
Advertise on podcast: Seinni níu
Rating
5from
This podcast has
136 episodes
Language
IcelandicPublisher
Logi Bergmann og Jón Júlíus KarlssonExplicit
No
Date created
2024/04/11
Latest episode
2026/10/26
Average duration
73 min.
Release period
8 days
Description
Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson
Unlock Seinni níu podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Seinni níu podcast
#136 - Haukur spilaði fimm golfvelli á einum degi
2026/10/26
Við fengum Hauk Óskarsson, framkvæmdastjóra Nesklúbbsins, í hörkuskemmtilegt spjall. Haukur komst í fréttirnar á dögunum þegar hann afrekaði það að leika alla golfvelli landsins á einu og sama árinu. Hann segir frá þessu magnaða ferðalagi og fer yfir það sem stóð upp úr á golfvöllum landsins.
Haukur rifjar einnig upp þegar hann fékk bolta í bringuna frá öðrum kylfingi og steinlá. Þá kom í ljós að Haukur hefur þrívegis fengið albatross, sem er ótrúlegt afrek.
Í þættinum segir Haukur okkur líka frá hinum víðfræga biðlista Nesklúbbsins, en nú bíða yfir 2.000 manns eftir aðild að þessum eftirsótta golfklúbbi. Hauki berast reglulega tilboð frá fólki sem vill kaupa sér leið fram fyrir á biðlistanum, og í sumar barst honum sjö stafa tilboð.
Meðal annars velur Haukur þær fimm par-3 holur þar sem hann væri helst til í að fara holu í höggi næst.
Virkilega skemmtilegur þáttur þar sem víða er komið við og hefði getað boðið upp á ótal fyrirsagnir!
#135 - Örn valdi alls ekki draumahollið
2026/10/19
Við fengum hlaðvarpsstjörnu í heimsókn til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Örn Arnarson, fjölmiðlamaður og reglulegur gestur í hlaðvarpinu Þjóðmál, kom og fór yfir golfið með okkur.
Örn er Keflvíkingur og hóf golfiðkun ungur í Leirunni. Í dag er hann með rúmlega 16 í forgjöf. Hann óttast mest stutt vipp, hefur aldrei farið holu í höggi og er í golfhópnum Kvíði.
Örn valdi bæði draumahollið og hollið sem hann vildi alls ekki spila með á Glanna. Við fengum einnig mjög góða kraftröðun þar sem farið var yfir besta bitann að loknum golfhring.
Frábær þáttur og mikið hlegið að þessu sinni.
#133 - Karen varð Íslandsmeistari átta ár í röð en hefur ekki enn farið holu í höggi
2026/10/12
Við fengum goðsögnina Karen Sævarsdóttur í heimsókn til okkar og þá fyrr hefði verið. Karen vann það einstaka afrek að verða Íslandsmeistari átta ár í röð frá árinu 1989 til 1996. Móðir hennar varð einnig þrisvar Íslandsmeistari og því eiga þær mæðgur 11 titla.
Karen segir okkur frá mögnuðum ferli, rifjar upp skemmtileg augnablik frá titlunum átta, erfiðum atvinnumannaárum og háskólaárunum í Texas.
Svo fengum við þá ótrúlegu staðreynd að Karen hefur aldrei farið holu í höggi. Það gladdi Loga að heyra. Þetta er víst allt heppni.
Frábær þáttur með einstökum kylfingi. Draumahollið og kraftröðun á sínum stað!
#132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel
2026/10/05
Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Matreiðslumaðurinn Jói Fel heiðraði okkur með nærveru sinni og sagði okkur frá golfferli sínum.
Jói byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum en þá voru allir æskuvinir hans byrjaðir í íþróttinni. Það tók hann smá tíma á ná tökum á íþróttinni en hann gafst ekki upp og er núna orðinn þokkalegur kylfingur.
Hann er með um 20 í forgjöf og spilar mikið í Hveragerði sem er orðinn heimavöllur hans í dag. Það tekur hann ekki nema 3 mínútur að aka út á golfvöll frá heimili sínu í Hveragerði og ólíkt flestum þá eru blindar golfholur í uppáhaldi.
