1893070791
Flekaskil

Advertise on podcast: Flekaskil

Rating
★★★★★
4.8
from
5 reviews
Categories
This podcast has
31 episodes
Language
Icelandic
Date created
2026/04/13
Latest episode
2026/11/10
Average duration
73 min.
Release period
8 days

Description

Varnarsamningurinn milli Íslands og Bandaríkjanna er 75 ára um þessar mundir. Ekki gera allir sér grein fyrir að hann er nátengdur NATO og veru okkar þar. Sum ákvæði viðauka hans voru leyniskjöl frá því að hann var gerður 1951 og þar til bandaríski herinn hætti að vera með varanlegt herlið 2006. Þar á meðal ákvæði um að Bandaríkin geti stöðvað flug og tekið yfir loftl-helgi Íslands. Þau eru að umtalsverðu leyti enn í gildi. Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.

Unlock Flekaskil podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Flekaskil podcast


Bogi Ágústsson - Fimmtíu ár við heimsgluggan
2026/11/10
Við förum yfir stöðu alþjóðamálanna með Boga Ágústssyni fréttamanni sem hefur fylgst með þeim frá því hann lærði að les og sem einn helsti fréttamaður landsins í fimmtíu ár. Við ræðum eftirleik þingkosninganna í Bandaríkjunum, stöðuna í Íran, Úkraínu, Norðulöndin og sögu Norðurlandasamstarfsins.
Flekaskil - 30. þáttur - Baldur Þórhallsson - Sigur Demókrata og ósigur Trump - hvað svo?
2026/11/06
Úrslit bandarísku þingkosninganna voru stærri sigur Demókrata en flestir höfðu spáð. Talað er um fellibyl frekar en fylgissveiflu. Flekaskil fjalla um úrslitin, ástæðurnar fyrir þeim, hvaða áhrif þessi breytta staða hefur á pólitík í Bandaríkjunum, næstu tvö ár í forsetatíð Trump, utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Til að ræða þessi mál var Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor og fyrrverandi forsetaframbjóðandi gestur þáttarins. Upptaka og eftirvinnsla: Þórarinn Hjartarson
Flekaskil - 29. þáttur - Sigríður Rut Júlíusdóttir - Örlagaríkustu bandarísku þingkosningar lengi
2026/10/26
Flekaskil leggja í þeysireið yfir stöðuna, lykileinvígi og afleiðingarnar sem bandarísku þingkosningarnar sem fram fara 3. nóvember geta haft. Við tölum um stórt og smátt, átökin um sætin þar sem spennan er mest, bestu og verstu frambjóðendurna, peningana í bandarískri pólitík, áhrif Trumps og frambjóðandann sem fékk barn í hendur - og missti það. Gestur þáttarins er Sigríður Rut Júlíusdóttir dómari sem hefur fylgst grann með bandarískum stjórnmálum árum saman.
Flekaskil - 28. þáttur - Þórdís Kolbrún snýr aftur á Flekaskil - Frá Öryggisráðstefnunni í Varsjá
2026/10/19
Í samtali okkar fáum við beina innsýn í stöðuna á Úkraínu en Þórdís Kolbrún kom nánast beint þaðan til Varsjár. Við förum yfir hina spennuþrungnu stöðu í samskiptum Úkraínu og Bandaríkjanna - sem birtust meðal annars í ræðu Zelenskís í Varsjá. Skilaboðum yfirhershöfðingja NATO um hvering hvers kyns árásum Rússa yrði hrundið af hálfur varnarbandalagsins. En einnig mögnuðum viðvörunarorðum Katarzyna Pisarska stjórnarformanni Öryggisráðstefnunnar í Varsjá um hvert stefnir í stríðinu, stöðunni þar og hvað þurfi að breytast til að vel fari. Ræða Katarzyna Pisarska: https://www.youtube.com/live/WVaBU-L02-0 - og hefst á mínutu 2.44.
Flekaskil - 27. þáttur - Erlingur Erlingsson - Þarf Ísland leyniþjónustu?
2026/10/12
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur hefur mikla þekkingu á stöðu og þróun alþjóða- og öryggismála. Við komum víða við í tæpitungulausu spjalli: Grænlandssamningurinn, íslensk varnarmál, staðan í Úkraínu, hernaður Rússa í Evrópu sem við köllum orðinu sem enginn skilur: fjölþáttaógnir, Íran og ný bandalög í kjölfar þess og ögrandi spurningar á borð við þá hvort Ísland þurfi leyniþjónustu.
Flekaskil - 26. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Gaza og Vesturbakkinn
2026/10/05
Hver er staðan á Gaza og Vesturbakkanum? Hver er bakgrunnur hörmunganna sem almenningur á svæðinu býr við? Hvaða áhrif höfðu hryðjuverkin 7. október 2023? Skiptir umræðan um þjóðarmorð, alþjóðalög og stríðsglæpi máli? Eru líkur á að tveggja ríkja lausn verði að veruleika og getum við bundið vonir við að varnalegur friður komist á.
Flekaskil - 25. þáttur - Magnús Þorkell Bernharðsson - Íran
2026/09/28
Íran-stríðið. Bakgrunnur átakanna og árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Áhrif stríðsins á stöðu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Magnús Þorkell Bernharðsson sérfræðingur um sögu og stjórnmál Mið-Austurlanda er gestur Dags B. Eggertssonar í Flekaskilum.
