1549453638
Þvottahúsið og Geimsýran

Advertise on podcast: Þvottahúsið og Geimsýran

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
This podcast has
169 episodes
Language
Icelandic
Date created
2021/01/17
Latest episode
2026/10/26
Average duration
31 min.
Release period
2 days

Description

Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem  gætu skilgreinst sem andleg og heimspekileg. Áskriftarþættir og aukaefni eru á http://patreon.com/geimsyran

Unlock Þvottahúsið og Geimsýran podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Þvottahúsið og Geimsýran podcast


Svo kemur bara mánudagur á eftir Ayahuasca
2026/10/26
Send us Fan Mail Smá follow up á Ayahuasca ferðalaginu. Nú er mánudagurinn að verða búin að svefninn komin í lag og maður búin að melta þetta aðeins. Hverju skilar þetta allt og hvað á maður að gera við þessar upplýsingar, þessar breytingar sem manni eru færðar? Lífið er svo æðislegt og plantan, Ayahuasca svo ótrúlega öflugur kennari. Ég er svo þakklátur fyrir að vera settur á þessa vegferð, það er nó turning back!!
Þegar skömminni er ælt í Ayahuasca
2026/10/25
Send us Fan Mail Í þessu mannlega horni fór ég yfir þessi rosalegustu Ayahuasca ferð. Var tekin í skömm og myrkur sem einungis var hægt að losa úr kerfinu í gegnum uppkast eða "purge" Þar eftir tók við ferli sem er ekki hægt að lýsa öðruvísi en að ég hvarf og varð andardráttur, eina mantran sem situr eftir er allt annað er strípað. Dásamlegur leikur lífið, fullt af allskonar, sumt ber að halda í á meðan annað okkur ber að losa okkur við, enda ekki okkar. Þykir vænt um ykkur á sunnudagsmorgni. http://patreon.com/Geimsýran
"Þetta er ekki hægt"
2026/10/22
Send us Fan Mail „Þetta er ekki hægt!“ Þessi orð lét ég falla í miðri ayahuasca-reynslu sem hefur fengið mig til að endurskoða hugmyndir mínar um vitundina og raunveruleikann. Ég upplifði stað sem mér fannst ég hafa komið á áður, samskipti án orða og veruleika sem virtist vera til óháð minni eigin ímyndun. Í þessum persónulega þætti Geimsýrunnar velti ég fyrir mér eðli vitundarinnar, sjálfsmyndinni, öðrum tilverusviðum og mögulegum tengslum við UFO-fyrirbærið. Hvað ef veruleikinn er allt annar en við höldum? Geimsýran – Skoðum allt, trúum engu. http://patreon.com/Geimsýran
UFO málaflokkurinn tekin fyrir
2026/10/20
Send us Fan Mail Ævingarennsli fyrir fyrirlestur var tekið í þessari Geimsýru fyrir nokkru. Heildaryfirferð á sögunni og málaflokknum.
Möguleg aðkoma íslenskra vísindamanna í UFO heiminn
2026/10/20
Send us Fan Mail Hvað gerist þegar vísindamenn fara að horfa alvarlega á UFO-málið? Í þessum þætti skoðum við nokkra af þeim vísindamönnum sem hafa komið að rannsóknum á UFO/UAP og Disclosure — allt frá J. Allen Hynek og Jacques Vallée til Avi Loeb, Garry Nolan, Eric Davis, Kevin Knuth og Beatriz Villarroel. En svo kemur spurningin sem mér finnst sérstaklega áhugaverð: Hvað með Ísland? Eigum við íslenska vísindamenn sem gætu komið að alvöru rannsóknum á UAP? Stjarneðlisfræðinga, eðlisfræðinga og sérfræðinga í gagnagreiningu og mælitækni? Kannski er spurningin ekki hvort við eigum að trúa á UFO. Kannski ættum við einfaldlega að byrja að rannsaka það sem við skiljum ekki. Skoðum allt. Trúum engu.
Hvernig forðast ég streitu í öllu amstrinu?
2026/10/19
