1808485981
Sjókastið

Advertise on podcast: Sjókastið

Rating
★☆☆☆☆
1
from
1 reviews
This podcast has
28 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2025/04/14
Latest episode
2026/06/02
Average duration
77 min.
Release period
19 days

Description

Sjókastið er hlaðvarp sem tengir sig við hafið með lifandi hætti, stýrt af Aríel Péturssyni, formanni Sjómannadagsráðs.

Unlock Sjókastið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Sjókastið podcast


#28 Anna Kristjánsdóttir - vélstjórinn þjóðþekkti
2026/06/02
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel Pétursson við Önnu Kristjánsdóttur, vélstjóra, sjómann, pistlahöfund og eina þekktustu samfélagsrödd Íslands. Anna segir frá uppvextinum, árunum á sjónum, starfinu sem vélstjóri og fjölskyldulífinu áður en hún steig fram og hóf eitt eftirtektarverðasta persónulega ferðalag sem íslenskt samfélag hefur orðið vitni að. Við ræðum um lífið á sjó, fjölskylduna, innri togstreitu, samfélagsbreytingar, Tenerife-árin, vinsæla pistla hennar og hvernig húmor, sjálfshæðni og mannleg samskipti geta stundum brúað stærri gjár en pólitískar umræður. Einlægt, hreinskilið og mannlegt viðtal um líf sem fáir hafa lifað en margir geta lært af. Sjókastið er hlaðvarp um fólk hafsins, lífssögur, samfélag og sjávarútveg.
#27 Gísli Jóhann Hallsson - yfirhafnsögumaður
2026/05/26
Hvað þarf til að taka við stjórninni þegar stærstu skip heims sigla inn á íslenskar hafnir? Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Gísla Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumann Faxaflóahafna, manninn sem hefur það hlutverk að leiða risaskip óhult inn til hafnar. Gísli segir frá leiðinni inn í starfið, ábyrgðinni sem fylgir því að taka ákvarðanir undir mikilli pressu og hvernig það er að stíga um borð í erlend skip og taka við leiðsögninni þegar ekkert má fara úrskeiðis. Við ræðum skemmtiferðaskipin, öryggismál, veður, strauma, tæknibreytingar og hvað getur farið úrskeiðis þegar skipaumferð verður sífellt stærri og flóknari. Einnig ræðum við stöðu íslenskra hafna, hafnastefnu landsins og hvort við séum nægilega undirbúin fyrir framtíðina. Þáttur um sjóinn, ábyrgð, tækni og manninn sem þarf að halda ró sinni þegar mest reynir.
#26 Jón Steinar Árnason - áhættusækni skipstjórinn og frumkvöðullinn
2026/04/28
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Steinar – skipstjóra, útgerðarmann og frumkvöðul sem hefur tekið stóra slagi, unnið mikla sigra en jafnframt tekið dýfur og alltaf lent á fótunum aftur. Hann ólst upp á Seyðisfirði, fór ungur á sjó og mótaðist snemma af hörðum veruleika sjómennskunnar. Leiðin lá á Gullfoss, í stýrimannaskólann og áfram í skipstjórn þar sem ábyrgðin var algjör. En sagan stoppar ekki þar. Jón fór út í viðskipti af krafti, byggði upp eignir og rekstur – og lét ekki þar við sitja heldur stofnaði flutningaskipafélag í beinni samkeppni við stærstu aðila á markaðnum. Á leiðinni hefur hann upplifað það sem fæstir gera: orðið efnaður, tapað miklu, byggt sig upp aftur – og tekið áhættur sem hefðu getað farið verr. Hann segir frá skipi sem sökk undan honum og þeim augnablikum þegar allt hangir á bláþræði. Einnig fer hann yfir viðskiptaævintýri bæði hér heima og erlendis, þar sem reglurnar eru allt aðrar og leikurinn oft harðari. Þetta er saga manns sem hefur siglt í gegnum allar brælurnar sem lífið lífið hefur upp á að bjóða – og flýtur enn. Sjókastið – sögurnar af sjónum og fólkinu sem lifir þær.
#25 Hörður Kjartansson – húsvörður á daginn, bjargvættur á kvöldin
2026/04/15
