
Advertise on podcast: Legvarpið
This podcast has
40 episodes
Language
IcelandicPublisher
Stefanía Ósk MargeirsdóttirExplicit
No
Date created
2019/09/05
Latest episode
2026/09/10
Average duration
72 min.
Release period
82 days
Description
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu.
Unlock Legvarpið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Legvarpið podcast
Hyperemesis með Hrabbý Lóu
2026/09/10
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Hrafnhildur Lóa Guðmundsdóttir ljósmóðir og fjallar hún um fyrirbærið hyperemesis gravidarum - of mikil ógleði og uppköst á meðgöngu. Hrabbý eins og hún er kölluð hefur sjálf reynslu af hyperemsesis á sínum meðgöngum og hefur í starfi brunnið fyrir að sinna þessum hópi kvenna á meðgöngu vel. Hún kom að nýlegri uppfærslu á verklagi varðandi meðferð við hyperemesis og leiðir okkur í allan sannleikann um þetta skelfilega ástand sem hrjáir 5% barnshafandi kvenna, og hvernig best sé að bregðast við fyrir konur, stuðningsnet þeirra, fagfólk og samfélagið allt. Komið með!
Nálastungur og bransa-sögur með Gullu
2026/07/25
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Guðlaug María Sigurðardóttir ljósmóðir og eilífðarstúdent. Gulla eins og hún er kölluð, hefur verið brautryðjandi á sviði nálastungu meðal íslenskra ljósmæðra en hefur hún haldið námskeið fyrir ljósmæður hérlendis í mörg ár. Hún fjallar um fræðin á bakvið nálastungur, segir frá helstu nálastungu-meðferðum á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu og segir frá rannsókn sinni í meistaranámi þar sem hún kannaði áhrif undirbúningsnála á lengd fæðinga.. Förum við um víðan völl og fléttast inn sögur af nuddi, ævintýralegu ljósmæðranámi í Danmörku, stofnun 9 mánaða og upphafi 3D sónars hérlendis svo fátt eitt sé nefnt. Komið með!
Ófrjósemi og frjósemislækningar með Ingunni
2026/05/18
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Ingunn Jónsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingalæknir, stofnandi og meðeigandi Sunnu frjósemisstofu. Hún leiðir okkur í allan sannleikann um frjósemisvanda og frjósemislækningar og heyrum við af allskyns meðferðum og þjónustu sem veitt er í frjósemisferlinu.
Áhrif nikótíns á meðgöngu á nýbura með Snjólaugu og Björk
2026/04/17
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestir þáttarins eru tvær fagkonur frá Vökudeild Landspítala, þær Snjólaug Sveinsdóttir nýburalæknir og Björk Áskelsdóttir ljósmóðir. Þær fjalla um áhrif nikótín-notkunar á meðgöngu og í brjóstagjöf á nýburann til skemmri og lengri tíma og má til dæmis nefna fráhvarfseinkenni á borð við öndunarerfiðleika og óværð. Gríðarleg aukning hefur orðið á nikótín-neyslu síðustu ár með vaxandi notkun nikótín-púða meðal ungmenna og fólks á barneignaraldri. Talið er að 20% kvenna á barneignaraldri neyti nikótíns daglega og um þriðjungur karla í sama aldursflokki en erfitt er að vita hve mikið magn nikótíns er notað vegna skorts á merkingum og innihaldslýsingum á púðunum. Því er til mikils að vinna þegar kemur að vitundarvakningu um áhrif nikótín-notkunar og hér er framlag Legvarpsins!
Fæðingarparís með Ósk
2026/04/01
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þættinum segir Sigurveig Ósk Pálsdóttir ljósmóðir frá svokölluðum Fæðingarparís sem hefur nýlega verið innleiddur hér á landi. Markmið verkefnisins er að hvetja konu og stuðningsaðila þeirra að undirbúa sig fyrir fæðinguna og stuðla að aukinni virkni á meðgöngu og í fæðingu. Ósk leiðir okkur í allan sannleikann um Fæðingarparísinn, uppruna hans og innleiðingu hérlendis, hvað í honum felst og hvers vegna það sé nú skynsamlegt að rifja upp gamla takta og stökkva af stað!
Trans fólk og barneignir með Alexander
2026/02/06
