Advertise on podcast: Íþróttanæring með Nutreleat
Rating
5from
Categories
This podcast has
26 episodes
Explicit
No
Date created
2024/05/27
Latest episode
2026/09/28
Average duration
56 min.
Release period
46 days
Description
Hlaðvarp þar sem farið er yfir hin ýmsu málefni í tengslum við íþróttanæringu, íþróttir og þjálfun.
Podcast episodes
Check latest episodes from Íþróttanæring með Nutreleat podcast
25. Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- & efnaskiptalæknir: Beinmeiðsli, næring og hormón
2026/09/28
Í þessum þætti fáum við til okkar hana Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni hjá Heilsuklasanum. Sigríður starfaði um árabil sem sérfræðingur á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og hefur unnið með fjölda einstaklinga með beinþynningu. Hún stofnaði jafnframt vefinn beinheilsa.is, sem hefur það að markmiði að gera fræðslu um beinheilsu aðgengilega á íslensku.
Í þættinum ræðir Sigríður um beinmeiðsli meðal íþróttafólks, en slíkum tilfellum hefur farið fjölgandi á hennar borði. Hún útskýrir hvernig beinin bregðast við þjálfun og álagi, hvað getur legið að baki þegar þau gefa sig og hvers vegna skiptir máli að bregðast við í tæka tíð.
Þá fer Sigríður yfir hvernig næring og æfingaálag hafa áhrif á hormónakerfið okkar, og hvernig það samspil getur ýmist styrkt beinin eða veikt þau, bæði til skemmri og lengri tíma.
Virkilega fræðandi þáttur og mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara.
Nutreleat appið er loksins komið út og er akkúrat núna hægt að hlaða því niður og prófa frítt í 30 daga. En það hjálpar þér að innleiða og viðhalda tímabilaskiptri næringu samhliða þinni þjálfun: https://www.nutreleat.is/app
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn – við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir,
-Nutreleat teymið.
24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk
2026/09/14
Í þessum þætti fjöllum við um tímabilaskiptar áherslur í næringu fyrir íþróttafólk, í hverju þær raunverulega felast, hversu breytilegir æfingadagar geta verið með tilliti til orku- og orkuefnaþarfar og hvaða praktísku atriði þarf að hafa í huga.
Við förum yfir hvernig hvíldardagar, miðlungserfiðir dagar og erfiðir æfingadagar kalla á ólíka nálgun í næringu, og hvernig hægt er að skipuleggja næringarinntöku útfrá æfingaálagi til að hámarka orku, afköst og endurheimt. Við ræðum líka hvernig fyrirsjáanleiki og skipulag í næringu getur sparað tíma og dregið úr óvissu hjá íþróttafólki sem er að reyna að ná betri árangri.
Í þættinum snertum við einnig á eiginleikum í Nutreleat appinu og hvernig hægt er að nýta þá til að fá sem mest útúr íþróttanæringunni.
Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara sem vilja skilja betur hvernig næring og æfingaálag spila saman.
Hlekk á appið er að finna hér en þú getur sótt það og prófað frítt án nokkurrar skuldbindingar:
https://www.nutreleat.is/app
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
-Nutreleat teymið
23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi
2026/08/31
Í þessum þætti fáum við til okkar hann Anton Svein McKee, fyrrverandi landsliðsmann Íslands í sundi og fjórfaldan Ólympíufara. Anton ræðir af einlægni um sundferilinn, sem spannaði yfir áratug á heimsmælikvarða, og flutninginn til Bandaríkjanna þar sem hann hóf nám og æfingar við Alabama-háskóla árið 2013.
Hann segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu úti, þeim áskorunum og tækifærum sem fylgdu því að æfa og keppa fjarri heimahögunum, og hvernig hann byggði upp þann feril sem gerði hann að einum farsælasta sundmanni Íslandssögunnar.
Þá fer Anton yfir undirbúninginn fyrir Ólympíuleikana, andlegan og líkamlegan ásamt því að deila sinni nálgun á næringu og hvernig hún studdi við æfingaálagið á hverju tímabili fyrir sig.
Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri og foreldra.
Nutreleat appið er LOKSINS komið út og er því hægt að hlaða því niður og prófa frítt í 30 daga. Það hjálpar þér að innleiða og viðhalda tímabilaskiptri næringu samhliða þinni þjálfun:
https://www.nutreleat.is/app
Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
-Nutreleat teymið
22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur
2026/08/17
Í þessum þætti fjöllum við um heilaskaða í íþróttum, viðfangsefni sem á sannarlega erindi við allt íþróttafólk, foreldra og þjálfara óháð aldri og getustigi.
