1521665409
Tölvuleikjaspjallið

Advertise on podcast: Tölvuleikjaspjallið

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
Categories
Country
United States
This podcast has
299 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2020/07/01
Latest episode
2026/11/04
Average duration
66 min.
Release period
11 days

Description

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Unlock Tölvuleikjaspjallið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Tölvuleikjaspjallið podcast


299. Elder Scrolls mun heita Sentinel, WOW Forever kominn út og smá um GTA VI - fréttir nóvember
2026/11/04
Síðasti þáttur fyrir LIVE SHOW! Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á Next Level Gaming föstudaginn 6. nóvember! Stútfull dagskrá og fullt af skemmtilegum vinningum frá óteljandi fyrirtækjum. Annars er þáttur vikunnar fréttaþáttur og það er af nægu að taka! Elder Scrolls VI mun heita Sentinel og það eru 2+ ár í hann. EA valdi Battlefront frekar en Mass Effect og þess vegna lokaði Bioware. WOW Forever er að koma út og Gunnar er mjög spenntur. Þetta og meira í stútfullum þætti vikunnar!
298. Bioware - rosaleg saga um fallið fyrirtæki
2026/10/29
Bioware var eitt sinn topp fyrirtækið þegar kom að RPG leikjum. Svo breyttist það. Af hverju? Arnór Steinn fer yfir sögu Bioware með Gunnari og Sölva. Hvernig byrjaði fyrirtækið, hvaða leikir voru að vekja athygli og hvað varð svo til þess að fyrirtækinu var lokað haustið 2026? Þetta og meira í stútfullum þætti! Minnum á LIVE ÞÁTTINN 6. nóvember í Next Level Gaming! Frítt inn, vinningar, tilboð á pizzu og margt fleira! Hver er þín uppáhalds Bioware minning?
297. Nýjasta nýtt um GTA VI, Cyberpunk kvikmynd, Galactic Racer og fleiri fréttir + LIVE ÞÁTTUR Á NÆSTUNNI!
2026/10/16
Hvaða útvarpsstöðvar verða í GTA VI? Það er komið í ljós! Full mæting í stúdíóinu í kvöld, Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi ræða fréttir síðustu vikna. GTA VI, Cyberpunk kvikmynd á leiðinni og fleiri stórar fréttir. Einnig tilkynnum við loksins hvernig við munum fagna 300 þættinum okkar - það er með LIVE ÞÆTTI 6. NÓVEMBER NÆSTKOMANDI Á NEXT LEVEL GAMING! Stay tuned fyrir frekari upplýsingar ...
296. Control Resonant - besti leikur ársins kominn út?
2026/10/07
Ekkert helst í skefjum að eilífu ... Framhaldið á hinum stórskemmtilega CONTROL frá 2019 er loksins komið út! Remedy er heldur betur búið að elda góðann mat handa okkur með CONTROL RESONANT og við ætlum að skoða fyrstu hughrif okkar í þætti vikunnar. Arnór Steinn og Sölvi ræða leikinn á alveg spoiler free hátt.. Hvernig er heimurinn, spilunin, hljóðið og svo margt, MARGT fleira. Ef þið eruð ekki búin að prófa Control Resonant .. breytið því undir EINS. Þetta er gjörsamlega FRÁBÆR tölvuleikur!
295. Wolverine (2026)
2026/09/30
Þrjár klær á hvorri hendi og ótakmarkað magn af bræði ... velkomin í Wolverine ... Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi fara í saumana á nýjasta útspili Insomniac. Spilunin, karakterarnir, plottið og margt fleira! Sölvi rifjar einnig aðeins upp eldri þætti af Tölvuleikjaspjallinu, en hann er að taka maraþon á öllum þáttunum. Er eitthvað sem við gerðum í fyrri þáttum sem við gerum ekki lengur?
294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg?
2026/09/22
Stutta svarið er nei. Langa svarið er þessi þáttur. Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi fá RES EVIL sérfræðing Tölvuleikjaspjallsins til að ræða nýjustu tölvuleikjakvikmyndina. Strákarnir fengu boð á VIP sýningu Game TíVí og fóru bókstaflega BEINUSTU leið í stúdíó að taka upp þátt. Karakterinn, uppvakningarnir, blóðið og ruglið og MARGT fleira í geðveikum þætti. Spoiler free upp að mínútu 30! FARIÐ Á ÞESSA MYND Í BÍÓ!!!