Send us Fan Mail Í mannlega horninu í kvöld fer ég yfir hvernig ég forðast streitu í streitufullu umhverfi. Hver eru verkfærin og hvert er hugarfarið? Einnig les ég vel valin orð úr kaflanum Vitundarleg pólskifti úr bókinni UFO202. Krakkar, lífið er of stutt í línulega samhengi að eyða því í volæði og vitleysu. Lausnin er fólgin í réttum boðefnum sem leiða okkur í samkennd og engin er að fara að gera þetta fyrir okkur. Namaste elskurnar.  Yogashala.is fargufa.is betridagar.is heilsuhornid.is
Dularfullu græn-geisla UFO myndböndin
2026/10/18
Send us Fan Mail Það eru til UFO-myndbönd sem maður horfir á einu sinni og hugsar: „Já, þetta er líklega eitthvað.“ Svo eru til myndbönd sem maður horfir á aftur og aftur og svo fer maður að leita í öðrum myndböndum og maður sér sömu hlutina gera það sama. Og þá verður málið allt í einu miklu áhugaverðara. Í þessum þætti ætla ég að sýna ykkur fjögur myndbönd sem birtust á internetinu haustið 2013. Þau koma frá mismunandi stöðum í Bandaríkjunum. Michigan, Ohio og Georgia. Og öll virðast þau sýna eitthvað mjög svipað bjart ljós, hamarslaga UFO ,dularfullt fyrirbæri á næturhimni. Og sérstaklega eitt smáatriði sem gerir þessa sögu mjög áhugaverða. Fyrirbærin virðast öll geisla af sér grænum skönnunargeisla.
Þegar fólkið safnast saman gerast ótrúlegir hlutir
2026/10/18
Send us Fan Mail Hér er farið yfir frábært kvöld í Eden þar sem fjöldinn allur af frábæru fólki mætti og deildi rýminu. Hugleiðsla og langur fyrirlestur um leyndardóma UFO.
Létt yfirferð á stöðu mála á þessum fallega föstudagsmorgni
2026/10/16
Send us Fan Mail Í þessari léttu yfirferð fer ég yfir stöðuna á mér og innihald UFO kvöldið sem haldið verður annaðkvöld, 17 okt kl 20 í Eden Yoga. Það verður Kakó og hugleiðsla á undan klst UFO fyrirlestur og spjall. Verð með bækur til sölu ef einhver vill einnig. Áskriftarþættir eru á http://patreon.com/Geimsýran og skráning á UFO kvöldið í Eden fer fram á https://www.edenyoga.is/booking-form?referral=booking_calendar_widget&continueShoppingUrl=%2Fbooking-calendar%2Fbókaspjall-með-gunnari-dan-ufo-202%3Ftimezone%3DAtlantic%2FReykjavik
Hið pólitíska afstöðuleysi
2026/10/11
Send us Fan Mail Mannlega hornið í dag er pólitískt. Hvernig stendur á því að ég einn daginn tek við niðurhali sem segir mér að draga mig úr allri pólitík, stjórnmálalegri, lýðræðislegri og samfélagslegri? Hvað þýðir það að taka ekki afstöðu lengur innan lýðræðis? Er það hægt? Ég fer í þessum þætti yfir sýn mína hvað varðar pólitískt afstöðuleysi. Hvernig samfélag ég er búin að skapa innra með sjálfum mér og hvernig ég vill meina að ég sé að haga mér á ábyrgan hátt sem ábyrgur samfélagsþegn, samt sem áður einn sem ekki mætir á kjörstað né tekur afstöðu í neinni samfélagslegri ádeilu. Þetta er erfitt og gerist ekki á einni nóttu. Ennþá finn ég að ég er dregin í þessar áttir og alltaf er það það sama sem dregur mig til baka og það er sársaukinn sem er samofin sundrung og tvíhyggju.
Hvenar leyfum við okkur að vera vanmáttug og takmörkuð?
2026/10/11
Send us Fan Mail Í mannlega horninu í kvöld er ég að ræða mikilvægi þess að viðhalda auðmýkt gagnvart eigin vanmætti, skilningsleysi og vanþekkingu. Lífið er svo stutt og asnalegt í bland við að vera langt og sjúklega mikil snilld. Og hvað situr eftir annað en bara að leitast eftir að gera sitt besta og taka hlutum ekki of alvarlega, bara leika sér. Mikið þakklæti í hjarta mínu fyrir alla þá sem gerst hafa borgandi áskrifendur á Patreon. Mér þykir svo vænt um það að ég get eiginlega ekki lýst því með orðum. Bara ást á ykkur öll og hjarta emoji.  http://patreon.com/Geimsýran
