1575380475
Heimsendir

Advertise on podcast: Heimsendir

Rating
★★★★★
5
from
3 reviews
This podcast has
153 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2021/07/06
Latest episode
2026/10/09
Average duration
55 min.
Release period
49 days

Description

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar. Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira. Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason. Artwork: Sherine Otomo

Unlock Heimsendir podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Heimsendir podcast


#156 Beyglaðir bílar og búðingur úr baunum - Ferðasaga til Alsír
2026/10/09
Sumarið 2026 fórum við fjölskyldan í pílagrímsferð til Alsír. Mikið ævintýri, skert þarmaflóra, ónýtir bílar sem keyra um á ljóshraða. Í þessum þætti segi ég ykkur frá ferðinni, uppákomum og vandræðum, sem og menningarsjokki og góðu skapi margra heimamanna. Njótið vel! Fleiri ferðasögur á leiðinni 3
#155 Gervigreindarspjall með Stefáni Atla (samstarfsþáttur)
2026/04/27
Í þessum samstarfsþætti með HEIMSENDA tekur Stefán Atli á móti gamla æskuvini sínum Stefáni Þór Þorgeirssyni — leikara, leiðsögumanni og hlaðvarpsstjóra Heimsenda. Leiðir þeirra lágu fyrst saman þegar þeir voru tíu ára gamlir og gerðu stuttmyndir undir merkjum M5 Studios í Flataskóla. Þeir ræða hvernig leiklistin og Japan mótuðu Stefán Þór, leikritið hans „Fyrirlestur um gervigreind“ sem sýnt var 13 sinnum, og hvað það felur í sér að vera bjartsýnn á framtíð gervigreindar. Umræðan er víðtæk og spennir allt frá bókum Harari og Kevins Kelly til sviðsmynda um heimsenda. Þá ræða þeir listir í markaðshagkerfi, sjálfkeyrandi Tesla-bíla og velta því fyrir sér hvort gervigreindin muni taka yfir bankakerfið árið 2030 — og hvort við myndum þá ekki bara fara í leikhús eins og venjulega.
#154 Tai Chi Walking og örplast í öllu
2026/04/10
Hver kannast ekki við að rekast á Tai Chi Walking auglýsingar á YouTube? En af hverju á maður að verða massaður á göngutúrum? Af hverju er örplast í gosdósum? Loks, hvernig lifum við til 130 ára aldurs? Njótið vel!
#153 Árið 2025 gert upp - Fjármál, heilsa og nýársheit
2026/02/17
Heldur seinn að gera upp síðasta ár en svona er lífið þegar maður er önnum kafinn, og það er kannski lúxusvandamál. Í þessum þætti skoða ég síðasta ár og nýársheitin sem ég strengdi, hvort þau stóðust, og hvernig þau höfðu áhrif á nýársheit þessa árs. Svo fer ég yfir nýlegar vangaveltur í fjármálum og heilsu, sem og alþjóðamálum. Njótið vel!
#152 Ferðasaga til Japan 2025
2025/09/19
Ég er mættur aftur til Japan! Við fjölskyldan erum á ferðalagi um land hinnar rísandi sólar enn á ný og í þessum þætti fer ég yfir það sem á vegi okkar verður. Kostir og gallar eða þakklæti og það sem betur má fara. Hvernig blasir Japan við mér eftir eins árs fjarveru? Við skulum komast að því!
#151 Er óhollt að hlusta á hlaðvörp?
2025/06/16
We back! Mættur til baka, af miklu að taka. Í þessum þætti ræði ég síðustu vikur í mínu lífi - framleiðslu á barnaþáttum, sjóveiki um borð í skipinu og hlaðvarpsföstu sem ég tók fyrr í maí. Við skoðum hversu mikil hlaðvarpsneysla telst eðlileg og hvenær maður á ekki að hlusta á hlaðvörp.
#150 Lífið á Íslandi - Japanskir raunveruleikaþættir
2025/04/08
Margt að ræða - Trump og tollamúrar, nýtt upphaf Evrópu, leikskólamál í Reykjavík, og auðvitað japanskir raunveruleikaþættir sem allir ættu að horfa á enda feel-good af bestu gerð. Þátturinn er í boði Bíó Paradís.
