Með lífið í lúkunum

Advertise on podcast: Með lífið í lúkunum

Rating
5
from
6 reviews
This podcast has
148 episodes
Language
Publisher
Explicit
No
Date created
2023/07/29
Latest episode
2026/02/07
Average duration
45 min.
Release period
6 days

Description

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

Unlock Með lífið í lúkunum podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Með lífið í lúkunum podcast


Óútskýrðir langvinnir verkir. (Verndarkerfi líkamans, næming, öryggi, ótti og aðlögunarhæfni taugakerfisins.) Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur
2026/02/07
Í þættinum ræðir Erla við samrýmdu systurnar Thelmu Rut og Heru Rut um óútskýrða langvinna verki. Þær eru báðar sjúkraþjálfarar í fæðingarorlofi og eru saman með námskeiðið Náðu stjórn á verkjum auk þess að vera með ókeypis fræðslu á Hreyfilausnir bæði á Instagram og Facebook. Í þættinum ræða þær um skilgreiningu óútskýrðra langvinnra verkja og hvað er til ráða þegar þeir eru til staðar. Það sem er afar áhugavert er að slíkir verkir eru sjaldan beintengdir skaða heldur mótast af taugakerfinu, ónæmiskerfinu, tilfinningum okkar, hugsunum, fyrri reynslu og aðstæðum í lífinu. Þá getur svefn, næring, hreyfing, félagsleg tengsl okkar og andleg líðan haft mikil áhrif á framgang verkja.  ATH. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum í þættinum! Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana? 🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
Blóðsykurstjórnun. Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 40)
2026/01/30
Í þessum þriðja Heilsumola frá Betu Reynis er fjallað um Blóðsykustjórnun, en með því er átt við að nota mataræðið til að stjórna blóðsykrinum. Þær stöllur ræða um skammtastærðir, sterkju, tímasetningu máltíða, kynjamun, að taka ábyrgð á eigin mataræði og eigin heilsu með því að hlusta á líkamann og margt fleira.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
Hvað er Nikkel óþol? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 38)
2026/01/30
Í þessum fyrsta Heilsumola af þremur ræðir Erla við Elísabetu Reynisdóttir næringarfræðing og næringarþerapista um Nikkel óþol.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Magasýrur, hvers vegna skipta þær miklu máli? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 39)
2026/01/30
Í þessum öðrum Heilsumola af þremur ræðir Erla við Betu Reynis um magasýrur, einkenni um lágar magasýrur og einkenni ef magasýrur eru háar, hvernig við eigum að bregðast við og hvað við getum gert með mataræði til þess að hafa góð áhrif.   Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
Frábær febrúar, 28 daga heilsuáskorun HeilsuErlu. (Heilsumoli 37)
2026/01/29
Hefur þig lengi langað til þess að gera einhverjar breytingar á heilsuhegðun þinni en það gerist einfaldlega bara ekki eða þú kemur þér ekki í að fara af stað?  Stundum þurfum við einfaldlega smá spark í rassinn til þess að komast af stað og þá verður allt auðveldara í kjölfarið. Ein af uppáhalds tilvitnunum mínum er ACTION OFTEN COMES BEFORE MOTIVATION en þýðir að stundum þurfum við einfaldlega að bara byrja, taka ábyrgð og gera eitthvað í málunum og síðan kemur hvatningin. Ekki bíða eftir að hvatningin hellist yfir þig því mögulega gerist það aldrei. Í febrúar ætla ég að bjóða þér í 28 daga Heilsuáskorun. Þú setur þér EITT stórt markmið sem þú ætlar að gera daglega allan febrúar mánuð. Þetta getur verið að taka út slæman ávana sem er ekki að gagnast þér lengur og hefur neikvæð áhrif á heilsuna eða að bæta inn nýrri góðri venju. Hugmyndir eru t.d. að bæta inn daglegri hreyfingu, bæta inn grænmeti í öll mál, sleppa áfengi, sleppa viðbættum sykri, skrifa í þakklætisdagbók, taka D vítamín, nota tannþráð, sofa í 8 klst og svo framvegis.  Hvernig virkar áskorunin? Þú sækir blaðið FRÁBÆR FEBRÚAR og prentar það út (Efstu tvö blöðin eru eins nema annað er með fallegri bakgrunn, þriðja blaðið er svo dæmi um hvernig fylla skal út). Þú velur þér svo eitthvað EITT sem þig hefur lengi langað til að gera og mun hafa jákvæð áhrif á heilsuna þína.Þú merkir svo inn daglega (gerir X við hvern dag mánaðarins). Þar að auki getur þú sett inn allt að 8 aðrar venjur sem þig langar að gera sem allra oftast í febrúar og hakað við þær þá daga sem þú gerir þær.Eftir 28 daga verður þetta stóra markmiðið eða heilsuvenja vonandi orðinn mikilvægur hluti af þínu lífi og þú tekur þá ákvörðun um það hvort að þú haldir henni áfram eða ekki.Sama hvernig gengur, ekki gefast upp! Þó það komi einn og einn erfiður dagur, hoppaðu bara strax aftur á heilsuvagninn þinn og haltu áfram. Það væri gaman að heyra hvernig gengur. Sendu mér skilaboð á Instagram eða ef þú deilir einhverju í story þá má endilega tagga @heilsuerlaGÓÐA SKEMMTUN!  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
