
Advertise on podcast: Moldvarpið
This podcast has
22 episodes
Language
EnglishPublisher
MoldvarpiðExplicit
No
Date created
2024/12/04
Latest episode
2026/02/26
Average duration
76 min.
Release period
30 days
Description
Hlaðvarp um íslenska fornleifafræði. Fornleifafræðingarnir Arthur Knut Farestveit og Snædís Sunna Thorlacius fjalla vítt og breitt um íslenskar fornleifar, minjar og menningarsögu. Í hverjum þætti er ákveðið viðfangsefni tekið fyrir og sett í samhengi við samtímann, bæði fornleifanna og fornleifafræðinganna. Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði. Upptökur og hljóðvinnsla: Sindri Snær Thorlacius Þemalag: Gísli Magnús Torfason og Helga Ágústsdóttir Logo: Sigtýr Ægir Kárason Hljóðbrot: Safn RÚV
Unlock Moldvarpið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Moldvarpið podcast
21. Lög og regla II
2026/02/26
Í þessum seinni hluta umfjöllunar okkar um minjar réttarkerfisins skoðum við nokkur dæmi um afleiðingar dóms og laga í fornleifum. Hvað skilur útilegumannahelli frá öðrum hellum? Hvað voru margir teknir af lífi á Íslandi og fyrir hvað? Og hvað í andskotanum var Erfðahyllingin?
Arthur segir frá sniðugum útlaga í Eldvörpum og Snædís fjallar um 18. aldar morðmál sem tengist bæði Árbæjarsafni og Kópavogslæk. Útilegumenn, afturgöngur, sifjaspell og aftökur - hvað er hægt að biðja um meira?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
Þetta er síðasti þáttur Moldvarpsins í bili. Við þökkum fyrir samfylgdina - þangað til næst!
20. Lög og regla I
2026/02/19
Hvers vegna eru lög og regla? Þessi fyrri hluti umfjöllunar okkar um minjar réttarkerfisins fjallar um þing og þingminjar. Við lærðum flest í grunnskóla að örfáir karlar úr efri stétt hittust á þingum til að semja lög og fella dóma sem síðan rötuðu á skinnhandrit sem mörg eru enn varðveitt í dag. En fyrir utan handritin, hvaða minjar skilja þessir fundir eftir sig? Hvað er dómhringur? Og hvar í ósköpunum var Lögberg??
Arthur fer yfir hvernig goðorð virkuðu og hvernig kerfið var dauðadæmt frá byrjun en Snædís talar um dularfullt samband vatns og þingstaða. Þau fá síðan bæði hausverk við að reyna að greiða úr ráðgátu um sérstaklega dularfullan hól á Þingvöllum.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
19. Klaustur á Íslandi II
2026/02/12
Í þessum seinni hluta umfjöllunar okkar um klaustur á Íslandi kíkjum við austur í Fljótsdal og förum yfir rannsóknina á Skriðuklaustri sem er eina klaustrið sem grafið hefur verið upp og rannsakað í heild sinni. Hvað fannst í rústum klaustursins? Hvað segja fornleifarnar okkur um starfsemi klaustra á Íslandi? Hvað fannst í klausturgarðinum sem kom öllum á óvart?
Snædís fjallar um fornar lækningaraðferðir sem innihalda refagall, töfrasteina og að sleikja tær. Arthur tjáir sig um vonbrigðin sem fylgja því að finna reiknimyntir. Rætt um fjölbreytt notagildi kvikasilfurs, kapellu á móti álverinu í Straumsvík og besta hlaðborð landsins.
ATH! Fyrir viðkvæma: smá grafísk umræða um líkamsleifar, sjúkdóma, áverka og beinagrindur frá 37:53 - 59:34
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
18. Klaustur á Íslandi I
2026/02/05
“Ora et labora” er mottó þessa fyrri hluta okkar um klaustur á Íslandi og helstu rannsóknir á þeim. Klausturtími Íslands var frá 1030 – 1554 (anno domini) eða heil 524 ár og því af nógu að taka! Hvað er klaustur og hvað fer þar fram? Voru klaustur á Íslandi frábrugðin öðrum klaustrum? Hvernig tengjast rómverskir flísaleggjarar íslensku messuhaldi? Og hvað í ósköpunum eru tveir hlutar fjórðungs smjörs mikið?
Hollenskur biskup stígur á land í Viðey með vaxtöflur og Gleraugna-Pétur smíðar kamar í kirkjugarði. Snædís segir okkur frá Kirkjubæjarklaustri og valdeflandi nunnu sem gerði nákvæmlega það sem henni sýndist. Arthur segir frá upplifun sinni við að leita að klaustri á Þingeyrum þar sem hann fann aðallega ullarsokka og bíldekk.
Hljóðið fyrstu 6 mínúturnar er smá slæmt en er gott restina af þættinum.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