#149 Þórarinn Hjartarson
2025/04/01
Þórarinn Hjartarson er þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling og stjórnmálafræðingur. Í þættinum förum við um víðan völl og snertum meðal annars á upprisu Indlands, lýðfræðivandamálum Kína, persónulegum hindrunum, ágæti kapítalisma og framtíð Íslands.
#148 Frímann Gunnarsson
2025/03/19
Frímann er sjónvarpsmaður og stjórnmálafræðingur með próf frá London School of Politics. Hann hefur lengi prýtt skjái landsmanna en þættirnir hans hafa verið sýndir á Skjá Einum, Rúv og Stöð 2. Næstu helgi verður Frímann síðan á hvíta tjaldinu í Bíó Paradís. Í þessum þætti ræðum við námsárin, ljóðlistina, listaelítuna og hvort gott sé að blanda áfengi og svefntöflum. Þátturinn er í boði Bíó Paradís. Ef Egils Kristall er að hlusta má endilega bjóða mér spons enda drekk ég það eins og vatn.
#147 Lífið á Íslandi - Er að koma stríð?
2025/02/25
Kominn aftur miklu meiri kraftur! Í þessum þætti fjöllum við um síðustu vikur lífs míns á Íslandi ásamt umræðum um vinina Trump og Pútín, framtíð Evrópu og Úkraínu, AI auglýsingar, útivist og áfengislausan lífstíl. Þátturinn er í boði Bíó Paradís.
#146 Logi Pedro
2025/01/28
Logi Pedro er hönnuður og tónlistarmaður. Við ræðum hnignun stórvelda, jákvæða þjóðerniskennd, mikilvægi vinnu, hreinskilna stjórnmálamenn og margt fleira. Þátturinn er í boði Bíó Paradís.
#145 Fjármálaráðgjöf 2025 - Get Rich Quick! (OPINN ÞÁTTUR)
2025/01/21
Þetta er vissulega ekki fjármálaráðgjöf, en, þið vitið. Vangaveltur um Bitcoin, fasteignir, hlutabréf og fleira. Hvernig á að haga fjármálum og fjárfestingum árið 2025? Hvernig mun gervigreind hafa áhrif á vinnu? Hvað er fjárhagslegt frelsi. Þetta og fleira í þætti dagsins. Þátturinn er í boði Bíó Paradís.
#143 Árið 2024 gert upp! (OPINN ÞÁTTUR)
2024/12/30
Stærsta ár lífs míns? Kannski ekki, en svakalegt ár engu að síður. Fór á nyrsta odda Japans, dó næstum í jarðskjálfta í Taiwan, flutti með kött og barn til Íslands, hitti Jeff Daniels, landaði fiski og lúbarði hyski. Þetta var gott ár en 2025 verður betra. Hentu í follow á hlaðvarpsveitur og Insta fyrir allt það helsta úr smiðju Heimsendis!
#142 Erna Mist (OPINN ÞÁTTUR)
2024/12/11
Erna Mist er listmálari, pistlahöfundur og leikhúsvera. Við ræðum lífið og vinnuna, Ísland og London, morgunrútínur og málverkakaup til Kína. Auk þess tölum við um listina sem tekjulind og tækifæri til að framþróa samfélag. Þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.
#140 Eiður Westmann - Frambjóðandi til Alþingis (OPINN ÞÁTTUR)
2024/11/26
Útlendingamálin. Orkumálin. Vindmillur og plastagnir. Efnahagskrísa vestanhafs og ólga í Evrópu. Uppstokkun í sviðslistasjóði. Eiður Westmann, frambjóðandi úr Flokki Fólksins, mætir í Heimsendi til að ræða allt þetta og meira til í aðdraganda Alþingiskosninga 2024. Kæri hlustandi, þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis geturðu kíkt á patreon.com/heimsendir og upplifað dýrðina.

Podcast reviews

Read Heimsendir podcast reviews


5 out of 5
3 reviews
★★★★★
PéturB 2021/09/08
Heimsendir
Siemmtilegt og ferskt hlaðvarp sem vekur mann til umhugsunar.
check all reviews on apple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Heimsendir relevant audience podcasts


What do you want to promote?