
Advertise on podcast: Einmitt / Menn eins og við
Rating
5from
This podcast has
100 episodes
Language
IcelandicPublisher
Einar BárðarsonExplicit
No
Date created
2021/03/10
Latest episode
2026/09/25
Average duration
68 min.
Release period
11 days
Description
Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.
Unlock Einmitt / Menn eins og við podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Einmitt / Menn eins og við podcast
MENN EINS OG VIÐ #25 "Hvaða þvæla er þetta Marta?"
2026/09/25
Það var bókstaflega brotist inn heima hjá Baldri í miðri upptöku þáttarins. Þegar búið var að greiða úr því gátu strákarnir snúið sér að alvarlegri málum – eins og þeirri hneisu að hvorugur þeirra komst á lista Mörtu á Smartlandi yfir hárprúðustu karlmenn landsins. Róbótinn hans Baldurs er loksins kominn í lag, Einar fór í fjöruferð með einum besta kokki landsins og fékk persónulega stílráðgjöf í Mango. Allt þetta og eitthvað meira sem skiptir nákvæmlega engu máli – nema auðvitað mönnum eins og okkur.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
hertzlangtimaleiga.is
intuens.is
gefur.is
kolski.is
Bpro.is
MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi?
2026/09/10
Er hægt að mæla alvöru miðaldra lífsgæði – og hvað segir það um mann að horfa viljandi á Married at First Sight?
Í 24. þætti Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir lista með 15 atriðum sem eiga að skilgreina alvöru lúxus miðaldra mannsins. Þeir skoða listann, sannreyna hann eftir eigin höfði og komast að því að lífsgæðin felast stundum í mun hversdagslegri hlutum en maður hefði haldið.
Um leið reyna þeir að komast til botns í einni stærstu ráðgátu þáttarins: Af hverju í ósköpunum horfir Baldur viljandi á Married at First Sight?
Eins og venjulega fara þeir félagar á kostum í umræðum um allt það sem skiptir miðaldra menn gríðarlega miklu máli – en mögulega engan annan.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við eru:
hertzlangtimaleiga.is
kolski.is
gefur.is
Bpro.is
MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn"
2026/09/01
Baldur var staddur í Nashville fyrir algjöra tilviljun daginn sem Dolly Parton féll frá og endaði á því að leggja blóm við stjörnu hennar. Þaðan liggur leiðin í kúrekahatta, strútsleðursstígvél og manninn sem spurði: „Are you from around here?" Einar og Baldur ræða líka opin sambönd, sameiginleg áhugamál hjóna, hárvörur miðaldra karla og róbótasláttuvélina sem enn neitar að vinna vinnuna sína. Sem sagt flest það sem skiptir þig nákvæmlega engu máli.
MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal
2026/08/21
MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal
Einar og Baldur fara yfir allt það mikilvægasta sem skiptir engu máli: hárfund með tugum nýhærðra manna, deilur Baldurs við slátturóbótinn, Einar fór í þjóðbúningamessu, hvort Menningarnótt sé orðin Menningarkvöld og hvernig tveir lofthræddir menn komast upp á Bolafjall.
Svo fer Baldur heim í Búðardal, rifjar upp sumrin í sveitinni, fólkið, ættirnar og gömlu sögurnar. Smá ferðalag, smá fortíð og fullt af algjörlega áríðandi en gagnslausu spjalli.
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við.
Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta bara fast á?"
2026/08/12
MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta fast?"
Þá er komið að stóra Sólmyrkvaþættinum en í þessum þætti ræða þeir Einar og Baldur nákvæmlega ekkert um sólmyrkvann, enda nóg annað sem þarf að leysa. Til dæmis muninn á pizzu og pinsu, hvers vegna menn fara í hárígræðslu og verða svo hissa þegar hárið heldur áfram að vaxa – og skilja ekkert í því af hverju þeir þurfa þá allt í einu að fara í klippingu. "Er þetta bara fast á?"
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við.
Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
„Er þetta fast?"
Menn eins og við #20 – "Verslunarmannahelgarþátturinn"
2026/07/31
Menn eins og við #20 – Verslunarmannahelgarþátturinn
Þessi þáttur er helgaður Verslunarmannahelginni og sögum af fræknum ferðalögum, vafasömum ákvörðunum og furðuverkum sem verða helst til þegar fólk er komið í frí. Þar er meðal annars sagan af vininum sem vaknaði með tvær konur sér við hlið, mundi ekki neitt en hafði sem betur fer tekið mynd til öryggis, og rútubílstjóranum sem fór í Sálarbol og fékk óvænta gistingu. Baldur hringir í gerfigreindina og fær hana til að skipuleggja fyrir sig sólóferð til Danmerkur, Einar útskýrir af hverju Jón Gnarr er í raun og veru svona flughræddur.