Jói segir okkur frá draumahollinu sínu, frá erfiðum bakmeiðslum og þegar hann hætti að æfa brjóstvöðva á mánudögum vegna golfiðkunar.
Við fáum innsýn inn í störf Jóa á Litla hrauni en þar kennir hann meðal annars föngum að elda.
Frábær þáttur á léttum nótum.
#131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð
2026/09/30
Við erum staddir í golfferð og tókum auðvitað upp þátt af Seinni níu. Aron Elí Sævarsson og Axel Óskar Andrésson komu í spjall en þeir eru einmitt staddir með okkur í golfferð á Los Moriscos á Spáni þar sem fer mjög vel um okkur.
Í þættinum förum við yfir það hvernig upplifun það er að vera í golfferð. Ræðum um golfið hjá köppunum en líka aðeins um þeirra afrek í fótboltanum með liði Aftureldingar.
Mjög skemmtilegt spjall þar sem við fáum að heyra af nokkuð óvenjulegum golfmeiðslum sem urðu hjá einum viðmælenda í ferðinni.
#130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf
2026/09/20
Það var létt yfir okkur í vikunni þegar Logi Sigurðsson, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja og Íslandsmeistari í golfi 2023, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Logi er, líkt og nafni hans, alltaf léttur.
Logi sagði okkur aðeins frá ferlinum sínum og það kom okkur ansi mikið á óvart að heyra að hann hafi orðið Íslandsmeistari aðeins sex árum eftir að hann hóf formlega að æfa golf. Það gerði hann ekki fyrr en 17 ára gamall og má með sanni segja að uppgangur hans í íþróttinni hafi verið með ólíkindum.
Við komum víða við í þessum þætti og fórum meðal annars yfir merkilegt atvik frá Íslandsmótinu í sumar þegar Logi lék á ellefu höggum á 4. braut Korpúlfsstaðavallar. Logi fer skemmtilega yfir þessa lífsreynslu.
Einnig ræddum við hvernig það var fyrir Loga að verða Íslandsmeistari á Urriðavelli árið 2023. Það var merkilegt, enda hafði Sigurður Sigurðsson, pabbi Loga, orðið Íslandsmeistari árið 1988.
Mjög skemmtilegur þáttur þar sem við förum yfir draumahollið hans Loga og hann segir okkur líka frá þeim fimm atriðum sem eru hvað þreytulegust að heyra á golfvellinum.
Frábær þáttur sem við mælum eindregið með!
#129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun
2026/09/14
Við fengum til okkar frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Haukur Dór Kjartansson, félagi í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, settist niður með okkur og sagði frá því hvernig það er að leika golf samhliða því að vera með MS-sjúkdóminn.
Haukur Dór vekur gjarnan athygli fyrir gott viðmót, jákvæðni og brosmildi, en þessir eiginleikar hafa hjálpað honum að takast á við ýmsar hindranir í lífinu, þar á meðal þennan erfiða sjúkdóm sem hann greindist með árið 2003. Haukur lætur MS-sjúkdóminn ekki stoppa sig og er með um 11 í forgjöf og leikur mikið golf á Dalvík þar sem hann er búsettur.
Við förum aðeins yfir golfið hjá Hauki og ræðum einnig forláta golfbílinn sem hann ekur um á - Yamaha Sun Classic sem lítur út eins og golfbíll úr framtíðinni en er yfir 30 ára gamall.
Mjög áhugaverður og fróðlegur þáttur. Draumahollið og óvenjuleg kraftröðun á sínum stað!
#128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari
2026/09/07
Við fengum knattspyrnumanninn Aron Jóhannsson í stórskemmtilegt spjall. Hann stundar golfíþróttina af miklu kappi og lék á dögunum Korpúlfsstaðavöll á 7 höggum undir pari. Ótrúleg spilamennska.
Frábær þáttur en þar kemur meðal annars í ljós að Aron er alltaf hræddur þegar stigið er inn á flatirnar.
#127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi
2026/08/31
