1542394358
Blanda – hlaðvarp Sögufélags

Advertise on podcast: Blanda – hlaðvarp Sögufélags

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
Categories
Country
United States
This podcast has
53 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Sögufélag
Explicit
No
Date created
2020/11/27
Latest episode
2026/10/19
Average duration
56 min.
Release period
26 days

Description

Blanda er hlaðvarp Sögufélags. Ætlunin er að Sögufélag komi sögunni með öllum sínum spennandi viðburðum, óvæntu atburðarás og dularfullu fyrirbærum á framfæri við þig.

Unlock Blanda – hlaðvarp Sögufélags podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Blanda – hlaðvarp Sögufélags podcast


#65 Anna Agnarsdóttir og Bréfið sem leiddi til byltingar
2026/10/19
Bréfið sem leiddi til byltingar eftir Önnu Agnarsdóttur fjallar um hinn stutta en ævintýralega valdatíma Jörundar hundadagakonungs á Íslandi, allt frá því að dramatískt bréf Magnúsar Stephensen dómstjóra til Sir Joseph Banks hrinti atburðarásinni af stað árið 1807. Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Önnu um bókina, sem er hluti af Seríu Sögufélags. Kaldastríðsborg eftir Rósu Magnúsdóttur hefst á sögulegum leiðtogafundi Ronalds Reagan og Míkhaíls Gorbatsjov í Reykjavík haustið 1986. Bókin kemur út á 40 ára afmæli leiðtogafundarins og fjallar um Reykjavík sem vettvang kalda menningarstríðsins svokallaða, áróðursstríðs austurs og vesturs. Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Rósu um bókina, sem er hluti af Seríu Sögufélags.
#64 Reykjavík - Kaldastríðsborg?
2026/10/01
Haustið 1986 funduðu Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, um afvopnunarmál í Höfða. Kaldastríðsborg kemur út á 40 ára afmæli leiðtogafundarins og fjallar um Reykjavík sem vettvang kalda stríðsins. Við sögu koma heimsfrægir listamenn og sérlundaðir skákmenn, amerískur bjór og ungverskir strætisvagnar.
#63 - Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar?
2026/08/27
Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar?Í samstarfi Blöndu, hlaðvarpi Sögufélags og Íslandssögunnar, hlaðvarpi Jóns Kristins Einarssonar, ræða þeir saman Sverrir Jakobsson prófessor og Jón Kristinn um Sturlungaöld og hvort hún hafi verið mesti ófriðartími Íslandssögunnar? Spjall þeirra leiðir okkur nær ríkjandi söguskoðun.
#62 - Stefán Pálsson og förufólk í Laugarnesi
2026/07/10
Förufólk í Laugarnesi: Fyrir um hundrað árum settist dularfull fjölskylda að í Laugarnesi með vísi að dýragarði. Fljótlega voru þau talin sígaunar og vöktu mikla athygli víða um land. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson hefur skoðað sögu þeirra og rekur hér þessa ævintýralegu frásögn í samtali við Markús Þórhallsson.
#61 Valur Gunnarsson og Bandaríkin 250 ára
2026/06/29
Bandaríkin verða 250 ára í sumar og af því tilefni ræddi Markús Þórhallsson við Val Gunnarsson sagnfræðing um upphaf þessa volduga ríkis, sögu þess og þróun.
#60 Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þurfamenn fá mannréttindi
2026/06/03
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur um bók hennar, Þurfamenn fá mannréttindi, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um sögu fátækrahjálpar á Íslandi, með sérstakri áherslu á Reykjavík, en í forgrunni er þýðingarmikil breyting á fátækralögum árið 1927 og breyttar hugmyndir um mannréttindi þeirra sem þurftu að þiggja opinbera aðstoð.
#59 Arnþór Gunnarsson og Hringvegurinn
2026/06/03
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Arnþór Gunnarsson um bók hans, Hringvegurinn, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um íslenska samgöngusögu á landi, í lofti og á sjó og hefst á hinni sögulegu vígslu Skeiðarárbrúar 1974 en með henni var lokið við hringveginn um Ísland, sem lengi hafði ekki verið til í villtustu draumum landsmanna.
#58 Þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi
2026/05/13
