir að hlusta.

Podcast reviews

Read Orðabúrið podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Orðabúrið relevant audience podcasts


What do you want to promote?