Unlock Ratsjá podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Ratsjá podcast
Greindarvísitölur og flokkunarþörf
2023/04/06
Vísindin eiga það enn til að fara fram úr sjálfum sér. Þannig eru greindarvísitölupróf eru notuð til að mæla greind einstaklinga, en er það réttmætt að nota aldargamla aðferð til að greina námserfiðleika hjá börnum í þeim tilgangi? Greindarvísitölupróf kallast að vissu leiti á við höfuðlagsfræðin þar sem þeim hefur verið beitt til að bera saman kynþætti, útiloka hópa og festa í sessi hugmyndir um náttúrulega yfirburði. Innganga í gáfnaljósaklúbbinn Mensa krefst til dæmis 138 á Stanford-Binet skalanum, en kann að vera að þessar hugmyndir um gáfur séu bara enn ein vitleysan í vísindunum? Í þættinum verður saga greindarvísitölu- og persónuleikaprófa rakin og spurningarmerki sett við gagnsemi og beitingu slíkra mælikvarða. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson.
Vísindakirkjan og -skáldskapur
2023/04/06
Árið 1950 gaf vísindaskáldsagnahöfundurinn L. Ron Hubbard út bókina Dianetics: The Modern Science of Mental Health, sem síðar varð grunnrit Vísindakirkjunnar. Díanetíkin er sálfræðimeðferð sem byggir á yfirheyrslum og rafmælingum til að hreinsa neikvæða reynslu úr viðbragðshuganum svokallaða. Díanetíkin var upphaflega hugsuð sem vísindi en naut meiri vinsælda sem trúarbrögð og skipta fylgjendur Vísindakirkjunnar tugum þúsunda um allan heim. Í þættinum skoðum við trú, sálfræði, tækjabúnað og sögu Vísindakirkjunnar. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson.
Orgónorkan og kynhvötin
2023/04/06
Rétt eins og röskun eða skortur á kynhvöt veldur taugaveiklun getur það að orgón-orkan sé ekki í lagi valdið krabbameini. Einhvern veginn á þessa leið var kenning Wilhelms Reich um lífskraftinn, en hana byggði hann meðal annars á hugmyndum Freud um sálarlíf mannsins. Reich var einn af fjölmörgum fræðimönnum sem flúðu til Bandaríkjanna við upphaf seinni heimsstyrjaldar og störfuðu við New School for Social Research en þegar þangað var komið setti Reich á laggirnar Orgón-orkustofnum. Hann seldi orgón-orkusafnklefa sem lækningatæki og fékk Einstein sjálfan til að taka þátt í rannsóknum. Í þættinum förum við yfir sögu Reichs sem sló í gegn hjá Beat-kynslóðinni með persónutöfrum og vísindalegu yfirbragði. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson.
Lífræn segulmögnun og dáleiðsla
2023/04/06
Lífið sjálft hefur lengi verið manninum ráðgáta. Hvað er það sem greinir hið lifandi frá hinu lífvana? Á átjándu öld, lagði Franz Anton Mesmer til að lífskrafturinn væri segulmagnaður vökvi innra með öllum lifandi hlutum. Vökvann mátti hafa áhrif á með seglum og lækna þannig hina ýmsu kvilla. Þessi hugmynd er löngu gleymd og grafin, aðrar og betri kenningar hafa tekið við, lífræni segulvökvinn er ekki til. En eftir stendur þó önnur aðferð sem Mesmer þróaði til að meðhöndla sjúklinga sína, dáleiðslan. Í þættinum rekjum við sögu Mesmers og hættum okkur inn á hið gráa svæði dáleiðslunnar sem öðlast hefur sjálfstætt líf og er notuð í misgóðum tilgangi í dag. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson.
Frenólógía og hið glæpsamlega eðli
2023/04/05
Að greina megi persónueinkenni og gáfnafar á höfuðlagi einstaklings kann að hljóma eins og argasta húmbúkk, samkvæmisleikur á borð við lófalestur og andaglas. Á Viktoríutímanum var höfuðlagsfræðin, eða frenólógían, þó tekin alvarlega, svo alvarlega að hún mótaði mennta- og refsistefnu hins enskumælandi heims. Höfuðlagsfræðin lofaði sömu innsýn og persónuleikaprófin gera í dag og hin nýja millistétt tók ástfóstri við poppsálfræði frenólógíunnar. Í þættinum fylgjum við frenólógíunni frá uppruna hennar í Vín til útbreiðslu í Bretlandi og Bandaríkjunum og alla leið inn í gervigreind nútímans. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson.
Við verðum að fara út í geim
2022/05/03
Framtíðin hér á jarðkringlunni er ekkert allt of björt. Enn er því ósvarað hvort okkur takist að sigrast á þeim vandamálum sem við stöndum frammi fyrir og hvað gerum við þá? Í þættinum er fjallað um áætlanir Jeff Bezos og Elon Musk um að byggja nýlendur í geimnum og hver framtíð mannkyns væri í slíkum heimi. Viðmælandi: Baldur Arnarson, blaðamaður og þýðandi. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson.
