1672637634
Svörtu tungurnar

Advertise on podcast: Svörtu tungurnar

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
This podcast has
137 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2023/02/17
Latest episode
2026/09/23
Average duration
55 min.
Release period
18 days

Description

Spilahópurinn Svörtu tungurnar talar um spunaspil. Þátturinn er tekinn upp í hvert skipti áður en við setjumst við spil í Svörtuloftum.

Unlock Svörtu tungurnar podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Svörtu tungurnar podcast


#0116 - Kapitalismi og Crack Cocaine (Týndi þátturinn)
2026/09/23
Þátturinn er í boði Malbygg Eitt sinn í dimmu hlapvarpsherbergi tóku 4 tungur upp þátt. Stuttu seinna þegar búið var að ganga frá þættinum hvarf hann og enginn vissi hvað hefði orðið af honum. En svo kom í ljós að slæm nafnagift þáttarins gerði það að verkum að hann sogaðist inn í Aðra vídd. Nýji klippi drýsillinn sem er vanur Víddaflakkari fann hann svo, einmana með enga von í brjósti. Og hér er hann mættur. Er Kapitalisminn að gera útaf við okkur? Ratar siðrofið inn í spilaheim spilaranna? hvernig kveðjum við stóra söguboga? Er bókinni lokað eða fá leikmenn lokakafla sem einhversskonar kveðjustund? PS. Höskuldarviðvörun. Auglýst pláss í Svörtuloftum er því miður ekki í boði lengur. Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar   Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/    – Mættir eru: Bjarni, Hannes, Lúlli og Tryggvi     – Tónlist: Simulacrum  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
#0115 Nútíminn og Núvitund
2026/09/15
Þátturinn er í boði Malbygg   Við erum komnir til baka úr sumarfríi! Eigum við að vera með samviskubit yfir að vilja frekar spila en að vera með fjölskyldum okkar? Er nútíminn verri en fortíðinn? hvað í andskotanum eru Vitkarnir (öll kyn leyfð) að spá með að draga World of warcraft og Star Wars uppá borð? Verður Dark Sun okkar dnd Opus?    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar   Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/    – Mættir eru: Bjarni, Hannes, Hlynur og Lúlli     – Tónlist: Simulacrum  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
#0114 Sumarspil eða gervigreind
2026/07/14
Þátturinn er í boði Malbygg   Hvað gera spunaspilarar á sumrin? Er sami fílingur að kíkja í grámygluna í Baroviu á sumrin og á veturnar? Getur gervigreindin bætt spunaspila upplifun eða auðveldlega drepið eitthvað í okkur sem við notum til að skapa sögur og spennu? Svörtu tungurnar fara yfir víðan völl í síðasta þætti fyrir sumarfrí!   Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar   Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/    – Mættir eru: Hilmir, Tryggvi og Lúlli    – Tónlist: Simulacrum  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
#0113 - Einhleypa í Borgó
2026/06/09
#0113 Þátturinn er í boði Malbygg.   Hvernig er hið fullkomna DnD ævintýri fyrir byrjendur? Bjössi og Tryggvi hafa nokkra daga til að búa það til með dyggri aðstoð Svörtu tungnanna og prufa það svo á nokkrum byrjendum í starfsmannahópi Borgarleikhússins. Hvað gæti farið úrskeiðis?   Mættir voru Tryggvi Hlynur Hannes Bjössi    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
#0112 Tveir úr Tungunum: Töfraveröld ímyndunaraflsins
2026/05/26
