1598339898
Trivíaleikarnir

Advertise on podcast: Trivíaleikarnir

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
This podcast has
67 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Daníel Óli
Explicit
No
Date created
2021/12/02
Latest episode
2026/10/11
Average duration
81 min.
Release period
29 days

Description

Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni. Fáðu fleiri þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir

Unlock Trivíaleikarnir podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Trivíaleikarnir podcast


58. Halloween-leikarnir (þemaþáttur)
2026/10/11
Fyrsti Halloween þátturinn í sögu Trivíaleikanna! Djöfullegur Daníel settist niður með liðunum tveimur og skaut hátt í 50 alblóðugum og hryllilegum hrekkjavökuspurningum á þau án afláts. Andsetinn Arnór og Jarðafarar-Jón mættu Myrkrahöfðingjanum Magnúsi og Martraðar-Marínu í stúdíói sem sett var upp í drungalegri pyntingardýflissu á ónefndum stað einhvers staðar á hálendi Íslands. Hlustaðu strax - hér er hrekkjavaka eða Halloween eins og þú hefur aldrei kynnst henni áður. Komdu þér fyrir, helltu þér upp á kaldann drykk og hlustaðu á fyrsta Halloween þáttinn okkar! Keppendur: Arnór Steinn, Magnús Hrafn, Jón Hlífar og Marín Eydal.
57. Ég kom, ég sá, ég Kröddaði
2026/09/06
Jæja sumarfríið er á enda og Trivíaleikarnir snúa aftur með hvelli! Við droppuðum líka 9 þáttum á Patreon í sumar - tékkaðu á því og þig mun aldrei skorta þátt. Að þessu sinni kíktu Kristján, Ingi, Öddi og Heiðdís María í stúdíóið í einn löðrandi sveittan þátt af smáþekkingu og fróðleik. Hvaða evrópska höfuðborg stendur hæst yfir sjávarmáli? Hvers konar drykkur er Chablis? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Einnig settum við upp auglýsingu fyrir umsóknum fyrir þá sem vilja vera með í þáttunum, þú finnur hlekk á umsóknarformið inni á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net. Keppendur: Heiðdís María, Ingi, Kristján og Haraldur Örn.
Refskák II (Patreon þáttur)
2026/07/27
Já það er smá sumarfrí í gangi hjá okkur í Trivíaleikunum og því enginn þáttur í júlí - en það er aldrei sumarfrí á Patreon og því bjóðum við hlustendum í staðinn upp á einn af nýju Patreon þáttunum okkar til að prófa. Arnór Steinn, Heiðdís María, Ingi og Marín Eydal kíktu öll í stúdíóið til Daníels og spreyttu sig á nýju Refskákinni en hún samanstendur af hraðaspurningum og þremur umferðum af "Einvíginu" - Það hljómar bara eins og ansi góður kokteill ef þú spyrð okkur!
56. Suðumark - hlustist til enda*
2026/06/22
Já það er komið að fimmtugasta og sjötta þátt Trivíaleikanna og aldrei verið mikilvægara að hlusta á allan þáttinn til enda en nú. Það sauð upp úr og ofan í stúdíóinu en að þessu sinni skellti Öddi sér í dómarasætið og Jón Hlífar, Daníel, Ingi og Heiðdís María öttu kappi. Hver er hinn gríski guð víns? Í hvaða mánuði forna tímatalsins er allra heilagra messa? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Daníel Óli, Jón Hlífar, Ingi & Heiðdís María.
55. Stefán Gyrðir og Glæsibærinn
2026/05/26
Já það er komið að fimmtugasta og fimmta þætti Trivíaleikanna - afsakið hve seint þessi þáttur kemur út, það hefur verið erfitt að ná tökum upp á síðkastið. Shoutout líka á nýja sponsorinn okkar Frisbígolfbúðinni - tékkið á þeim í Glæsibænum! Í þennan kyngimagnaða þátt mættu þau Arnór, Heiðdís, Ingi og Bjarni Halldór í sinn annan þátt. Hver er söluhæsta breiðskída Kendricks Lamar? Hvaða Studio Ghibli mynd varð innblásturinn að útliti Youtube rásarinnar Lofi Girl. Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Heiðdís María, Ingi og Bjarni Halldór.