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, kom í skemmtilegt spjall til okkar í Seinni níu. Jón Guðni er fínn kylfingur með um 16 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum Oddi og nokkuð duglegur að spila.
Í þættinum segir Jón okkur frá því þegar hann fór holu í höggi með þriðja höggi sínu af teig og var í þokkabót einn þegar atvikið átti sér stað. Einnig segir Jón okkur frá því þegar hann varð fyrir því óláni að slá bolta sínum í kálfa kylfings sem var í ráshópnum fyrir framan hann. Það getur stundum verið varasamt að hitta teighöggið vel í miklum meðvindi.
Draumahollið er á sínum stað og svo valdi bankastjórinn fyrir okkur uppáhaldsvelli sína. Stórskemmtilegur þáttur í alla staði!
#126 - Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun
2026/08/24
Við fengum hinn stórskemmtilega Viggó Harald Viggósson til okkar í Seinni níu. Viggó er góður kylfingur en ekki síst hefur hann verið frumkvöðull á sviði golfherma á Íslandi. Í þættinum ræðum við þá þróun sem hefur átt sér stað á því sviði. Viggó segir okkur frá því hvernig hann fór af stað með opnun golfhermastaðar og þeim mistökum sem hann gerði í upphafi.
Viggó er kominn með 11-tré í golfpokann sem hann notar til að sporna gegn þeirri forgjafarhækkun sem fylgir því að aldurinn færist yfir. Þetta er spennandi þróun sem hjálpar meðalkylfingum að slá lengra og beinna.
Við ræðum talsvert um Grafarholtsvöll, en það er þar sem Viggó féll fyrir íþróttinni og hann ber sterkar taugar til vallarins. Stórskemmtilegur þáttur þar sem draumahollið er auðvitað á sínum stað, auk þess sem við förum yfir þau skipti sem Viggó hefur farið holu í höggi.
Einna skemmtilegast var þó að heyra af tveimur stórum klúðrum sem Viggó gerði í keppnisgolfinu. Alltaf gaman að fara yfir ófarir annarra.
#125 - Gauti þjálfar marga af bestu kylfingum landsins
2026/08/17
Við fengum til okkar Gauta Grétarsson í gott spjall á dögunum. Gauti er einn fremsti sjúkraþjálfari landsins og þjálfar marga af bestu kylfingum landsins. Gauti er þrautreyndur íþróttaþjálfari og þjálfaði handbolta á árum áður. Sú reynsla nýtist vel við þjálfun á líkamlegum og andlegum þætti í golfi.
Í þættinu ræðir Gauti við okkur hvernig hann undirbjó Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson fyrir Íslandsmótið í golfi með því að æfingum í vonskuveðri á Nesvellinum.
Gauti varð Íslandsmeistari eldri kylfinga á dögunum og hann ræðir við okkur um það hvernig hann byrjaði í golfi, að verða neðstur í sínu fyrsta Íslandsmóti og hversu mikið jákvæð hugsun getur hjálpað á golfvellinum.
Frábært spjall við einn fremsta þjálfara landsins!
#124 - Gísli Hall er formaður fjölmennasta golfklúbbs í heimi
2026/08/11
Við fengum Gísla Guðna Hall, lögmann og formann Golfklúbbs Reykjavíkur. Við í Seinni níu höldum því fram að GR sé fjölmennasti golfklúbbur í heimi en í klúbbnum eru nú um 3500 félagsmenn.
Í þættinum ræðum við um nýafstaðið Íslandsmót sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli. Mótið heppnaðist með eindæmum vel. Gísli fór aðeins yfir mótið og hvaða þýðingu það hefur fyrir klúbbinn að halda Íslandsmót.
Við verjum góðum tíma í að ræða þær endurbætur sem standa yfir í Grafarholti. Þar er stefnt að því að endurbyggja allar flatir vallarins í áföngum og í sumar voru teknar í notkun nýjar flatir á fyrstu þremur brautum vallarsins. Mjög spennandi verkefni.
Gísli er góður kylfingur og hefur lengi verið með lága forgjöf. Hann spilar mikið og víða um heim. Gísli á það á ferilsskránni að hafa sex sinnum farið holu í höggi og á nokkrum af erfiðari par-3 brautum valla GR.
Draumahollið og kraftröðun á sínum stað í mjög skemmtilegum og áhugaverðum þætti. Í raun skylduhlustun fyrir félagsmann í GR.
