1547595700
Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við

Advertise on podcast: Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við

This podcast has
40 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2021/01/06
Latest episode
2026/09/25
Average duration
50 min.
Release period
86 days

Description

Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi.Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni.Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi sem er tækniyfirfærslu stofa Íslands í eigu allra Háskólanna, Landsspítalans, Samtaka Iðnaðarins og rannsóknarstofnanna. Frekari upplýsingar á heimasíðunni www.audna.is

Unlock Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við podcast


Gísli Karl Gíslason - Hvað eru Vísindagarðar?
2026/09/25
Gísli Karl Gíslason, tæknistjóri Vísindagarða Háskóla Íslands, mætir í settið og fræðir okkur um Vísindagarða. Hvað eru Vísindagarðar?  Hver er sagan? Af hverju eru Vísindagarðar til og af hverju eru þeir í Vatnsmýrinni? Við förum yfir stefnumótun og nýja sýn Vísindagarða ásamt nýju logói og hvernig garðarnir eru að breytast í takt við nýja tíma. Tengjum við umfjöllun frá 9.2.2021 (Þáttur 2 í Auðvarpsseríunni), þar sem Sigurður Magnús Garðarsson fór yfir framtíðarsýn og erindi Vísindagarða. Hvað hefur breyst? Tölum um djúptæknisetrið og síðast en ekki síst um Gísla sjálfan og áhugasvið hans, þar sem við lærum m.a. um Dolby Atmos. Meira um Vísindagarða á visindagardar.is Þökkum stuðninginn frá Audna.is Visindagardar.is Kveikja.ai og IHPC.is www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Halldóra Mogensen og Mannvæn tækni - Erum við á réttri leið?
2026/07/10
Halldóra Mogensen mætir og fer yfir mannlegu hlið tækninnar með okkur. Halldóra er stjórnarformaður og meðstofnandi Samtaka um mannvæna tækni. Í 39. þætti Auðvarpsins – Nýsköpun, vísindin og við ræðir Sverrir Geirdal um mannvæna hlið tækninnar við Halldóru. Við ræðum hætturnar og áskoranirnar, fyrir hverja er tæknin og nauðsyn þess að fara varlega. Ekki gleyma fólkinu sem tæknin, og í þessu tilviki gervigreindin, á að þjóna. Meira um Samtök um mannvæna tækni á mannvaen.is Þökkum stuðninginn frá Auðnu tæknitorgi, Visindagörðum, Kveikju og IHPC. Hlustiði www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Greenfish - Næsti einhyrningur landsins - Sveinn Sigurður framkvæmdastjóri segir frá!
2026/05/07
Við hjá Auðvarpinu kynnum næsta einhyrning Íslands; Greenfish! Sjávarútvegsfyrirtæki byggt á gervigreind. Veðurstofa fyrir fiskistofna.   Sveinn Sigurður Jóhannesson, varamarkmaður Stjörnunnar og fyrrum varamarkmaður Vals í fótbolta, er í raun fyrst og fremst frumkvöðull. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Greenfish sem á undrastuttum tíma hefur náð forystu á sínu sviði í heiminum. Greenfish spáir fyrir um hvar fiskinn er er að finna í sjónum áður en skipið leggur úr höfn með því að nota gervigreind og mikið magn gagna, líkön og töfra til að reikna út líkur á hvar og hvernig fiskurinn hagar sér. Allt gert með ofurtölvum. Hafa notið liðsinnis IHPC og Kveikja.ai – Einkaleyfi í farvegi! Hlustiði www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Verðlaunaverkefnið: Vefjastoðefni úr Brúnþara - Svava og Óttar
2026/04/30
Handhafi Vísinda og Nýsköpunarverðlauna Háskóla Íslands 2026 er verkefnið Að þróa vefjastoðefni úr brúnþara í stað dýravefja. Það er Svava Kristinsdóttir doktorsnemi sem fer fyrir verkefninu. Hún ásamt Óttari Rolfssyni koma í þátt 37 og útskýra verkefnið fyrir okkur.  Hvernig það kom til og hvaða þýðingu svona viðurkenning hefur fyrir framhaldið. Verðmætasköpun á grunni rannsóknanna er handan við hornið. Einkaleyfi í farvegi og framtíðin er björt. Hlustiði Þátturinn er í boði Auðnu tæknitorgs, Kveikju, Vísindagarða og IHPC www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Nýsköpunarvikan með Eddu Konráðs
2026/03/04
