1885503476
Marta María býður heim

Advertise on podcast: Marta María býður heim

This podcast has
34 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2026/03/16
Latest episode
2026/10/26
Average duration
98 min.
Release period
8 days

Description

Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor.

Unlock Marta María býður heim podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Marta María býður heim podcast


33. Björt Ólafsdóttir: Lærði að það er ekki hægt að gera allt í einu
2026/10/26
Björt Ólafsdóttir einn eigenda fasteignaþróunarfélagsins Iðu og fyrrverandi ráðherra er stólpakona sem nýtir tímann í botn. Þessa stundina er hún að leggja lokahönd á lífrænu blokkina sem stendur við Frakkastíg 1. Björt er fjögurra barna móðir sem þarf reglulega að minna sig á að barnauppeldi er ekki Bootcamp-þjálfun. Í þættinum ætlum við að ræða lífshlaup Bjartar og hvernig hún komst á þann stað sem hún er á í dag. Eitt af því sem hún lærði af lífinu var að það er ekki alltaf hægt að gera allt í einu.  Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathildu í Smáralind og Kringlunni.
32. Jóga Gnarr: Lífið er sirkus
2026/10/19
Jóga Gnarr hefur haft það að ævistarfi að hjálpa fólki. Hún er með hjarta úr gulli og notar húmorinn til þess að fá umhverfið til að skilja samhengi hlutann. Hún mætir helst aldrei í viðtöl og það tók um það bil 20 ár að sannfæra hana um að mæta í þetta viðtal. Í þættinum ræðir hún lífshlaup sitt, sigra og sorgir og hvernig lífið umturnaðist þegar hún varð ástfangin af Jóni Gnarr. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathildu í Kringlunni og Smáralind.
31. Þórdís Kjartansdóttir. Fædd 19. júní og þurfti að axla ábyrgð
2026/10/12
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Læknahúsinu Dea Medica er ein af þessum kláru og skemmtilegu konum sem lætur ekkert stoppa sig. Hún byrjaði að vinna þegar hún var 12 ára og hefur síðan þá verið með mörg járn í eldinum. Hún fæddist 19. júní og mamma hennar sagði henni að hún yrði að taka mið af því. Þegar Þórdís var tvítug snarbreyttist tilveran þegar foreldrar hennar fóru hvort í sína áttina. Hún eignaðist tvö börn á meðan hún var í læknisfræði og þegar hún var 48 ára eignaðist hún dóttur. Þórdís vill ekki sjá eftir neinu í lífinu og lætur drauma sína rætast. Það er kannski þess vegna sem hún gaf út plötu á dögunum.   Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofinn og Mathilda.
30. Dorrit Moussaieff: „Heimurinn minn var fullkominn"
2026/10/05
Dorrit Moussaieff viðskiptakona og fyrrverandi eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar hefur átt ævintýralegt lífshlaup og er nú á tímamótum. Í þættinum ræddu þær þegar hún hitti Ólaf Ragnar fyrst, hvernig samband þeirra þróaðist og endaði fyrr á þessu ári. Hún varð ástfangin af Íslandi þegar hún kom fyrst til landsins og er alls ekki skilin við þjóðina þótt hjónabandinu sé lokið. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofinn og Mathilda.
29. Lukka Pálsdóttir: Við getum valið að vaxa
2026/09/28
Lukka Pálsdóttir sjúkraþjálfari og einn af eigendum Greenfit býr yfir ákveðinni seiglu sem hefur komið henni á þann stað sem hún er í dag. Lukka hefur átt ótrúlegt lífshlaup en þegar hún fæddist höfðu foreldrar hennar gegnið í gegnum mikinn harm þegar faðir hennar lenti í flugslysi. Í þættinum ræðir Lukka um ástina, ævintýrin, myndkörfulán og fitubrennslupúls en líka Zone 2 sem er það sem flestir eru að tala um þessa dagana. En mæla snjallúrin og hringirnir þetta rétt? Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.
28. Birgir Jónsson: Ef lífið er bílaleigubíll þá ætla ég að skila mínum útjöskuðum
2026/09/21
Birgir Jónsson fyrrverandi forstjóri Play er rokkari sem er alltaf til í að hlaupa auka hring til þess að lífið verði allavega 9% skemmtilegra. Í þættinum talar Birgir um lífshlaupið og hjartans mál. Um tíma bjó hann í Rúmeníu og lýsir spillingunni sem þar var á áhrifaríkan hátt. Þótt hann þrífist best í mótvindi þá gengst hann við því að það sé ekki gott að vakna með kvíðahnút í maganum á hverjum degi eins og gerðist síðustu mánuðina hjá Play. Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofans og Mathilda í Smáralind og Kringlunni.
27. Anna Margrét Björnsson: Það þótti ekki fínt að berast á
2026/09/14
Anna Margrét Björnsson, blaðamaður og upplýsingafulltrúi í Franska sendiráðinu, hefur lengi haft sterkan og persónulegan fatastíl. Svartur hefur alltaf verið í uppáhaldi, ásamt eyeliner og stöku hlébarðamunstri. Langafi hennar var Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, og í þættinum ræðum við meðal annars hvort það hafi haft einhver áhrif á uppvöxt hennar - eða alls engin. Faðir Önnu Margrétar starfaði í utanríkisþjónustunni og var sendiherra um tíma. Hún ólst að hluta til upp í Bretlandi og segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Íslands. Í þættinum tölum við um fatastíl og tísku, París og London, skinkuvæðinguna og mannasiði Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofans og Mathilda í Smáralind, Kringlunni og mathilda.is.
26. Kristín Agnarsdóttir: Allar góðu ákvarðanirnar
2026/09/07