54. Magnus Carlsen lausnin
2026/04/15
Fimmtugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, í stúdíóið mættu Daníel Óli, Kristján, Ingi og splunkunýr keppandi úr fortíðinni, Bjarni Halldór sem keppti við Daníel, Arnór og Inga eitt sinn í Gettu Betur en Arnór Steinn skellti sér einmitt í dómarasætið að þessu sinni og því um sannkallaða endurfundi að ræða. Í hvaða landi er að finna höfuðborgina Dhaka? Fyrir hvað stendur skammstöfunin BSÍ? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Daníel Óli, Kristján, Ingi & Bjarni Halldór.
53. Kröddi og cuckstólarnir
2026/03/08
Já það er komið að 53. þætti Trivíaleikanna en að þessu sinni kíktu þeir Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Öddi í sjóðblautt stúdíó hlaðvarpsins. Hvaða tveimur löndum í Suður-Ameríku á Brasilía ekki landamæri að? Hvað hefur hver spilari mörg spil á hendi þegar spilaður er skítakall með hefðbundnum spilastokki? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Öddi, Ingi og Jón Hlífar.
10P. Rottan í horninu (Patreon þáttur)
2026/02/19
Vegna gríðarlegra anna spurningahöfundar að þá hefur þáttur mánaðarins tafist um nokkra daga - við vildum þó brúa aðeins bilið fyrir ykkur kæru hlustendur og leyfum ykkur því að heyra einn gamlan Patreon þátt frá því í haust í millitíðinni. Njótið vel kæru hlustendur og endilega kíkið á Patreon hjá okkur, þar getið þið fengið tugi þátta fyrir litla 8$.
52. 2000's-leikarnir (þemaþáttur)
2026/01/14
Fimmtugasti og annar þáttur Trivíaleikanna og þið vitið hvað það þýðir, þemaþáttur! Að þessu sinni varð fyrsti áratugur 21. aldarinnar fyrir valinu eða 2000's þema. Tvö kunnugleg lið, Arnór Steinn og Marín Eydal kepptu við Jóni Hlífari og Kristjáni í svakalegum 2000's slag þar sem Britney Spears, MP3 spilarar og DVD diskar komu víða við sögu. Hver var Region kóði Evrópu á DVD diskum? Hvaða goðsagnakennda lag Backstreet Boys var fyrsta lagið sem niðurhalað var af Napster? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Kristján og Jón Hlífar.
51. Formalínið hans Gísla Marteins
2025/12/14
Já það er komið að nýjum þætti. Að þessu sinni skellti Arnór Steinn sér í dómarasætið og okkar eigin Ingi & Haraldur Örn tóku á móti glænýjum keppendum Þorra Líndal & Andreu í svakalegum þætti. Úr hvaða ávöxt eru sveskjur myndaðar? Hvaða knattspyrnulið hét upprunalega Newton Heath? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Ingi, Haraldur Örn, Þorri Líndal og Andrea.
Jóladagatalið 2025 (tilkynning)
2025/11/25
VIÐ ERUM AÐ GEFA ÚT JÓLADAGATAL Í ÁR! Dagatalið inniheldur sjö þætti af Trivíaleikunum sem byrja að droppa 1. desember nk. og svo droppar nýr þáttur áfram á 3-4 daga fresti alveg fram að Jólum þegar lengri úrslitaþáttur droppar á aðfangadagsmorgun! Um er að ræða fyrstu útsláttarkeppni í sögu Trivíaleikanna, átta lið tóku þátt með sextán keppendum, í hverri umferð detta út tapliðin og sigurliðin halda áfram þar til einungis tvö lið standa eftir og mætast í úrslitaþættinum á aðfangadag. Ekki missa af besta dagatalinu Jólin 2025 - farðu inn á Patreon vef okkar til að finna dagatalið (það þarf EKKI að vera í áskrift til að kaupa það). Þar undir Collections ættiru að sjá það, þegar þú hefur keypt dagatalið hefuru aðgang að því hvenær sem er og getur hlustað á þættina þegar þeir byrja að droppa á netið frá og með 1. desember þegar