
Advertise on podcast: Aldrei las ég Laxness
This podcast has
11 episodes
Language
IcelandicPublisher
RÚV HlaðvörpExplicit
No
Date created
2026/02/20
Latest episode
2026/10/21
Average duration
64 min.
Release period
25 days
Description
Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð og ræða með góðum gestum. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson Grafík: Silvía Sif Ólafssdóttir Framleidd fyrir Rás 1 Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Unlock Aldrei las ég Laxness podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Aldrei las ég Laxness podcast
Íslandsklukkan
2026/10/21
Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hún hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf og makkeringar Snæfríðar Íslandssólar en fer einnig ofan í saumana á handritasöfnun Arnasar Arneusar. Gestur klúbbsins að þessu sinni er Sandra Barilli, leikkona og skemmtikraftur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
07: Heimsljós II
2026/10/07
Heimsljós er stórvirki sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940 og fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Í þessum seinni þætti um verkið ræðum við Bára Gísladóttir, tónskáld, um seinni bindin tvö 3. Hús skáldsins 4. Fegurð himinsins.
Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið.
Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
06: Heimsljós I
2026/09/17
Heimsljós er stórvirki sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940 og skiptast hlutarnir í 1. Ljós heimsins 2. Höll sumarlandssins 3. Hús skáldsins 4. Fegurð himinsins. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljós,/himinstjörnur tindra./Eina þreyi eg þig.
Gestur Aldrei las ég Laxness er Bára Gísladóttir, tónskáld sem búsett er í Kaupinhavn. Við tengjumst landa á milli með hjálp nútímatækni og vísinda og ræðum verkið í bærilega góðu hljóði.
Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið.
Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Aukaþáttur; Salka - ástin og dauðinn
2026/09/17
Í þættinum ræðum við fyrsta hluta Sölku Völku og sýninguna Salka; Ástin og dauðinn, við leikkonuna, leikskáldið og leikstjórann Unni Ösp Stefánsdóttur. Sýningin er einleikur á vegum þjóðleikhússins og Landnámsseturs Íslands, byggður á fyrsta bindi skáldsögunnar og hefur vakið umtalsverða athygli undanfarna mánuði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Aukaþáttur; Magnús Jóhann og Laxness safnið / Gunnlaugur Bjarnason og sálmabókasvipur
2026/09/17
Halla hittir Magnús Jóhann Ragnarsson, tónlistarmann, á vinnustofu sinni og ræðir við hann um veglegt Laxness safn sem hann hefur komið sér upp. Síðan ræðir Tómas við Gunnlaug Bjarnason, söngvara, um vörumerkið Laxness, þá sérstaklega línurnar sem einkenna flestar bókakápur skáldsins og nefnast sálmabókasvipur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Aukaþáttur; Davíð Þór á Gljúfrasteini
2026/09/17
Í þessum sérstaka aukaþætti Aldrei las ég Laxness komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa verið við kvæði hans. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
05: Úngfrúin góða og Húsið
2026/06/19
Úngfrúin góða og Húsið er stutt verk sem Halldór Laxness skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til að stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er systrasaga, Rannveig er yngri systirin sem sagan hverfist um en Þuríður er sú eldri sem gift er verslunarmanni þorpsins og gerir allt í sínu valdi til að viðhalda heiðri ættar sinnar og húss - en verk hennar koma því miður niðri á lífi Rannveigar og leggja það eiginlega í rúst. Sagan er talin byggð á raunverulegum atburðum sem og upplifunum Halldórs sjálfs þegar hann sigldi ungur til Kaupmannahafnar. Sögumaður verksins er fjarlægur persónunum, samtöl og senur eru fáar og lesandi þarf sífellt að vera að púsla atburðunum saman í gegnum óbeinar upplýsingar héðan og þaðan svo erfitt er að ákveða hverju maður trúir og hverju ekki.
