Vaxtaverkir

Advertise on podcast: Vaxtaverkir

Rating
5
from
1 reviews
Country
This podcast has
13 episodes
Language
Publisher
Explicit
No
Date created
2021/06/14
Average duration
42 min.
Release period
20 days

Description

Hlaðvarpið Vaxtaverkir er fyrir þá sem vilja læra um fjármálaheiminn á mannamáli. Þættirnir eru gerðir fyrir ungt fólk á öllum aldri. Ef þú kæri hlustandi svitnar við það að ræða peningamál eða verkjar við það að heyra um vexti þá ertu að réttum stað. Þáttastjórnendur eru Brynja Bjarnadóttir og Kristín Hildur Ragnarsdóttir. Þættirnir koma út annan hvern föstudag.

Podcast episodes

Check latest episodes from Vaxtaverkir podcast


Ársuppgjör Vaxtaverkja
2021/12/31
Í þessum síðasta þætti ársins (og síðasta þætti í bili) gera Vaxtaverkir þættina upp og taka létta samantekt á því sem teymið lærði á árinu. Í lok þáttar er síðan farið yfir fjárhagsleg markmið fyrir árið 2022, því jú það er alltaf betra að segja markmiðin upphátt. Takk fyrir okkur elsku hlustendur, njótið vel og gleðilegt nýtt ár! Þangað til næst..
more
Góð ráð fyrir jólaveskið
2021/12/17
Í þessum þætti tökum við saman sjö misgóð ráð sem er gott að hafa með sér í jólagjafainnkaupunum og ættu að hafa góð áhrif á veskið.
Markaðssetning, fyrirtækjarekstur og áhrifavaldalífið
2021/11/19
Hér fáið þið svokallaðan GELLUþátt - við fengum athafnakonuna Birgittu Líf Björnsdóttur til okkar (kemur í ljós ef þið hlustið á þáttinn hvers vegna hún fær þann titil af mörgum). Við förum yfir það hvernig það sé að vera Kris Jenner Íslands, lykilatriði í markaðsetningu, hvernig sé að tvinna rekstur á skemmtistað og líkamsræktarstöð saman og hvort töskur geti mögulega verið góð fjárfesting. Þetta eru allt mikilvægar spurningar fyrir gellur og ekki gellur. Njótið.
more
Launa- og atvinnuviðtöl
2021/11/05
Gestur þáttarins er Stefanía Ásmundsdóttir. Hún vinnur hjá ráðninga- og ráðgjafafyrirtækinu Hagvangi, er augljóslega fædd í starfið og síðan er hún líka með mjög þægilega útvarpsrödd. Við förum fyrst yfir atvinnuviðtöl og færum okkur svo yfir í launaviðtöl. Ef þú ert á leiðinni í eitt slíkt á næstunni (eða bara ekki) þá er þetta þátturinn fyrir þig. Komdu þér vel fyrir og njóttu.
more
Evergrande og nokkur góð fjármálaráð
2021/10/22
Jæja nú er sumarfríi númer fimm lokið og Vaxtaverkir eru mættir, ferskari en aldrei fyrr. Í þessum þætti duttum við aðeins í fréttaskýringagírinn. Hvað er Evergrande? Við stiklum á stóru og gerum okkar besta í að útskýra hvers vegna þetta stóra fasteignaþróunarfélag er í brennidepli í fjármálaheiminum. Við tökum saman fimm góð ráð til að fylgja sama hvort markaðurinn sé að leita upp eða niður. Njótið.
more
Makinn og fjármál
2021/09/24
Hefurðu velt fyrir þér hvernig sé best að ræða fjármál við maka? Hvort sameiginleg fjármál henti eða ekki? Hvernig sé best að setja sér sameiginleg markmið? Eða ef þú átt ekki maka, hvort það séu engar pælingar fyrir þig í þessum þætti? Svarið er jú. Við fengum frábæran gest til okkar, hann heitir Guttormur og er vörustjóri hjá Meniga. Guttormur er með meistaragráðu í að ræða við maka sinn um fjármál - grín. Hann er samt reynslubolti í sameiginlegum fjármálum og stórskemmtilegur. Hér fáið þið enn einn þáttinn sem er stútfullur af fróðleik en á sama tíma mjög skemmtilegur (hlutlaust mat). Njótið!