Þátturinn er í boði Malbygg   Ókei ókei ókei. Eftir harðorð bréf og andstyggilegar athugasemdir höfum við ákveðið að breyta titli þessa innslags yfir í "Tveir úr Tungunum". Þar setjast tvær tungur niður og ræða málin í þaula, almennilegt nörda trúnó. Að þessu sinni eru það Snæbjörn og Hjörtur sem eru mættir. Til stendur að spila hið æsispennandi spunaspil Draw Steel frá MCDM Productions. Bibbi fer yfir helstu þætti spilsins og þeir pæla í hvernig gera megi langdregna bardaga skemmtilegri, sem er nauðsynlegt þegar þú ert með spilahóp fullan af snarofvirkum athyglissjúkum spunadrottningum með athyglisbrest. Þeir fara yfir óheft ímyndunarafl barnsheilans og hvað við gerum til að reyna að endurheimta þá tilfinningu. Hvenær hætti maður að vera heillaður yfir smáatriðum á einhverju korti? Hvers vegna flækjum við hlutina með sögufléttum og flókinni heimssköpun þegar hægt er að spinna hvað sem er á staðnum og það er alveg jafn gaman? Hvernig nær maður að plata sig í að halda að eitthvað sem gerist á spilakvöldi sé gríðarlega mikilvægt þegar allir vita að þetta er auðvitað alltsaman tilbúningur frá rótum? Og hvað er í þessu andskotans bréfi sem Bjössi lét okkur fá í spili um daginn? Megum við opna það? Eigum við að opna það? Eða mun það bara þýða að spilið er búið og allir verða sendir heim...    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar   Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/    – Mættir eru: Hjörtur og Snæbjörn    – Tónlist: Flight  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
#0111 Brú milli guðdómsins og veruleikans
2026/05/19
Þátturinn er í boði Malbygg   Athugið að þátturinn inniheldur spilliefni um kvikmyndina Project Hail Mary.   Hvað er list? Er listamanneskjan bara tilgerðarlegur aumingji sem á að fá sér alvöru vinnu? Eða það bara enn ein afleiðing brothættrar karlmennsku að geta ekki bara notið listar og sköpunar án þess að þurfa að smætta það? Og hvað í andskotanum hefur þetta með spunaspil að gera? Snæbjörn kafar á dýpið í sínu andlega ferðalagi um sína eigin innri rödd og raddbeitingu í spunaspilum, Hannes bjargar móður sinni, Óli veltir upp áleitnum spurningum um skoplist og eftirhermur, og Hjörtur rýnir í kvikmyndina Project Hail Mary á sinn hárbeitta og nákvæma hátt.    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar   Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/    – Mættir eru: Hannes, Hjörtur, Snæbjörn og Óli    – Tónlist: Dimension Door  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
#0110 Beggi Brugg
2026/05/12
#0110   Þátturinn er í boði Malbygg.   Í þættinum í kvöld fáum við Begga vin okkar í heimsókn. Við ræðum um heima og geima, gervigreindar dómstóll, óvenjugóðir galdrar og galdramunir ofl ofl.   Hlustið og þér munið heyra!     Mættir voru   Lúlli Beggi Bjarni Hilmir    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
#0109 Fúría, framtíð vitkanna og Daði halldórsson
2026/04/28
#0109   Þátturinn er í boði Malbygg.   Í þessum þætti ræðum við leikarasögu lúlla, módelið sem wizards of the coast eru að fara bjóða uppá? Er þetta að fara verða live service tölvuleikur? Er ekki nóg að eiga bara bækurnar.   Spjallið færist svo yfir í frænda Tryggva. Hlustið og þér munið heyra!     Mættir voru   Lúlli Hannes Tryggvi    Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
#0108 Hópfjármögnun og ægivald valkostanna
2026/04/21
Þátturinn er í boði Malbygg   Er þetta of mikið? Of stórir tölvuleikir? Of mikið af efni á streymisveitum? Of margir valkostir? Verðum við að geta spilað leik og horft og þátt og verið í símanum á sama tíma? Er þetta ný tegund miðlunar í dag? Hannes Óli segir okkur frá "second-screen theory", við syrgjum þá tölvuleiki sem við höfum ekki náð að klára og köfum ofaní allt dótið sem við höfum keypt gegnum hópfjármögnun á borð við Kickstarter. Tossaspilararnir eru mættir á ný fyrir framan hljóðneman og ræða málin af dýpt og næmni, eins og vanalega. Og hver veit nema það komi jafnvel óvæntir gestir eða tveir...    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar   Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/    – Mættir eru: Hannes, Hjörtur og Snæbjörn    – Tónlist: Confusion  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
#0107 Hart og mjúkt