Það er aðrbært að fara út í geim
2022/05/03
Auðlindir jarðar eru af skornum skammti og brátt verða öll hennar svæði könnuð, þekkt og skrásett. En geimurinn er óskrifað blað, þar leynast eðalmálmar og ókannaðar lendur sem hægt væri að nýta til að umbylta lífinu á jörðinni. Í þættinum er fjallað um hvernig hið nýja geimkapphlaup snýst að stórum hluta um að slá eignarhaldi á geiminn og möguleika og takmarkanir þess. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson.
Það er GAGNLEGT að fara út í geim
2022/05/03
Geimurinn og himinhvolfið hafa heillað mannskepnuna frá örófi alda. Í þættinum er fjallað um þær tækniframfarir sem sem hafa fleytt bæði geimferðum og stjörnufræði áfram auk þess sem óvæntum og skemmtilegum hliðarafurðum geimkapphlaupsins verða gerð skil. Viðmælandi: Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðingur. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson.
Það er draumur að fara út í geim
2022/05/03
Milljarðamæringar heimsins keppast nú við að skjótast út í geim og er nýtt gullaldarskeið geimferða hafið. Í þættinum er fjallað um drauminn sem knúið hefur geimferðir. Hlustendur kynnast Wernher von Braun, föður geimferða á tuttugustu öld, en furðuleg uppátæki Elon Musk og Jeff Bezos koma einnig við sögu. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson.
Helíum
2021/06/17
Á 17. júní er til siðs að kaupa blöðrur fyrir börn. Þunnar álblöðrur, skreyttar teiknimyndapersónum sem fljóta upp á við af sjálfsdáðum. Slík blaðra er fyllt með eðalgasinu Helíum og þó Helíum sé næst algengasta frumefnið í heiminum er það ekki bara missir fyrir barnið þegar blaðran fýkur út í 17. júní rokið, það er missir fyrir jörðina. Í þættinum er saga frumefnisins Helíum rakin frá innviðum jarðarinnar og lengst út í geim. Viðmælendur í þættinum eru Viðar Guðmundsson, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands og Árni Johnsen, læknir. Umsjón: Snorri Rafn Hallsson og Tómas Ævar Ólafsson.
Sólarspeglar
2021/05/24
Í baráttunni við hamfarahlýnun er vísindamenn farnir að sækja innblástur í útblástur jarðarinnar. Uppi eru hugmyndir um að líkja eftir ákveðnum áhrifum eldgosa í þeim tilgangi að draga úr krafti sólarinnar og kæla þar með jörðina. Snorri og Tómas halda á gruggugar slóðir jarðmótunar, en það eru markvissar, stórtækar og ekki síst stórhuga aðgerðir til að hafa áhrif á loftslag jarðarinnar. Rætt er við Sigurð Reyni Gíslason, jarðfræðing og Evgeniu Ilyinskayu, dósent í eldfjallafræði. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Snorri Rafn Hallsson.
Kolefnissugur
2021/05/23
Hamfarahlýnun jarðarinnar skrifast að miklu leyti á umframmagn gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu. Það er ekki nóg að draga úr losun, við þurfum að hreinsa upp eftir okkur. Í þættinum skoða Tómas og Snorri jarðmótun, sem eru markvissar, stórtækar og ekki síst stórhuga aðgerðir til að hafa áhrif á loftslag jarðarinnar og kynnast náttúrulegum og tæknilegum aðferðum við föngun og förgun kolefnis. Rætt er við Sigurð Reyni Gíslason, jarðfræðing og Söndru Ósk Snæbjörnsdóttur, yfirmann koldíoxíðsförgunar hjá CarbFix. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Snorri Rafn Hallsson.
Podcast reviews
Read Ratsjá podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Ratsjá relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.823230
The Clinton Baptiste Paranormal Podcast - The Spirit Archive – produced by Peters-Fox
Peters-Fox Ltd

4.941569
Hail Yes
Pionaire Podcasting

4.931200
About IBD
Amber J Tresca

513540
Gästeliste Geisterbahn
Markus Herrmann, Nilz Bokelberg, Maria Lorenz-Bokelberg

4.7156288
Bob and Brad
Bob and Brad

4.3149184
Pseudo-Archaeology
The Archaeology Podcast Network

512229
Wahre Verbrechen - True Crime Podcast
Alex

4.538385
Dr. Hotze's Wellness Revolution
Dr. Steven F. Hotze

4.8155203
Pokemon Rollout!
Pokemon Rollout!

4.5158303
3 Pagans and a Cat
Ode & Gwyn