Kristín Agnarsdóttir grafískur hönnuður býr í Lundúnum. Hún er á kafi inni í framtíðartækni og notaði tæknina til að eignast tvo drengi. Svo notaði hún gervigreindina til þess að skilja við barnsföður sinn. Þegar Kristín sagði föður sínum að hún væri að fara að mæta í þennan þátt þá hló hann upphátt og sagði: „Ætlar þú að ræða allar góðu ákvarðanirnar sem þú hefur tekið á lífsleiðinni" og spurði svo hvort þetta væri heil sería. Í þættinum ætlum við að ræða ástir og örlög, tækni og tísku og fara yfir það hvað er dýrmætt að eiga góðar vinkonur. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofanum og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.
25. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: Ég er í ástarsambandi með sjálfum mér
2026/08/31
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður er félagslegur einfari sem líður best með sjálfum sér. Hann er einn af þessum mönnum sem tekið er eftir og fer alltaf sínar leiðir hvort sem það er í klæðaburði, lífsstíl eða vinnu. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, gaddavírs peysur, fyrirsætuferilinn, Reykholtsmálið og ástina. Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind og Blue Lagoon Skin Science.
24. Sigurlín Ívarsdóttir: Útrásar árin ógnuðu fjölskyldulífinu
2026/08/24
Sigurlín Ívarsdóttir prestur og fjölskylduráðgjafi hefur átt litríka tilveru. Hún var prestur í Bresku biskupakirkjunni í Lundúnum á árunum fyrir hrun þegar eiginmaður hennar starfaði hjá Kaupþingi. Hún segir að útrásárárin hafi einkennst af sukki og ógnað hennar fjölskyldulífi. Í þættinum ræðir Marta María við Sigurlín um lífshlaup hennar, áfallavinnu, tísku og hvað það skipti miklu máli að horfa á raunveruleikann eins og hann er. Og geta svo hlegið að öllu saman og haft gaman. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.
23. Hrund Gunnsteinsdóttir: Ég er mjög æst í þetta líf
2026/08/17
Hrund Gunnsteinsdóttir höfundur InnSæi sagði upp draumastarfinu því hún var ekki að finna sig. Hún segist hafa farið allt of hratt upp metorðastigann sem leiddi til þess að heilsan brást. Við tók uppbyggingarferli sem varð að Prisma-námi sem sló í gegn. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, taugakerfið, InnSæi og hvernig það var að finna ástina í örmum Alfreðs Gíslasonar.   Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.
22. Inga Dóra Guðmundsdóttir: Er með plan B ef allt fer á versta veg á Grænlandi
2026/08/10
Inga Dóra Guð­munds­dótt­ir framkvæmdastjóri hjá Air Greenland er hálf íslensk og hálf grænlensk. Hún fæddist á Íslandi en var á 13 ári þegar fjölskyldan flutti til Grænlands. Hún segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Qaqortoq og það hafi tekið tíma að aðlagast. Inga Dóra er ekkert blávatn og hefur gengt mörgum áhrifastöðum og tekið virkan þátt í pólitík. Hún var um tíma framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins. Í dag býr Inga Dóra í Nuuk ásamt fjölskyldu sinni. Í þættinum ætlum við að ræða lífshlaup Ingu Dóru og hvernig það sé að lifa í ótta við það sem gæti gerst ef Bandaríkin myndu yfirtaka Grænland. Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.
21. Valgerður Halldórsdóttir: Stórt hús getur ekki bjargað ástarsamböndum
2026/08/03
Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi er sérfræðingur í stjúptengslum. Hún fór að hafa áhuga á stjúptengslum þegar hún varð sjálf stjúpmóðir. Hún segir að það þýði ekki neitt að kaupa hús og setja alla undir sama þak og halda að allt muni ganga eins og í sögu. Fólk verði að kynnast og það þýði ekkert að halda bara matarboð. Fólk þurfi að kynnast maður á mann. Tilfinningin að tilheyra skiptir lykilatriði þegar fólk setur saman nýja fjölskyldu. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
20. Vilborg Guðnadóttir: Drifkraftur lífsins er að sjá aðra vaxa
2026/07/27
Vilborg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur var send í fóstur þegar hún var eins og hálfs árs því móður hennar fékk berkla. Hún flutti ekki aftur heim fyrr en hún var á sjöunda ári en þá var landslagið breytt. Hún byrjaði að safna sér fyrir íbúð þegar hún var 9 ára því hún upplifði að það væri engu að treysta. Þetta hafði mótandi áhrif og hefur Vilborg haft það að ævistarfi að hjálpa fjölskyldum í vanda. Í fyrra var hún sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þegar hringt var í hana frá forseta skrifstofunni hélt hún að forsetaembættið þyrfti handleiðslu og það hrökk upp úr henni hvers vegna það væri verið að verðlauna fólk fyrir að vinna vinnuna sína. En þannig er Vilborg. Hún er félagslegur einfari sem elskar að búa í blokk og með hjarta úr gulli. Þátturin er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bilasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
19. Kamilla Einarsdóttir: Ég get fyrirgefið allt ef fólk er fyndið
2026/07/20
Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir skrópaði sig úr út menntaskóla og fór að vinna á Vegas. Þegar hún var tvítug var hún búin að eignast tvö börn og voru blankheit slík að hún át vorrúllur í öll mál. Þegar Kamilla var þrítug bættist þriðja dóttirin í hópinn. Kamilla er einhleyp og sér ekki fyrir sér að fara í samband því umönnunarþörf hennar sé við frostmark. Í þættinum ræðir Kamilla lífshlaup sitt sem er ævintýralega spennandi og segir að það sé hægt að fyrirgefa fólki allt ef það sé fyndið. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði.

Podcast reviews

Read Marta María býður heim podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Marta María býður heim relevant audience podcasts


What do you want to promote?