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við.
Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Menn eins og við #19 "Baldur splæsir"
2026/07/24
Menn eins og við #19 "Baldur splæsir"
Í þessum þætti velta Baldur og Einar fyrir sér feimninni við að rukka vini sína og þessari eilífu spurningu um hver borgar hvað. AUR segir „splitta og rukka" og öpp eins og Splitwise, Tricount og Revolut eiga að hafa leyst vandamálið – en rannsóknir sýna að okkur finnst samt merkilega óþægilegt að rukka vini okkar. En gilda sömu lögmál þegar Baldur hoppar reglulega upp á stól, slær út höndunum og tilkynnir hátt og snjallt: „ÉG SPLÆSI!"? Hvenær á að rukka, hvað má upphæðin vera lítil og hvað þýðir eiginlega „ég tek þetta næst"?
Að venju fá hversdagsleg vandamál miðaldra karla óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og umræðan endar einhvers staðar allt annars staðar en lagt var upp með. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli… en er samt ótrúlega mikilvægt.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Menn eins og við #18 Á einhver startkappla?
2026/07/18
Hvernig kennir maður notkun startkapla í gegnum síma án þess að valda slysi? Baldur reynir það – með misjöfnum árangri. Sláturóbótinn reynir á þolinmæðina og Einar reynir á móti að kenna Baldri hvernig á að velja almennilegt kaffi.
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli. Góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar verða sjaldnast þær sem nokkur bjóst við.
Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare"
2026/07/10
Í nýjasta þætti Menn eins og við taka Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir mikilvægustu spurningar sumarsins. Hvenær verður brúnkan að hinu alræmda Mandarin Flare? Eiga miðaldra karlar að fara í hand- og fótsnyrtingu? Og hvernig gengur 54 ára karlmanni að hætta loksins að naga á sér neglurnar eftir áratuga baráttu? Eins og svo oft áður fara umræðurnar víða, með tilheyrandi vandræðagangi og sjálfsháði sem aðeins menn á miðjum aldri virðast kunna.
Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund
2026/06/30
Í þessum þætti fagna Einar og Baldur fyrsta gróðurhúsinu frá BK Hönnun í garði Baldurs – en ný garðslanga stelur senunni og kveikir líklega fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi. Þeir fara yfir Bergmál, umferðina yfir á Þingvelli, Skinny jeans-sjokkið þegar Just Björn mætti í þeim og af hverju Levi's 501 Loose Fit varð eina rétta svarið. Einnig ber á góma sextugsafmæli Stefáns Hilmarssonar, barnaafmæli að hætti Ásgeirs Kolbeinssonar og ýmislegt annað sem getur með engu móti bætt líf þitt – en gæti samt gert daginn aðeins skemmtilegri.
Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Samstarfsaðilar Menn eins og við
http://biobu.is
http://egc.is/
http://mammaveitbest.is
http://fylgifiskar.is
http://kjotburid.is
http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is
http://goa.is
www.ccep.is
Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum
2026/06/20
Í þætti #15 af Menn eins og við velta þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir sér öllum þeim spurningum sem miðaldra menn eru ekkert endilega stoltir af að spyrja upphátt.
Bergmál og KALEO á Þingvöllum eru framundan og þeir félagar reyna að komast að því hvað menn eins og þeir eigi eiginlega að vera í, hvort einhver fari enn í skinny jeans, hvað þessir margumtöluðu gullmiðar raunverulega þýða og hvort það sé yfirhöfuð hægt að treysta íslenskri veðurspá þegar stórir útitónleikar eru annars vegar.
Þá fara þeir einnig yfir frábæra tónleika Friðriks Dórs, ræða sumarið, tónleika, stemningu og þá staðreynd að það getur tekið furðu stuttan tíma að murka lífsviljann úr miðaldra mönnum í biðröðum eftir candyflossi, blöðrum og andlitsmálningu á 17. júní í Garðabæ.
Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Samstarfsaðilar Menn eins og við
http://biobu.is
http://egc.is/
http://mammaveitbest.is
http://fylgifiskar.is
http://kjotburid.is
http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is
http://goa.is
www.ccep.is
Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu
2026/06/12
Í nýjasta þætti af Menn eins og við fara þeir Baldur Rafn Gylfason og Einar Bárðarson um víðan völl eins og þeim einum er lagið.