17. Bergþórshvoll II
2026/01/29
Í þessum seinni hluta höldum við áfram þar sem frá var horfið um fornleifarannsóknir á Bergþórshvoli og á Njáluslóðum.
Hvað fann Kristján Eldjárn á Bergþórshvoli? Hvernig líta brunarústir út eftir 1000 ár? Svífur andi Hallgerðar langbrókar yfir Sæbrautinni? Mjaltakollur og fjósaskófla Njáls og Bergþóru. Gunnar á Hlíðarenda, Hjörtur bróðir hans og flottasti servíettuhringur Íslandssögunnar. Eru skilaboð Njálu þau að þeirra bíða hræðileg örlög sem hvorki hlusta á né virða konur?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
16. Bergþórshvoll I
2026/01/22
Við tökum af skarið í þessum þætti! Í þessum fyrri hluta umfjöllunar okkar um fornleifarannsóknir á Bergþórshvoli förum við um víðan völl. Stóra spurningin er: hafa fundist vísindalegar sannanir sem styðja frásögn Brennu-Njáls sögu og ef svo, hverjar?
Arfasátan alræmda og ummerki hennar. Hringadróttinshornið auðvitað á sínum stað. Rúnaprik með galdri og fornrómverskt meme koma við sögu. Langir starfstitlar og enn lengri greinatitlar. Fermingarveisla á Bergþórshvoli og að toppa of snemma. Hvern talarðu við ef þig vantar efnafræðing, nú hæstaréttardómara auðvitað! Hvað er sofnhús? Fannst skyrið sem Bergþóra sletti steingert í jörðu á Bergþórshvoli? Hvað er mýrarsmjör og er það gott á bragðið?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
15. Kristnitakan II
2026/01/15
Við höldum áfram umfjöllun okkar um upphaf kristni í landinu og ræðum um nokkrar af elstu kirkjum og kirkjugörðum sem fundist hafa á Íslandi. Ræðum einnig um gripi sem benda til mögulegrar blöndunar á kristnum og heiðnum sið og reynum svo að draga þetta allt saman í lokin. Hver eru tengsl guðshúsa við smiðjur? Hversu hröð var kristnitakan? Hvað geta elstu kirkjugarðarnir sagt okkur um samfélag miðalda?
Fundvísasti bóndi landsins, Arthur vill finna gröf Egils, lúxus strokleður í Reykholti, Þór eða Jesús eða garðálfur?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
14. Kristnitakan I
2026/01/08
Við færum okkur úr heiðnum sið yfir í kristinn. Þorgeir ljósvetningagoði lagðist undir feld á Alþingi árið 1000 en þegar hann kom undan honum var Ísland orðin kristin þjóð. Var atburðarás kristnitökunnar virkilega svona einföld eða var eitthvað meira og flóknara í gangi? Geta fornleifar varpað ljósi á kristnitökuna? Hverjar eru elstu kirkjur landsins sem fornleifafræðingar hafa fundið? Eru til kirkjur frá því fyrir kristnitöku?
Afskiptasemi Noregskonunga í 1000 ár, mikilvægi þess að snúa rétt á dómsdegi, mikið rætt um kirkjugarða…veggi..nei..garða!
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
13. Hof og heiðinn átrúnaður III
2026/01/01
Í þriðja hluta umfjöllunar okkar um hof og heiðinn átrúnað fjöllum við um einn mest rannsakaða fornleifastað Íslands, Hofstaði í Mývatnssveit. Var þar ósköp venjulegt heimilishald á 10. öld eða fóru þar fram blót og fórnarathafnir? Nautshöfuðkúpur, kúluskítur og eggjaskurnir. Voru Mývetningar til forna frumkvöðlar í vistvænni sjálfbærni? Hvernig skarast heiðinn og kristinn siður á Hofstöðum og af hverju er staðurinn ekki nefndur í neinum fornum heimildum?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
12. Hof og heiðinn átrúnaður II
2025/12/25
Í öðrum hluta umfjöllunar okkar um hof og heiðinn átrúnað skoðum við tvo staði sem mögulega tengjast heiðnum trúarathöfnum. Hvaða dularfullu atburðir áttu sér stað inni í Surtshelli? Var hlið milli tveggja heima á Höfn í Hornafirði? Lögreglan notar hunda til að þefa upp fíkniefni, en hvað með fornleifar? Arthur mætir aftur með Hringadróttinshornið, Snædís elskar að tala um hella. Hvernig kemur Halldór Laxness inn í þetta?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði.
11. Hof og heiðinn átrúnaður I
2025/12/18
Fyrsti hluti af þremur um hof, heiðinn sið og þær fornleifar sem tengja má við trú og hugarheim fólks fyrir tíma kristni.
