1750951804
Geðveik mamma

Advertise on podcast: Geðveik mamma

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
This podcast has
26 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2024/06/07
Latest episode
2026/09/05
Average duration
41 min.
Release period
11 days

Description

Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki? Þættir um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja – eða segja ekki. Hera Guðmundsdóttir fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum: Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir. Dagskrárgerð: Hera Guðmundsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason Framleitt af Rás 1 Fyrri þættir og þáttaraðir í þessu safnvarpi: Eldflaugaförin Bein Mundi Ljóslæknirinn Land og sonur Vinur minn Germani Hold Í upphafi var myndin Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Unlock Geðveik mamma podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Geðveik mamma podcast


Geðveik mamma 3/3
2026/09/05
Hvernig höldum við að geðveikar mæður séu? Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur mæðra úr samtímanum: Sögur um fordóma og ótta en líka hreinskilni og von. Geta nýjar raddir breytt gömlum viðhorfum? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Geðveik mamma 2/3
2026/08/29
Hvernig tölum við um veikindi sem við viljum helst ekki tala um? Í þessum þætti skoðar Hera hvernig þagnir, orð og fordómar móta skilning okkar á geðsjúkdómum. Við heyrum sögur annarra geðveikra mæðra og Hera heldur áfram að reyna að fylla í eyðurnar í sögu langömmu sinnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Geðveik mamma 1/3
2026/08/22
Líf lítillar fjölskyldu á Akureyri umturnaðist einn daginn þegar ung móðir var send suður – suður á Klepp. Þegar langamma Heru var send suður á Klepp árið 1946 var amma hennar bara fjögurra ára. 80 árum síðar reyna þær í sameiningu að skilja hvað gerðist og hvers vegna enginn talaði um þetta. Í þessum fyrsta þætti tvinnast saman fjölskyldusaga, eigin reynsla Heru og spurningar um hvaða merkingu Kleppur hefur í samtímanum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í upphafi var myndin 4/4: Kunnugleg kona á bókarkápu
2026/08/15
Hver var danska konan sem var um tíma gift þeim sem af mörgum er talinn merkasti myndlistarmaður íslensku þjóðarinnar? Áður en þau fluttu til Íslands hafði hún haslað sér völl sem rithöfundur í Danmörku. Eftir að þau skildu flutti hún frá Íslandi, ferðaðist víða um lönd, varð fyrirmynd þekktrar skáldsagnapersónu, lenti í málaferlum vegna skottulækninga og átti umfangsmikinn feril á ritlistarsviðinu. Viðmælandi í þættinum er Kolbrún Kjarval, listakona. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í upphafi var myndin 3/4: Maðurinn með hauskúpuna
2026/08/08
Hvernig var hægt að finna út hver var pípureykjandi maðurinn sem geymdi mannabein í herberginu sínu? Sögð er saga af reykvískum strák úr Skólastræti sem menntaðist í læknisfræði og tungumálum og gerðist héraðslæknir í Vestur-Indíum. Viðmælandi í þættinum er Inga Lára Baldvinsdóttir, sagnfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í upphafi var myndin 2/4: Ljósmóðirin og listamennirnir
2026/08/01
Hvers vegna fór ung kona úr Vesturbænum, sem starfaði við bókhald hjá heildverslun, skyndilega til Kaupmannahafnar sumarið 1917? Hver urðu örlög hennar og hvers vegna fluttu tveir danskir listamenn til Íslands skömmu eftir seinni heimsstyrjöld? Viðmælandi í þættinum er Ari Karlsson, lögfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í upphafi var myndin 1/4: Dæmd í vændishús
2026/07/25
Rakin er saga hótelstjóradóttur sem fæddist í Hafnarstrætinu í Reykjavík. Á unglingsárum sigldi hún til Kaupmannahafnar og lenti þar á refilstigum í strætum sem mörgum þóttu býsna vafasöm. Frá Danmörku flakkaði hún til fleiri landa, tókst á við leynilegt verkefni og komst ítrekað í kast við lögin. Viðmælandi í þættinum er Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hold 3/3