106. Að veikjast á dularfullan hátt. (Óþol fyrir tækni, hljóðfælni, verkir, P-DTR meðferð, samvægi og núllstilling taugakerfisins.) Sölvi Freyr Valdimarsson.
2026/01/23
Í þættinum ræðir Erla við Sölva Frey Valdimarsson, nýútskrifaðan dúx Menntaskólans við Hamrahlíð, sem veiktist á mjög dularfullan hátt þegar hann var í 10.bekk.  Eftir að hafa gengið á milli lækna og annara fagmanna eins og barnalækna, taugalækna, heimilislækna, sjúkraþjálfara, naprapata, heilara, nálastungu og margra fleira fann hann loksins bót meina sinna eftir 10 kvalarfulla og krefjandi mánuði.  Sölvi segir okkur frá þessari erfiðu lífsreynslu sinni og stefnir nú sjálfur á nám í Læknisfræði og P-DTR meðferðinni sem bjargaði honum og hjálpaði honum að ná heilsu aftur.   Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana? 🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
Byrjaðu árið með stæl. (Heilsumoli 36)
2026/01/17
Smá pepp frá HeilsuErlu inn í árið 2026.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Hjartsláttarbreytileiki (HRV). Sigrún Haraldsdóttir. (Heilsumoli 35)
2026/01/10
Í þessum stutta Heilsumola útskýrir Sigrún hvað Hjartsláttarbreytileiki (HRV) er og hvernig við getum mælt hversu sterk Vagus taugin er og bætt svokallað Vagal tone með öndun.  Heilsumolinn er framhald af viðtali nr. 105.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
105. Ert þú með ofþanið taugakerfi? (Vagus taugin, öndun, bandvefur, líkamsvitund og jafnvægi.) Sigrún Haraldsdóttir
2026/01/09
Í þættinum ræðir Erla við Sigrúnu Haraldsdóttur stofnanda Happy hips um Vagus taugina (Flökkutaugina), bandvef, ofþanið taugakerfi, hraðann í nútíma samfélagi, öndun, líkamsvitund og hvernig hægt er að núllstilla taugakerfið.   En hvað er Vagus taugin? Vagus taugine að Flökkutaugin eins og hún er líka nefnd er oft séð sem “umferðarstjórnandi”, þar sem hún er mikilvæg samskiptabraut milli líkamans og heilans en hún vinnur við að stýra öndun, hjartslætti, vöðvum, meltingu, koki, raddböndum og hæfileika okkar til að upplifa, vinna úr og fá botn í reynslu okkar. Vagus taugin er bæði skyn og hreyfitaug og er oft kölluð “drottning” parasympatíska kerfisins (sefkerfisins), eins konar bremsa líkamans.  Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana? 🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í skírnargjöf.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
Box öndun í boði Sigrúnar Haralds (Heilsumoli 34)
2026/01/07
Á næstu dögum fer í loftið alveg frábært viðtal við Sigrún Haraldsdóttur eiganda Happy hips um Vagus taugina. Hún talar meðal annars um mikilvægi öndunar til þess að róa taugakerfið og býður ykkur hér upp á stutta öndunaræfingu sem þið getið nýtt ykkur hvar og hvenær sem er.  Box öndun (Kassaöndun) 6-4-8-4. Sigrún Haraldsdóttir leiðir okkur í gegnum áhrifaríka öndunaræfingu til þess að róa taugakerfið. Innöndun á 6 sek- halda inn andanum í 4 sek- fráöndun á 8 sek og svo halda aftur í 4 sek.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
2026 Himnastigar- Sjáumst á nýársdag (Heilsumoli 33)
2025/12/31
Sjáumst í Himnastiganum í Kópavogi á nýársdag.  Síðustu þrjú ár (á nýársdag) hef ég haldið viðburð í Himnastiganum sem er nú orðinn ómissandi hefð fyrir marga. Í þessum örstutta Heilsumola segi ég frá því hvernig þetta byrjaði allt á 365 Himnastigum árið 2023, sem urðu svo 1000 Himnastigar árið 2024 og loks 2025 Himnastigar árið 2025.  Á nýársdag 1.janúar 2026 ætlum við að endurtaka leikinn hafa gaman saman og vekja athygli á mikilvægi daglegrar hreyfingar. Öll eru velkomin og við ætlum að reyna að ná samtals 2026 ferðum í Himnastiganum þennan dag! Munið að margt smátt gerir eitt stórt. Hægt verður að mæta hvenær sem er yfir daginn, frá nýársdagsmorgni til miðnættis á nýársdag. Það má ganga, hlaupa eða skríða.  Þeir sem mæta geta svo sett inn mynd af sér og sínum í Facebook viðburðinn og þar verður einnig hlekkur til þess að skrá fjölda ferða. Ef þið setjið í story á Instagram má endilega tagga HeilsuErlu Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
