1773278201
Auðnast

Advertise on podcast: Auðnast

Rating
★★★★★
5
from
2 reviews
This podcast has
34 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2024/10/10
Latest episode
2026/10/02
Average duration
45 min.
Release period
27 days

Description

Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi. Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja: - skilja eigin líðan og samskipti betur - takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð - byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl - sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd. Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.

Unlock Auðnast podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Auðnast podcast


þegar gervigreindin mætir í vinnuna, hvað verður um okkur?
2026/10/02
Ragnhildur og Hrefna ræða hvað gerist innra með fólki þegar gervigreind kemur inn á vinnustaðinn. Sama breyting getur vakið létti og forvitni hjá einum en óöryggi og ótta hjá öðrum. Þær skoða einnig hvernig óvissa um framtíð starfsins getur haft áhrif á faglega sjálfsmynd, hvers vegna fólk þarf að upplifa að það hafi áfram rödd og áhrif og hvað gerist þegar gervigreind verður ráðgjafi sem er alltaf sammála okkur. Áherslan er á sálfélagslegt öryggi, mannleg samskipti og hlutverk stjórnenda í breytingum sem enginn sér alveg fyrir endann á.
Erfið samskipti og áhrif þeirra
2026/09/15
Erfið samskipti eru ekki bara óþægileg heldur líka orkufrek. Við skoðum ólíkar útgáfur af erfiðum samskiptum og hvernig þau hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Við rýnum í rannsóknir og kynnum gagnleg ráð þegar samskipti reyna á.
Fjarvistir á vinnustað
2026/06/15
Fjarvistir eru ekki bara kostnaður. Þær eru skilaboð.Í þessum þætti skoðum við hvað fjarvistir og óheilbrigð viðvera geta sagt okkur um menningu, stjórnun og sálfélagslegt öryggi á vinnustaðnum. Við veltum því einnig fyrir okkur hvers vegna stærsta vandamálið er stundum ekki hverjir eru frá vinnu, heldur hverjir mæta og líður ekki vel.
Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum
2026/05/13
Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki. Við skoðum hvað gerist þegar nándin dofnar hægt og rólega, hvers vegna pör detta úr takti og hvernig daglegt álag, samskiptamynstur og óuppfylltar þarfir geta skapað fjarlægð. Við ræðum hvað rannsóknir segja um tengsl og öryggi í samböndum og hvað hjálpar pörum að finna taktinn á ný. Þátturinn er fyrir öll sem hafa einhvern tímann spurt sig: "Verður þetta bara svona?" og fyrir þau sem eru í vangaveltu um hvort þau séu að ganga í gegnum tímabundna fjarlægð í sambandinu eða hvort þau séu jafnvel komið á endastöð.
Stjórnun í breytingum: Að leiða í gegnum óvissu og krefjandi tíma
2026/04/27
Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um öryggi breytist, hvaða mistök stjórnendur gera gjarnan og hvað rannsóknir segja um traust, skýrleika, sýnileika og samkennd í stjórnun. Þátturinn er fyrir stjórnendur, mannauðsfólk og alla sem vilja skilja betur hvernig hægt er að skapa öryggi, halda utan um teymi og leiða á mannlegan hátt. Heimildir: Bakker & Demerouti: Job Demands-Resources Model Amy Edmondson: Psychological Safety, Harvard Business School, Dan Siegel: Interpersonal Neurobiology Brené Brown: Dare to Lead
Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað
2026/03/24
Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð. Við ræðum: Er kulnun stundum misskilin sem skortur á þrautseigju? Eru stjórnendur gerðir ábyrgir fyrir líðan starfsfólks? Hvers vegna eru konur ekki teknar jafn alvarlega í ágreiningi? Hvað á stjórnandi að gera þegar virðing fyrir starfsmanni hverfur? Heiðarlegur og einlægur þáttur um flókin mál.
Einelti og óheilbrigð samskipti á vinnustað
2026/02/23
Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á ágreiningi og einelti, ræða valdaójafnvægi og mynstur í samskiptum og skoða hvaða þættir í menningu og stjórnun geta ýtt undir eða dregið úr áhættu. Að lokum fara þær yfir hvað er hægt að gera þegar mál koma upp og hvaða forvarnir Skipta mestu máli.
Reiði – ógn eða leiðarvísir?
2026/02/02
Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af hverju hún situr svona lengi í okkur. Við skoðum fræðin og hagnýt skref til að vinna með reiði á uppbyggilegan hátt. https://www.harrietlerner.com/ https://hbr.org/2013/11/emotional-agility https://drdansiegel.com/
Hamingja í vinnu - Markmið eða óraunhæf krafa?
2026/01/27
Hvað þýðir hamingja í vinnu og ertu með raunhæfar væntingar um hamingju? Við skoðum bæði mannlega og fræðilega sjónarhornið og veltum því fyrir okkur hvort hamingja sé frekar orðin krafa en markmið. Við skoðum hvað vísindin segja og kynnum praktískt verkfæri bæði fyrir einstaklinga og stjórnendur. https://skemman.is/handle/1946/40537 https://www.mdpi.com/2076-3387/15/9/351
Sjálfstraust
2026/01/02
Hvað er raunverulegt sjálfstraust? Í þessum þætti ræðum við hvað sjálfstraust er, hvernig það mótast og hvernig það getur birst í ólíkum myndum - bæði heilbrigðum og óheilbrigðum. Við skoðum sjálfstraust út frá sálfræðinni, tengslamyndun, fjölskyldumynstrum og lífeðlisfræðinni, með það að markmiði að hjálpa þér að þekkja sjálfstraustið þitt og efla það á heilbrigðan hátt.
Allt sem þú þarft að vita fyrir aðventuna
2025/12/05
Í þessum þætti ætlum við að vera á ljúfu og léttu nótunum - Við förum yfir væntingar, tenglslamyndun og könnum hvers konar aðventutýpa þú ert. Að lokum förum yfir við nokkur atriði sem undirbúa taugkerfið þitt fyrir komandi vikur. Ef þu vilt gera aðventuna enn betri, hlustaðu þá á þennan þátt því hinn raunverulegi undirbúningur hefst með því að virkja sefkerfið.
Ágreiningur - allt sem þú þarft að vita
2025/11/27
Ef þú vilt skilja ágreining þá er þetta þáttur fyrir þig. Við rýnum í hugtakið, skoðum hvers vegna hann vekur svona sterk viðbrögð og hvernig við getum farið úr forðun yfir í færni. Við ræðum ágreining í vinnu, parsamböndum, vináttu og upprunafjölskyldu og förum yfir hvað er algengast að fari úrskeiðis. Við fyllum á verkfærakassann með hagnýtum aðferðum - meðal annars hvernig er best að bregðast við óvæntum ágreiningi. Þátturinn er fyrir öll sem vilja eiga heiðarlegri, hlýlegri og skýrari samskipti – hvort sem er heima fyrir, í vinnu eða í mikilvægum samböndum.
Hver er þinn fjölskylduarfur? Sagan sem mótar samböndin okkar
2025/11/05
Ef þú vilt skilja þig og þín sambönd betur – skaltu hlusta. Í þessum þætti skoðum við hvernig sagan okkar og tengsl í barnæsku hafa áhrif á samskipti og heilsu á fullorðinsárum. Við skoðum líka hvernig gömul mynstur frá fyrri kynslóðum og tilfinningakerfi fjölskyldunnar móta viðbrögð okkar og hafa áhrif bæði á ástarsambönd sem og önnur sambönd í þínu lífi. Lesefni: https://www.amazon.com/Love-Never-Enough-Misunderstandings-Relationship/dp/0060916044 https://www.thebowencenter.org/introduction-eight-concepts
Frá innri ró til ytri áhrifa: sjö lykilþættir í leik og starfi
2025/10/24
Við förum yfir sjö hæfniþætti sem gott er að tileinka sér bæði í leik og starfi. Sum vilja kalla þetta mjúka hæfileika – okkur finnst þetta vera mikilvægu hæfileikarnir. Hlustaðu á þáttinn og kannaðu hvort það liggi sóknartækifæri hjá þér.
Bjargráð: Lausnamiðuð, tilfinningaleg og minna gagnleg
2025/10/01
„Bjargráð eru ekki töfrabrögð – þau eru verkfæri. Í þesstum þætti förum við yfir tilfinningamiðuð, lausnamiðuð og minna gagnleg bjargráð, og tölum heiðarlega um það hvernig kynslóðararfurinn og karaktereinkenni hafa áhrif.

Podcast reviews

Read Auðnast podcast reviews


5 out of 5
2 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Auðnast relevant audience podcasts


What do you want to promote?