1513952647
Ormstungur

Advertise on podcast: Ormstungur

Rating
★★★★★
5
from
6 reviews
Categories
Country
Iceland
This podcast has
104 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Ormstungur
Explicit
No
Date created
2020/05/18
Latest episode
2026/09/24
Average duration
24 min.
Release period
8 days

Description

Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.

Unlock Ormstungur podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Ormstungur podcast


7. Gunnlaugs saga ormstungu - Uppgjör
2026/09/24
Sagan gerð upp. Farið er yfir hetjuskap og kvarði smíðaður til að meta hann í Íslendingasögunum. Hjalti kveður Odd í kútinn. Hvaða máltíð væri Gunnlaugs saga? Hvaða lag? Stóru spurningunum er svarað í þessum rosalega uppgjörs þætti! Einnig lagðar línur fyrir framtíðina.
6. Gunnlaugs saga ormstungu - Örlögin bíta
2026/09/24
Sagan nær hámarki. Draumar og blóð. Stirt er á milli Helgu og Hrafns. Þungt yfir þrátt fyrir partýhald.. Lágskýjað. Ský dregin fyrir sólu.  Gulli og Hrafn eiga í basli að finna stað fyrir hólmgöngu því þær hafa verið bannaðar á Íslandi. Af hverju? Rætist draumur Þorsteins? Hverjir munu liggja í valnum? Það er allavega dramatískt lokauppgjör milli Gulla og Hrafns!
5. Gunnlaugs saga ormstungu - Þótti þér hann ei drápunnar verður?
2026/09/24
Það eru sænskir dagar hjá Gulla. Sem er slæmt því Hjalti er einn helsti áhugamaður um tilvistarkreppu Svía og orðið ,,lagom”. Leikar fara að æsast í sögunni þegar Gulli og Hrafn fara að kveðast á fyrir framan konung.
4. Gunnlaugs saga ormstungu - Eigi skal haltur ganga
2026/09/24
Gulli slær í gegn en sullur hefur myndast á fæti hans. Ekkert virðist þó geta stöðvað hann í leið sinni til heimsfrægðar. Eða hvað? Áhugaverðar umræður fara á flug um skikkjur og primaloft úlpur.
3. Gunnlaugs saga ormstungu - Skáldið vill út
2026/09/24
Gulli Ormstunga stimplar sig inn í söguna ásamt Helgu fögru. Ástin svífur yfir vötnum. Grasið er samt alltaf grænna hinum meginn. Gulli reynir hvað hann getur að komast á vit ævintýranna og sýna hvað í honum býr. Það ætlar þrautinni þyngra að komast af landi.
2. Gunnlaugs saga ormstungu - Ekki er mark að draumum
2026/09/24
Persónur sem leggja jarðveginn fyrir aðalpersónur sögunnar seinna meir eru kynntar til leiks. Syni Egils Skallagrímssonar, Þorsteini Egilssyni, dreymir draum og fær Austmann til að ráða. Það boðar ekki gott!
1. Gunnlaugs saga ormstungu - Lagt á borð
2026/09/24
Ormstungur eru alltaf að breyta og bæta. Hér er ein gömul og góð. Enduhljóðblönduð. Gunnlaugs saga sagan hefur allt! Af nógu er að taka; ást, draumar, hetjuskapur, öfund og hefnd. Um þessar mundir er líka söngleikurinn Ormstunga á fjölum Þjóðleikhússins. Um að gera að rifja þessa snilld upp.
14. Gísla saga Súrssonar - Uppgjör
2026/06/12
Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Gíslinn gerður upp og við förum í sjálfskipaða útlegð frá Vestfjörðum.
13. Gísla saga Súrssonar - Einhamar
2026/06/12
Kaflar 34-38 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Lokaorustan harðnar. Gísli fer upp á Einhamar og fellur þaðan. Við föllum öll með honum og Ormstungur falla endanlega á prófinu.
12. Gísla saga Súrssonar - Fé er best eftir feigan
2026/06/12
Kaflar 31-33 í skólaútgáfu Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Njósnar-Helgi fær háðuglega útreið, en ekki verri en Eyjólfur grái þegar feðraveldið fær á snúðinn. Gísla er orðið svo illt í maganum að hann fær sturlaða drauma.
11. Gísla saga Súrssonar - Draumfarir slæmar
2026/06/12
Kaflar 28-30 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Þorkell fellur, ekki fyrir eigin hendi en þó fyrir eigin sverði. Gestur hinn spaki er farinn að toga í spotta. Magaverkir Gísla ágerast og valda honum slæmum draumförum. Hann er þó háll sem áll og ólíklegt að Ormstungur geti nokkurn tímann fangað hann.
10. Gísla saga Súrssonar - Hasar í Hergilsey
2026/06/12
Kaflar 25-27 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Njósnar-Helgi sýnir hvers hann er megnugur en Gísli er snjallari. Hann er nú orðinn frægur enda enginn hraustari eða hugrakkari. Ekki er hann þó gæfumaður.
9. Gísla saga Súrssonar - Útlaginn
2026/06/12
Kaflar 23-24 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Ormstungum hefur ekki tekist að fanga Gísla. Þá er kynntur til sögunnar 007 Íslands, útsendari Eyjólfs gráa, sjálfur Njónsar-Helgi. Gísli reynir enn að fá bróður sinn til að hjálpa sér en Þorkell hafði ekki lesið 152. kafla Njálu og skilur við bróður sinn beran að baki.
8. Gísla saga Súrssonar - Draumkonur
2026/06/12
Kaflar 20-22 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Ormstungur missa Gísla frá sér og hann hrekst að heiman og fer í leiðinni illa með þrælinn Þórð. Hann er dæmdur sekur og fer að finna fyrir ónotum í maganum.
7. Gísla saga Súrssonar - Skammt er þá milli illra verkra og stórra
2026/06/12
Kaflar 17-19 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Nefið belgir út nasirnar og hnusar í allar áttir. Það hefur voveiflegar afleiðingar síðar meir en fyrst er Nefinu komið fyrir kattarnef. Þess á milli játar Gísli á sig morð.

Podcast reviews

Read Ormstungur podcast reviews


5 out of 5
6 reviews
★★★★★
Harpa Rós 2021/07/26
Gott stöff
Frábærir þættir, leiða mann inní þennan heim á skemmtilegan og auðskilinn hátt
check all reviews on apple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Ormstungur relevant audience podcasts


What do you want to promote?