2026/04/14
#0107   Þátturinn er í boði Malbygg.   Við byrjum þáttinn á útsláttarkeppni en tökum svo upp sama þema og í síðustu viku. Hver og einn kemur með umræðuefni og svo bara spjall og gaman.    Mættir voru   Lúlli Hilmir Bjarni Hlynur     Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
#0106 Þroskað malbygg, ríða og deyja fyrir þema
2026/03/31
#0106   Þátturinn er í boði Malbygg.   í þættinum í dag ætlum við að prófa nýtt þema, hver og einn kemur með eitt umræðuefni og við spjöllum um það og við erum ekki frá því að þetta hafi bara heppnast svona líka vel!   Mættir voru   Hilmir Bjarni Lúlli     Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
#0105 Tjékkinn
2026/03/18
#0105   Þátturinn er í boði  Malbygg.   Jæja kæru vinir, afsakið þessa óvæntu pásu, en við erum komnir tvíefldir til baka! Í þessum fyrsta þætti eftir hlé ræðum við um þá yndislegu hefð sem hefur myndast hjá okkur í Silfurskottunum að tjékka okkur inn fyrir spil. Við mælum með, hefur góð áhrif á geðheilsu og vinskap. Njótið vel.   Mættir voru   Hilmir Tryggvi  Bjarni Hlynur     Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
#2.4 Fallistarnir - Bjór og rækjur
2026/02/03
Malbygg, Malbygg! Konungsríki mitt fyrir Malbygg.    Við höldum ævintýrinu áfram, ásamt því að finna Shakespeare tengd slagorð fyrir Malbygg. Nú eru tossarnir okkar hinsvegar týndir. En samt ekki svo illilega að þeir hafi ekki tíma fyrir bjór og rækjur. Og hver veit nema þeir hendi í eina sósíalíska spunatónleika á Kristals svölunum.    Mættir eru: Tryggvi, Hilmir Bjarni, Hannes og Lúlli. Tónlist: Crown of Madness Flytjandi: Scorching Ray Taylor   Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar   Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
#0104 Tvær Tungur: Og skammastu þín svo!
2026/01/29
Þátturinn er í boði Malbygg   Og við höldum áfram með seríuna okkar sem við höfum ákveðið að nefna „Tvær Tungur“ héðanaf, þar sem Bjössi og Hjörtur ræða lífsins lystisemdir og mannskepnunnar misbresti, á misgáfulegan hátt. Stundum tengt spunaspilum… Þeim tókst að taka upp þátt um daginn og stroka hann svo gjörsamlega út og því var tilvalið að ræða um skömmina í þessum þætti. Hver er munurinn á heilbrigðri og óheilbrigðri skömm? Hvað gerir maður til að rífa sig aftur upp eftir að hafa gert einhver skammarstrik? Og er ekki bara nauðsynlegt að kunna að skammast sín? Þeim tekst þó líka að ræða áframhaldandi framþróun tölvuleiksins „Skoplegur blær“ sem þeir vinna hörðum höndum að og kom fram í síðasta innslagi þeirra, þeir ræða skipulagða erótík ráðsetta fullorðna fólksins, meðvirkni, og gríðarlega flókið víddar- og tímaflakk síðasta ævintýris sem Svörtu Tungunum tókst loksins að klára um daginn, fjórum árum eftir að spilið hófst.    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar   Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/    – Mættir eru: Bjössi og Hjörtur    – Tónlist: Borrowed Knowledge  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
#2.3 Fallistarnir - Dullarfullir atburðir
2026/01/22
Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað.   Þá er komið að þriðja þætti af Fallistunum, heimabrugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Nú koma allir spilarar saman og sameina krafta sína og reyna að komast að því hvað er eiginlega að gerast innan veggja Taskíu.   Þátturinn er í boði Malbygg.   Mættir eru: Tryggvi, Hilmir, Lúlli, Bjarni og Hannes Tónlist: Gust of Wind Flytjandi: Scorching Ray Taylor   Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar   Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/

Podcast reviews

Read Svörtu tungurnar podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Svörtu tungurnar relevant audience podcasts


What do you want to promote?