Markús Þórhallsson ræðir við sagnfræðiprófessorana Erlu Huldu Halldórsdóttur og Ragnheiði Kristjánsdóttur um þær þjóðaratkvæðagreiðslur sem haldnar hafa verið á Íslandi. Þær leggja einkum áherslu á viðamikla og óvenjulega þjóðaratkvæðagreiðslu um lýðveldisstofnun og upptöku nýrrar stjórnarskrár árið 1944.
#57 Sumarliði R Ísleifsson og Grænland
2026/04/24
Mannlíf og stjórnmál nútímans á Grænlandi, hörð náttúruöflin og ævintýraheimur norðursins ber vitaskuld á góma ásamt fjölmörgu öðru forvitnilegu í samtali Sumarliða R Ísleifssonar prófessors emeritus og Markúsar Þórhallssonar fréttamanns og sagnfræðings.
#56 Ný og spennandi ritröð Sögufélags væntanleg
2026/02/16
Gunnar Þór Bjarnason, Kristín Svava Tómasdóttir og Rósa Magnúsdóttir ræða um Seríu Sögufélags, nýja ritröð stuttra bóka sem hefur göngu sína í vor, en hún er byggð á dönsku ritröðinni 100 danmarkshistorier.
#55 Samfélag átjándu aldar – Hvað segja þau okkur?
2026/01/29
Jón Kristinn Einarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur, þjóðskjalavörð og fyrrv. forseta Sögufélags, um rannsóknir hennar á samfélagi átjándu aldar. Þau spjalla um þéttbýlismyndum á Íslandi fyrir tíma iðnvæðingar, ullarvinnslu og viðreisnaráætlanir átjándu aldar, efnahagshugsun upplýsingarinnar, kameralisma og ýmislegt fleira.
#54 Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir um Piparmeyjar
2025/12/02
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur sagnfræðing og höfund bókarinnar Piparmeyjar: Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi. Bókin er jöfnum höndum saga ógiftra íslenskra kvenna og saga Reykjavíkurstúlkunnar Thoru Friðriksson, skarpgreindrar konu með stóra drauma sem hún fékk ekki tækifæri til að láta rætast fyrr en á miðjum aldri, eftir að hún var búin að rækja skyldur sínar við stórfjölskylduna. Hvaða augum leit fólk piparmeyjar um aldamótin 1900 og hvaða augum litu þær sig sjálfar? Höfðu þær eitthvert raunverulegt val í lífinu? Og hvað með ástina? Þátturinn er gerður í samstarfi við Forlagið.
#53 Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga?
2025/11/25
Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga. Allt um það í þessum nýja Blönduþætti Sögufélags. Markús Þórhallsson ræðir við Pál Björnsson, sagnfræðing og prófessor við Háskólann á Akureyri, um nýjustu bók hans, Dagur þjóðar: Þróun 17. júní hátíðarhalda á 19. og 20. öld. Páll greinir frá hvernig 17. júní varð að þjóðhátíðardegi Íslendinga snemma á 20. öld, segir frá öðrum dögum sem hefðu einnig geta orðið þjóðhátíðardagur og einnig hvað varð til þess að fæðingardagur sjálfstæðishetjunnar Jóns Sigurðssonar varð ofan á án ákvörðunar yfirvalda. Markús og Páll ræða líka margt það sem einkennir þjóðríki nútímans, ýmislegt það sem ekki hefði orðið til í samfélögum fortíðar. Fjallkonan og íþróttir koma við sögu, sjálfsmynd og þjóðbúningar ásamt nýlegum hátíðardögum sem á einhvern hátt keppa við þjóðhátíðardaginn sjálfan.
#52 Kristín Svava Tómasdóttir um Fröken Dúllu
2025/11/19
Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa verið kallaðar umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar. En hver var Dúlla Knudsen? Hér verður það rætt í hlaðvarpi sem er samstarf Sólarinnar, hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu, og Blöndu, hlaðvarpi Sögufélagsins.
#51 Davíð Ólafsson og Mynd og hand. Skólasaga 1939-1999.
2025/10/23
Í þættinum ræðir Kristín Svava Tómasdóttir við Davíð Ólafsson, sagnfræðing og dósent við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, um nýútkomna bók hans og Arndísar S. Árnadóttur, Mynd og hand. Skólasaga 1939–1999. Í þættinum spjalla Kristín Svava og Davíð vítt og breytt um bókina og sögu Myndlista- og handíðaskóla Íslands, allt frá því að hann hóf að starfa í fjórum geymsluherbergjum í kjallara við Hverfisgötu árið 1939 og þar til hann var lagður niður samhliða stofnun Listaháskóla Íslands árið 1999.

Podcast reviews

Read Blanda – hlaðvarp Sögufélags podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Blanda – hlaðvarp Sögufélags relevant audience podcasts


What do you want to promote?