Við förum yfir hvaða áhrif heilaskaði hefur á heilann og starfsemi hans, og hvaða áhrif þessar breytingar geta haft á næringartengdar áherslur í fræðilegu samhengi. Við skoðum einnig hvar þekkingu skortir enn í dag og hvað þarf að rannsaka betur þegar kemur að samspili heilaskaða og næringar.
Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
-Nutreleat teymið
21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum
2026/08/03
Í þessum þætti fjöllum við um átraskanir í íþróttum, efni sem stendur okkur sérstaklega nærri, þar sem Lilja glímdi sjálf við raskaðar fæðuvenjur og óheilbrigt samband við mat á sínum dansferli og er þátturinn því á persónulegri nótunum en oft áður.
Við förum yfir hvort ástæðurnar á bakvið átröskun hjá íþróttafólki séu í eðli sínu ólíkar þeim sem liggja að baki átröskunum hjá almenningi. Við förum einnig yfir mismunandi tegundir átraskana og ræðum hvað er hægt að gera - bæði þegar kemur að forvörnum, en einnig til að búa til styðjandi umhverfi fyrir þau sem eru að glíma við raskaðar fæðuvenjur og jafnvel átraskanir.
Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara.
Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:
https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
-Nutreleat teymið
20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive
2026/07/20
Við tölum oft um kolvetni eingöngu út frá orku og afköstum; eldsneytið sem heldur okkur gangandi á erfiðu eða löngu æfingunum. En það er hlið á kolvetnaneyslu sem fær sjaldnar athygli - tengslin við beinheilsu. Og þar leynist ýmislegt sem kemur á óvart.
Í þessum þætti förum við á dýpið í rannsókn sem skoðar akkúrat þetta: Beineyðingu og beinmyndun, markera sem tengjast þessum þáttum og hvað þetta þýðir allt saman. Einnig skoðum við þetta í samhengi við æfingar og næringu - og þá sérstaklega í tengslum við kolvetnainntöku.
Fyrir áhugasama er greinina að finna hér:
https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC11569010/
Hlekkinn á 6 vikna netnámskeiðið okkar má finna hér (og við minnum á kóðann Nutreleat15 fyrir 15% afslátt við skráningu):
https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
- Nutreleat teymið
19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli
2026/07/06
Í þessum þætti fáum við til okkar Birnu Kristínu Kristjánsdóttur, landsliðskonu í frjálsum íþróttum. Birna ræðir af einlægni um óheilbrigt samband við mat og líkamsímynd, ásamt öðrum áskorunum sem hún hefur mætt á ferlinum.
Hún segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu á Ítalíu og sigrinum á Smáþjóðaleikunum, sem hún vann aðeins 22 ára gömul. Þá deilir hún því hvernig henni tókst að færa hugarfarið frá þeirri hugmynd að hún þyrfti að vera grennri yfir í að nærast í takt við æfingaálag og setja frammistöðu í forgang fram yfir útlit. Birna fer einnig yfir undirbúningsrútínuna sína fyrir keppnir og gefur öðru íþróttafólki dýrmæt ráð.
Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri og foreldra.
Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:
https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
- Nutreleat teymið
18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum?
2026/06/22
Sumarið er loksins komið og með því hellist hreyfigleðin yfirmarga sem ætla heldur betur að rífa sig í gang. En þótt margt sé jákvætt við það er líka að ýmsu að huga í þessu samhengi.
Í þessum þætti förum yfir algengustu mistökin sem fólk gerirþegar fólk fer úr því að æfa lítið (eða jafnvel kyrrsetu) og yfir í meira æfingaálag: vanmeta eigið form, elta þá bestu, leita skyndilausna í fæðubótarefnum, óttast kolvetni að óþörfu, og mæta í maraþon án þess að hafa nokkurn tíma prófað orkugel. Við ræðum einnig ofþjálfunarheilkenni og REDs, hvernigá að þekkja einkennin og hvað næringin hefur með málið að gera.
Hlekkinn á 6 vikna netnámskeiðið okkar má finna hér (og viðminnum á kóðann Nutreleat15 fyrir 15% afslátt af skráningargjaldi):
https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu
Grafið sem við förum yfir þegar fer að líða á seinni hlutaþáttarins má finna hér:
https://www.mysportscience.com/post/2015/04/10/higher-carbohydrate-intake-reduces-overtraining-symptoms
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eðagefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
- Nutreleat teymið
17. Peptíð: Kraftaverk eða markaðshype?
2026/06/08
Peptíð eru úti um allt þessa dagana, í snyrtivörum, fæðubótarefnum og á samfélagsmiðlum þar sem þau eru sögð gera ýmislegt - allt frá því að byggja upp vöðva og að því að snúa við öldrun. En hvað eru peptíð í raun og veru, og standast loforðin?
