Advertise on podcast: Synir Egils
This podcast has
121 episodes
Explicit
No
Date created
2023/09/11
Latest episode
2026/09/27
Average duration
130 min.
Release period
15 days
Description
Synir Egils hafa áratuga reynslu af greiningu pólitískrar- og samfélagslegar umræðu. Á sunnudögm ræða þeir meðal annars við fólk úr stjórnmálum, fjölmiðlum og verkalýðshreyfingunni um brýnustu málefni dagsins.
Podcast episodes
Check latest episodes from Synir Egils podcast
Synir Egils 27. sept - Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir
2026/09/27
Sunnudagurinn 27. september
Synir Egils: Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir
Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun, Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða kólnandi hagkerfi, aukið atvinnuleysi og viðvarandi verðbólgu og mögulegar aðgerðir og nauðsynlegar. Síðan koma Halla Hrund Logadóttir þingkona, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona og framkvæmdastjóri Courage International og Pétur Marteinsson borgarfulltrúi og halda áfram að greina samfélagið og ytri aðstæður; olíukreppu, stríðsátök, Grænland en líka auðlindir og mannréttindi. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári yfir pólitíkina með sínu nefi.
Synir Egils 20. sept - Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík
2026/09/20
Sunnudagurinn 20. september
Synir Egils: Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík
Til okkar koma á vettvang dagsins Árni Helgason þingmaður, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Margrét Helga Erlingsdóttir sjónvarpskona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins og síðan þeir Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna að ræða húsnæðismál, en slæm staða þeirra hefur drifið áfram verðbólgu og grafið undan lífskjörum leigjenda mörg undanfarin ár. Er von um breytingu? Í lokin fara þeir bræðir, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Synir Egils 13. sept - Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál
2026/09/13
Sunnudagurinn 13. september
Synir Egils: Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál
Þau koma og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda; PISA, fjárlagafrumvarp, stefnuræðu, landakort Trump, EES og bókun 35, aðgerðir ríkisstjórnar vegna kjarasamninga, fjölmiðla og fleira. Síðan koma að ræða öryggis- og utanríkismál þau Dagur B. Eggertsson þingmaður, Albert Jónsson fyrrum sendiherra og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðis og landakorts og símtals Donald Trump. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Synir Egils 6. sept - Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi
2026/09/06
Sunnudagurinn 6. september
Synir Egils: Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi
Drífa Snædal talskona Stígamóta, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar mæta á vettvang dagsins og ræða fréttir og stöðu samfélagsins. Síðan kemur Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og þingmennirnir Grímur Grímsson, Arna Lára Jónsdóttir og Ólafur Adolfsson og ræða stöðu mála, flokka og ríkisstjórnar við upphaf haustþings. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Synir Egils 30. ágúst - Dagurinn eftir þjóðaratkvæði
2026/08/30
Sunnudagurinn 30. ágúst
Synir Egils: Dagurinn eftir þjóðaratkvæði
Við förum yfir stöðu samfélagsins daginn eftir þjóðaratkvæði um Evrópusambandið. Fyrst með þeim Kristján Kristjánssyni fyrrum umsjónarmanns Sprengisands, nú umsjónarmanns Kastljóss, Aðalsteini Kjartanssyni aðstoðarritstjóra Heimildarinnar og Sirrý Hallgríms fyrrverandi aðstoðarkonu ráðherra. Síðan koma þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, María Rut Kristinsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og meta áhrifin af niðurstöðunni. Þá fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Synir Egils 23. ágúst - Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur
2026/08/23
Sunnudagurinn 23. ágúst
Synir Egils: Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur
Við ræðum fréttir og stöðu samfélagsins við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og þrjá prófessora: Sigrún Ólafsdóttur félagsfræðing og stjórnmálafræðingana Evu H. Önnudóttur og Eiríki Bergmann. Síðan reyna þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek að sannfæra okkur að segja nei eða já í þjóðaratkvæðagreiðslunni næsta laugardag. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Synir Egils 16. ágúst - Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð
2026/08/16
Sunnudagurinn 16. ágúst
Synir Egils: Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð
Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við þau Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB, Kristinn Hrafnsson ritstjóra Wikileaks og Piu Elizabeth Hansson forstöðumann Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Síðan koma fulltrúar frá Ungum Evrópusinnum og Ung gegn ESB-aðild og ræða kosti og kalla umsóknar um aðild að Evrópusambandinu: Óðinn Freyr Baldursson og Þórhildur Davíðsdóttir Söebech sem ætla að segja já þann 29. ágúst og Illugi Gunnarsson og Salma Björk Önnudóttir sem ætla að segja nei. Í lokin ræða þeir bræður um pólitíkina með sínu nefi.
Synir Egils 9. ágúst - Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar
2026/08/09
Sunnudagurinn 9. ágúst
Synir Egils: Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar
Synir Egils, þeir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, fá gesti og ræða stöðu mála og stjórnmálin. Í fyrri hluta þáttarins koma þau Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB, klofna þjóð og fallna kjarasamninga. Síðan koma þær Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins og Þóra Jónsdóttir lögfræðingur fjölmiðlanefndar og ræða veika stöðu fjölmiðla. Í lokin taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.
