1674708253
Hlaðvarp Myntkaupa

Advertise on podcast: Hlaðvarp Myntkaupa

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
This podcast has
130 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Myntkaup
Explicit
No
Date created
2023/02/28
Latest episode
2026/10/24
Average duration
58 min.
Release period
8 days

Description

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

Unlock Hlaðvarp Myntkaupa podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Hlaðvarp Myntkaupa podcast


Markaðir fá skell - Bitcoin berst við að halda 80k
2026/10/24
Í þessum þætti er fjallað um það helsta sem gerðist í vikunni á mörkuðum. Meira og minna allir markaðir lækkuðu töluvert, einkum hlutabréfamarkaðir um allan heim. Bitcoin hefur sýnt þrautseigju og ljóst er að talsverður stuðningur er við 80k verðmiðann. Hvort hann haldi verður að fá að koma í ljós, en mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í lok vikunnar setti strik í reikninginn. Þá er farið yfir helstu fréttir, þar með talið bálkakeðjuverkefni JP Morgan og HSBC.
Áhyggjur af gervigreindinni hjaðna - Útflæði heldur áfram úr kauphallarsjóðum
2026/10/17
Í þessum þætti er farið yfir hreyfingar markaðarins. Bitcoin fór undir 80k í stutta stund en náði sér aftur yfir 80k. Verðbólga heldur áfram að aukast í Bandaríkjunum. Útflæði heldur sömuleiðis áfram úr kauphallarsjóðunum, einkum ETH. Nýjar raddir heyrast í umræðunni um gervigreind og benda á að ekki sé tilefni til óðagots. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Bitcoin slær aðeins til baka - Gætu framfarir gervigreindar falið í sér ógn við crypto?
2026/10/11
Í þessum þætti er farið yfir það helsta sem gerðist síðustu viku. Vikan einkenndist af talsverðum lækkunum og eftir mikið innflæði í ágúst og september hjá kauphallarsjóðunum hefur verið töluvert útflæði úr þeim í október. Aðalfrétt vikunnar er þó án efa sú að OpenAi birti upplýsingar um að óútgefin gervigreind á vegum þeirra hefur náð áður óhugsandi árangri við að leysa stærðfræðivandamál sem mönnum hefur ekki tekist að leysa. Í kjölfarið hafa vaknað áhyggjur um hvort gervigreind gæti leyst þá dulritun sem verndar cryptoveski. Rætt er talsvert um þetta og margt fleira í þessum þætti.
Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða
2026/10/03
Árið einkenndist framan af af útflæði rafmyntakauphallarsjóðanna. Eftir látlaust innflæði undanfarið upp á fleiri milljarða dollara eru þeir nú komnir í nettó innflæði. Að öðru leyti var fremur tíðindalítið á rafmyntamörkuðum. Táknvæðing verðbréfa heldur áfram af fullum þunga. Einnig var farið yfir nokkrar makró efnahagstölur og margt fleira.
Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi
2026/09/26
Mánudagurinn sá mesta innflæði á einum degi í rafmyntakauphallarsjóðina síðan október 2025. Tæplega milljarður dollara flæddi inn í BTC kauphallarsjóðina og um 270 milljónir dollara í ETH sjóðina. Í kjölfarið náði BTC yfir 87k og ETH yfir 2700$. Táknvæðing heldur áfram að gegna aðalhlutverki í umræðunni og nýjar fréttir um samstarf stórra aðila vekja athygli. Þá valdi Björn einnig skemmtilega bók í hinu mánaðarlega bókahorni. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"
2026/09/19
Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum. Frumvarpið þurfti 60 atkvæði en fékk aðeins 49. Í vikunni hækkuðu stýrivextir í USA einnig um 25 punkta og eru nú 3,75-4%. Einnig frestuðust samningaviðræður í Óman vegna Hormússundsins, en markaðurinn hafði bundið vonir við að lausn væri í sjónmáli. Hins vegar tilkynnti SEC afgerandi undanþágur til fimm ára fyrir crypto iðnaðinn vegna táknvæddra verðbréfa og ekki er annað að sjá en að markaðurinn hafi litið það svo jákvæðum augum að allt sem á undan var nefnt hafi verið léttvægt fundið af fjárfestum.
Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?
2026/09/12
Síðustu verðbólgutölur í Bandaríkjunum voru birtar föstudaginn, 11. september síðastliðinn. Þær voru nokkurn veginn í samræmi við væntingar, en þó ögn verri má segja. Rökrétt hefði því verið að ætla að markaðir myndu lækka örlítið en þvert á móti þá urðu talsverðar hækkanir á sama tíma. Skýrist það af því að samhliða birtingu á verðbólgutölum bárust fréttir um að fundað yrði í Óman um mögulegt samkomulag gagnvart Hormússundi. Ekkert er þó í hendi enn. Þá var fjallað um hinar ýmsu fréttir vikunnar, þar á meðal 100 milljón dollara fjárfestingu Nasdaq í Kraken, nýjustu jarmmynt Hunter Biden, Laptop, og margt fleira.
Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k
2026/09/05