Í þessum þætti köfum við ofan í hvað peptíð eru, hvernig þau virka í líkamanum og hvort þau séu örugg til inntöku. Við skoðum þau líka sérstaklega í samhengi við íþróttir og íþróttafólk, hvað vísindin segja og hvar mörkin liggja.
Nú er heldur betur farið að styttast í útgáfu á appinu sem hefur verið í þróun á bak við tjöldin. Það er sérstaklega hannað fyrir íþróttafólk sem vill tryggja að það sé að nærast í takt við þarfir til að hámarka frammistöðu. Við viljum gefa hlustendum hlaðvarpsins forskot á sæluna og tækifæri til að gerast stofnmeðlimir þegar appið kemur út. Allir stofnmeðlimir geta nælt sér í aðgang á okkar bestu kjörum með því að skrá sig á póstlistann okkar:
https://www.nutreleat.is/ntrlt-postlisti
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn – við viljum endilega heyra hvað þér finnst! Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður. Vonum að þú njótir.
- Nutreleat teymið
16. Hvað gerðist? Síðustu mánuðir, hlaðvarpslægð & appróun
2026/05/25
Í þessum þætti förum við yfir af hverju við höfum ekki gefið út hlaðvarpsþátt í að verða ár, hvað við erum búin að vera að gera og hvað er framundan í þessari hlaðvarpsseríu.
Einnig förum við aðeins yfir appþróun sem er búin að vera í gangi síðustu árin, erfiðleika sem hafa komið upp í ferlinu og eiginleika sem verða til staðar í appinu.
Ef þú vilt skrá þig á póstlistann til að vera fyrst/ur til að vita þegar við gefum appið út geturðu fylgt hlekknum hér að neðan:
https://www.nutreleat.is/ntrlt-postlisti
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Eins má gjarnan tagga okkur á instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi eða áhugaverður. Vonum að þú njótir.
-Nutreleat teymið.
15. Gæði rannsókna & pseudoscience
2025/06/30
Í þessum þætti tökum við fyrir gæði rannsókna og pseudoscience. Eins komum við inná mýtur sem hafa orðið til útfrá rangri túlkun á rannsóknum. Við vonum að hann hjálpi þér að öðlast betra vísinda- og næringarlæsi, ásamt því að átta þig betur hvaða upplýsingar um (íþrótta)næringu eru traustvekjandi og hvers konar upplýsingar ber að varast.Hér eru hlekkir á hlutina sem við ræddum í þættinum:Instagram reikningur dr. Matthew Nagra: https://www.instagram.com/dr.matthewnagra/Útskýring á The Dunning Kruger effect (þó hægt að finna fleiri myndir sem sýna að þó þú sért orðinn sérfræðingur á tilteknu viðfangsefni þá nærðu aldrei sama 'confidence' leveli og á 'mount stupid'): https://en.wikipedia.org/wiki/File:Dunning%E2%80%93Kruger_Effect_01.svgBloggfærslan frá Asker Jeukendrup: https://www.mysportscience.com/post/oxygenated-waterHlekkur á rannsóknina: https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/19390211.2023.2203738?rfr_dat=cr_pub++0pubmed&url_ver=Z39.88-2003&rfr_id=ori%3Arid%3Acrossref.org#d1e342Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Eins má gjarnan tagga okkur á instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi eða áhugaverður. Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.
14. Doping áhættur í íþróttum & leiðir til að minnka líkur á þeim
2025/05/12
Í þessum þætti tökum við fyrir doping áhættur í íþróttum, hvað þær fela í sér og hvaða afleiðingar þær geta haft. Þá ætlum við einnig að fara yfir hvernig hægt sé að minnka líkur á því að fremja slík brot.
Við vekjum athygli á því að eftir smá bið erum við loksins búin að opna aftur fyrir skráningar á grunnnámskeiðið okkar ‘Leggðu grunninn að þinni íþróttanæringu’. Næsti hópur fer af stað 11. Júní og verður þetta jafnframt SÍÐASTI hópur þessa árs.