293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki?
2026/09/17
Glöggir hlustendur hafa tekið eftir því að góðkunningi þáttarins Sölvi Santos hefur dúkkað upp í fleiri þáttum en venjulega upp á síðkastið ... ... það er vegna þess að við ætlum að bæta honum í róteringu þáttastjórnenda Tölvuleikjaspjallsins! Nú erum við þrír! Fleiri þættir, fleiri gestir, fleiri leikir og meiri gleði. Tökum smá strategy leikjaspjall og tölum aðallega um STAR WARS: ZERO COMPANY!
292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september
2026/09/10
Er búið að tala nóg um GTA VI? Ekki alveg ... Arnór Steinn og Sölvi taka helstu fréttir haustsins í brakandi ferskum þætti. God of War: Laufey, Wolverine og margt fleira!
291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif
2026/08/28
Þó að það sé búið að leka þessu öllu þá samt - LOKSINS erum við komin með official GTA VI gameplay!!! Gunnar og Sölvi horfðu á alla kynninguna og ýttu bókstaflega á REC þegar hún kláraðist. Hughrifin verða ekki ferskari en þetta. Hvað fannst þér um GTA VI kynninguna? VIð munum svo taka fleiri þætti í haust til að hita upp fyrir leikinn sjálfann!
290. Bee Space - íslenskur leikur - demo komið á Steam!
2026/07/28
Þú ert býfluga og þarft að byggja jörðina upp á nýtt. Bee Space er íslenskur leikur væntanlegur á seinni hluta ársins frá framleiðandanum Polykite. Arnór Steinn settist niður með Palla og Frey frá Polykite og fékk að vita allt sem hægt er að vita um leikinn. Tjékkið á demoinu á Steam og smellið leiknum á wishlist. Njótið viðtalsins!
289. Fallout New Vegas endurgerð STAÐFEST! plús fleiri fréttir
2026/07/20
Hættið öllu sem þið eruð að gera, NEW VEGAS FÆR ENDURGERÐ: STAÐFEST Arnór Steinn réð ekki við sig og gerði smá sóló þátt í kjallaranum. Hvað þýðir tilvonandi endurgerð á FNV og hvað er í gangi hjá Bethesda? Smá greining á nýjustu fréttum.
288. Sony hættir með diska, Xbox rekur fullt af fólki og GTA VI kostar peninga - síðasti þáttur fyrir sumarfrí!
2026/07/08
Tölvuleikjaspjallið er í banastuði í síðasta þætti sínum fyrir langþráð sumarfrí! Tökum saman stærstu fréttir ársins, helstu leiki og tölum um að þetta er sex ára afmælisár Tölvuleikjaspjallsins! Í haust kemur þáttur númer 300 út! Hvernig eigum við að fagna? Takk fyrir að vera með okkur öll þessi ár 333
287. GTA: San Andreas
2026/06/24
Ah shit, here we go again ... Tölvuleikjaspjallið dýfir tánnum oní nostalgíuvötnin með því að kíkja á einn besta tölvuleik allra tíma: San Andreas. VIð erum að hita upp fyrir komu GTA VI með því að skoða alla gömlu góðu GTA leikina. Bílarnir, borgirnar, karakterarnir, útvarpsstöðvarnar og MARGT fleira í stútfullum endurminningarþætti!
286. Er Diablo IV ennþá góður? - með Sigga Sören
2026/06/17
Hatur ... volæði ... glundroði ... Diablo IV Þessi þriggja ára gamli leikur er enn að spilast út um allan heim. Tveir stórir aukapakkar, þrír nýir klassar ... nóg að gera! Diablo sérfræðingur Tölvuleikjaspjallsins Siggi Sören mætir og ræðir við Arnór Stein um leikinn. Klassarnir, djöflarnir, breytingarnar og margt fleira í stútfullum þætti vikunnar. Ert þú að spila Diablo IV? Endilega segðu okkur frá því!
285. 007: First Light - fyrstu hughrif
2026/06/10
Nafnið er Spjallið ... Tölvuleikjaspjallið. Nýjasti 007 leikurinn er kominn út og við erum HRIFNIR! Arnór Steinn og Gunnar ræða sín fyrstu hughrif af þessum eftirvænta leik. Algjörlega spoiler free! Hvað finnst okkur um bardagakerfið, byssurnar, staðsetninginn, Bondarann og fleira! Er Bond kominn í þína tölvu? Segðu okkur hvað þér finnst!

Podcast reviews

Read Tölvuleikjaspjallið podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Tölvuleikjaspjallið relevant audience podcasts


What do you want to promote?