more
Maikai veldið
2021/09/10
Elísabet Metta og Ágúst Freyr eru stofnendur Maikai. Þar selja þau acaí skálar með svokölluðum acaí berjum, svona nánast eins og hollur bragðarefur. Við fengum þau til okkar í mjög svo einlægt spjall um reksturinn og lífið. Þau eru svo ótrúlega filterslaus og skemmtileg að þetta viðtal gat ekki annað en orðið skemmtilegt. Njótið. Minnum á afsláttarkóðan Vaxtaverkir inná tan.is fyrir alla þá sem vilja næla sér í smá brúnku fyrir helgina.
more
Viðurkennum (sparnaðar)mistök og lærum af þeim
2021/08/27
Mistök eru til þess að læra af þeim - þessi þáttur er sérstaklega gerður fyrir 18 ára Brynju og Kristínu ef þær væru að hlusta. Við erum á léttari nótunum í þessum þætti, förum yfir okkar helstu sparnaðarmistök og fengum síðan engan annan en Bassa Maraj sem er low key living fyrir Vaxtaverki til þess að fræða okkur um sín sparnaðarráð. Þessi þáttur er í boði tan.is sem ætla gefa öllum aðdáendum 15% afslátt með kóðanum "vaxtaverkir". Hver er ekki til í smá tan fyrir helgina?
more
Nánast allt um Bitcoin
2021/07/30
Við byrjum á öllu þessu allra helsta um rafmyntir og hvernig þær virka en síðan er líka bara forvitnilegt að vita hvaða æsing Elon Musk er alltaf að reyna búa til í kringum Bitcoin, eru Seðlabankar heimsins að fara taka upp rafmyntir eða er Bitcoin bara komið til að vera, er Bitcoin í "crypto"heiminum Simone Biles í fimleikaheiminum?
more
Lán 101
2021/07/02
Lánamál eru og verða alltaf flókin það er því miður bara þannig. Brynja lánafulltrúi með meiru gerir sitt besta við að svara misflóknum spurningum sem Kristín leggur fyrir hana um lánamál.
more
Það sem þú vildir vita um fjárfestingar - Baldur Thorlacius
2021/06/18
Við fengum alvöru sérfræðing til okkar í þriðja þátt til þess að fræða okkur um fjárfestingar. Hann heitir Baldur Thorlacius og er framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptatengsla hjá Nasdaq á Íslandi. Við spurðum Baldur spjörunum úr og fengum hann til að svara spurningum á borð við: - Hverju er best að huga að áður en fjárfest er á verðbréfamarkaði? - Hvaða kennitölur er best að horfa á þegar maður er að skoða ársreikninga fyrirtækis? - Hvernig er best að dreifa áhættunni hér á Íslandi á verðbréfamarkaðnum? - Hvernig er best að fjárfesta á erlendum markaði? - Hvernig fjárfesti ég í nýsköpun?
more
Meldingar um stýrivexti og sparnaðarleiðir
2021/06/03
Í fyrstu þremur þáttunum einblínum við á fjárfestingamarkaðinn, fólk virðist vera æst í að gera eitthvað annað við peningana sína en að láta þá rýrna inn á bankabók. Í þessum þætti förum við yfir allt sem þú vildir vita um stýrivexti, verðbólgu og rennum svo yfir helstu fjárfestinga- og sparnaðarleiðir. Ef þú ert nýkomin í sumarfrí frá skólanum og þyrstir strax aftur í smá lærdóm þá ertu á réttum stað.
more

Podcast reviews

Read Vaxtaverkir podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Vaxtaverkir & sponsor relevant audience podcasts


What do you want to promote?

Ad Format

Campaign Budget

Business Details