fyrsta umferð átta liða úrslitanna hefjast! Dagatalið finnuru hér: Jóladagatalið 2025. Liðin eru eftirfarandi: Marín Eydal & Arnór Steinn Hnikarr Bjarmi & Alvin Smári Stefán Geir & Öddi Valdi & Tinna Kristján & Jón Hlífar Alvin Máni & Tommi Heiðdís María & Ingi Magnús Hrafn & Arnar Tómas Þættirnir droppa svona: 1. Umferð átta liða úrslit droppa þann 1. desember 2. Umferð átta liða úrslit droppa þann 5. desember 3. Umferð átta liða úrslit droppa þann 9. desember 4. Umferð átta liða úrslit droppa þann 13. desember Fyrri undanúrslit droppa þann 17. desember Seinni undanúrslit droppa þann 21. desember Úrslitin sjálf droppa svo þann 24. desember
50. Live á Arena (50th episode special)
2025/11/01
Við fögnum 50 þáttum af Trivíaleikunum með fyrsta live þættinum okkar, sem tekinn var upp á Arena í Kópavogi þann 17. okt 2025 fyrir framan fullan sal. Við erum ennþá agndofa yfir móttökunum sem við fengum - takk allir sem mættu og allir sem hlusta og gera okkur kleift að halda þessari veislu gangandi. Liðin tvö voru mynduð af tveimur af íkonískustu liðum Trivíaleikanna frá upphafi: Marínu og Arnóri ásamt Jóni og Kristjáni. Daníel skellti sér í dómarasætið og spurði liðin spjörunum úr en útkoman varð einn lengsti og skemmtilegasti þáttur í sögu hlaðvarpsins! Hver er fjölmennasta borg heimsálfunnar Afríku? Fyrir hvað stendur skammstöfunin WiFi? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Í gegnum þáttinn er einnig að finna Pub Quiz sem við vorum með fyrir salinn en þú kæri hlustandi getur tekið þátt í því heima fyrir sömuleiðis með litlu meira en hvítu blaði og penna. Myndaspurningarnar sem komu má finna með því að leita að "þáttur 50" á heimasíðu okkar trivialeikarnir.net. Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Jón Hlífar og Kristján.
49. Við rændum Pittinum
2025/10/22
Já þið lásuð rétt kæru hlustendur, við fengum stórmeistarana Braga Þórðarson og Kristján Einar Kristjánsson úr Pitturinn Podcast til að kíkja við í stúdíóið með tilheyrandi gleðskap og formúlufróðleik. Kristján Einar og Kristján úr Trivíaleikunum mynduðu lið og Bragi ásamt okkar allra besta Inga gáfu þeim góða samkeppni. Hvað heitir sidekick Radioactive Man í sjónvarpsþáttunum The Simpsons, hvað eru Bee Gees bræður margir? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Leiðrétting: Spurningin í Náttúra og Vísindi um laxa hefði átt að vera ógild - þannig að 5 stigin fyrir spurninguna um laxveiði áttu ekki að fara til Braga og Inga - blessunarlega hafði þessi spurning ekki áhrif á úrslit þáttarins. Keppendur: Kristján, Ingi, Kristján Einar og Bragi Þórðarson.
Fimmtugasti þáttur live á Arena! (tilkynning)
2025/10/14
Já þú last rétt við tökum upp 50. þátt Trivíaleikanna live á Arena í Kópavogi þann 17. október klukkan 20:00 ekki láta þig vanta á þennan stórviðburð!
48. Eitt þúsund ár af skírlífi
2025/09/06
Já það er komið að fertugasta og áttunda þætti Trivíaleikanna. Í sjóðblautt stúdíóið mættu Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi. Hart var barist og mikið svitnað, ekki missa af þessari veislu! Hvort var það Benito Mussolini eða Voldemort sem sagði "Mikilleiki vekur öfund, öfund elur illsku, illska elur lygar"? Hvað hétu ræningjarnir þrír í leikverkinu um Kardemommubæinn? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi.

Podcast reviews

Read Trivíaleikarnir podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Trivíaleikarnir relevant audience podcasts


What do you want to promote?