1740600290
Íslenski Draumurinn

Advertise on podcast: Íslenski Draumurinn

This podcast has
52 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2024/04/10
Latest episode
2025/12/30
Average duration
76 min.
Release period
19 days

Description

Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum, viðskiptamönnum og einstaklingum sem hafa þorað að elta sína drauma og hafa náð langt á sínu sviði. Við förum yfir þeirra sögu, velgengnina og mistökin. Meira um hlaðvarpið inn á www.islenskidraumurinn.is

Unlock Íslenski Draumurinn podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Íslenski Draumurinn podcast


51. Baksýnisspegillinn og vegvísirinn fram á við
2025/12/30
Þátturinn í dag er aðeins öðruvísi. Við lítum í baksýnisspegilinn og drögum saman helstu lærdóma ársins. Við heyrum brot úr mest hlustuðu þáttum ársins og kynnum til leiks markmiðaheftið fyrir 2026. Heftið er hannað til að hjálpa þér að setja skýr markmið, halda fókus og ná alvöru árangri. Ef þú vilt fá heftið sent, sendu okkur línu á Instagram hjá Íslenska draumnum. Gleðilega hátíð og takk kærlega fyrir hlustunina á árinu. 
50. Ingvi Þór Georgsson - Aflamiðlun
2025/12/16
Í þessum þætti af Íslenska Draumnum ræðir Sigurður við Ingva Þór Georgsson, mann sem hefur farið óhefðbundna leið í atvinnulífinu og byggt upp ótrúlega fjölbreyttan feril. Í þættinum opnar Ingvi á fyrstu skrefum sínum, ævintýrunum í kringum Aflamiðlun, verkefnunum sem spruttu út frá því og þeirri þrautseigju sem hefur haldið honum áfram, verkefni eftir verkefni: borðspilaútgáfu, Alfreð, Pardus, hlaðvarpsrekstur Sýnar, Pyngjan, fyrirtækjasala, hugbúnaðarrekstur og jafnvel þjóðbúningaframleiðslu fyrir börn.
49. Helga Sigrún Hermannsdóttir - Dottir Skin
2025/12/02
Gestur Íslenska Draumsins þessa vikuna er Helga Sigrún Hermannsdóttir, meðstofnandi og yfirmaður vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin, hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir. Hún hefur alla tíð verið heilluð af húð, innihaldsefnum og þeirri spurningu hvað virkar í raun. Vegferð hennar sem frumkvöðull hófst ekki með fjárfestafundi eða viðskiptaáætlun, heldur með forvitni, einlægni og samfélagsmiðlum.
48. Árni Jón Pálsson - Alfa Framtak
2025/11/18
Í nýjasta þætti af Íslenska Draumnum tekur Sigurður á móti Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtaks, sem deilir einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag.
47. Íslenski Draumurinn er kominn aftur
2025/11/04
Við kynnum til leiks nýjan og stærri draum. Nýtt stúdíó og stærri hugmyndir. Í þessum stutta kynningaþætti tilkynnum við að Íslenski Draumurinn er hafinn á ný eftir stutt hlé. Við heyrum einnig hljóðbrot úr næstu tveimur þáttum, sem þú mátt ekki missa af.  Fyrsta hljóðbrotið er úr þættinum með Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtak. Í þættinum deilir hann einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag. Svo heyrum við hljóðbrot úr þættinum með Helgu Sigrúnu Hermannsdóttur, meðstofnanda og yfirmanni vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin. Helga hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir.  Við lofum frábærum þáttum í framhaldi, takk fyrir að hlusta!
46. Hekla Arnardóttir - Crowberry Capital
2025/06/24
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins ræðir Sigurður Sindri við Heklu Arnardóttur, meðstofnanda Crowberry Capital, sem hefur átt óvenjulega vegferð úr vélaverkfræði yfir í heim fjárfestinga og frumkvöðlastarfsemi. Hekla hefur starfað við fjárfestingar í nýsköpun í fjölda ára, fjárfest í fjölbreyttum hópi tæknifyrirtækja, og komið að byggingu sprotafyrirtækja sem hafa vaxið út fyrir landsteinana.
45. Sindri Már Finnbogason - TIX
2025/06/10
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski Draumurinn ræðir Sigurður Sindri við Sindra Má Finnbogason, stofnanda og frumkvöðulinn á bak við miðasölukerfið Tix. Í þættinum greinir Sindri frá fyrstu kynnum sínum af forritun, uppbyggingu eigin hugbúnaðarfyrirtækis, og þeirri alþjóðlegu útrás sem fylgdi í kjölfarið. Ferill hans spannar þrjá áratugi og ber vott um óvenjulegan sjálflærdóm, seiglu og víðsýni í rekstri.
44. Litið til baka
2025/06/03
