
Advertise on podcast: Stóra myndin
Categories
This podcast has
8 episodes
Language
IcelandicPublisher
Stóra myndinExplicit
No
Date created
2026/09/29
Latest episode
2026/11/12
Average duration
133 min.
Release period
7 days
Description
Endurtekur sagan sig eða rímar hún mögulega? Stóra myndin er hlaðvarp þar sem við tengjum málefni samtímans við sögu, heimspeki og mannlegt eðli. Ris og fall menningarheima, hringrás kynslóðanna, rímur sögunnar, lærdómur fortíðarinnar og margt fleira. Við erum ekki að hringsnúast í málefnum líðandi stundar heldur þysjum við út og skoðum stóru myndina. Frá Móses til nútímans. Platón, Cíceró, Rómaveldi, Dante, Machiavelli, Shakespeare, René Girard og svo framvegis. Einnig munum við ræða ákveðnar bækur, einstaka hugsuði og margt fleira.
Unlock Stóra myndin podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Stóra myndin podcast
#8 - Sterku guðirnir og brotalamir frjálslyndis
2026/11/12
Hvað fær okkur til að láta eigin hagsmuni víkja fyrir einhverju stærra en okkur sjálfum? Hvers vegna fórna foreldrar öllu fyrir börnin sín? Hvað heldur þjóð raunverulega saman þegar á reynir? Og hvað gerist þegar við hættum að trúa á nokkurn skapaðan hlut sem krefst af okkur fórn og sjálfsaga?
Í bókinni Return of the Strong Gods notar R. R. Reno hugtakið „sterku guðirnir“ um þau bönd sem binda okkur saman: fjölskylduna, ættjarðarástina, trúna og sannleikann. Reno heldur því fram að skiljanlegur ótti við nýtt ofstæki eftir síðari heimsstyrjöld hafi með tímanum snúist upp í tortryggni gagnvart ættjarðarást, fjölskyldugildum og trú á Guð. Ættjarðarást var æ oftar tengd við þjóðernisofstæki, trú við umburðarleysi og fjölskyldugildi talin hefta frelsi einstaklingsins. En í tilrauninni til að losna við alla áhættu höfum við búið til rótlaust samfélag þar sem ríkið og skrifræðið þenjast út á meðan mannleg tengsl og sjálfsábyrgð molna niður.
Við ræðum hvað tapast þegar siðferðilegum skyldum er skipt út fyrir viðskiptasamninga og þægindi. Við spyrjum hvað það kosti að standa með sannleikanum þegar vinnustaðurinn eða samfélagið kýs frekar þægilega lygi eða galna hugmyndafræði. Jafnframt skoðum við hvers vegna „Síðasti maðurinn“ hjá Nietzsche - sá sem hefur glatað öllum metnaði og neitar að bera ábyrgð, en vill aðeins láta deyfa sig með þægindum, afþreyingu og sársaukaleysi - er orðinn að stærstu ógninni við frelsið í dag.
Að lokum leitum við svara við því hvernig við getum endurvakið tryggðina við fjölskyldu, fósturland og sameiginleg gildi án þess að fela ríkinu vald yfir samvisku fólks.
#7 - Fjórða lotan - The Fourth Turning
2026/11/06
Er sagan bein lína fram á við eða gengur hún í lotum? Geta góðir tímar skapað veikleika, geta samfélög gleymt því sem fyrri kynslóðir lærðu og hvað gerist þegar traust, stofnanir og sameiginleg gildi veikjast á sama tíma?
Í þættinum ræðum við bókina The Fourth Turning eftir William Strauss og Neil Howe og kenningu þeirra um að samfélög gangi í gegnum um 80–100 ára kynslóðahringrásir. Hver hringrás skiptist í fjórar lotur: uppbyggingu, vakningu, upplausn og að lokum krísu. Samkvæmt kenningunni stöndum við nú í fjórðu lotunni - vetrinum.
Við skoðum hvernig kynslóðir mótast af þeim heimi sem þær alast upp í og förum yfir spámenn, flakkara, hetjur og listamenn. Baby Boomers, Gen X, Millennials og yngri kynslóðirnar fá þannig ólík hlutverk eftir því hvort þær alast upp við öryggi, uppreisn, upplausn eða krísu. Við spyrjum líka hvort maður sé fastur í sinni kynslóð eða hvort hægt sé að fara gegn straumnum.
Við förum víða um söguna: bronsaldarhrunið, Rómaveldi, siðaskiptin, ensku borgarastyrjöldina, frönsku byltinguna, bandaríska frelsisstríðið, borgarastyrjöldina í Bandaríkjunum og hinar svokölluðu Great Awakenings. Við ræðum líka skuldahringrásir Ray Dalio, hugmyndir Peter Thiel um ákveðna og óákveðna bjartsýni og hvernig hugmyndir og tíðarandi geta magnast upp yfir nokkrar kynslóðir.
