Karlmennskan

Advertise on podcast: Karlmennskan

Rating
4.7
from
12 reviews
This podcast has
128 episodes
Language
Explicit
No
Date created
2020/10/02
Average duration
58 min.
Release period
23 days

Description

Karlmennskuhugmyndir og viðfangsefni sem hafa snertiflöt við karla, jafnrétti eða karlmennsku eru til umfjöllunar í þessu hlaðvarpi.

Podcast episodes

Check latest episodes from Karlmennskan podcast


127. „Talaru íslensku?“ - Sara Cervantes
2023/10/28
Sara Cervantes er hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum sem flutti til Íslands fyrir nokkrum árum. Sara gefur innsýn í reynsluheim einstaklings sem reynir að aðlagast íslensku samfélagi en mætir ýmsum kerfisbundnum hversdagslegum og formlegum hindrunum.  Við Sara hittumst fyrst á fræðslufundi á Landspítalanum þar sem umræðuefnið var forréttindi og jaðarsetning. Innlegg Söru var svo áhrifamikið að ég varð að leyfa ykkur að heyra. Við spjöllum um forréttindi, jaðarsetningu, inngildingu, útilokun, hver ber ábyrgð á inngildingu á vinnustöðum og almennt í samfélaginu og „two minute investment“-leiðina sem Sara telur mun gagnlegri en að spyrja „talaru íslensku?“.    Viðtalið fer fram á ensku.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Yipin, vinsælasta tófú Svíþjóðar, býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar.
more
126. „Held ég hafi akkúrat nægar áhyggjur af drengjum í skólakerfinu“ – Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
2023/09/21
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er prófessor við deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands og hefur stundað rannsóknir á kennslukonum og kennslukörlum, rýnt í stöðu drengja í skólum og ásamt mörgu öðru skrifað bókina Karlmennska og jafnréttisuppeldi sem er brautryðjendaverk um karlmennsku og karlafræði.  Við stöldrum að mestu við nýlegar rannsóknir Ingólfs og félaga á nýbrautskráðum kennslukörlum og hvernig þeim tekst að komast inn í kennarastarfið, ræðum um umhyggju sem Ingólfur horfir á sem faglegt gildi sem sé algjörlega óháð kyni. Við færum okkur í seinni hluta viðtals í umræður um karlmennsku, jákvæða og skaðlega, hvort karlmennskuhugtakið sjálft festi í sessi misréttið í gegnum tvíhyggjuna og þá hvort jákvæð karlmennska geri nokkurt gagn til að berja á feðraveldinu og kapítalismanum – sem Ingólfur segir að sé nátengt. Þema þáttarins er því að mestu kennslukarlar, skólakerfið, staða drengja, umhyggja sem faglegt gildi og karlmennska.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla – Naruto   OUMPH! býður upp á þáttinn ásamt Maríuklæðum og bakhjörlum Karlmennskunnar.   Þú getur gerst bakhjarl Karlmennskunnar og tryggt að þetta hlaðvarp sé alltaf opið og aðgengilegt öllum: karlmennskan.is/styrkja 
more
125. „Stjörnur hrapa en kúkurinn flýtur“ - Dóri DNA (Halldór Laxness Halldórsson)
2023/08/31
Halldór Laxness Halldórsson, Dóri DNA, uppistandari og höfundur hefur komið víða við. Við höldum okkur þó á léttu nótunum eins og hægt er með áherslu á karlmennskuna, karllægni, gerendur og hliðverði dægurmenningar ungs fólks. Enda hafa mörg verka Halldórs skýra tengingu við karlmennsku eins og skáldverkið Kokkáll og sjónvarpsþættirnir Afturelding. Kryfjum aðeins baksvið sköpunarverkanna, persónulega sjálfsefann og veiku sjálfsmyndina sem dylst undir sjálfsörugga grínaranum.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) & Tom Deis - Green River   OUMPH! býður upp á þáttinn ásamt Maríuklæði og bakhjörlum Karlmennskunnar.   Þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is Samstarf og auglýsingar: thorsteinnv@karlmennskan.is 
more
124 „Eins og það sé körlum ekki eðlislægt að sjá skít“ Ragnheiður Davíðsdóttir
2023/06/19
„Hægt og rólega verður mylsna á borði til misskiptingar, sem [hann] tekur jafnvel ekki eftir“, er lýsandi setning úr ritgerð Ragnheiðar Davíðsdóttur sem rannsakaði hugræna vinnu meðal íslenskra para í meistararaverkefni sínu í kynjafræði við Háskóla Íslands. Líklega er þetta fyrsta íslenska rannsóknin sem mælir hugræna vinnu og niðurstöður eru í samræmi við reynslu sem ansi margar konur hafa lýst og erlendar rannsóknir hafa dregið ítrekað fram. Verkaskipting hugrænnar vinnu er bæði misskipt og kynjuð. Mæður í gagnkynhneigðum samböndum báru meiri hugræna byrði en feður. Mat viðmælenda á verkaskiptingu virtist bjagað, hefðbundin kvennastörf voru vanmetin en karlastörf ofmetin og pörin leituðust við að réttlæta misskiptinguna með ýmsum hætti og leituðust þannig við að falla að félagslega viðurkenndum jafnréttis- og réttlætishugsjónum.   Ragnheiður segir frá rannsóknarferlinu og fjallar nokkuð ítarlega um helstu niðurstöður sem vægast sagt eru afar áhugaverðar. Þá finnst mér við hæfi að draga fram að einkunn Ragnheiðar fyrir ritgerðina var 9,5 sem endurspeglar hversu vel þessi ritgerð var unnin, fræðilega vel undirbyggð og rannsóknarniðurstöður settar í fræðilegt samhengi. (Hægt er að ná á Ragnheiði í gegnum ragnheidurd96@gmail.com)    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Bakhjarlar karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn og þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja