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins lítum við aftur á þrjá áhrifamikla gesti sem komu í fyrstu þáttunum – hver með sína einstöku sögu, sýn og leið að árangri. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa lagt ótrúlega vinnu í að byggja upp rekstur frá grunni og eru allir ólík dæmi um hvað frumkvöðlastarf getur falið í sér. Hvort sem það er í hótelrekstri, bílaleigum eða fasteignastarfsemi – þá er eitt sem skín í gegn: þrautseigja, framtíðarsýn og drifkraftur. Í þessum þætti lítum á þegar Steinþór Jónsson (Hótel Keflavík), Magnús Sverrir Þorsteinsson (Blue Car Rental) og Þorsteinn Ingi Einarsson (Steinabón, Garður Apartments) deila reynslu sinni af því að byggja upp eigin fyrirtæki frá grunni og hvað hefur drifið þá áfram á leiðinni að árangri.
43. Árið 2025 - Fyrri helmingur
2025/05/27
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski draumurinn stígur Sigurður Sindri Magnússon skref til baka og fer yfir þrjá eftirminnilega viðmælendur sem hafa komið fram á árinu: Jónas Hagan Guðmundsson, Kristján Inga Mikaelsson og Hjálmar Gíslason. Þátturinn er áminning um breiddina og dýptina í íslensku frumkvöðlaumhverfi – og hversu mikla innblástur er að finna í þeim sem þora að láta til sín taka.
42. Hjálmar Gíslason - GRID
2025/05/20
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn fáum við innsýn í ævintýralegt og lærdómsríkt ferðalag Hjálmars Gíslasonar – eins reynslumesta frumkvöðuls Íslands og stofnanda GRID, sem vinnur að næstu byltingu í töflureiknum. Hjálmar hefur áratugareynslu af því að umbreyta hugmyndum í raunverulegar vörur og fyrirtæki, og í þættinum deilir hann einlæglega sinni sögu – frá því að selja fyrsta tölvuleikinn sinn 14 ára gamall, yfir í að selja hugbúnaðarfyrirtæki sitt til stórfyrirtækis í Bandaríkjunum.
41. Emin Kadri - At­vinnu­maður í hnefaleikum
2025/05/13
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn kynnumst við Emin Kadri, 22 ára atvinnuboxara sem þrátt fyrir ungan aldur er þegar orðinn þekkt nafn í íslenskri íþróttasenu. Emin hefur barist tvo atvinnubardaga – og unnið þá báða – og margir sjá hann sem einn efnilegasta hnefaleikamann Íslands. Lestu meira og skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is
40. Valgerður Hrund Skúladóttir - Sensa
2025/05/06
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins hittum við Valgerði Hrund, framkvæmdastjóra Sensa og einn af stofnendum fyrirtækisins. Hún hefur í áratugi verið í fararbroddi íslenskrar upplýsingatækni og lýsir í viðtalinu ótrúlegri vegferð sinni frá Vesturbæ Reykjavíkur til þess að stýra alþjóðlegu tæknifyrirtæki með yfir 160 starfsmenn í 12 löndum. Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn.is
39. Jónas Karl - Markmiðaþáttur - Ertu á réttri leið?
2025/04/29
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins býður Sigurður upp á sérstaka útgáfu sem tengist markmiðasetningu – grunnstoð allra þeirra sem vilja ná árangri, hvort sem er í lífinu eða í viðskiptum. Þátturinn er framhald af fyrsta markmiðaþætti ársins og nú fer Sigurður dýpra í efnið með tilkomu nýs markmiðaheftis sem allir geta nálgast frítt á islenskidraumurinn.is. Í heftinu má finna skýrar spurningar, lista og verkfæri sem hjálpa þér að setja þér markviss og framkvæmanleg markmið – og komast alla leið. Gestur þáttarins er Jónas Karl Jónasson, starfsmaður Deluxe Iceland, en hann deilir sinni reynslu af því hvernig markviss markmiðasetning hefur gjörbreytt lífi hans. Jónas starfar sem leiðsögumaður en hefur á síðustu árum lagt mikla áherslu á að vinna markvisst að eigin draumum og markmiðum – með frábærum árangri.
38. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 2
2025/04/22
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins heldur samtal Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi áfram. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is
37. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 1
2025/04/15
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er fyrsti partur samtals Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is

Podcast reviews

Read Íslenski Draumurinn podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Íslenski Draumurinn relevant audience podcasts


What do you want to promote?