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Björn Gunnarsson, félagsráðgjafi í Transteymi fullorðinna á Landspítala. Alex ræðir við okkur um málefni og upplifun trans- og kynsegin fólks af barneignarferlinu og samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Þessi hópur mætir ýmsum áskorunum innan heilbrigðiskerfisins, sérstaklega þegar kemur að kynheilsu og frjósemi og heyrum við því góð ráð til að tryggja jafna topp þjónustu fyrir öll. Alex er sjálfur trans og fjölskyldufaðir og heyrum við frá hans upplifun af því að koma út sem trans og stofna síðar fjölskyldu. Komiði með!
Offita á meðgöngu með Bryndísi Ástu
2026/01/23
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Bryndís Ásta Bragadóttir, sérfræðiljósmóðir á Landspítalanum og ræðir hún við okkur um yfirþyngd og offitu á meðgöngu. Við veltum málefninu fyrir okkur út frá ýmsum hliðum, allt frá frjósemi yfir í langtímaheilsu kvenna eftir meðgöngur. Áhrif yfirþyngdar og offitu á meðgöngu geta verið margvísleg þegar kemur að útkomum móður og barns og fræðumst við því um það sérhæfða eftirlit sem stendur þessum hópi til boða til þess að stuðla að heilbrigði, vellíðan og öryggi á meðgöngu, í og eftir fæðingu.
Brjóstagjöf með Fríðu
2025/06/12
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu.Gestur þáttarins að sinni er brjóstagjafaráðgjafinn og Vestfjarðar-Valkyrjan Hallfríður Kristín Jónsdóttir, betur þekkt sem Frí-ða-nipple Hún fjallar um starf brjóstagjafaráðgjafans og þá miklu menntun og kröfur sem liggja að baki þeim titli Fríða brennur fyrir það að styðja við konur í þeirra brjóstagjöf og hefur metnað fyrir aukinni þekkingu meðal bæði heilbrigðisstarfsfólks og verðandi og nýrra foreldra almenntSpjallið fer á flug um sögu, menningu, tölfræði, sorgir og sigra þegar kemur að brjóstagjöf og deilir Fríða skemmtilegum sögum úr lífi og starfi.
Ljósmæður líta um öxl: Anna Eðvaldsdóttir
2025/05/06
Ljósmæður líta um öxl: Anna Eðvaldsdóttir by Stefanía Ósk Margeirsdóttir
Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu
2025/04/03
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti gestur Legvarpsins sem mætir að hljóðnemanum í annað inn. Í fyrri þætti frá 2019 ræddi Eva um "mömmupressuna" en í þetta sinn beinist umræðan að því að ganga með og fæða tvíbura og komast í gegnum fyrstu mánuðina sem tvíburamamma og þriggja barna móðir. Eva segir frá því sem var frábrugðið varðandi líðan og eftirlit á meðgöngunni og fer vel yfir fæðingarsöguna þar sem tvíburi A var í sitjandi stöðu. Við heyrum skemmtilegar sögur að hætti Evu af hennar reynslu og bjargráðum til þess að komast í gegnum daginn með litla tvíbura. Rifinn árshátíðarkjóll, áhrifamikið trúnó í Vesturbæjarlaug, samningaviðræður við iðnaðarmenn í miðri gangsetningu og bananaknippi á rúmgaflinum. Komiði með!
Ljósmæður líta um öxl: Áslaug Hauksdóttir
2024/04/17
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur þáttarins er Áslaug Hauksdóttir ljósmóðir, báráttukona og kvenskörungur með meiru. Hún segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar forvitni og þörf til að taka þátt í framþróun og breytingum í þágu kvenna. Áslaug hefur sinnt ljósmæðrastörfum erlendis og í flestum landshornum hérlendis, þar með talið á Landspítala þar sem hún tók til dæmis þátt í uppbyggingu og starfsemi Glasafrjóvgunardeildar. Segja má að Áslaug sé mikill brautryðjandi á sviði ljósmóðurfræða á Íslandi og tók hún stóran þátt í að innleiða og festa í sessi vatnsfæðingar sem og heimafæðingar hér á landi. Komið með inn í skemmtilegar sögur allt frá símhringingu í útvarpsþátt yfir í fundi við Landlækna, þar sem réttlætiskennd og baráttuandi fyrir kvennamálum skín í gegn.
Ljósmæður líta um öxl: Magga Bjarna og Gunna Bö
2024/03/22