Innovation week verður 28-29 apríl – Edda Konráðs segir okkur allt! Tölum um Nýsköpunarvikuna og lærum smá um söguna – allt um vikuna er hér: www.innovationweek.is Viðburðir sem talað er um í þættinum: STEMming 2026 8. mars á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna: https://fb.me/e/9tqySvut1 Join us as we celebrate International Women’s Day at our 3rd annual STEMming event! We are always proud to host this celebratory gathering designed to unite women, non-binary individuals, and allies dedicated to championing diversity in STEM and innovation.   og AI & Society ráðstefna í HR 13. mars: https://www.ru.is/en/events/ai-and-society AI & Society 2026 explores how artificial intelligence is reshaping the boundaries of decision-making, from individuals and organisations to nations themselves.    Og svo fer AI Running Club aftur af stað 9. mars: https://www.linkedin.com/events/airunningclubreykjavik7433123347628036096/ Tækifæri til að hittast og hlaupa eða labba og networka og ræða gervigreind í afslöppuðu umhverfi. Skoðið næstu viðburði hjá Iceland High Performance Computers – www.IHPC.is www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Nýsköpun fyrir Norðan með Svövu Björk Ólafsdóttur
2026/02/02
Í þætti 35 fáum við Svövu Björk Ólafsdóttur Nýsköpunarstjóra Háskólans á Akureyri í heimsókn. Svava er samt svo miklu meira en starfsmaður HA – hún hefur snertifleti við eiginlega allt nýsköpunarstarf fyrir norðan. Við fáum að kynnast Nýsköpunar-Svövu, hvað er að gerast fyrir norðan og hvernig nýsköpun er sinnt í Háskólanum á Akureyri. Við lærum um skapa.is, Drift ea. Norðanátt, nýjan fjárfestingasjóð - Landvætti og hvernig Svava er að kenna börnum að nýskapa. Mjög skemmtilegt og fróðlegt. Ítarefni og hlekkir: https://www.unak.is/ https://www.Skapa.is https://www.driftea.is/ Workshop hjá IHCP – sjá hér: https://www.ihpc.is/events/24th-icelandic-hpc-community-workshop Og síðast en ekki síst;  Masterclass Auðnu fyrir norðan: https://audna.is/masterclass-a-akureyri www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Dr. Professor Morris Riedel one of the key players in HPC and AI in Iceland
2026/01/16
Supercomputers, money and Morris Riedel The 34th episode Auðvarpið 2.0 is of the more expensive type, recorded for the second time and even better than the first. Dr. Professor Morris Riedel is the guest of the episode. One of the most important participants and actually the one who makes things happen for Icelandic projects in the field of artificial intelligence and supercomputers. He is behind most of the projects that have received substantial funding from the European Union in the field. We review the projects and their status as well as getting to know the man behind the genius a little. Ofurtölvur, peningar og Morris Riedel 34 þáttur Auðvarpsins 2.0 er af dýrari gerðinni,  tekin upp í annað skipti og ennþá betri en í það fyrsta. Dr. Professor Morris Riedel er gestur þáttarins.  Einn almikilvægast þátttakandi og í raun gerandi í góðum árangri Íslands og Íslenskra verkefna á sviði gervigreindar og ofurtölva. Hann er á bakvið flest þau verkefni sem hljóta há styrki frá Evrópusambandinu á sviðinu. Við förum yfir verkefnin og stöðuna ásamt að kynnast manninum á bakvið snillinginn aðeins. Ítarefni: The Possibilities for Women in AI  Skráning og frekari upplýsingar hér:  https://jafnrettisdagar.is/dagskra/?fbclid=IwVERDUAPTU0ZleHRuA2FlbQIxMABzcnRjBmFwcF9pZAo2NjI4NTY4Mzc5AAEeEy_tBpW0IE7EKhf1adjKmfYmbv1IuzKYVQtkEUeEg80jPeafaqRL1CICuPM_aem_t79QLxqFp_5ygrHHocXqlA     (Velja Háskólann í Reykjavík) https://www.treble.tech/ www.greenfish.is Hlustiði www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Disney er dautt - Skapandi greinar og AI - Sigurður Á. Árnason
2025/12/19
