Normið

Advertise on podcast: Normið

Rating
4.8
from
52 reviews
This podcast has
22 episodes
Language
Publisher
Explicit
No
Date created
2018/11/09
Average duration
58 min.
Release period
9 days

Description

Eva Matta og Sylvía Briem Friðjóns, þjálfarar og athafnakonur, taka hrátt plebbaspjall um mannlegheit og skoða leiðir til þess að gera lífið skemmtilegra.

Podcast episodes

Check latest episodes from Normið podcast


Upprif... ekki niðurrif. - Áskriftarþáttur
2024/02/16
FEBRÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️ Skoðaðu styrkleikana þína, hættu þessu djöfulsins niðurrifi og ÁFRAM GAKK ÞÚ MIKLI SNILLINGUR. Án alls gríns samt þá mættum við öll vera duglegri að skoða hvað er gott við okkur. Ekki flóknara en það. Gerum það núna. 🎧
more
Rúnturinn - Áskriftarþáttur
2024/02/12
Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️ Sumir segja að eitt það mikilvægasta í lífinu sé fólkið okkar.. og tengingin sem við höfum við fólkið okkar. Rúnturinn er þitt tækifæri til að taka ísrúnt eða göngutúr eða bara sófachill með þinni manneskju og styrkja sambandið ALLSVAKALEGA. Vinkonur, vinir, mæðgur, mæðgin, feðgar, feðgin, frænkur, frændur, makar... name it. Þessi þáttur er til þess að gera samböndin þín betri og sterkari. Have fuuun 👏
more
Framkvæmdu WORKSHOP - Áskriftarþáttur
2024/01/31
JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️ Splúnkunútt workshop sem hjálpar okkur að framkvæma. Semsagt hætta að dvelja og ofhugsa og fresta osfrv. Þetta er fyrir öll sem langar að komast skrefinu lengra í lífinu á þessu ári. Jafnvel þessum ársfjórðungi.. er ekki alltaf betra að búta þetta niður?
more
Hamingjumettun WORKSHOP - Áskriftarþáttur
2024/01/31
JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur workshopið í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️ Flest förum við í gegnum tímabil þar sem allt er í blóma og gleði.. þá hugsum við "vá ég ætla alltaaaf að vera svona".. svo gerist lífið. Áður en maður veit af er maður kominn í vesenið eina ferðina enn. Það er náttúrulega bara óraunhæft að vera alltaf í toppstandi, en það er ágætt að grípa í leiðir til þess að ná sér til baka í hamingjuna og gleðina. Hér höfum við akkúrat svoleiðis workshop. 
more
Sniglumst beinustu leið út úr hjarðhegðuninni!
2024/01/16
Þú finnur nýja þætti Í Normið Áskrift! Næææstum því síðasti þátturinn sem við gefum út kæru uppáhalds hlustendur. Við ákváðum að taka létt spin á "snail girl era" pælinguna, hjarðhegðunarvesenið sem myndast óhjákvæmilega í samfélaginu og svo kom dass af umræðu um "delayed gratification" eða seinkun á verðlaunum. Hvernig getum við í ósköpunum þjálfað með okkur smá sjálfsaga og losnað við þessa quick fix stemningu? 
more
NORMIÐ ÁSKRIFT - Upplýsingar
2023/12/27
Hvað verður inni í áskriftinni? Ja, gott að þú spurðir. Hér færðu svarið. See you on the flip side!💃🏼
239. Kveðjustund
2023/12/15
Elsku hjartans bestu hlustendur. Hér líður Normið að lokum. ❤️ Við fórum yfir farinn veg, spiluðum ógeððððslega fyndna klippu, ræddum framhaldið og svo var þarna dassss af tilfinningarússíbana. Við eigum erfitt með að skrifa lýsingu hér fyrir þennan þátt, enda hægara sagt en gert að súmma upp 5 ár af snilld með ykkur. Við gátum ekki alveg sleppt af ykkur takinu samt og verðum með klikkað efni í áskrift strax eftir áramót. Skottastu á normid.is og skráðu þig í áskrift með okkur elsku litli plebbaskítur. SEE YA BAYBAY
