1536107720
Flugvarpið

Advertise on podcast: Flugvarpið

Rating
★★★★★
5
from
26 reviews
Categories
Country
United States
This podcast has
175 episodes
Language
Icelandic
Date created
2020/10/16
Latest episode
2026/10/24
Average duration
54 min.
Release period
9 days

Description

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

Unlock Flugvarpið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Flugvarpið podcast


#175 - Góður Q3 hjá Icelandair en mikill mótbyr í kortunum að óbreyttu – sóknarfæri í einfaldari flugflota til framtíðar – Bogi Nils Bogason
2026/10/24
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um stöðu félagsins í tilefni af uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2026. Farið er yfir helstu niðurstöðu uppgjörsins og spáð í spilin varðandi næstu mánuði og misseri. Bogi Nils fer líka yfir stöðu kjarasamningaviðræða við flugvirkja, flugmenn og flugfreyjur sem hafa gengið mjög illa og ekki sér fyrir endann á. Hátt eldsneytisverð og minnkandi varnir félagsins gagnvart eldsneytiskaupum gætu reynst félaginu þungbærar á næstu mánuðum ef ekkert breytist. Í þættinum er einnig rætt um ýmis álitamál sem verið hafa í fréttum eins og kaup Icelandair á flugrekstrarleyfi á Möltu, ETS gjöldin og skattahækkanir, breytingar á flugflota félagsins, fraktflutninga og fleira.
#174 – Stýrir rannsóknardeild flugslysa innan ICAO - Eykst að sóst sé eftir aðkomu ICAO vegna milliríkjadeilna og til að tryggja trúverðugleika - Þormóður Þormóðsson
2026/10/16
Í þessum þætti er spjallað við Þormóð Þormóðsson sem stýrir sérstakri rannsóknardeild flugslysa innan Alþjóða flugmálastofnunarinnar ICAO með aðsetur í Montreal þar sem hann hefur búið síðustu 20 árin. Þormóður fer yfir ástæður þess að sérfræðingar frá ICAO eru kallaðir til í rannsóknum flugslysa og segir frá nokrum slíkum tilvikum þar sem hann hefur verið í forsvari. Hann segir það hafa aukist á síðastliðnum árum að sérfræðingar ICAO séu kallaðir til við rannsóknir flugslysa. Oft sé það til að auka trúverðugleika rannóknarinnar og ekki síður þar sem ICAO getur haft milligöngu um samskipti við ríki sem eiga í illdeilu eða stríði við nágranna sína þar sem slys hafa orðið. Viðtalið við Þormóð var tekið í lok ágúst s.l.
#173 – Skynsemi og öllum landsmönnum til heilla að staðsetja eina þyrlu LHG á Akureyri. – Sigurður Ásgeirsson og Njáll Trausti Friðbertsson
2026/10/09
Í þættinum er rætt við Sigurð Ásgeirsson flugstjóra hjá Landhelgisgæslu Íslands og Njál Trausta Friðbertsson alþingismann um kosti þess að staðsetja björgunarþyrlu á Akureyri. Tilefnið er að Njáll Trausti hefur ásamt fleiri þingmönnum lagt fram þingsályktun á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði falið að hefja uppbyggingu á Akureyrarflugvelli til að þar megi stðasetja eina björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar til frambúðar. Sigurður og Njáll fara í þættinum yfir rök sem öll hníga í þá átt að þetta sé skynsamleg ráðstöfun og til þess fallið að auka öryggi allra landsmanna.
#172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson
2026/10/04
Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni er rætt við Georg Kr. Lárusson forstjóra. Farið er yfir afmælisfagnaðinn og rætt um ýmis atriði í langri sögu gæslunnar og einkum þær breytingar sem hafa orðið á þeim rúmlega tveimur áratugum sem Georg hefur setið í stóli forstjóra. Fjallað er um öryggis- og varnarmálin sem forstjórinn segir að falli vel að hlutverki og starfsemi Landhelgisgæslunnar. Hins vegar vanti að skilgreina hlutverk LHG betur í þeim málum og til lengri tíma. Sérstaklega er fjallað um flugdeild gæslunnar og hvernig sá þáttur hefur breyst á undanförnum árum og áratugum og hvernig tækninýjungar eins og drónar og ómönnuð loftför geta mögulega gjöbreytt því hvernig eftirliti er háttað. Georg segir líka stuttlega frá sínum bakgrunni, mótunarárunum í Holti í Önundarfirði og það hvernig tilviljun olli því að hann skráði sig í lagadeild Háskóla Íslands.