Flekaskil - 24. þáttur - Vilborg Ása Guðjónsdóttir - Grænland, ástarsamband ESB og Kanada og framtíð EES
2026/09/21
Flekaskil fjalla um mála málanna á Norðurslóðum, boðaðan samning Bandaríkjannna, Danmerkur og Grænlands sem boðað hefur verið að skrfað verði undir á morgun, þriðjudag 22. september. Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingu og sérfræðingur í málefnum Grænlands ræðir stöðuna. Við fjöllum um tímamótaræður Ursulu von der Leyen og Mark Carney um nánara samband ESB og Kanada, stöðu EES-samningsins og stefnumarkandi yfirlýsingu Norðmanna um þróun samningsins, stöðu Íslands í því samhengi og væntanlegan fund Trump Bandaríkjaforseta og Xi Jinping leiðtoga Kína í vikunni.
Flekaskil 23. þáttur - Bjarni Már Magnússon - Örlagatímar í alþjóðamálum
2026/09/14
Símtal Bjarna Ben og Trump. Viðaukinn við varnarsamninginn sem aldrei var kynntur Alþingi. Það var komið víða við í samtali Dags B. og Bjarna Más Magnússonar lögmanni og fyrrverandi prófessors. Erum við að afsala okkur fullveldi án þess að ræða það? Og erum við að horfa á uppnám í aldagömlum reglum um hafrétt og siglingarfrelsi. Hvaða áhrif hefur það á heimili og fyrirtæki á Íslandi.
Flekaskil 22. þáttur - Ingólfur Bjarni Sigfússon
2026/09/07
Íslendingar halda að ástand heimsins komi þeim ekki við Ingólfur Bjarni fréttamaður er gestur Flekaskila þar sem komið er víða við. Um þjóðaratkvæðagreiðsluna og Evrópu, viðræður um frið í Úkraínu, fjölþáttaógnir, varnarsamninginn við Bandaríkin, leyndarhyggju og hvort hægt sé að treysta gömlum samningum í nýjum heimi, Trump og Pútin.
Flekaskil - 21. þáttur - Pipaluk Lynge
2026/08/31
Flekaskil – halda áfram. Heimurinn á korteri og Grænland Flekaskil halda áfram þótt Þórdís Kolbrún stigi til hliðar sem stjórnandi. Pipaluk formaður utanríkis- og öryggisnefnd Grænlenska þingsins opnar hjarta sitt í einstöku viðtali um stöðuna í Grænlandi og það sem hefur gengið á. Þjóðaratkvæðagreiðslan, deilur Bandaríkjanna og Kanada, tilhugalíf Kanada og Evrópu, CIA forstjóri í Moskvu, skeytasendingar í Íran, eignarhald og olíugjafir til Trump í Venesúela og fjölmargt fleira er umfjöllunarefni í „Heimurinn á korteri“ – yfirliti yfir það fjölmarga sem gengið hefur á undanfarna daga á meðan Ísland var undirlagt af Evrópu-umræðunni.
Flekaskil - 20. þáttur - Þáttaskil, viðskiptastríð og Evrópa
2026/08/25
Við ræðum viðskiptastríð sem braust út milli Bandaríkjanna og Kanada, kröfur Trump sem ganga á fullveldi og spurningalista Bandaríkjanna til NATO-ríkja. Við berum orðræðuna saman við Grænlandsmálið og ræðum Evrópumálin í þessu ljósi. Þá tilkynnir Þórdís Kolbrún um þáttaskil í þáttöku sinni í Flekaskilum.
Flekaskil - 19. þáttur - Titringur milli Trump og bandamanna og Evrópu-umræðan
2026/08/18
Þegar 60 daga tímamörk vopnahlés í Íran liði í morgun, virðist langt í samninga. Titringur er milli Trump og bandamanna í Evrópu, í Mið-Austurlöndum, Asíu og Kyrrahafi. Við ræðum málefnalegar greinar fyrir já og nei og óvissu um framtíð EES-samningsins.
Flekaskil - 18. þáttur - Bandarísk olíuleit í óleyfi við Grænland - afleiðingar Íran-stríðsins og atburðirnir við Ceuta
2026/08/10
Bandarískt olíufyrirtæki gerir sig líktlegt til að hefja olíuleit í lögsögu Grænlands, án leyfa og gegn mótmælum landstjórnarinnar. Við fjöllum um kenningar og skýringar á því að tugþúsundir lögðust til sunds að ströndum spænska hluta Marókkó, Ceuta, sem olli pólitískum skjálfta í Evrópu og var kallað innrás í Evrópu. Afleiðingar og staða Íran-stríðsins, Gaza, yfirgripsmiklar árásir sem við köllum sjaldan það heldur fjölþáttaógnir eru að verða hluti af daglegum fréttum og veruleika. Einnig ræðum við grein Economist um þjóðaratkvæðgreiðsluna um hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Flekaskil - 17. þáttur - Kettir, hattar, loftslagsmál, Gaza, bresk stjórnmál og verðugir bandamenn
2026/08/03
Þórdís Kolbrún verður sendiherra - hvað verður um köttinn? Við fjöllum um hatta og hattakaup og hvað sendiherrastaða útheimtir. Yfirlýsingar Mandami borgarstjóra New York og Andy Burnham fyrrum borgarstjóra Manchester og nýs forsætisráðherra Bretlands um Gaza. Nýtt álit um stöðu lofstslagsskuldbindinga skv. alþjóðalögum og fjölda greina um hvað það þýðir að vera verðugur bandamaður, sem birtist í timariti Vörðu - og muninum á stjórnmálum og pólitík.

Podcast reviews

Read Flekaskil podcast reviews


4.8 out of 5
5 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Flekaskil relevant audience podcasts


What do you want to promote?