2026/06/06
Í þriðja þættinum af Holdi skoðar Brynhildur nokkrar auglýsingar um offitulausnir og ræðir við sérfræðinga með ólík sjónarhorn, þær Erlu Gerði Sveinsdóttur, sérfræðilækni í offitumeðferð, Töru Margréti Vilhjálmsdóttur félagsráðgjafa og líkamsvirðingarsinna og Elínu Vigdísi Guðmundsdóttur, formann SÁTTar, samtaka um átröskun og aðrar tengdar raskanir. Lesari í þættinum er Ævar Örn Jósepsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hold 2/3
2026/05/30
Sápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og - aðgerðum. Ennfremur er fjallað um fitufordóma. ATH að í þættinum er komið inn á ýmislegt sem gæti reynst flókið fyrir þau sem hafa glímt við átröskun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hold 1/3
2026/05/26
Brynhildur tekur stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í baráttunni við ofþyngd og leitar ráða hjá konu með reynslu. Rætt er við Ragnheiði Bjarman Eiríksdóttur og lesari í þættinum er Helgi Seljan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Vinur minn Germani
2026/05/15
Þegar Jón Magni Ólafsson var ungur maður kolféll hann af einhverjum ástæðum, fyrir orgeltónlist og töfrum hennar sem minnti hann á gilin og fossana í sveitinni í Mýrdalnum. Hann hélt sérstaklega upp á plötu sem hann eignaðist 17 ára gamall með Fernando Germani, sem var organisti Péturskirkjunnar í Róm á tímum Píusar páfa (1939-1958). Þegar Germani heimsótti Ísland á áttunda áratugnum, tókst með þeim Magna óvænt, en djúpstæð vinátta sem entist allt þar til Germani lést. Þeir skrifuðust á í 25 ár um lífið, listina, mennina, illskuna, ástina og Guð. Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Land og sonur 3/3: Svo mælir Svarthöfði
2026/05/09
Indriði G. Þorsteinsson var ekki aðeins rithöfundur. Hann starfaði lengi sem blaðamaður og ritstjóri og tók virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, beitti sér í fyrirtækjarekstri og framleiðslu kvikmynda og var einn helsti skipuleggjandi hátíðarhaldanna í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Umdeildastur var hann þó sem pistlahöfundurinn Svathöfði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Land og sonur 2/3: Norðan við stríð
2026/05/02
Skáldsögur Indriða G. Þorsteinssonar gerast í samfélagi þar sem hið gamla víkur fyrir nýjum vonum og nýjum siðum. Indriða voru þessar miklu breytingar á íslensku þjóðfélagi um miðja 20. öld hugleiknar og hann speglaði þær iðulega í því samfélagi sem hann hafði sjálfur kynnst á yngri árum, sveitasamfélaginu. En hann benti líka stöðugt á að margt var bogið við það og að þrátt fyrir fegurð og yndisleika voru þjófar á ferð í paradís. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Land og sonur 1/3: Vegir liggja til allra átta
2026/04/24
Indriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og unglingsár voru mörkuð af sífelldum flutningum, mögnuðum ættingjum, hersetu og nýju lífi mölinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Ljóslæknirinn 1/1: Hinn íslenski Nóbelshafinn
2026/04/17
Árið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og vegna sérsviðs síns var hann gjarnan kallaður ljóslæknirinn. Uppruni Finsens teygir sig þó líka til Færeyja, þar sem hann fæddist, og til Íslands en á hann rætur að rekja til Íslands í föðurætt auk þess sem hann bjó hér um nokkurt skeið og lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum sem þá hét. Í aðalbyggingu Menntaskólans í Reykjavík er enn minnisvarði um námsár Finsens. Þrátt fyrir það er hann mörgum Íslendingum gleymdur og í þessum þætti verður hans minnst, fjallað um tengslin við Ísland, námsárin og afrekin á sviði læknavísinda. Umsjón: Jóhannes Ólafsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Podcast reviews

Read Geðveik mamma podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Geðveik mamma relevant audience podcasts


What do you want to promote?