#171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson
2026/09/30
Rætt er við þau Bjarna Jónsson flugstjóra og Unu Gísladóttur flugmann í tilefni af því að nú er 1 ár liðið frá falli flugfélagsins Play. Þau voru saman í áhöfn á síðasta degi sem félagið starfaði og flugu Airbus vél félagsins frá Keflavík til Dublin að morgni 29. september 2025 þar sem þau fengu fréttirnar um að félagið væri hætt rekstri. Þau segja frá þessum örlagaríka degi, frá vinnunni hjá Play í gegnum árin og ýmsu öðru áhugaverðu á sínum flugferli. Þau Una og Bjarni starfa í dag hjá sitt hvoru flugfélaginu; Una hjá Air Atlanta og Bjarni hjá Marabu Airlines í Þýskalandi.
#170 - Neytendavernd flugfarþega í Evrópu kostar flugfélögin um 8 milljarða USD á ári – fjallað um GROUNDED ráðstefnu AVILABS um flugraskanir og ferðarof (IROPS) – Sveinn Akerlie
2026/09/17
Grounded ráðstefnan fór fram í Hörpu í Reykjavík 2.–3. september 2026 og var þetta í þriðja sinn sem hún er haldin á vegum íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins AVILABS. Í þættinum er rætt við Svein Akerlie forstjóra AVILABS um efni ráðstefnunnar og einnig eru tveir þátttakendur þau Sherly Lee frá United Airlines og Devon Brown frá WestJet tekin tali. Á Grounded ráðstefnuna mæta sérfræðingar og stjórnendur margra af stærstu flugfélögum heimsins til að ræða hugmyndir og deila mögulegum lausnum sem miðað að því að takast á við flugraskanir og þjónustu við farþega þegar rekstur fer úr skorðum (IROPs). Meðal viðfangsefna voru áhrif óveðurs og lokana á loftrými, takmarkanir í flugumferðarstjórn og innviðum, breyttar væntingar farþega, regluverk og hvernig gervigreind og ný tækni geta breytt viðbrögðum flugfélaga við röskunum.
#169 – Gríðarleg uppbygging hjá RwandaAir í Kigali - 5 A330 vélar í flotann á næstu mánuðum og margföld stækkun flugvallarins – lægri skattar og gjöld laða flugfélög að Möltu - Andri Geir Eyjólfsson
2026/09/14
Rætt er við Andra Geir Eyjólfsson framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs hjá RwandaAir sem gerir út frá Kigali. Andri Geir hefur víðtæka reynslu úr fluginu og var einn af lykilstjórnendum Play allt þar til yfir lauk haustið 2025 og var í forystu þess að stofna Fly Play á Möltu, sem nú er komið að hluta til í eigu Icelandair. Í þættinum segir Andri Geir frá gríðarlegri uppbyggingu flugtenginga í Kigali; endurnýjun flugflota RwandaAir og stækkun flugvallarins til að anna allt að 11 milljónum farþega á ári. Andri Geir stýrir nú m.a. breytingu á flugflota RwandaAir, en félagið er að innleiða fjölda Aribus breiðþotna á allra næstu mánuðum og ætlunin er að félagið verði komið í um 30 þotur á næstu 5 árum. Rætt er líka um samkeppnishæfni flugfélaga og hvernig t.d. Malta laðar að flugfélög og sérhæft starfsfólk með lægri sköttum og gjöldum.
#168 – Arnarflug 50 ára - Flugfélag með ferskan blæ og einstakan starfsanda – lítilmagni sem lifði lengi við hlið Flugleiða.
2026/09/03
Í þessum þættu er rakin saga Arnarflugs í tilefni af því að á þessu ári eru 50 ár liðin frá stofnun félagsins. Efni þáttarins byggir á samantekt Flugsafns Íslands um Arnarflug, en safnið opnaði sérstaka sýningu tileinkaða félaginu í byrjun sumars í tilefni tímamótanna. Í þættinum er rætt við nokkra fyrrverandi starfsmenn félgsins; flugfreyjurnar Þuríði Sigurðardóttur og Ágústu Halldórsdóttur og einnig Stefán Halldórsson sem gengdi fjölmörgum störfum fyrir félagið í um áratug. Í þættinum er líka birtur viðtalsbútur við Gunnar Þorvaldsson einn stofnenda Arnarflugs, en Gunnar var gestur í þætti #54 í Flugvarpinu sem birtur var í upphafi árs 2023.