more
123. Þriðja vaktin - Q&A með Huldu Tölgyes og Þorsteini V.
2023/06/10
Þriðja vaktin brennur ennþá á konum, einkum þegar þær eru í samböndum með körlum. Enda sýna rannsóknir að það sé meiri vinna fyrir konu að eiga börn og heimili með karlkyns maka en vera einstæð móðir.    Hulda Tölgyes sálfræðingur og Þorsteinn tóku þennan þátt upp í beinni útsendingu á Instagram hjá Huldu @hulda.tolgyes. Förum við yfir spurningar sem okkur bárust, í aðdraganda þáttarins og útskýrum ýmsa þætti sem snúa að þriðju vaktina, ábyrgðinni, lausnir og fleira.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Þátturinn er í boði ykkar: karlmennskan.is/styrkja
more
122. „Ég er búin að taka valdið“ - Dilja Pétursdóttir
2023/06/09
Dilja Pétursdóttir, fulltrúi okkar í Eurovision í ár, hefur ætlað sér að verða söngkona frá því hún tók þátt í Ísland got talent 12 ára gömul. Við spjöllum um Eurovision, strögglið við skuggana kvíða og þráhyggju, nýtilkomna frægð og fjölmiðlaumfjöllun um persónulegt líf hennar, tónlistarbransann og stóru plönin.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Hljóðbútar af youtube frá Ísland got talent og undanúrslitakvöldi Eurovision. karlmennskan.is/styrkja
more
121. „Hlustaðu, horfðu og neyttu“ — Guðmundur Jóhannsson
2023/05/10
121. „Hlustaðu, horfðu og neyttu“ — Guðmundur Jóhannsson Guðmundur Jóhannsson hefur verið tíður gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 með innslög um tækni og stafræna heima og starfar sem samskiptafulltrúi hjá Símanum. Orðfæri og orðanotkun Guðmundar vakti athygli mína en iðulega notast hann við kynhlutlaust mál sem mér þykir áhugavert komandi úr jafn karllægum geira. Mig langaði að forvitnast nánar um þetta. Við kryfjum stafræna heima með kynjagleraugunum í þessum þætti og snertum á heimskum lykilorðum, stóra gagnalekanum, blindu trausti okkar á tæknirisum sem þó eru eftirbátar í jafnréttismálum, algrímið sem þekkir okkur oft betur en við sjálf, gervigreind og Guðmundur útskýrir hvers vegna aldursviðmið samfélagsmiðla er 13 ár.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla – Naruto (án söngs)   Bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt, þú getur gerst bakhjarl inni á karlmennskan.is/styrkja og greitt frá 990 kr á mánuði.
more
120. „Mamma, hann er í kjól“ - Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson
2023/04/27
„Mamma, hann er í kjól“ - Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson Hann er næstum því sextugur, gagnkynhneigður, giftur í tæpa þrjá áratugi, með tvær háskólagráður, starfar í leikskóla og byrjaði að notast við varalit, naglalakk og kjóla fyrir nokkrum árum. Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson segist beita sínum karllægu forréttindum á þennan hátt til að hafa jákvæð áhrif á börnin sem hann starfar með en fyrst og fremst vegna þess að honum líður vel þannig. Honum er nákvæmlega sama hvað fólki finnst um hann og segist almennt fá stuðning fyrir að rjúfa hefðbundinn ramma karlmennskunnar. Enda telur hann það vera karlmennsku að geta staðið utan við hina hefðbundnu ímynd.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Veganbúðin, BM Vallá og ÖRLÖ ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.   . . . Þú getur stutt við frekari hlaðvarpsþáttagerð og fræðslumiðlun á samfélagsmiðlum með því að gerast bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja
more
119. „Þá þarf ég bara femínista sem er að pæla í píkum“ - Nanna Hlín Halldórsdóttir
2023/04/11
Nanna Hlín Halldórsdóttir er doktor í femínískri heimspeki og kennari við Háskóla Íslands. Hún hefur kennt um eðlishyggju gegn mótunarhyggju, rannsakað á doktorsstigi hvort berskjöldun geti verið andsvar femínískrar heimspeki við nýfrjálshyggju og skrifað um iðrun, ábyrgð, tilfinningar, slaufun og fleira.   Við förum í örlítinn nördaskap um eðli (karl)mannsins og skilin á milli líkama og félagslegrar mótunar en snertum á ýmsu sem hefur verið í deiglunni eins og áherslum femínismans, áhrifum hans á samfélagið, iðrandi leikþátt manna sem nenna ekki að vinna neina tilfinningavinnu, förum inn í tilgang og svigrúm berskjöldunar, kryfjum eðlið með aðstoð Butler og fleira.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Viðmælandi: Nanna Hlín Halldórsdóttir doktor í femínískri heimspeki Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   VEGANBÚÐIN, ÖRLÖ og BM VALLÁ ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn.