Ef ÞÚ ert metnaðarfullur íþróttaeinstaklingur, foreldri ungs íþróttaeinstaklings eða ert að stunda einhverskonar þjálfun t.d. hlaup, crossfit, hyrox, lyftingar eða annað þá er þetta námskeið fyrir þig.
Markmiðið með námskeiðinu er að hjálpa þér eða þínu ungmenni að leggja réttan og heilbrigðan grunn að íþróttanæringunni, svo hægt sé að hámarka afköst, flýta fyrir endurheimt, minnka líkur á meiðslum og stuðla að almennri heilsu. Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur með eftirfylgni frá íþróttanæringarfræðingi en svo hafa þátttakendur aðgang að efninu í heilt ár – þannig geta þátttakendur farið eins oft í gegnum efnið og þeir vilja og tekið sinn tíma í námskeiðið.
Akkúrat núna erum við með forskráningartilboð í gangi sem gefur þér 15% afslátt af námskeiðinu. Beinan hlekk á lendingarsíðuna finnurðu hér:
https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Eins má gjarnan tagga okkur á instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi eða áhugaverður.
Vonum að þú njótir,
-Nutreleat teymið.
13. Algeng & dýrkeypt næringartengd mistök sem við sjáum íþróttafólk gera
2025/04/03
Í þessum þætti tökum við fyrir algeng mistök sem við sjáum íþróttafólk gera og hvaða afleiðingar þau geta haft í för með sér. Við fengum líka álit frá sérfræðingum erlendis varðandi mistök sem þau sjá oft í sinni vinnu.Við erum því miður búin að loka fyrir skráningar í einstaklingsmiðaða íþróttanæringarráðgjöf fram til júní og mögulega fram til næsta hausts. EN fyrir þau sem vilja byrja að gera jákvæðar breytingar á sinni íþróttanæringu SEM FYRST erum við núna að bjóða uppá KAUPAUKA þegar þú skráir þig í áskriftarleiðina okkar í apríl eða maí. En það er aðgangur að Pre- & post-training næringarprógramminu okkar sem leiðir þig í gegnum áherslur í næringu fyrir og eftir æfingar - fyrir aukin afköst og hraðari endurheimt. Fyrir utan það geturðu nælt þér í 15% afslátt af fyrsta mánuðinum með kóðanum NTRLT15. Þú finnur skráningarhlekkinn hér að neðan:
https://www.nutreleat.is/askriftarleid-ithrottafolksinsEkki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback!Vonum að þú njótir,
-Nutreleat teymið.
12. Örþáttur: Beta alanín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & fyrir hverja er það?
2025/01/14
Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem færri kannast e.t.v. við, samanborið við kreatín - en það er afkastaaukandi fæðubótarefnið beta alanin. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Til að fá upplýsingar um ráðlagðan dagskammt, leiðbeiningar varðandi inntöku og yfirlit yfir lotuprófaðar tegundir af beta alaníni viljum við benda þér á áskriftarleiðina okkar - en þar inni finnurðu þáttinn í fullri lengd þar sem þú færð leiðbeiningar varðandi þessi atriði.Einnig færðu aðgang að yfir 100 uppskriftum og máltíðasamsetningum sem henta á mismunandi tímum yfir daginn og sem við höfum flokkað í litakóðann okkar svo þú áttir þig betur á máltíðasametningum eftir mismunandi æfingaálagi hverju sinni. Eins finnurðu þar ítarlega fræðslu um ýmis viðfangsefni íþróttanæringar og aðgang að spurt og svarað þar sem þú getur varpað fram þínum spurningum og pælingum og fengið ítarleg svör við þeim. Nánari upplýsingar finnurðu á https://www.nutreleat.is/askriftarleid-ithrottafolksinsEkki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.
11. Birna Varðardóttir: Hlutfallslegur orkuskortur í íþróttum & áhrif á frammistöðu og heilsu íþróttafólks
2024/12/23
Í þessum þætti fengum við hana Birnu Varðardóttur, doktor í íþrótta- & heilsufræðum, til okkar til að ræða um hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, hvaða áhrif hann getur haft á frammistöðu og heilsu íþróttafólks, rauð flögg sem iðkendur, þjálfarar og fagaðilar sem vinna með íþróttafólki þurfa að vera meðvitaðir um og hvaða skref er hægt að taka til að leiðrétta ástandið.Við viljum vekja athygli á því að í janúar munum við bjóða uppá ókeypis rafrænan fyrirlestur um næringu íþróttafólks sem þú vilt ekki missa af - þú getur tekið frá þitt pláss HÉR.Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.isEkki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback!Vonum að þú njótir,
-Nutreleat teymið.