#167 - Eftir litlu að sljægjast fyrir flugið með inngöngu í ESB – rætt um kosti og galla aðildar Íslands að ESB fyrir flugrekstur, ETS málin og vond áhrif af reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play - Erlendur Gíslason
2026/08/26
Í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga um mögulegar aðildarviðræður að Evrópusambandinu fékk Flugvarpið Erlend Gíslason lögmann í viðtal til að ræða stuttlega um hvaða áhrif innganga í ESB hefði fyrir flugið; þessa stóru grein hérlendis sem þúsundir hafa atvinnu af með beinum og óbeinum hætti. Erlendur er einn eiganda LOGOS og hann hefur um árabil sérhæft sig í flugrétti og fjármögnun flugvéla og starfar á því sviði m.a. fyrir flugfélög, flugvélaleigufyrirtæki og fjármögnunaraðila. Í þættinum er líka fjallað stuttlega um ETS umhverfisskattana og hvernig hagsmunagæslu Íslands var óbótavant við innleiðingu kerfisins í gegnum EES á sínum tíma. Þá gagnrýnir Erlendur harðlega hvernig innviðaráðherra setti á afturvirka reglugerð í kjölfarið á falli Play haustið 2025. Reglugerðin hafi komið illa við íslensk fyrirtæki í flugrekstri og rýrt traust og tiltrú í viðskiptum erlendra flugvélaleigusala við Íslendinga.
#166 – Hátíðin Flug&fákar framundan á Egilsstaðaflugvelli – von á tugum flugvéla austur og margs konar græjur til sýnis – mikil tækifæri í að nýta flugvöllinn betur en gert er í dag – Þura Garðarsdóttir
2026/07/25
Flughátíðin Flug og fákar verður á Egilsstöðum 26. júlí og af því tilefni er rætt við Þuru Garðarsdóttur sem starfar í dag sem flugradíómaður á Egilsstaðaflugvelli og er aðalsprautan í skipulagningu hátíðarinnar. Hún segir að græjumenningin sé rík í Austfirðingum og það verði sannkölluð upplifun fyrir gesti að mæta á hátíðina á Egilsstaðaflugvelli þar sem verði fullt af alls konar græjum til sýnis; flugvélar og ökutæki. Þura hefur alla sína tíð lifað og hrærst í fluginu og nýtur vinnunar í turninum í dag. Hún starfaði um tíma sem atvinnuflugmaður og var fyrsta konan til að fá listflugsréttindi (aerobatic) í flugskírteini hérlendis. Hún segir í spjallinu stuttlega frá skemmtilegum atriðum á sínum flugferli, ræðir um vinnunni í turninum fyrir austan en þar er vakt allan sólarhringinn og hún telur mikil tækifæri til staðar að nýta Egilsstaðaflugvöll betur en gert er í dag fyrir bæði atvinnuflug og flugkennslu.
#165 - Forystumaður í grasrót flugsins – hannar og framleiðir Pixweather, nýjar veðurstöðvar sem virka einkar vel fyrir flugið og vill opnari umræðu um flugatvik- og slys til að flugmenn geti lært af þeim – Ágúst Guðmundsson
2026/07/21
Ágúst Guðmundsson er tölvunarfræðingur og flugmaður sem er vel þekktur í grasrót flugsins hér á landi. Hann situr í framkvæmdastjórn alþjóða Flugmálafélagsins (FAI) og hefur á undanförnum áratugum tekið virkan þátt í félagsstörfum hér heima og erlendis. Ágúst er þjálfunar- og tæknistjóri Fisfélags Reykjavíkur sem er fjölmennasti flugklúbbur á Íslandi í dag með um 400 félagsmenn. Félagsstarfið þar er blómlegt og Ágúst segir menn ræða opinskátt um atvik og óhöpp sem verða innan hópsins til að aðrir megi læra af þeim, en hann gagnrýnir um leið flugsvið Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) fyrir skort á upplýsingum um flugatvik- og slys á síðustu misserum, til að aðrir flugmenn geti lært af því gerst hefur. Í tengslum við átak til að efla öryggi í almannaflugi þá hefur Ágúst hannað og framleitt nýja tegund af veðurstöðvum sem hafa reynst einstaklega vel við íslenskar veðuraðstæður. Veðurstöðvarnar heita Pixweather og eru komnar upp á mörgum stöðum hérlendis og erlendis og henta flugáhugamönnum einkar vel. Ágúst segir líka í þættinum frá fyrirhuguðu Íslandsmóti í flugi sem áætlað er í ágúst n.k. og fræðir hlustendur um ýmsar þrautir sem flugmenn þurfa að leysa þar.