Hörður Kjartansson er einn af þessum mönnum sem halda samfélaginu gangandi án þess að berja sér á brjóst Í áratugi starfaði hann sem húsvörður hjá Hrafnistu og Sjómannadagsráði – þar sem hann varð fljótt þekktur sem maðurinn sem vissi allt, gat lagað allt og sagði aldrei nei. Hann náði einstöku sambandi við íbúa hjúkrunarheimilisins og var hvers manns hugljúfi, en á bak við hlýjuna leyndist líka uppátækjasamur hrekkjalómur og ótal sögur sem lifa enn í veggjum staðarins. Samhliða þessu var Hörður í áratugi virkur í björgunarsveitastarfi, meðal annars sem skipstjóri á björgunarskipi. Þar hefur hann staðið í erfiðum aðgerðum, farið út í aðstæður sem flestir myndu forðast og tekið þátt í að bjarga mannslífum þegar mest á reynir. Í þættinum ræðum við lífið á hjúkrunarheimili, hvað það kennir manni að vinna með fólki á síðari stigum lífsins, menninguna og húmorinn sem heldur hlutunum gangandi – og svo hina hliðina: sjóbjörgun, hættuna, adrenalínið og ábyrgðina. Við förum líka inn í erfiðasta kafla lífs hans, þegar hann veiktist alvarlega og var kominn við dauðans dyr og hvernig hann náði sér aftur á strik. Þetta er þáttur um mann sem hefur bæði haldið utan um daglegt líf annarra og staðið í fremstu víglínu þegar á reynir.
#24 Gaui „Smái“ Hafsteinn – stökk í ískaldan sjó til að bjarga flugmanni
2026/03/09
Í þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með sjómanninum Guðjóni Hafsteini Guðmundssyni, eða Gauja smáa, sem byrjaði aðeins 14 ára gamall til sjós og á að baki nær fjörutíu ára feril á íslenskum togurum. Guðjón segir frá fyrstu ferðinni sem messagutti á Gullfossi, lífinu á síðutogurunum, hvernig menn gátu farið þrisvar á kaf á einni vakt, og þeirri miklu byltingu sem varð þegar skuttogararnir komu til sögunnar. Í þættinum rifjar hann einnig upp magnað björgunarafrek á togaranum Vigra, þegar lítil flugvél hrapaði í sjóinn. Í þriggja stiga kulda batt hann kaðal um sig, stökk í sjóinn og synti að flugmanninum til að bjarga lífi hans. Við ræðum líka fjölskylduna, bakland sjómannsins, missi og nýtt lífsskeið, og hvað það er sem raunverulega gerir mann að góðum sjómanni. Þetta er saga um hugrekki, sjómennsku og líf sem mótaðist af hafinu.
#23 Frosti Logason - alltaf á móti straumnum
2026/02/09
Í þessum þætti ræðir Aríel við Frosta Logason, rokkara, fjölmiðlamann og hlaðvarpsstjórnanda sem hefur orðið ein umdeildasta rödd íslenskrar samfélagsumræðu á síðustu árum. Farið er yfir lífshlaup Frosta; fjölmiðlaferil hans, trúleysið og síðar meir trúrækni, menningardeilur samtímans og sjómennskuna sem Frosti hellti sér út í og togar alltaf í hann. Þetta er opið, persónulegt og krefjandi samtal þar sem leitað er að því sem liggur undir yfirborðinu.
#22 Sigurður Jökull - talsmaður skemmtiferðaskipa
2026/01/27
Skemmtiferðaskipin eru eitt umdeildasta mál íslenskrar ferðaþjónustu. Gullnáma eða ágangur? Í þessum þætti af Sjókastinu ræðum við við Sigurð Jökul, lobbyista skemmtiferðaskipabransans á Íslandi. Við förum yfir stærð greinarinnar, efnahagsleg áhrif, álag á hafnir og samfélög – og spyrjum stóru spurninganna um ábyrgð, umhverfi og siðferði. Hversu miklu skila skemmtiferðaskipin raunverulega til þjóðarinnar? Eru hafnir og innviðir að bera kostnaðinn? Hvað með kolefnisspor skipanna og loftgæði í höfnum? Beint samtal um hagsmuni, reglur, gagnrýni og framtíð skemmtiferðaskipa við Íslandsstrendur. Sjókastið – þar sem hafið og samfélagið mætast.
#21 Kári Stefánsson - Óþægilega heiðarleigi vísindamaðurinn
2026/01/13
Kári Stefánsson í Sjókastinu – kjaftshögg, húmor og kaldur sannleikur Í þessum þætti fáum við Kára Stefánsson í eitt beittasta og skemmtilegasta viðtal sem við höfum tekið í Sjókastinu. Við förum vítt og breitt og stingum á ýmis kýli  en alltaf með húmorinn og heiðarleikann í forgrunni. Við ræðum meðal annars: af hverju Kári „býður fólki reglulega upp á kjaftshögg“ í umræðunniskoðanir hans á sjávarútvegi og sjómönnumhvers vegna hann nennir ekki kurteisisleik þegar sannleikurinn er í húfiog hvernig hann sameinar skarpa greiningu, óbilandi réttlætiskennd og sprenghláturÞetta er þáttur fyrir þá sem þola ekki sykurhúðun – og kunna að meta hreina umræðu.
#20 Reynir Traustason - umdeildi blaðamaðurinn af sjónum
2025/12/16
Krassandi viðtal við Reyni Traustason í Sjókastinu. Reynir er sjómaður að upplagi sem fór inn í blaðamennsku af fullum þunga og hefur lifað lífi sem minnir fremur á skáldsögu en ferilskrá. Í viðtalinu ræðum við meðal annars: þegar hann smyglaði amfetamíni frá Amsterdamhótanir og átök vegna blaðamennskureynslu hans af lífsbjörg á sjórithöfundastörf og lífsviðhorfhvernig sjómennska mótar karakter og dómgreindÓritskoðað, hreinskiptið og stundum óþægilegt – eins og góð viðtöl eiga að vera.