more
Halldóra Geirharðs - "Aldrei hætta að vera forvitin"
2023/12/12
Þú finnur nýja þætti í Normið Áskrift! *Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Halldóru sjálfri* Halldóra Geirharðs hefur verið á bucketlistanum okkar yfir viðmælendur í langan tíma og því er einstaklega vel við hæfi að hún sé okkar síðasti viðmælandi. Margt fólk sem hefur komið til okkar í Normið hefur haft orð á því hversu mikil fagkona og viskubrunnur hún er. Við erum hjartanlega sammála því. Okkur þótti óendanlega vænt um að fá að kroppa í huga Halldóru - njótið vel kæru hlustendur. Þessi fer á dýptina. 
more
"Það er hægt að sigrast á fíkn" - Magdalena Sigurðar
2023/12/01
2012 þurfti Magdalena Sigurðardóttir að horfast í augu við sinn alkóhólisma. Í dag hefur hún verið edrú í 11 ár og er alþjóðavottaður fíkni og fjölskylduráðgjafi ásamt því að starfa hjá Samhjálp. Þetta viðtal hitti okkur beint í hjartað og er okkur virkilega dýrmætur. Hlustum, lærum og förum í gegnum desember með frið í hjarta. ❤️  Þau sem vilja styrkja mikilvægt starf Samhjálpar geta gert það hér. 
more
"Þetta er ekki svona alvarlegt" - Katla Margrét
2023/11/29
Yndislega og hæfileikaríka leikkonan hún Katla Margrét kom í spjall til okkar og vá hvað er gott að spjalla við þetta eðaleintak. Hún hefur auðvitað komið að óteljandi verkefnum, starfar sem leikkona í Borgarleikhúsinu og leikur næst hlutverk í mjöög spennandi seríu sem kemur út eftir áramót og kallast Kennarastofan. Við ræddum leiklistina, skólakerfið, áramótaskaupið, sturlað fyndna sketsa úr Stelpunum og allskonar þar á milli! Njótið elsku hlustendur ❤️
more
Eyþór Ingi - "Einlægni afvopnar alla gagnrýni"
2023/11/17
Deeejókaðu hvað þessi þáttur er mikið eyrnakonfekt. Við elskum hrá spjöll um mannlegheit sem enda samt einhvernvegin í plebbatöktum og hláturskasti.  Eyþór Ingi er auðvitað eitt mesta hæfileikabúnt landsins og var ungur þegar hann byrjaði að leyfa þjóðinni að njóta viðveru sinnar. Kæri hlustandi, við stórgræddum á því hlusta á Eyþór og það munt þú gera líka. NJÓTUM ❤️
more
Heilsukvíði - Ási sálfræðingur frá Kvíðameðferðarstöðinni
2023/11/14
Mörg finnum við fyrir allskonar kvíða á lífsleiðinni og okkur þótti mikilvægt að ræða aðeins heilsukvíða í samhengi við síðasta þáttinn okkar, viðtal við stofnendur Intuens. Í fyrsta skipti hefur einstaklingurinn öðruvísi vald yfir upplýsingum um eigin heilsu og þess vegna er eðlilegt að velta fyrir sér hvernig áhrif þetta hefur allt saman á manneskjuna.  Við ræddum líka félagsfælni og kvíða almennt og hvernig sé hægt að vinna í að losa sig úr vítahringnum sem myndast þegar hausinn fær að hlaupa taumlaust úr á kvíðatúnið.  Ási, eða Ásmundur Gunnarsson, starfar sem sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni og hans áhugasvið liggur meðal annars í þráhyggju og áráttuhegðun. Hann er ekki bara fáránlega fróður um málefnið heldur líka bara mjög skemmtileg manneskja. Úr varð þessi negluþáttur sem flestir verða að hlusta á! 
more

Podcast reviews

Read Normið podcast reviews


4.8 out of 5
52 reviews
Elisabetgud 2019/11/03
Geðveikir þættir❤️
Vá hvað þetta er magnaðslega góðir þættir 🤩
BLB92 2020/02/15
Smqællþþþlþlmmmmmkllkkiiiooooooooook
ÐaqIlliooikkkkk
check all reviews on aple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Normið & sponsor relevant audience podcasts


What do you want to promote?

Ad Format

Campaign Budget

Business Details