Disney er dautt og samfélagsmiðlar sömuleiðis  33 þáttur Auðvarpsins 2.0 kominn í loftið! (Myndmerki þáttarins er verk ChatGPT 5.2) Sigurður Ásgeir Árnason eða Siggi, framkvæmdastjóri Overtune mætir í settið hjá Sverri Geirdal, nú ráðgjafa hjá Hinos ehf. og ræðir tónlistargeirann og gervigreind – Skapandi greinar með áherslu á tónlist. Hvaða áhrif hefur gervigreind á skapandi greinar? Í hvað er hún notuð? Þurfum við að vera hrædd?  Hvað gerir listaverk að listaverki? Getur gervigreindin komið í staðinn fyrir fólk? Er meðal lag nógu gott? Hreyfir það við okkur að búa til 1000 lög á sekúndu? Mikil gerjun og ákaflega spennandi staða uppi!  Hvernig verður hagkerfi skaparans í framtíðinni? Hlustið! Tenglar úr þættinum: Nýsköpunarnám á vegum Landsspítala – upplýsingar hér: Námsbraut í nýsköpun - Almennt um námið | Landspítali Þáttur með Hafsteini Einarssyni um AI og listina er númer 17;  hlustið hér: https://open.spotify.com/episode/62BytmvDn8TWLYUwUohpDm?si=dc3d0240a1714680 Aukaefni um ai og tónlist – þáttur númer 24 – viðtal við Þórhall Magnússon um tónlist og gervigreind:  https://open.spotify.com/episode/05i7kqWoMxz87chWxvA3hT?si=9967ec468f4f4f7c www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
EDIH - Svartur Nóvember og Netöryggi - Teddi hjá Defend Iceland!
2025/11/14
Eyvör – stærsta framfaraskref netöryggis og eru yfirvöld að bregða fæti fyrir nýsköpun með höfnun 60% umsókna um endurgreiðslu þróunarkostnaðar? 32. þáttur Auðvarpsins 2.0 kominn í loftið! (Myndmerki þáttarins er verk ChatGPT 5.1 – vonum að bottinn nái að læra stafsetningu fyrir næsta þátt). Theodór Ragnar Gíslason eða Teddi mætir í settið hjá Sverri Geirdal,  nú ráðgjafa hjá Hinos ehf., og ræðir allskonar um net og tölvuöryggi. Defend Iceland – hvað er það?  Lýðvirkja?  Og hvað þýðir Villuveiðigátt? Defend Iceland er nýbúið að fá Nýsköpunarstyrk frá Digital Europe og Rannís en var hafnað um endurgreiðslu þróunarkostnaðar vegna þess að þau eru ekki í Nýsköpun… (There is something rotten in the state of Ice…) Ræðum um Eyvöru,  sem Teddi kallar mesta framfaraskref á sviði netöryggis í seinni tíð. Hvernig getur samfélagið nýtt sér styrki sem þar fást? Hvernig eigum við venjulega fólkið að haga okkur við verslun á netinu, sem er aldeilis aktuelt efni núna í Svörtum Nóvember,  þegar 11.11 er nýliðinn og 28.11 (svartur fössari) er handan við hornið. Ræðum um viðburði framundan á vegum stuðningsaðila Auðvarpsins; Kynning á netörygissstyrkjum Eyvarar 17. nóvember í húsakynnum Arion Banka: https://www.rannis.is/frettir/taekifaeri-i-netoryggi-netoryggisstyrkir-eyvarar-og-digital-europe EDIH-IS hefur stofnað hlaupahópinn "AI Running Club Reykjavík." Hópurinn hleypur í hádeginu, þriðja miðvikudag í mánuði. Næsta hlaup er miðvikudaginn 19. nóv kl 11:15 frá HR: https://www.linkedin.com/events/airunningclubreykjavik7394311453232533504/  Gagnvist - ráðstefna um þróun íslenska gagnavistkerfisins - 27. nóvember í Grósku: https://vidburdir.hagstofa.is/events/radstefna2025  🎧 www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Auðna - Upphafið og framhaldið með Einari Mäntylä
2025/10/17
Af hverju Auðna og af hverju er framtíðin björt? Einar Mantyla sest með Sverri Geirdal og fer yfir söguna!  Báðir eru þeir hættir hjá Auðnu og því vel við hæfi að fara yfir liðinn tíma og rifja upp söguna. Förum yfir allskonar pælingar um Vísindalega nýsköpun, svarið við öllum spurningum mannkyns (fyrir utan 42). Auðna hefur þroskast og er komin vel á lappirnar,  aukin eftirspurn eftir þjónustunni sýnir þörfina.  Mikilvægt að láta ekki staðar numið og tryggja tilveruréttinn landi og þjóð til heilla. Förum yfir EDIH – hví kom Auðna að því verkefni og hvernig hefur gengið.  Eigum við að sækja í Evrópuverkefni þrátt fyrir portalinn,  ja þegar stórt er spurt?  27 milljón Evrum síðar blasir svarið við. Hlustiði! www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Eyvör: Viltu styrk til að bæta netöryggi?
2024/08/26