Hvernig passar samtíminn inn í þetta? Fjármálahrunið 2008, Trump, Brexit, COVID, menningarstríð, minnkandi traust, skuldir, húsnæðiskreppa, lág fæðingartíðni, Úkraína, Mið-Austurlönd, Kína og Taívan, gervigreind og vaxandi pólitísk skautun.
Er Fjórða lotan raunverulega gagnleg kenning um söguna eða sjáum við bara mynstur af því að við leitum að þeim? Ef við erum í fjórðu lotunni, hvað eigum við þá sjálf að gera?
Við horfum líka fram á veginn: Hvaða ríki standa efnahagslega tæpast? Hvar gætu skuldir, pólitísk sundrung eða samfélagsleg spenna þróast yfir í alvarlegri krísu? Og hvar er mest hætta á að núverandi átök stigmagnist?
Ef Strauss og Howe hafa rétt fyrir sér er stóra spurningin kannski ekki hvort fjórða lotan endi, heldur hvernig hún endar og hvað tekur við.
#6 - Hægrimenn eru vinstrimenn
2026/10/22
Hvað þýðir að vera hægri eða vinstri? Er verið að tala um skatta, eignarrétt og stærð ríkisins - eða fjölskyldu, trú, innflytjendamál, þjóð, kyn, málfrelsi og Evrópusambandið?
Í þættinum rekjum við uppruna hugtakanna til frönsku byltingarinnar árið 1789, þegar hægri og vinstri lýstu einfaldlega sætaskipan í þingsal. Síðan skoðum við hvernig merking orðanna hefur færst í meira en tvær aldir og hvers vegna skoðun sem áður þótti frjálslynd eða vinstrisinnuð getur síðar lent hægra megin, án þess að skoðunin sjálf hafi breyst.
Við förum yfir efnahagslega hægri-vinstri ásinn, menningar- og siðferðismál, fullveldi, þjóðernishyggju og alþjóðahyggju, auk annars áss sem skiptir ekki síður máli: frelsi gegn forræði. Maður getur nefnilega verið hægra megin í einu máli og vinstra megin í öðru.
Hvar passa frjálshyggja, klassískt frjálslyndi, íhaldssemi, sósíaldemókratía, popúlismi, fasismi og kommúnismi inn í myndina? Hvað er íhaldssamur frjálshyggjumaður? Hvað er miðjumaður? Og segja hugtökin „hægri“ og „vinstri“ kannski miklu minna um fólk en við höldum?
Við ræðum meðal annars Locke, Rousseau, Burke, Tocqueville, Hayek, Sowell og Bobbio, ásamt frönsku byltingunni, Rómaveldi, norræna velferðarkerfinu, Bandaríkjunum, Sviss og íslenskum stjórnmálum.
Stærsta spurningin er kannski ekki hvort við séum hægra eða vinstra megin heldur hversu mikið vald viljum við afhenda ríkinu.
#5 - Andkristur eða ragnarök?
2026/10/15
Hvað ef við björgum heiminum en missum frelsið? Í þessu sjálfstæða framhaldi af síðasta þætti færum við sjónarhornið frá tækjunum í hversdagslífinu yfir á vinnu, vísindi, öryggi og vald.
Peter Thiel lýsir tveimur hættum: Ragnarökum ef sífellt öflugri tækni fer úr böndunum, og Andkristi ef óttinn við hörmungar fær okkur til að afhenda fáum aðilum stjórn á öllum hinum.Við spyrjum hvort það sé að hægja á framförum í raunheimum á meðan símar, tölvur og gervigreind þróast hratt. Hvað gerist þegar gervigreindin fær hendur og fer að vinna í raunheimum? Getur vél verið meðvituð? Hvar liggja mörkin milli þess að lækna manneskju og „uppfæra“ hana? Og hversu frjálst er valið að hafna nýrri tækni ef vinnan og samfélagið krefjast hennar?Hvernig verjum við okkur gegn hættulegri tækni án þess að byggja eftirlitsríki sem við getum ekki losnað undan?Þurfum við að velja milli Ragnaraka og Andkrists? Eða getum við haldið áfram að skapa, byggja og lækna - en um leið sett valdinu mörk?
#4 - Tækni fletur sálina
2026/10/09
Við ræðum hvað gerist þegar tæki leysa vanda en breyta um leið venjum okkar. Bíllinn kemur okkur hratt á milli staða, þvottavélin leysir okkur undan erfiðisvinnu og gervigreind getur hjálpað nemanda að skilja erfitt dæmi. En hvað gerist þegar þægindin taka líka frá okkur færni, athygli eða tíma með fólkinu sem stendur okkur næst?
Við förum frá Babelsturninum og eldi Prómeþeifs til Amish-fólks, snjallsíma, læknisfræði og gervigreindar. Við spyrjum, líkt og Neil Postman: Hvaða vandamál leysir ný tækni? Hvaða ný vandamál býr hún til? Hver nýtur hennar og hver getur í raun sagt nei?