104. Mataræði er kóngur. (Heilsuvenjur, föstur, kríur, jarðtenging og fleira.) Sigurjón Ernir Sturluson
2025/12/26
Í þættinum ræðir Erla við Sigurjón Erni Sturluson, íþróttafræðing, ofurhlaupara og frumkvöðul um æsku hans og hvernig hún hefur mótað hann, heilsuvenjur, jarðtengingu, kríur, föstur, næringarþéttni, ranghugmyndir í samfélaginu, tilgang lífsins og fleira. Sigurjón er eigandi UltraForm og er einnig með hlaupaþjálfun og lífsstílsþjálfun. Hann hefur reynt flest á eigin skinni til að komast að því hvernig hægt sé að hámarka heilsu og deilir þekkingu sinni á Instagram og Facebook. Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 -HEILSUHILLUNA. Gæti digest meltingarensím frá Enzymedica hjálpað þér? 🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. 20% afsláttur af brúnku með kóðanum: erla20. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í jólagjöf.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
103. Að dúxa endurhæfingu. (Lýðheilsa, heilaheilsa, öndunaræfingar, næringarþéttni, hreyfing og svefn). Sonja Sif Jóhannsdóttir
2025/12/12
Í þættinum ræðir Erla við Sonju Sif Jóhannsdóttur, íþróttafræðing um lýðheilsu, heilaheilsu, endurhæfingu eftir höfuðhögg, Vagus taugina, mikilvægi öndunaræfinga, næringarþéttni, svefn, hreyfingu, spennandi rannsókn sem hún gerði á heilsu sjómanna og margt fleira.  Sonja starfar í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Háskóla Íslands, hún er íþróttakona og mögnuð heilsufyrirmynd. Hún hefur starfað í „heilsubransanum" í yfir 30 ár. Ekki missa af þessu frábæra spjalli við þessa fróðu konu. Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 - HEILSUHILLUNA. Gæti digest meltingarensím frá Enzymedica hjálpað þér? 🌱  - SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  - VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Gjafabréf í dekur er tilvalið í jólapakkann. 💦  - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í jólagjöf.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
Svo lengi lærir sem lifir. Ólympískar lyftingar, HM ævintýrið og hugarfar. (Heilsumoli 33) Kári Walter og Erla
2025/12/05
Í undirbúningi mínum fyrir HM í ólympískum lyftingum stakk Kári þjálfari upp á því að við myndum taka smá hlaðvarpsspjall um vegferðina. Úr varð skemmtilegur og óhefðbundinn þáttur þar sem að ég er ekki spyrillinn heldur er þetta spjall um muninn á ólympískum lyftingum og kraftlyftingum, hvers vegna styrktarþjálfun er mikilvæg fyrir alla og hvers vegna ólympískar lyftingar eru frábær stuðningur við aðrar íþróttagreinar. Svo ræðum við auðvitað um undirbúninginn fyrir mótið, ferðalagið á HM, keppnina sjálfa og allt í kringum það. Ég set reglulega inn frá æfingum á Instagram og áhugasamir um ólympískar lyftingar geta einnig fylgt Kára og Lyftingarsambandi Íslands (LSÍ) Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more
102. Hvað eru „triggerar"? (Áfallastreita, sjálfsvitund, taugakerfið og leiðavísir að ósýnilegum sárum). Anna Sigurðardóttir
2025/11/28
Í þessum þætti ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um triggera eða kveikjur. Leitast er við að svara ýmsum áhugaverðum spurningum. Hvað eru triggerar? Hver ber ábyrgð á því að við triggerumst? Afhverju bregðumst við við á ólíkan hátt og hvað getum við gert í kjölfarið? Hvað er áfallasteita? Hvað er kveikjuviðvörun? Trigger getur verið leiðavísir að ósýnlegum sárum og tækifæri til sjálfsvitundar. Viðbrögð okkar eru samspil af líffræðilegri næmni, sögulegri reynslu og persónuleika og samhengis í núinu /daglegri líðan.  Mig langar einnig að hvetja ykkur til þess að hlusta á fyrra viðtal við Önnu um heilsumissi í kjölfar áfalls og nýju Heilsumolana um Þörfina fyrir því að hafa stjórn og sambandið við okkur sjálf.  Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 Heilsuhillan- Hair Volume frá New Nordic- fyrir fallegt og heilbrigt hár.   🌱 Spíruna - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal 💗 Þín fegurð - Gjafabréf í dekur er tilvalið í jólapakkann. 💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
more

Podcast reviews

Read Með lífið í lúkunum podcast reviews


5 out of 5
6 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Með lífið í lúkunum & sponsor relevant audience podcasts


What do you want to promote?

Ad Format

Campaign Budget

Business Details