#19 Hanna Katrín atvinnuvegaráðherra
2025/11/26
Í þessum þætti tekur Aríel á móti Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Við ræðum persónulega reynslu hennar og förum svo beint í stærstu hitamál sjávarútvegsins: • hækkun veiðigjalda og áhrif þeirra á smærri fyrirtæki • hvort auknar álögur dragi úr fullvinnslu og störfum á Íslandi • fiskeldi – þjóðhagslegur ávinningur strax eða í fjarlægri framtíð? Beinskeyttur og upplýsandi þáttur fyrir þá sem vilja kafa í raunveruleg áhrif stefnumótunar á sjávarútveg og samfélag.
#18 Þór Sigfússon - Guðfaðir Sjávarklasans
2025/11/13
Þór Sigfússon hefur gegnt lykilhlutverkum í íslensku viðskiptalífi allt frá því að stýra Verzlunarráði og Sjóvá yfir í að stofna og leiða Íslenska sjávarklasann. Í þessum þætti ræðum við líf hans og leiðir, hugmyndina um „100% nýtingu“ sjávarauðlinda og hvernig samstarf, tengslanet og nýsköpun geta umbreytt heilli atvinnugrein. Við förum líka inn í manneskjuna sjálfa. Hvað drífur hann áfram og hvaða lærdóma hann hefur dregið frá árunum í viðskiptum og frumkvöðlastarfi. Hefur klasinn í raun skilað þeim árangri sem stefnt var að? Og hvað þarf að breytast til að sjávarútvegurinn verði fyrirmynd hringrásarhagkerfis framtíðarinnar?
#17 Jón Frímann Eiríksson - skipstjórinn kornungi
2025/10/21
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Frímann Eiríksson, skipstjóra sem hóf feril sinn ungur og hefur alla tíð lifað og andað fyrir sjómennsku. Jón Frímann segir frá fyrstu árum sínum á sjó, ábyrgðinni sem fylgir því að stýra skipi og þeirri sýn sem hann hefur mótað á lífið og tilveruna úti á hafi. Þeir ræða einnig um hvernig breyttir umhverfisþættir hafa áhrif á lífríki sjávar — og hvernig gervigreind og ný tækni gæti í framtíðinni orðið nytsamleg við fiskleit og ákvarðanir til hafs.
#16 Vilhjálmur Birgisson - Baráttumaður af Skaganum
2025/10/07
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel Pétursson við Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness. Vilhjálmur hefur lengi verið einn skýrasti og beinskeyttasti talsmaður launafólks á Íslandi — maður sem hikar ekki við að segja hlutina eins og þeir eru. Í þættinum fer Aríel með Vilhjálmi yfir lífshlaup hans, baráttu fyrir réttlæti á vinnumarkaði og hvernig uppeldi og reynsla úr sjávarplássi mótaði sýn hans á samfélagið. Þeir ræða stöðu sjómanna, kjarasamninga, launajafnrétti, verðbólgu og ábyrgð stjórnvalda — og spyrja hvort stéttabarátta dagsins í dag sé sú sama og áður. Beinskeyttur, persónulegur og á köflum hvass þáttur sem lætur engan ósnortinn. Hlustaðu á Sjókastið á Spotify og YouTube
#15 Pétur Jakob Pétursson - svissneski vasahnífur sjávarútvegsins
2025/09/30
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Pétur Jakob Pétursson, fyrrum sjómann og margfróðan sjávarútvegsfræðing sem ólst upp í Grímsey og á að baki langa reynslu á sjó og í sjávarútvegi. Við förum yfir æskuárin á eyjunni, störf hans hjá Samherja og hvernig hann sér íslenskan sjávarútveg í samanburði við erlendan. Einnig ræðum við sóknarfæri í veiðum, vinnslu og tækni, viðkvæm mál eins og auðlindagjöld og samskipti við viðskiptaþjóðir – og ekki síst, hvort hann sakni þess að vera sjálfur úti á sjó.
#14 Guðrún Hafsteinsdóttir - Formaður Sjálfstæðisflokksins
2025/09/23
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, sest niður í Sjókastinu. Við ræðum persónulega hlið hennar sem sjómannsfrú, fjölskylduna, reynsluna úr atvinnulífinu og starfið í ráðherrastól. En við förum líka í stóru pólitísku málin: klofinn flokk, landamærin, veiðigjöldin, brennivín í búðir og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn getur endurheimt tiltrú almennings. Opinskátt og persónulegt spjall sem veitir innsýn í konuna sem leiðir XD – og framtíð stærsta flokks Íslands.

Podcast reviews

Read Sjókastið podcast reviews


1 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Sjókastið relevant audience podcasts


What do you want to promote?