#164 – Fyrstur á fisflugvél yfir Norðurpólinn – ferðasaga tékkneska fisflugmannsins – nú í fjórða skiptið á fisflugvél til Ísland og stefnir á að heimsækja alla flugvelli landsins - Jiří Pruša
2026/07/14
Tékkneski fisflugmaðurinn Jiří Pruša flaug yfir Norðurpólinn þann 4. júlí 2026 og var það í fyrsta sinn sem fisflugvél er flogið yfir pólinn og til baka. Jiří er mikill Íslandsvinur og hafði viðkomu hér á landi á leið sinni frá pólnum og heim til Tékklands. Hann segir hér frá ferðalaginu á fisflugvélinni frá Svalbarða til Norðurpólsins, en ferðin krafðist mikils undirbúnings og það tók langan tíma að afla allra tilskilinna leyfa og uppfylla kröfur norskra flugmálayfirvalda um þjálfun og búnað. Viðtalið við Jiří var tekið á Heiði við félagsaðstöðu Fisfélag Reykjavíkur þar sem hann er alltaf aufúsugestur enda á hann orðið marga góða vini í hópi íslenskra fisflugmanna. Jiří segir frá ýmsu fleiru í þessu spjalli og m.a. frá atviki sem hann lenti í þegar fisvél hans skemmdist við lendingu á flugvellinum í Nýjadal fyrir um tveimur árum síðan, en þar komu vinir hans í Fisfélagi Reykjavíkur til bjargar.
#163 – 80 ár frá því að Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll – völlurinn öruggari í sessi nú en áður – samantekt frá viðburði ISAVIA innanlandsflugvalla í tilefni tímamótanna.
2026/07/12
Þann 6. Júlí 2026 voru liðin 80 ár frá því að Bretar afhentu íslenska ríkinu Reykjavíkurflugvöll með formlegum hætti og af því tilefni efndi ISAVIA innanlands til kaffisamsætis í flugstjórnarmiðstöðinni við Nauthólsveg þar sem tímamótanna var minnst. Í þessum þætti fer samantekt Flugvarpsins á þessum viðburði, viðtöl við nokkra þá sem tóku til máls og við heyrum áhugaverða og sögulega yfirverð Stefáns Pálssonar sagnfræðings um aðdraganda þess að Reykjavíkurflugvöllur varð til og á þeim stað sem hann er enn í dag.
#162 – Flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu – einn af hápunktum flugsumarsins – margir viðburðir víða um land - Edda Ingibjörg Eggertsdóttir og Matthías Sveinbjörnsson
2026/07/08
Árleg flughátíð Flugmálafélags Íslands verður helgina 10. til 12. júlí n.k. og af því tilefni er spjallað við þau Eddu Ingibjörgu Eggertsdóttur varaforseta og Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélagsins. Rætt er um dagskrá hátíðarinnar í ár og við hverju megi búast ásamt því að spjalla almennt um einkaflugið og stöðu mála í grasrót flugsins á Íslandi. Þau Edda Ingibjörg og Matthías segja líka stuttlega frá því sem þau eru að bardúsa þetta flugsumarið og fara yfir ýmsa flugviðburði sem hafa verið og eru í sumar.
#161 – Þyrluflugið mikilvægur þáttur í ferðaþjónstunni - Sameining HeliAir og Reykjavik Helicopters lofar góðu – Friðgeir Guðjónsson
2026/07/03
Rætt er við Friðgeir Guðjónsson framkvæmdastjóra sameinaðs þyrlufélags HeliAir Iceland og Reykjavik Helicopters. Farið er yfir aðdragandann að sameiningu félaganna nú í vor og hvernig gengur hjá nýju félagi. Friðgeir segir þyrlubransann engu líkann, þar fái viðskiptavinir stúkusæti til að skoða íslenska náttúru og rík eftirspurn sé eftir því að komast á afskekkta staði þar sem þögnin ríkir. Hann segir þyrluþjónustuna m.a. gríðarlega mikilvægan lið í þjónustu við efnameiri ferðamenn og það sem kallað hefur verið lúxus ferðamennska, en verkefnin eru afar fjölbreytt og kúnnahópurinn alls konar. Friðgeir er mikill flugáhugamaður og hefur verið viðriðinn grasrót flugsins í áratugi. Hann er einkaflugmaður og í stjórn Flugmálafélagsins og hlakkar til þess sem hann kallar hápunkt flugsumarsins þegar flughátíðin á Hellu verður í byrjun þessa mánaðar.

Podcast reviews

Read Flugvarpið podcast reviews


5 out of 5
26 reviews
★★★★★
Gummi alex 2023/03/17
Jóhann er meistari hann er svo skemmtilegur og fyndin
Meistari
check all reviews on apple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Flugvarpið relevant audience podcasts


What do you want to promote?