Ódysseifur lét binda sig við mastrið áður en hann heyrði söng sírenanna. Þurfum við að setja okkur sambærileg mörk gagnvart tækjunum okkar?
Tæknin getur sagt okkur hvaða leið við eigum að fara en við þurfum sjálf að ákveða hvert.
#3 - Brauð og leikar
2026/10/02
Er síminn orðinn okkar eigið Colosseum? Brauð og leikar er gamalt hugtak úr Rómaveldi sem á enn erindi við nútímann. Þá voru það kornúthlutanir og stórkostlegir leikar. Hvað gegnir sama hlutverki í dag?
Við ræðum hvernig þægindi og afþreying geta haldið fólki uppteknu á meðan stærri spurningar um vald, frelsi og ábyrgð sitja á hakanum. Við tengjum brauð og leika Rómverja við íþróttir, samfélagsmiðla, endalausar þáttaraðir og fréttaflæði sem gefur okkur stöðugt eitthvað nýtt til að horfa á, gleðjast yfir eða reiðast.
Hvenær er afþreying góð hvíld og hvenær verður hún flótti frá eigin lífi? Þarf einhver að stjórna okkur ef við erum sjálf tilbúin að láta athyglina af hendi? Og þarf samsæri til, eða nægir að fyrirtæki græði á athygli okkar og stjórnmálamenn njóti góðs af því að við horfum annað?
Við skoðum tengsl þæginda, neyslu og þátttöku í samfélaginu. Hvað verður um borgarann þegar hlutverk hans snýst sífellt meira um að horfa, kaupa og láta þjónusta sig? Og hvernig tökum við aftur ábyrgð á tíma okkar, athygli og því samfélagi sem við viljum byggja?
#2 - Hermiþrá og René Girard
2026/09/29
Hvað er hermiþrá (e. Mimetic Desire)? Hvaðan koma langanir okkar ? Hvað langar þig að langa í?
Við ræðum hugmyndir fransk-bandaríska hugsuðarins René Girard um hermiþrá, sem meðal annars fjalla um það hvaðan langanir okkar koma og hvernig þær smitast manna á milli. Af hverju verður leikfang skyndilega spennandi þegar annað barn tekur það upp? Eru nútíma áhrifavaldar að spila á eðli mannsins?
Hvernig breytist fyrirmynd í keppinaut eða samkeppni í fjandskap? Getur sundraður hópur fundið samstöðu með því að finna sér blóraböggul? Sumir vilja meina að pólitíkusar spili á þetta eðli þegar þeir búa til óvini til að sameinast gegn.
Við tengjum Girard við Biblíuna, þjóðsögur, Peter Thiel, stjórnmál, vinnustaði og samfélagsmiðla. Einnig skoðum við hvort við stjórnumst alfarið af rökhugsun eða fyrst og fremst af ríkjandi orðræðu í samfélaginu, og hvernig tengist það hugmyndum Girard?
#1 - Ekkert nýtt undir sólinni
2026/09/29
Geta gamlar sögur hjálpað okkur að skilja nútímann? Hver er drifkraftur sögunnar? Endurtekur sagan sig? Er tíðarandinn lifandi fyrirbæri?
Við ræðum gamlar og góðar bókmenntir og skoðum hvað helstu hugsuðir fortíðarinnar höfðu að segja. Hér má til dæmis nefna Biblíuna, Hómer, Platón, Shakespeare, Dostójevskí, Nietzsche, René Girard og sögu Rómaveldis.
Við ræðum eðli mannsins og skoðum hvernig það hefur áhrif á samfélög og þróun sögunnar. Öfund, metnaður, freistingar, vald, sjálfsblekking og hjarðhegðun, en líka hugrekki, tryggð og fyrirgefning.
Hvernig tengist þetta allt nútímanum, erum við að endurtaka gömul mistök? Samfélagsmiðlar, gervigreind og nútímastofnanir eru ný fyrirbæri, en tæknibreytingar geta gert það að verkum að maðurinn fær nýjar leiðir til að endurtaka sömu mistökin.
Podcast reviews
Read Stóra myndin podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Stóra myndin relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.890681612
Fearless with Jason Whitlock
Blaze Podcast Network

4.838342000
Entrepreneurs on Fire
John Lee Dumas of EOFire

4.913561987
Wholesaling Inc with Brent Daniels
Find distressed properties for pennies on the dollar and turn them for huge profits!

4.831561382
The Late-Round Fantasy Football Podcast
iHeartPodcasts

4.6137891999
The Rubin Report
Dave Rubin

4.732772000
The President's Daily Brief
The First TV

4.672712000
Timcast News
Timcast Media

4.861551136
The David Pakman Show
David Pakman

4.917111576
DarrenDaily On-Demand
Darren Hardy LLC

4.6254042000
The Glenn Beck Program
Mercury Radio Arts