more
118. „Svona er ég bara“ - Biggi Veira
2023/03/23
Birgir Þórarinsson eða Biggi Veira tónlistarmaður, sem mörg tengja líklega við GusGus, hefur ekki látið þröngan stakk karlmennskuhugmynda skilgreina sig, sérstaklega ekki fataval sitt og kyntjáningu. Enda er hann reglulega í sokkabuxum, blússum eða kjólum sem teljast almennt til kvenfatnaðar og vel farðaður, þótt hann sé stundum beðinn um að vera ekki of mikið málaður t.d.fyrir foreldraviðtöl.  Biggi lýsir því hvernig hann áttaði sig mjög snemma að hann hneygðist að hefðbundnum kvenfatnaði, þótt erfitt sé að lýsa því eða réttlæta enda byggt á djúpstæðum tilfinningum. Það var samt ekki fyrr en í kringum aldamótin sem hann kemur „út úr skápnum“, ekki sem kona eða hommi, heldur hann sjálfur. Miðaldra gagnkynhneigður sís karlmaður, ráðsettur faðir í sambúð með konu sem klæðir sig og farðar eins og kona en er hrútskýrari og hálfgert alpha male.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Viðmælandi: Birgir Þórarinsson (Biggi Veira) Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   ÖRLÖ, Veganbúðin, BM Vallá og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
more
117. „Það sem er mjúkt getur ekki brotnað“ - Spindrift, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir
2023/03/09
THEM er verk um karla að díla við eitraða karlmennsku og konur að díla við karla - og öll að reyna bara að fá að vera… bara vera! Fjórar konur frá Íslandi og Finnlandi kafa ofan í heim karla og segja sögur af ást, stolti, föðurhlutverkinu og óttanum við að vera öðrum byrði. Með því að heimsækja líf annarra leitast leikkonurnar við það að skilja sína eigin stöðu í heimi sem ekki er hannaður fyrir þær.    Leikverkið THEM er sýnt aðeins einu sinni í viðbót þann 14. mars í Tjarnarbíói (miðar á TIX) og er afrakstur af viðtalsrannsókn við fjölda karla á Íslandi og Finnlandi. Leitast leikarnir við að varpa ljósi á karlmennsku af mýkt og næmni, án þess að dæma en þó þannig að áhorfandinn geti speglað sig og sín eigin viðhorf.  Við spjöllum um leikverkið, tilurð þess, áhrif metoo byltingarinnar sem kemur inn í mitt sköpunarferlið og það hvort og hvers vegna konum leyfist að gera leiksýningu um karlmennsku.    Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Viðmælendur: Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir leikkonur.   Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn. Þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja 
more
116. „Ég er ekki sammála því“ - Þórarinn Hjartarson
2023/02/23
Þórarinn Hjartarson stjórnmálafræðingur og nemi í MPA í opinberri stjornsýslu, hnefaleikaþjálfari og starfsmaður á sambýli heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling og sendir reglulega frá sér skoðanapistla sem hafa verið birtir á Vísi. Það má líklega segja að skoðanir, fullyrðingar og afstaða Þórarins í þessum pistlum séu í andstöðu við femíníska hugmyndafræði enda er hann oft að hæðast að málefnum jaðarsettra eða því sem hann kallar „woke-isma”. Ég tel að sjónarmið Þórarins endurspegli viðhorf ansi margra sem eru orðnir þreyttir á byltingum og baráttum sl ára, sem telja sig geta valið hlutleysi gagnvart samfélagsmálum í skjóli eigin forréttindafirringar og langar því að fá að forvitnast nánar um sjónarhorn og afstöðu manns sem er að mörgu leiti á skjön við mitt eigið.  Tilgangurinn með þættinum er að varpa ljósi á viðhorf einstaklings sem er gagnrýninn á femíníska baráttu og bjóða upp á samtal tveggja einstaklinga sem eru ósammála í flestum málum, þrátt fyrir líka félagslega stöðu. Ætli megi ekki segja að hér séu tveir bergmálshellar að mætast og eiga samtal um völd, fjármögnun hins opinbera, Woke-isma, jafnrétti, femínisma, tjáningarfrelsi, forréttindi og skoðanir.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs)   Veganbúðin, ÖRLÖ og BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn.
more

Podcast reviews

Read Karlmennskan podcast reviews


4.7 out of 5
12 reviews
Hörður 2021/07/10
Áfram Karlmennskan!
Elska þessa þætti og ótrúlega gaman að sjá þetta verkefni stækka og stækka
check all reviews on aple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Karlmennskan & sponsor relevant audience podcasts


What do you want to promote?

Ad Format

Campaign Budget

Business Details