Eyvör hleypir netöryggisstyrk af stokkunum!  Allt að 9 milljónir í styrk og 80% verkefnis fjármagnað – umsóknarfrestur til 1. Október 2024. Daði Gunnarsson sérfræðingur hjá Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytinu og verkefnastjóri Eyvarar og Eyjólfur Eyfells sérfræðingur hjá Rannís og umsjónarmaður Netöryggisstyrkja komu í heimsókn til að ræða málin. Förum yfir tilhögun styrkjanna og þau skilyrði og áherslur sem þar liggja að baki. Kynnumst Eyvöru sem er NCC (National cooperation Center) í netöryggi á Íslandi og hluti af neti slíkra setra í Evrópu. Ákaflega fróðlegur þáttur um það sem er að gerast í netöryggismálum á Íslandi og hvernig Evrópa hyggst bæta stöðu sína í málaflokknum. Hlustiði! www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Er tífalldur hraði lykilatriði í nýtingu gervigreindar? Ólafur Magnússon @Nova ræðir málin
2024/06/28
Ólafur Magnússon tæknistjóri Nova sest með okkur og ræðir stöðuna á fjarskiptamarkaði með tilliti til þráðlausra tenginga. Hvað er 5,5G og af hverju eru ekki fundin betri nöfn á þráðlausum stöðlum og hvað eigum við að gera með tífalldan hraða? Verður sett þjónustustig á netið?  Munum við þurfa að borga meira fyrir meiri hraða og minna fyrir lakari gæði? Þurfum við ljósleiðara?  Þróunin er að opna á ýmis nýsköpunartækifæri til dæmis þráðlausar beinar útsendingar af viðburðum.  Sjá dæmi hér:  https://www.ericsson.com/en/press-releases/3/2024/ericsson-3-denmark-tv-2-and-sony-kick-off-new-era-of-live-sports-broadcasting Hlustiði! www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Ketilsson @Heilsutækniklasinn
2024/01/30
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum. Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun.  Það er eina leiðin framávið. Freyr ræðir um innri nýsköpun, ytri nýsköpun, stefnur og strategíur.  Hvernig kerfið þarf á hjálp að halda til að kynna og innleiða breytingar. Svo förum við að sjálfsögðu yfir Heilsutækniklasann og lausnamótið sem er framundan. Hlustiði! www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Verður Gervigreindin bönnuð? Nýtt regluverk á leiðinni!
2024/01/10
Gervigreindin á hug okkar allann.  Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn. Regluverkið!  Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina?  Hver myndi þá gera það og af hverju? Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru.  Við förum yfir regluverkið sem Evrópusambandið er búið að samþykkja,  eftir víðtækt samráð við Evrópuráðið og löndin sem mynda sambandið.. Fyrir hverja er regluverkið?  Hvað er verið að tryggja/vernda með því? Hvað verður bannað og hvað má?  Hver ákveður og hver verða viðurlögin? Af hverju eru ekki til reglur in Internetið?  Um samfélagsmiðlana? Hvað höfum við lært? Þetta og allskonar meira í þætti 27! Hlustiði! www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Gervigreind og siðfræði - Páll Rafnar Þorsteinsson
2023/06/21
Sverrir Geirdal heldur áfram að fjalla um gervigreind,  stafræna nýsköpun undir hatti EDIH.  Að þessu sinni tekur hann á móti Dr. Páli Rafnar Þorsteinssyni verkefnastjóra hjá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands til að ræða mál málanna, Gervigreind og siðfræði. Er gervigreind mannleg greind?  Ef ekki er henni þá treystandi,  út frá siðfræði, að takast á við verkefni sem kallar á mannlega greind?  Er gervigreind annarskonar greind,  sem hefur kosti umfram mannlega greind, t.d. hraða og aðgang að ógrynni upplýsinga og er þá hrein viðbót við mannlega greind?  Þurfum við regluverk um gervigreind?  Við þurftum ekkert regluverk um Internetið á sínum tíma.  Eða var það kannski feill,  hefðum við einmitt átt að setja reglur um Internetið.  Hefðum við þá getað afstýrt allskonar óværu sem á okkur herjar núna,  eins og falsfréttum?  Óæskileg áhrif samfélagsmiðla  og svo framvegis. Mjög fróðleg og skemmtileg umræða um eitt stærsta álitamál samtímans – Gervigreindina! Góða skemmtun www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

Podcast reviews

Read Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við relevant audience podcasts


What do you want to promote?