Báðir misstu þeir af tónleikum Bubba um síðustu helgi og glíma enn við talsvert FOMO vegna þess. Á meðan situr Baldur fastur í framkvæmdum heima hjá sér þar sem garðverktakarnir hafa í raun tekið sumarið hans í gíslingu og hann er farinn að sýna öllum einkennum Stokkhólmsheilkennis gagnvart mönnum með gröfur og hellulagnir.
Einar kynnir svo hina margrómuðu F350 reglu um heimilisfjárfestingar eftir að hafa eytt heilu kvöldi í að rannsaka kælibox af slíkri ástríðu að hann sannfærðist næstum um að hann þyrfti eitt – áður en hann komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði nákvæmlega ekkert við það að gera.
Svo segir Baldur sanna sögu af manni sem mætti allsber á Range Rover í lúguna hjá Aktu Taktu á Sæbrautinni til að panta sér ís. Afgreiðslumaðurinn var ekki undirbúinn fyrir þá upplifun og sagan verður vart endursögð án þess að hlæja.
Sumarið, grasið, græjurnar, Bubbi, framkvæmdir, kælibox og allsberir menn í lúgum. Þetta er allt saman í nýjasta þætti af Menn eins og við.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Samstarfsaðilar Menn eins og við
http://biobu.is
http://egc.is/
http://mammaveitbest.is
http://fylgifiskar.is
http://kjotburid.is
http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is
http://goa.is
www.ccep.is
Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?"
2026/06/02
Sumarið er komið og með því gróðurhús, slátturóbótar, veðurvélar, hárígræðslur og endalaus verkefni sem miðaldra menn ætla sér að klára en gera ekki. Baldur og Einar fara um víðan völl í enn einum þættinum af Menn eins og við þar sem tækninýjungar, sumarplön og karlmennskan sjálf fá að fara í gegnum litgreiningu lífsins.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Samstarfsaðilar Menn eins og við
http://biobu.is
http://egc.is/
http://mammaveitbest.is
http://fylgifiskar.is
http://kjotburid.is
http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>
http://goa.is http://goa.is/>
www.ccep.is
Einmitt special #12 - Menn eins og við "Sumarkvíði, er það til?"
2026/05/16
Nú er það grillin sem taka mesta athyglina. Strákarnir sóttu sér ráð inni á pabbatips um hvernig sé best að þrífa gasgrillin fyrir sumarið. Þá kom hugtakið "sumarkvíði" upp í samtalinu og það var greint í döðlur.
Einnig fá klósett með heitri setu, lúxusrúm og sumar heima hjá sér hefðbundna litgreiningu.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Samstarfsaðilar Menn eins og við
http://biobu.is
http://egc.is/
http://mammaveitbest.is
http://fylgifiskar.is
http://kjotburid.is
http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>
http://goa.is http://goa.is/>
www.ccep.is http://www.ccep.is/>
Einmitt special #11 - Menn eins og við "Eiga karlar að pissa sitandi?"
2026/05/08
Baldur glímir við afleiðingar hásinarslits á meðan Einar hefur verið í spænskri endurhæfingu frá íslenskum raunveruleika. Í þættinum ræða þeir meðal annars salerni með skol- og þurrkkerfum, hvort karlmenn eigi að pissa sitjandi, gróðurhúsadrauma, tómatarækt og slátturóbóta.
Einnig fá Bjarni Benediktsson, Friðrik Dór og Auddi Blö sína hefðbundnu litgreiningu.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við
http://bkhonnun.is
http://hertzlangtimaleiga.is
http://kolski.is
http://bpro.is
Samstarfsaðilar Menn eins og við
http://biobu.is
http://egc.is/
http://mammaveitbest.is
http://fylgifiskar.is
http://kjotburid.is
http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>
http://goa.is http://goa.is/>
www.ccep.is http://www.ccep.is/>
Podcast reviews
Read Einmitt / Menn eins og við podcast reviews
Agust Hollywood 2021/04/05
A masterclass from an Icelandic Legend!
Mr. Barðarson is a living legend and this podcast is one the best in Europe.
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Einmitt / Menn eins og við relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.89077308
The Why Files: Operation Podcast
The Why Files: Operation Podcast

51088171
Middle Children
Jessie Jolles and Chris Burns

4.9264952000
Morning Wire
The Daily Wire

4.518765369
American Scandal
Audible

4.689281204
Get Sleepy: Sleep meditation and stories
Slumber Studios

4.79026375
Life is Short with Justin Long
Audible

4.714097347
Bad Friends
Bobby Lee & Andrew Santino

4.7125369
10 to Life
Annie Elise

4.76752461
Criminology
Emash Digital & Mike Ferguson, Mike Morford

4.87494971
The Dr. John Delony Show
Ramsey Network