Í þessum hluta einbeitum við okkur mest að rituðum heimildum um hofbyggingar og lýsingar á þeim athöfnum sem sagðar eru hafa gerst í og við hofin. En í lok þáttar fjöllum við um Rútshelli sem sagður var vera Óðinshof og “rannsókn” á honum.
Hvað er hof? Voru þau til á Íslandi? Eru örnefni eins og Hofsstaðir eða Hofsós vísbending um að þar hafi staðið heiðin hof fyrir kristnitöku?
Hvernig tengjast ofbeldisfullt morð á Kjalarnesi, IKEA húsgögn og Biblíusögur?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasj´óði
10. Leitin að Pöpunum II
2025/12/11
Seinni hluti af umfjöllun okkar um Papana, víðförlu írsku einsetumunkana sem ferðuðust um Atlantshafið. Hverjar eru bestu vísbendingar sem fornleifafræðingar hafa fundið um Papa á Íslandi?
Hvar er betra að leita Papa en einmitt í Papey? Arthur talar um áratuga langa rannsókn í Papey. Voru Papar í Færeyjum? Snædís kynnti sér kindaspörð úr vatnaseti í Færeyjum til að varpa ljósi á málið. Brjóst (já þannig brjóst) koma óvænt við sögu. Ágreiningur um baðker. Einnig segjum við frá háskalegri tilraun bresks ævintýramanns til að sannreyna hvort írskir munkar gátu siglt um höfin á skinnbátum.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
9. Leitin að Pöpunum I
2025/12/04
Fyrri hluti af umfjöllun okkar um Papana, víðförlu írsku einsetumunkana sem ferðuðust um Atlantshafið. Íslendingabók og önnur forn rit staðhæfa að Papar hafi verið á Íslandi þegar norræna landnema rak á fjörur, en eru til fornleifafræðilegar sannanir fyrir veru þeirra á Íslandi? Og ef svo, hverjar? Hvar hafa fornleifafræðingar leitað þá uppi? Er hægt að treysta á ritheimildirnar eða er maðkur í mysunni? Byggðu Papar sér hús eða bjuggu þeir í hellum?
Umfjöllun hefst frá 11:33 en fram að því spjöllum við um hvað hefur á daga okkar drifið frá síðasta þætti.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
8. Steinkista Páls biskups: Demba, djásn og dýrlingar
2025/01/23
Steinkista Páls Jónssonar Skálholtsbiskups (d. 1211) var talin goðsögn eða með öllu týnd þar til hún fannst óvænt við fornleifarannsókn í Skálholti 1954.
Hver var Páll biskup? Af hverju var hrúga af brenndum beinum í kistunni? Af hverju að grafa sig í 730 kg steinhnullungi? Hvernig týnist eða gleymist slík gröf? Snædís reynir að reikna út hvað bygging grafhýsis kostaði á 13. öld. Arthur verður að fá svör við því nákvæmlega hversu mikið af heilögum Þorláki var komið fyrir í heilaga Þorláksskríninu. Þessar vangaveltur og margt margt fleira í þessum þætti Moldvarpsins!
Það er "fullkomlega egypzk stemming" í þessum þætti svo komið ykkur vel fyrir, heyrnatól í eyrun og popp í skál. Njótið!
Moldvarpið fer eftir þennan þátt í pásu í einhvern tíma en við komum vonandi bráðlega aftur með brakandi fornt efni fyrir ykkur.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði.
7. Grænland og Ameríka II: Heppni og harmleikur
2025/01/16
Í sjöunda þætti Moldvarpsins fjöllum við um Ingstad hjónin, hvernig þau fundu húsarústir norrænna landnema í L'Anse aux Meadows, Kanada og hvað fornleifarnar segja okkur um þetta ævintýranlega tímabil í mannkynssögunni. En af hverju gáfust víkingarnir upp á Ameríska draumnum?
Aftur til Grænlands. Hvað ef að heill fataskápur af kjólum og höttum væri settur í frystikistu í 600 ár? Hvað með heilan bóndabæ? Af hverju hvarf norræna nýlendan á Grænlandi? Lirfur? Átök við Inúíta? Eða bara ísköld hagfræði? Af hverju tók enginn eftir því að hún hvarf?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði.
Podcast reviews
Read Moldvarpið podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Moldvarpið relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.8423184
Bit Season
Audacy

5271797
Receta Del Exito con Alex Dali Rizo
Alex Dali Rizo

4.9165373
Just Go Grind
Justin Gordon

4.6196796
Professor Buzzkill History Podcast
Joe Coohill

5204269
OLF Podcast
OLF Podcast

4.1942832
Rich and Weekly
Wondery

4.2200197
Cheating: When Love Lies
LiveOne

4.8211104
Gin & Toxic With Christina And Lily
Christina Harris and Lily Stewart

4.8113468
Scarred For Life
Scarred For Life

4.689211
Changes with Annie Macmanus
Annie Macmanus