Í gær bárust tölur frá Bandaríkjunum sem sýndu fram á að störfum þar í landi hefði fjölgað umtalsvert meira en spár gerðu ráð fyrir. Fyrir vikið hafa líkur á hækkun stýrivaxta aukist töluvert og rafmyntamarkaðurinn seig nokkuð niður eftir gott gengi vikunnar. Innflæði í kauphallarsjóði helstu rafmynta var mjög sterkt í vikunni og svo virðist sem sífellt fleiri bankar og hefðbundin fjármálafyrirtæki séu í auknum mæli að vinna að stórum verkefnum á sviði bálkakeðjutækninnar.
Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst
2026/08/29
Í vikunni sem var að líða var minna um fréttir, en rafmyntamarkaðurinn hélt áfram góðri siglingu. Solana náði rétt tæpum 110$, ETH fór yfir 2500$ og BTC hefur sveiflast yfir og undir 80.000$. Þá hefur innflæði í rafmyntakauphallarsjóði verið með því mesta á árinu hingað til. Kevin Warsh, seðlabankastjóri USA, flutti árlega ræðu sína í Jackson Hole á sama tíma og hlaðvarpið var tekið upp og verður efni hennar gert skil í næsta þætti.
Nautin vakna til lífsins - BTC hótar 80k
2026/08/22
Í þessum þætti er rætt um atburðarás vikunnar sem leiddi til gífurlegra hækkana á öllum helstu rafmyntum. BTC fór næstum í 80.000$, en ETH fór í stutta stund yfir 2.500$ og Solana snerti 100$. Margir samverkandi þættir búa að baki, en allt byrjaði á því að fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti um aukin endurkaup á eigin ríkisskuldabréfum. Þá var einnig mikið innflæði í kauphallarsjóði, Trump var stóryrtur á blaðamannafundi um crypto, ásamt öðru.
Verðbólga í USA sýnir merki um hjöðnun - Mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í vikunni
2026/08/15
Í þessum þætti er farið yfir nýjustu verðbólgutölur í USA, hvernig þær stóðust væntingar og hvaða áhrif þær virðast hafa á markaðinn. Þá er farið yfir uppfærða stöðu Clarity frumvarpsins, en það verður að teljast á brattann að sækja að ætla að ná að gera það að lögum á þessu ári. Þá er einnig fjallað talsvert um öryggismál og samspil þeirra við gervigreind. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Clarity frumvarpið verður líklega ekki að lögum í ár
2026/08/08
Innflæði hefur einkennt síðustu daga hjá kauphallarsjóðunum. Þeir félagar taka aftur fyrir Coldcard hakkið og gera því betur skil. Sömuleiðis er rætt um stöðu Clarity frumvarpsins hjá öldungardeildinni en allt lítur út fyrir að það verði ekki að lögum í ár. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vitnaði í Satoshi þegar hann tjáði sig um mikilvægi þess að Bandaríkin myndu taka af skarið og leiða crypto markaðinn. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Hræðsla brýst út vegna öryggisbrests hjá Coldcard
2026/08/01
Í vikunni bárust fréttir af því að um 38m USD virði af BTC hefði verið stolið af köldu veskjunum Coldcard vegna öryggisbrests hjá framleiðandanum. Mikil hræðsla brast út í kjölfarið og í kjölfarið vaknar spurningin: Hvernig geymir maður rafmyntir sínar með öruggum hætti? Í öðrum fréttum má nefna að Seðlabankinn í Bandaríkjunum ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum þar í landi í 3,5-3,75%. Þá hafa áhyggjur aukist af svokölluðum DAT fyrirtækjum, sem ganga út á það að kaupa BTC og hafa á efnahagsreikningi sínum, en fjölmörg þeirra hafa neyðst til að selja BTC til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Magnús Karl ræðir Nassim Taleb og ritverk hans
2026/07/25
Í þessum þætti mætir Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðingur, í annað sinn í stúdíóið. Viðfangsefni þáttarins er fjárfestirinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb, sem hefur gefið út fjölda ritverka sem miða að því að efla lesendur í ákvarðanatökum á mörkuðum. Taleb skrifaði formálann í The Bitcoin Standard en svo virðist sem undanfarin ár hafi hann misst trú á Bitcoin. Fjallað er um fjórar af hans helstu bókum og þær settar í samhengi við rafmyntamarkaðinn.
Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin
2026/07/18
Vikan hófst á mjög góðum verðbólgutölum í USA og markaðir tóku við sér. Segja má að það sem hafi fylgt á eftir hafi þó dempað viðbrögðin talsvert, en Kevin Warsh, seðlabankastjóri í USA, sagði að of snemmt væri að tala um fullnægjandi grundvöll fyrir vaxtalækkanir. Þá hefur versnandi ástand í átökum Bandaríkjanna og Írans leitt til áhyggna af því að olíuverð hækki á ný sem gæti hleypt verðbólgunni aftur upp. Áfram heldur jákvæð þróun við að færa raunheimaeignir á bálkakeðjur. Citadel Securities fjárfestir í einu stærsta cryptofyrirtæki heims. Þetta og margt fleira í þessum þætti.

Podcast reviews

Read Hlaðvarp Myntkaupa podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Hlaðvarp Myntkaupa relevant audience podcasts


What do you want to promote?