Samlesari klúbbsins að þessu sinni er Elínborg Una Einarsdóttir, blaðamaður hjá Morgunblaðinu, sviðshöfundur og samfélagsrýnir. En síðasta haust birti hún grein í Morgunblaðinu með titilinn „Laxness hverfur úr skólum landsins“ og olli hún nokkru fjaðrafoki í samfélaginu og átti sinn þátt í að kveikja á þessum bókaklúbbi.
Næsta bók sem tekin verður fyrir verður ópusinn mikli; Heimsljós, en fjallað verður um hana eftir sumarfrí. Nánari dagsetning næsta þáttar og ástæða fyrir frestun umfjöllunar á Sjálfstæðu fólki verður útskýrð í grúppu klúbbsins.
https://www.facebook.com/groups/1247768283945537
Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
04: Salka Valka
2026/05/15
Salka Valka kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932. Sölku skrifaði Halldór Laxness fyrst sem hugmynd að kvikmynd á meðan hann dvaldi í Bandaríkjunum þar sem hann var í viðræðum við framleiðsluöflin í Hollywood um að gera kvikmynd um þessa sterku konu á buxum. Skáldsagan verður síðan til eftir að Halldór snýr aftur heim án kvikmyndasamnings og breytast þá drættir sögunnar umtalsvert en Salka Valka segir í mjög stuttu máli uppvaxtarsögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, á Óseyri við Axlarfjörð. Hún er lausaleiksbarn sem glímir við mikið mótlæti á heljarinnar umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar.
Samlesari Sölku Völku í þessum þætti af Aldrei las ég Laxness er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari en inn á milli samtalsins verða einnig innlegg frá Ástu Kristínu Benediktsdóttur, bókmenntafræðingi, um hinsegin lestur á Sölku Völku sem og innlegg frá Unni Ösp Stefánsdóttur leikkonu, leikskáldi og leikstjórna, um leikgerð sem hún gerði við fyrri hluta sögunnar og vangaveltur um afdrif Sölku eftir sögulok bókarinnar.
Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
03: Vefarinn mikli frá Kasmír
2026/05/15
Vefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins.
Vefarinn mikli frá Kasmír er umdeild bók. Stuttu eftir útgáfu birtust tvær frægir og mjög ósammála dómar um hana í sama tímariti annar rómaði hana með orðum eins og: „Loksins, loksins tilkomumikið skáldverk, sém ris eins og hamraborg upp úr flatneskju íslenzkrar ljóða- og sagnagerðar síðustu ára! Ísland hefir eignazt nýtt stórskáld.“ Hinn dómurinn súmmaði bókina upp í tvö orð: „Vélstrokkað tilberasmjör.“
Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
02: Undir Helgahnúk
2026/03/23
Undir Helgahnúk kom út árið 1924. Verkið skrifaði Halldór Laxness í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið. Skáldsagan er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar, sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer í framhaldi að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur.
Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Vefarinn mikli frá Kasmír en fjallað verður um hana í Víðsjá 15. apríl, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér:
https://www.facebook.com/groups/1247768283945537
Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
01: Barn náttúrunnar
2026/02/20
Í þessum þætti ræðum fyrstu skáldsögu Halldórs, Barn náttúrunnar, með góðum gestum, þeim Vilhelm Neto, leikara og Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Podcast reviews
Read Aldrei las ég Laxness podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Aldrei las ég Laxness relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.828061453
Huberman Lab
Scicomm Media

4.240683
To Be The Man
Podcast Heat | Cumulus Podcast Network

4.41511512000
The Ben Shapiro Show
The Daily Wire

4.2155648
TENNIS.com Podcast
TENNIS.com Podcast/Tennis Channel Podcast Network

4.510858774
The Joe Budden Podcast
The Joe Budden Network

4.611654506
The Bulwark Podcast
The Bulwark

4.711501391
Matt and Shane's Secret Podcast
Matt McCusker & Shane Gillis

4.82543180
Smosh Reads Reddit Stories
Smosh

4.975217750
Small Town Murder
James Pietragallo, Jimmie Whisman

4.71297595
Bulwark Takes
The Bulwark