UFO update á föstudagskvöldi.
2026/10/09
Send us Fan Mail Það er smá update hér á föstudagskvöldi. Geimsýran hefur hafið samrunaferli með hlaðvarpinu Hinu Yfirnáttúrulega. Ég, Dagný og Selma munum nú sameina krafta okkar einu sinni í mánuði og gera sameiginlegan þátt, einfaldlega því öll erum við svo frábær og skemmtileg. Fyrsti þáttur dropar á morgun á Patreon. Einnig eru spennandi þætti framundan á sunnudag og miðvikudag. Laugardaginn 17 okt kl 20 mun ég í samvinnu með Edenyoga.is halda hugleiðslu, kakó og UFO fyrirlestur. Það kostar 1.500,- hægt er að skrá sig á heimasíðu Eden. Annars, Geimsýran á http://patreon.com/Geimsýran SKoðum allt, trúum engu.
Project Blue Beam, false Alien Invasion
2026/10/08
Send us Fan Mail Í þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam. Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um falskar fornleifauppgötvanir, hologram á himninum, skilaboð inn í huga fólks og að lokum sviðsetta „geimveruárás“ sem gæti sameinað mannkynið gegn sameiginlegum óvini. En svo förum við lengra. Við skoðum frásagnir Carol Rosin um Wernher von Braun og hið svokallaða „alien card“, kenningar Steven Greer um false flag-aðgerðir og svo tengjum við þetta við það sem Jeremy Corbell og Chris Bledsoe hafa sagt um árið 2027, „incoming craft“ og hið dularfulla orð Armada. Og þá kemur stóra spurningin: Erum við að horfa á gamla samsæriskenningu sem hefur einfaldlega lifað af í nýrri mynd — eða erum við að verða vitni að raunverulegri breytingu á því hvernig stjórnvöld og mannkynið tala um ógnir frá geimnum? Við skoðum líka kalda stríðið, þróun geimhernaðar, UAP-uppljóstranir, 3I/ATLAS og nýja áherslu Bandaríkjanna á hernaðarlegt geimkerfi. Að lokum förum við aftur til ársins 1987. Þá stóð Ronald Reagan fyrir framan Sameinuðu þjóðirnar og spurði: Hvað myndi gerast ef við stæðum frammi fyrir sameiginlegri ógn utan úr geimnum? Það sem hann sagði þá hljómar ótrúlega áhugavert í dag. Velkomin í Geimsýruna á patreon.com/geimsyran
Svo fallegar Tall Whites og ógeðslegar reptilian Gorillaz!!
2026/10/05
Send us Fan Mail Ok kids. Ég get ekki Hætt að hugsa um þessar fullyrðingar David Grusch. Fór í viðtal í dag hjá Frosta Loga sem er prýðisdrengur. Ræddum þessi mál þar í þaula en niðurstaðan er að ef ég væri djúpríkispési og ætlaði að framkalla sviðsetta innrás geimvera, þá myndi é gera það nákvæmlega svona, dropa þessu í war . gov og svo henda Grusch í Rogan viðtal og leyfa honum að tala um fallegar Tall Whites og ógeðslega hættulega reptilian gorillaz!! You cant make this shit up!!!
Geimsýran flæðir stjórnlaust á Patreon
2026/10/04
Send us Fan Mail Smá update á að Geimsýran er komin í áskrift á http://patreon.com/geimsyran  Þar eru birtir 2-3 frétta og topic-þættir á hverri viku. Allar nýjustu fréttirnar og vangaveltur tengt andlegum, trúarlegum og heimspekilegum vinklum. Fyrir 10 dollara á mánuði færðu aðgang að mér og efni tengt UFO og frá öllum vinklum.

Podcast reviews

Read Þvottahúsið og Geimsýran podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Þvottahúsið og Geimsýran relevant audience podcasts


What do you want to promote?