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestir dagsins eru hið órjúfanlega tvíeyki Margrét Ásdís Bjarnadóttir og Guðrún Böðvarsdóttir, betur þekktar sem Magga og Gunna. Ljósmæðraáhugi þeirra beggja kviknaði í sauðburði, enda sveitastúlkur að vestan. Þær segja frá námsárunum þar sem þær rétt náðu í skottið á heimavistinni með tilheyrandi sjarma, útivistarreglum og stífuðum köppum. Magga og Gunna hafa í gegnum tíðina upplifað allskyns strauma og stefnur í fræðum og starfsháttum og lýsa vel þeim tækniframförum og breytingum sem orðið hafa á starfsumhverfi fæðingarþjónustunnar. Komið með inní fjölmargar skemmtilegar sögur af ævintýrum þessara einstöku vinkvenna innan vinnu sem utan, en þeir heimar hafa aldeilis skarast þegar þær tóku á mótu börnum hvor annarrar og aðstoðuðu við fæðingar barnabarnanna.
Ljósmæður líta um öxl: Guðrún Guðbjarts
2024/01/09
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur dagsins er Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum á Suðurnesjum. Ferill Guðrúnar á Ljósmæðravakt HSS spannar 47 ár og fer hún yfir hápunkta og skemmtilegar sögur í viðtali dagsins. Ljósmæðra-áhuginn, námsárin, samblandan við einkalífið, uppáhalds ljósubarnið, sorgir og sigrar. Það er áhugavert að heyra frá breytingum og þróun á starfsháttum og menningu í kringum fæðingar á þessum tíma, og ekki síður magnað að heyra frá því sem ekki breytist í aldanna rás þegar ljósmæðralistin er annars vegar.
Þegar ljósmóðir eignast barn
2023/10/31
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þetta sinn fá Legvörpur ekki til sín gest heldur beinist hljóðneminn að Stefaníu sem leysir frá skjóðunni. Hún segir sína reynslusögu af því að ganga með og fæða barn sem ljósmóðir. Hvernig er það að upplifa þetta sjálf á eigin skinni eftir að hafa fylgt ótal konum í gegnum ferlið? Hvað kom á óvart? Hvenær var ljósmæðraþekkingin gagnleg.. eða þvældist hún einhverntíman fyrir? Komið með í þetta magnaða ferðalag, allt frá tilfinningarússíbananum sem fylgir óráðgerðri þungun yfir í kraftmikla heimafæðingu með nágrannana á vorhreingerningardegi fyrir utan gluggann.
Sitjandi fæðingar með Kamillu
2023/07/21
English below// Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er danski fæðingarlæknirinn Kamilla Gerhard Nielsen sem fjallar af sinni fagmennsku og einstöku yfirvegun um sitjandi fæðingar og allskyns fróðleik sem tengist hinni sjaldgæfu sitjandi stöðu. Kamilla fræðir okkur um sérþekkingu sína og reynslu af “Upright breech” eða sitjandi fæðingum í uppréttri stöðu, útkomur, upplifun, fræðslu til foreldra og kennslu starfsfólks. Spjallið fer á flug um sögu, menningu, tölfræði og tilfinningar þegar sitjandi fæðingar eru annars vegar, sem einkennist af bæði trú og auðmýkt. // The midwives Stefanía and Sunna talk to the danish obstetrician and pioneer Kamilla Gerhard Nielsen about upright breech birth. In this episode, Kamilla shares with us her knowledge and experience of the upright breech concept along with statistics and outcomes. She also educates us on how health care staff is trained so everyone feels safe, the staff and the parents and how parents are informed about this rare presentation so they can take an informed decision about their birth. Kamilla also sheds light on spiritualism, culture and emotions regarding the fascinating breech birth. Come and listen to this episode with us about upright breech birth with the humble brilliant obstetrician, Kamilla Gerhard Nielsen
Podcast reviews
Read Legvarpið podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Legvarpið relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.7129972
10 to Life
Annie Elise

4.76753464
Criminology
Emash Digital & Mike Ferguson, Mike Morford

4.87523980
The Dr. John Delony Show
Ramsey Network

4.512623668
RedHanded
RedHanded

4.9247931451
Unashamed with the Robertson Family
Tread Lively

4.8224811798
The Andrew Klavan Show
The Daily Wire

4.7278572000
The Matt Walsh Show
The Daily Wire

4.959892000
Legal AF by MeidasTouch
MeidasTouch Network

4.7292742000
The Michael Knowles Show
The Daily Wire

4.890631580
Fearless with Jason Whitlock
Blaze Podcast Network