#123 - Rúrik tvívegis misst af rástíma með Figo
2026/08/03
Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason kom í heimsókn en hann hóf að leika golf fyrir rúmum þremur árum og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni.
Rúrik er með 8,7 í forgjöf og leikur aðallega golf í Madríd, þar sem hann er nú búsettur. Hann er í sama golfklúbbi og þekktir knattspyrnumenn á borð við Luís Figo og Raúl og hefur tvívegis fengið boð um að spila með þeim. Í bæði skiptin þurfti Rúrik hins vegar að afþakka en á inni hring með þessum goðsögnum.
Í þættinum, sem er sá lengsti frá upphafi Seinni níu, er komið víða við. Rúrik fer yfir helstu mistökin sem hann gerði þegar hann var að byrja í golfi og gefur byrjendum góð ráð í skemmtilegri kraftaröð. Draumahollið var sérstaklega huggulegt en þar kemur David Beckham við sögu. Rúrik segir meðal annars sprenghlægilega sögu af því þegar hann hitti Beckham á veitingastað.
Þetta er meiriháttar þáttur þar sem margt áhugavert ber á góma.
#122 - Séra Hjálmar þrisvar farið holu í höggi á sömu holu
2026/07/27
Við fengum séra Hjálmar Jónsson í gott spjall í Seinni níu. Hann hefur leikið golf í rúm 20 ár og er með rétt tæplega 20 í forgjöf. Hjálmar er auðvitað prestur og við veltum því fyrir okkur hvort það hjálpi að vera með Guð í liði á golfvellinum.
Í sumar náði Hjálmar þeim ótrúlega áfanga að fara í þriðja sinn holu í höggi á 8. braut á Urriðavelli. Sú umræða fór auðvitað ekkert fyrir brjóstið á Loga. Presturinn sagði okkur einnig magnaða sögu af aðdragandanum að því þegar hann fór holu í höggi á 4. braut á Urriðavelli. Æðri máttarvöld virtust þar hafa verið með í för.
Þetta var stórmerkilegur þáttur enda er Hjálmar einstakur sögumaður. Draumahollið var á sínum stað og að lokum fórum við yfir kraftröðun þeirra atvinnukylfinga sem eru trúaðir.
#121 - Hulda Clara á yfir 200 metra ás
2026/07/20
Það var líf og fjör hjá okkur í Seinni níu að loknu Opna breska. Við tókum létta umræðu um það en fengum líka frábæran gest því Hulda Clara Gestdóttir kom í heimsókn til okkar.
Hulda Clara er atvinnukona í golfi og vann sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður í síðasta mánuði. Hún leikur á LET Access mótaröðinni sem er næststerkasta atvinnumannamótaröð kvenna í Evrópu. Hún hefur jafnframt tvívegis orðið Íslandsmeistari.
Hulda sagði okkur aðeins frá því hvernig hún byrjaði í golfi og þegar hún fór holu í höggi á yfir 200 metra langri par-3 braut. Hún hefur tvívegis farið holu í höggi en vill síður ræða það hvernig seinni ásinn atvikaðist. Skemmtileg saga.
Hulda segir okkur frá lífi sínu sem atvinnumaður, og hvernig þekking á reglunum getur hjálpað í golfi. Hún tók dómararréttindi í vetur til að efla þekkingu sína á reglunum. Hvað á maður t.d. að gera þegar api tekur boltann þinn við keppni í Suður-Afríku?
Frábær þáttur með þar sem við fáum auðvitað draumaholl og kraftröðun.
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Seinni níu relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.518782374
American Scandal
Audible

4.689401219
Get Sleepy: Sleep meditation and stories
Slumber Studios

4.79026375
Life is Short with Justin Long
Audible

4.714126350
Bad Friends
Bobby Lee & Andrew Santino

4.7129972
10 to Life
Annie Elise

4.76753464
Criminology
Emash Digital & Mike Ferguson, Mike Morford

4.87523980
The Dr. John Delony Show
Ramsey Network

4.512623668
RedHanded
RedHanded

4.9247931451
Unashamed with the Robertson Family
Tread Lively

4.8224811798
The Andrew Klavan Show
The Daily Wire