Synir Egils 17. maí - Uppgjör kosninga
2026/05/17
Sunnudagurinn 17. maí
Synir Egils: Uppgjör kosninga
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um niðurstöður kosninganna. Fyrst koma þau Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir ráðgjafi og Árni Helgason nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fara yfir kosningabaráttuna, úrslitin og áhrif þeirra. Síðan koma starfsmenn stjórnmálaflokka, Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, Tómas Þór Þórðarson starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar og fara yfir stöðu flokka og afleiðingar sveitarstjórnarkosninganna. Þeir bræður fara síðan yfir pólitíkina með sínu nefi.
Synir Egils 10. maí - Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál
2026/05/10
Sunnudagurinn 10. maí
Synir Egils: Borgin, kosningamál, hneyksli og alvörumál
Við byrjum á samtali við oddvita framboðanna sem njóta mest stuðnings í Reykjavík og flestir vilja sjá sem næsta borgarstjóra: Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks, Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingar og Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Vinstrisins ræða kosningarnar á laugardaginn og segja okkur hvað þau vilja gera í Reykjavík. Síðan förum við yfir fréttir vikunnar og stöðu mála: Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri Gímaldsins, Jovana Pavlović, mannfræðingur og oddviti Borgarbyggðarlistans, og Karen Kjartansdóttir ráðgjafi greina helstu tíðindi og meta stöðuna. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Synir Egils 3. maí - Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra
2026/05/03
Sunnudagurinn 3. maí
Synir Egils: Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra
Þrjár konur mæta í Vettvang dagsins að þessu sinni. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir framkvæmdastjóri BSRB. Af nógu er að taka. Til að mynda fagnar Rósa Björk því að VG, flokkurinn hennar, mælist loks með þingmenn. Það kom fram í nýjustu skoðanakönnunum. Annars er farið vítt yfir sviðið. Núna þegar pólitíkin er að ná athygli nánast allra. Enda er kosið eftir tær vikur. Kristrún Frostadóttir er sannarlega upptekin þessi dægrin. Hún sá af tíma sínum til að koma til okkar. Því ber að fagna. Margt ber á góma. Ríkisstjórnin, efnahagsmálin, þjóðaratkvæðagreiðslan, þingið, breyttur heimur, og það til hins verra, utanríkismál og fleira og fleira.
Synir Egils 26. apríl - Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB
2026/04/26
Sunnudagurinn 26. apríl
Synir Egils: Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB
Í Vettvang dagsins komu þau Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins og Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki og varaþingmaður fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Margt ber á góma í fyrri hlutanum. Mest þó um stjórnmál og samband ráðherra og kennara. Árangur þessa þingvetrar, komandi byggðakosningar, og hvernig þau meta afgreiðslu mála þessa þingvetrar. Eins verður snertilending á ESB. Í seinni hlutanum mæta þau Haraldur Ólafsson og Helga Vala Helgadóttir sem eru fjarri sammála um Ísland og ESB. Við höldum áfram að heyra ólík sjónarmið í þessu viðkvæma máli.
Synir Egils 19. apríl - Sveitarstjórnir, skólamál og ESB
2026/04/19
Sunnudagurinn 19. apríl
Synir Egils: Sveitarstjórnir, skólamál og ESB
Það verður gestkvæmt í Sonum Egils þennan sunnudaginn. Í fyrri hluta þáttarins, það er Vettvang dagsins, koma fjórar konur: Kolbrún Þorsteinsdóttir kennari, Eyrún Magnúsdóttir ritstjóri, Eva H. Önnudóttir prófessor og Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikaráðgjafi.
Í síðari hluta koma þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek. Þeir skiptast á skoðunum um Evrópusambandið og hvort við eigum erindi þangað eða ekki.
Í fyrri hlutanum verður örugglega eitthvað rætt um komandi kosningar, til sveitarstjórna og hvort við eigum að halda áfram viðræðum við ESB eða ekki. Menntamál og Inga Sæland munu örugglega verða til umræðu. Sem og ýmislegt annað.
Synir Egils 22. mars - Stýrivextir, kjarasamningar, átök og Sjálfstæðisflokkurinn
2026/03/22
Sunnudagurinn 22. mars
Synir Egils: Stýrivextir, kjarasamningar, átök og Sjálfstæðisflokkurinn
Fyrst koma Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins og Þorsteinn Víglundsson forstjóri BM. Vallár og formaður Samtaka iðnaðarins koma til okkar í fyrri hluta þáttarins.
Efnahagsmálin verða í forgrunni, og er víst að þessir fínu gestir okkar hafa margt um það að segja. Hvers vegna sökkvum alltaf í sama vesenið. Sama hvaða fólk stýrir landinu og hvað fólk er í stafni hjá launafólki og atvinnurekendum. Guðrún Hafsteinsdóttir kemur vel nestuð frá flokkstjórnarfundi Sjálfstæðisflokksins. Víst er að flokkkurinn eigi mikið undir hvern til tekst nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna.
Synir Egils 15. mars - Stjórnmál, stríðsrekstur, einkarekstur og niðurskurður
2026/03/15
Sunnudagurinn 15. mars
Synir Egils: Stjórnmál, stríðsrekstur, einkarekstur og niðurskurður
Að þessu sinni taka þátt í umræðunni þau; Einar Kárason rithöfundur, Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, Steinunn Bragadóttir hagfræðingur hjá ASÍ og Theodóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi. Eðlilega er margt á málaskrá. Stjórnmál, stríðsrekstur Bandaríkjanna og Ísrael og viðbrögð við honum, er einfalt eða tvöfalt heilbrigðiskerfi hér á landi, er verið að draga úr framlögum til menningar, komandi kosningar og svo margt annað.